Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 36
LISTIR
36 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EINS og rauður þráður í tónleika-
haldi í Salnum er tónleikaröðin Tíbrá
sem Kópavogsbær hefur staðið fyrir
frá árinu 1990 og hefur vaxið og
dafnað allar götur síðan. Tónleikarn-
ir skipta orðið hundruðum frá upp-
hafi.
Á liðnu hausti var að auki ákveðið í
samvinnu við Tónlistarskóla Kópa-
vogs að hafa sérstaka tónleikaröð
kennara skólans í samvinnu við bæj-
aryfirvöld. Hafa nú þegar verið flutt-
ir þrennir slíkir tónleikar og aðrir
þrennir eru framundan nú á vorönn.
„Ég tel ástæðu til að hrósa forráða-
mönnum bæjarfélagsins sérstaklega
fyrir það hversu rausnarlega þeir
standa að Tíbrárröðinni,“ segir Vig-
dís Esradóttir, framkvæmdastjóri
Salarins.
Fyrir utan tónleikaraðirnar eru
svo ótaldir þeir mörgu tónlistarmenn
sem taka Salinn á leigu og halda tón-
leika á eigin vegum. „Mér telst svo til
að nú þegar séu bókaðir hátt í sjötíu
tónleikar alls á vorönn, þ.e. frá janú-
ar og út maí. Mest er um að vera í
mars og apríl, og kemur þar meðal
annars til aðaluppskerutími tónlist-
arskólanna. Hér eru til dæmis haldn-
ir allir burtfarar- og einleikaraprófs-
tónleikar frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík í mars og byrjun apríl,
alls um tíu talsins,“ segir Vigdís.
Ferðalag til
Frakklands
Of langt mál er að telja upp alla þá
tónleika sem á döfinni eru á næstu
mánuðum en Vigdís er beðin að
stikla á stóru til að gefa hugmynd um
fjölbreytnina í tónleikahaldi næstu
mánaða. Fyrsta nefnir hún upphafs-
tónleikana í fyrirhugaðri tónleikaröð
þeirra Daníels Þorsteinssonar
píanóleikara og Sigurðar Halldórs-
sonar sellóleikara sem hefst um
næstu helgi. „Röðina kalla þeir því
snjalla nafni Ferðalög sem felur í sér
skemmtilega tvöfalda merkingu.
Fyrsta ferðalagið sem þeir fara með
okkur í er til Frakklands, núna á
laugardaginn kl. 16. Í hvert ferðalag
bjóða þeir með sér á sviðið einum
listamanni og sá verður að þessu
sinni Finnur Bjarnason tenórsöngv-
ari,“ segir Vigdís og kveðst þegar
vera búin að veiða upp úr þeim félög-
um að þarnæst sé ferðinni heitið til
Rússlands.
Tónleikum sópransöngkonunnar
Ellen Lange og Jónasar Ingimund-
arsonar píanóleikara, sem vera áttu
nk. sunnudag, hefur verið frestað.
„Ellen Lange syngur við Metropolit-
an-óperuna og er á förum með henni
í tónleikaferð til Japans, þannig að
ákveðið var að fresta tónleikum
hennar í Salnum fram á haustið.“
Tvíleikur á selló og píanó er yf-
irskrift Tíbrártónleika 20. febrúar en
þar leika þau Gunnar Kvaran og
Selma Guðmundsdóttir verk eftir
Chopin, Schumann og fleiri.
Mikið um að vera
í marsmánuði
Í mars er mikið um að vera í Saln-
um og má þar nefna kórtónleika,
djasstónleika, kammertónleika, raf-
og tölvutónleika og meira að segja
kántrýtónleika, auk áðurnefndra
skólatónleika.
