Morgunblaðið - 15.02.2001, Page 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 35
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru
númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í Degi
fimmtudaginn 15. febrúar. Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
1. flokki 1991 – 37. útdráttur
3. flokki 1991 – 34. útdráttur
1. flokki 1992 – 33. útdráttur
2. flokki 1992 – 32. útdráttur
1. flokki 1993 – 28. útdráttur
3. flokki 1993 – 26. útdráttur
1. flokki 1994 – 25. útdráttur
1. flokki 1995 – 22. útdráttur
1. flokki 1996 – 19. útdráttur
2. flokki 1996 – 19. útdráttur
3. flokki 1996 – 19. útdráttur
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. apríl 2001.
Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til
Costa del Sol í sumar á frábærum kjörum
og þeir sem bóka fyrir 15.mars geta tryggt
sér allt að 32.000 afslátt fyrir fjölskylduna
í valdar brottfarir, eða kr. 8.000 á manninn. Við bjóðum þér vinsælustu
gististaðina á ströndinni, spennandi kynnisferðir í fríinu og þjónustu reyn-
dra fararstjóra til að tryggja þér ánægjulega dvöl í fríinu.
Bókaðu til
Costa del Sol
og tryggðu þér
32.000 kr.
afslátt í sumar
Verð kr. 37.785
M.v. hjón með 2 börn, 24.maí,
vikuferð, Santa Clara, með
8.000 kr. afslætti.
Verð kr. 46.330
M.v. 2 í studio, Bajondillo, 24.
maí, vikuferð, með
8.000 kr. afslætti.
Verð kr. 43.985
M.v hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
28.júní, í 2 vikur, Santa Clara,
með 8.000 kr. afslætti.
Flug alla
fimmtudaga
Lægsta verðið í sólina
Fáðu bæklinginn sendann
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
alltaf á föstudögum
Í MÖGULEIKHÚSINU eru hafnar
æfingar á Skuggaleik, nýju
barnaleikriti eftir Guðrúnu
Helgadóttur í leikstjórn Brynju
Benediktsdóttur. Leikarar eru
Pétur Eggerz og Bjarni Ingvars-
son. Þetta er annað leikrit höf-
undar en áður hafði hún samið
Óvita sem sýndir voru í Þjóðleik-
húsinu við miklar vinsældir, einn-
ig í leikstjórn Brynju. Leikmynda-
hönnuður verksins er Tryggvi
Ólafsson myndlistarmaður. „Þetta
er í fyrsta sinn sem Tryggvi vinn-
ur fyrir leikhús á sínum lista-
mannsferli og við í Möguleikhús-
inu bindum auðvitað miklar vonir
við samstarfið við þessa þrjá frá-
bæru listamenn,“ segir Pétur
Eggerz.
Í Skuggaleik segir frá Binna
litla, sem er heldur leiðinlegur
gutti. Meira að segja skugginn
hans er helst á því að yfirgefa
hann. En áður en til þess kemur
líkamnast skugginn og fer með
Binna yfir litróf lífsins, svona til
að benda honum á sitthvað sem
betur mætti fara. Það kemur svo í
ljós að þótt Binni sé einkabarn
eru foreldrar hans önnum kafnir
við að skaffa og veita honum ekki
mikla athygli. Ýmsar fleiri per-
sónur koma við sögu, m.a. kettir
og fuglar. Leikritið verður um 40
mínútur í flutningi og er ætlað
fyrir börn á leikskólaaldri og í
yngstu bekkjum grunnskólans.
Frumsýning er fyrirhuguð í
Möguleikhúsinu 10. mars en síðan
verður sýningin á faraldsfæti um
leikskóla og grunnskóla landsins.
Nýtt barnaleikrit eftir Guðrúnu Helgadóttur
Morgunblaðið/Kristinn
Pétur, Brynja, Guðrún og Bjarni í Möguleikhúsinu.