Una Sveinbjarnardóttir og Anna
Guðný Guðmundsdóttir flytja verk
fyrir fiðlu og píanó eftir Bach,
Beethoven, Lutoslawski og Saint-
Säens á tónleikum 3. mars. Þá vekur
Vigdís sérstaka athygli á píanótón-
leikum Ásu Briem 4. mars. „Hér er á
ferð ung stúlka sem ekki hefur
heyrst mikið til ennþá en á hennar
áhugaverðu efnisskrá er að finna
verk eftir Arvo Pärt, John Foulds,
Beethoven, David Helbich og hana
sjálfa,“ segir Vigdís.
Skólahljómsveit Kópavogs heldur
tónleika 8. mars en það verða þriðju
tónleikar sveitarinnar í Salnum.
„Það er alltaf gaman að fá þau hing-
að í húsið,“ segir Vigdís og lofar fjör-
ugum tónleikum.
Um miðjan mars er komið að tón-
listarhópnum Contrasti sem stofnað-
ur var á síðasta ári en hann stefnir
saman endurreisnar- og nútímatón-
list, sunginni, leikinni og dansaðri.
Þá nefnir Vigdís djasstónleika Sig-
urðar Flosasonar seinnipart mars en
Sigurður ætlar einnig að taka þar
upp geisladisk. Vigdís segir að Sal-
urinn sé í auknum mæli notaður sem
hljóðver, enda orðinn fullbúinn til
þeirra nota.
Í lok mars eru ráðgerðir kamm-
ertónleikar þar sem þau Sigrún Eð-
valdsdóttir, Zbigniev Dubik, Helga
Þórarinsdóttir, Ásdís Valdimars-
dóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og
Michel Stirling stilla saman strengi í
tveimur sextettum eftir Brahms og
Tsjajkovskíj. Síðast á dagskrá mars-
mánaðar er svo afmælishátíð Jóns
Múla Árnasonar sem Mál og menn-
ing hefur veg og vanda af.
Frumflutt verk eftir
Misti og Karólínu
Fyrst á dagskrá aprílmánaðar
nefnir Vigdís píanótónleika Jónasar
Ingimundarsonar. „Jónas verður
með glæsilega efnisskrá – ég veit það
vegna þess að ég hef heyrt hann æfa
sig. Hann ætlar að spila verk eftir
Beethoven, Debussy og Liszt. Jónas
er fyrst og fremst þekktur fyrir að
hafa söngvara sér við hlið en þegar
hann velur sér efnisskrá fyrir ein-
leikstónleika ræðst hann heldur ekki
á garðinn þar sem hann er lægstur.“
Í annarri viku apríl er komið að
þeim Einar Jóhannessyni klarin-
ettuleikara og Erni Magnússyni pí-
anóleikara, sem munu m.a. frum-
flytja tvö ný tónverk; eftir Misti
Þorkelsdóttur og Karólínu Eiríks-
dóttur. Hið árlega Páskabarokk
verður á sínum stað, að þessu sinni
ítölsk söng- og hljóðfæratónlist, og
eftir páska koma þau Magnea Tóm-
asdóttir sópransöngkona og Gerrit
Schuil píanóleikari og flytja verk eft-
ir Wagner og Verdi. Fast á hæla
þeim fylgja þær Eydís Franzdóttir
og Helga Bryndís Magnúsdóttir sem
leika á óbó og píanó verk eftir Bach,
Schumann, Lutoslawski og Doráti.
Dagskrá helguð Jóni úr Vör
á afmæli Kópavogsbæjar
Dagskrá maímánaðar hefst með
tvíleik þeirra Sigurbjörns Bern-
harðssonar og Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur á fiðlu og píanó. Þau
leika verk eftir Bach, Bartók og
Beethoven. Á afmæli Kópavogsbæj-
ar 11. maí verður dagskrá tileinkuð
Jóni úr Vör og verkum hans. Þar
koma fram Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir sópransöngkona, Hjalti Rögn-
valdsson leikari og Jónas Ingimund-
arson píanóleikari. „Svo kemur til
okkar um miðjan maí vestur-íslensk
söngkona frá Kanada, Carole Davies
að nafni. Þá heldur Trio Nordica tón-
leika sem var frestað síðastliðið
haust vegna veikinda. Tríóið skipa
þær Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís
Halla Gylfadóttir og Mona Sand-
ström,“ segir Vigdís. „Ekki má svo
gleyma að rétt eins og tíðkast hefur
frá upphafi tónleikahalds hér í hús-
inu þá verðum við með tónleika fyrir
öll grunnskólabörn í Kópavogi. Að
þessu sinni kemur þjóðlagahópurinn
Embla og spilar og syngur fyrir
börnin,“ bætir hún við.
Þrennir tónleikar í viku
Nú þegar tveimur heilum starfs-
árum er lokið og gott betur er hægt
að fara að líta til baka og skoða tölur.
Vigdís segir að það hafi komið sér
nokkuð á óvart að nú þegar sé komin
ákveðin formfesta í starfið og rekst-
urinn. „Það var skemmtileg tilviljun
að á tímabilinu frá janúar til júní
fyrsta árið, þ.e. 1999, voru 66 tón-
leikar í Salnum. Á sama tíma árið
2000 voru tónleikarnir 67 og á yf-
irstandandi vorönn er búið að bóka
66 tónleika á þessu tímabili,“ segir
hún og bætir við að starfsemin hafi
almennt gengið mjög vel og mikil
ánægja sé ríkjandi – húsið sé stolt
Kópavogs. Hins vegar segir hún að
aðsóknin mætti alveg vera betri en
kveðst telja að mikið framboð menn-
ingarviðburða á nýliðnu menningar-
borgarári geti að einhverju leyti
skýrt að aðsókn á tónleika í Salnum
það árið hafi ekki alltaf verið upp á
það besta.
Að jafnaði eru þrennir tónleikar í
viku hverri í Salnum, sé miðað við
níu mánuði ársins en minna er um
tónleikahald í húsinu yfir sumartím-
ann. Vigdís segir að þótt ekki hafi
verið gert stórátak í markaðssetn-
ingu vegna ráðstefnuhalds hafi húsið
verið vinsælt til þess brúks en nú eru
haldnar þar að meðaltali tvær ráð-
stefnur á mánuði. „Ég hef reyndar
heyrt því fleygt að húsið sé best
varðveitta leyndarmálið í ráðstefnu-
bransanum,“ segir hún.
Í vor verður hafist handa við ann-
an áfanga Menningarmiðstöðvar
Kópavogs sem svo hefur verið köll-
uð. Fyrsti áfanginn var sem kunnugt
er Tónlistarhús Kópavogs, sem hýsir
Salinn og Tónlistarskóla Kópavogs.
Seinni áfanginn gengur undir nafn-
inu Safnahús Kópavogs og þangað
flytja undir eitt þak Bókasafn Kópa-
vogs og Náttúrufræðistofa Kópa-
vogs. Ætlunin er að ljúka byggingu
Safnahússins á einu ári og hefja
starfsemi þar vorið 2002.
Að lokum kveðst Vigdís vilja vísa á
heimasíðu Salarins, þar sem er að
finna allar upplýsingar um starfsemi
hússins og tónleikadagskrána fram-
undan. Slóðin er www.salurinn.is.
Morgunblaðið/Arnaldur
Glatt var á hjalla á lokatónleikum söngveislu sem haldin var til heiðurs Halldóri Hansen barnalækni í Salnum á liðnu vori.
Hátt á sjöunda tug tón-
leika í Salnum á vorönn
Salurinn í Tónlistarhúsi Kópavogs á nú að
baki tvö heil starfsár og er óhætt að segja
að viðtökurnar hafi verið góðar, hjá flytj-
endum jafnt sem áheyrendum. Margrét
Sveinbjörnsdóttir spurði Vigdísi Esradótt-
ur, framkvæmdastjóra Salarins, út í það
helsta sem framundan er á vorönn 2001.
Morgunblaðið/Kristinn
Vigdís Esradóttir, framkvæmdastjóri Salarins.