Skugginn líkamnast og
fer yfir litróf lífsins
ÞÁ hneggjaði Freyfaxi: Stað-
fræði og minjar, arfsagnir og upp-
spuni í Hrafnkels sögu Freysgoða,
hefur að geyma níu ritgerðir frá
þremur síðustu
áratugum og
þrjár nýjar, Blót-
minni og goðgá,
Arfsagnir og
uppspuni og Fað-
ernismál eftir
Jón Hnefil Að-
alsteinsson. Um
þessar þrjár rit-
gerðir segir höf-
undurinn m.a.:
„Í Faðern-
ismálum tók ég undir þá ályktun
Sigurðar Nordals, að upphafskafli
Hrafnkels sögu Freysgoða væri
verk höfundarins en ætti ekki rætur
að rekja til munnmælasagna sem
gengið höfðu á Austurlandi. Í kafl-
anum Blótminni og goðgá tók ég á
hinn bóginn, með viðbótarrökum,
undir þá niðurstöðu ýmissa fræði-
manna að blótminni Hrafnkels sögu
Freysgoða, spjöllin á Freyfaxa og
viðbrögð hestsins, dráp smala-
mannsins, henging áttmenninganna
á váðásinn, uppgangur Hrafnkels í
Fljótsdal, víg Eyvindar og endur-
heimt Aðalbóls væru samtengd og
ættu að öllum líkindum rætur í forn-
um trúarsögnum um Hrafnkel goða
Hrafnsson.“
Aðrar ritgerðir í bókinni nefnast
Þá hneggjaði Freyfaxi, Sverðið úr
Hrafnkelsdal, Byggðaleifar í Hrafn-
kelsdal, Konubein í kumli, Freys-
minni í fornsögum, Jökuldalsmenn
og Hallfreðargata, Freyfaxahamarr,
Eftirhreytur um Freyfaxahamarr
og loks Hrafnkötluútgáfan 1942. Í
lok bókarinnar fylgir stutt saman-
tekt á ensku.
Höfundur bókarinnar, Jón Hnefill
Aðalsteinsson, er fæddur og uppal-
inn á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, á
söguslóðum Hrafnkels sögu Freys-
goða. Í formála segir hann m.a. að
frá bernskualdri hafi sagan verið sér
hugstæð og þrátt fyrir margvíslegar
tilraunir sínar til að samræma lýs-
ingar bókarinnar við staðhætti í
Hrafnkelsdal hafi það reynst
ómögulegt. Síðar, þegar hann byrj-
aði að líta á söguna sem skáldskap,
með takmarkaðar rætur í raunveru-
leikanum, hafi hann verið þess albú-
inn að ljúka þessari bók sem hann
hefur unnið að í áratugi.
Jón Hnefill Aðalsteinsson er guð-
fræðingur frá Háskóla Íslands, fil.
cand. í trúarbragðasögu og heim-
speki frá Háskólanum í Stokkhólmi
og doktor í þjóðfræði frá Uppsalahá-
skóla. Hann er prófessor emerítus
við Háskóla Íslands.
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókin er kilja og er 225 bls. Verð:
3.200 kr.
Nýjar bækur
Jón Hnefill Að-
alsteinsson
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ
Hellas og Oddafélagið halda sameig-
inlega málstefnu nk. laugardag kl. 14
í fundarsal á 1. hæð Þjóðarbókhlöðu.
Hún fjallar um áhrif grískrar og lat-
neskrar menningar á Íslandi að
fornu og ber heitið „Fornar menntir
á fræðasetrum“.
Framsögumenn verða þau Guðrún
Nordal, sem flytur erindi er hún
nefnir „Snorri Sturluson og skóla-
nám á miðöldum“, og Gottskálk Þór
Jensson sem kallar erindi sitt
„Grískættaðar fornsögur á Íslandi“.
Að loknum framsöguerindum verða
umræður.
Fornar menntir á
fræðasetrum
Listasafn ASÍ við Freyjugötu
Sýningu Hlyns Helgasonar „Um
listina“ lýkur nú á sunnudag. Á sýn-
ingunni eru ferilsmálverk máluð á
síðastliðnum fjórum árum, kvik-
myndainnsetning og lýðræðislegur
hljóðskúlptúr. Í hljóðskúlptúrnum,
„Stöpli“, má heyra íbúa við Freyju-
götu og Mímisveg ræða hvað gera
skuli við stöpul að baki Ásmundar-
salar og sjá sjónarhorn þeirra yfir
stöpulinn. Kvikmyndirnar sýna ann-
ars vegar þegar ekið er í gegnum
þvera Reykjavík og hins vegar um-
hverfi innanhúss í gömlu eldhúsi á
Norðurlandi. Í ferilsmálverkunum
grandskoðar Hlynur eðli málverks-
ins í upphafi aldar með því að fylgja
ákveðnum reglum við gerð mál-
verksins.
Sýningin er opin frá 14 til 18 alla
daga.
Sýningu
lýkur
TVEIR blandaðir kórar eldri borg-
ara halda tónleika í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði nk. laugardag kl. 16.
Kórarnir, Samkórinn Hljómur frá
Akranesi og Gaflarakórinn frá
Hafnarfirði, flytja hvor sína söng-
skrá og einnig sameiginlega nokkur
lög.
Stjórnandi Samkórsins Hljóms er
Lárus Sighvatsson og undirleikari
Ásdís Ríkharðsdóttir. Stjórnandi og
undirleikari Gaflarakórsins er Guð-
rún Ásbjörnsdóttir, undirleikari á
harmonikku er Valgarð Sigmarsson
og Jón V. Tryggvason leikur á
trommur.
Tveir kórar
í Víðistaða-
kirkju
♦ ♦ ♦