Morgunblaðið - 15.02.2001, Síða 37

Morgunblaðið - 15.02.2001, Síða 37
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 37 NEMENDAMÓTSSÝNINGAR Verzlunarskólans eru að réttu róm- aðar sem fjörug og litrík skemmtun og svo verður vafalaust einnig um þessa. Nú er það tónlist og tíðarandi níunda áratugarins sem er endur- vakinn. Grunnhugmyndin er snjöll, nú- tímadrengur ferðast aftur til ársins 1984 til að bjarga sambandi foreldra sinna, og reynir í leiðinni að bjarga því sem bjargað verður í poppmenn- ingunni á þessu víðfræga niðurlæg- ingartímabili. Honum verður nokk- uð ágengt á hvorum tveggja vígstöðvum, en að lokum fara fyr- irætlanirnar út af sporinu á skraut- legan hátt. Það má leiða að því líkum að hvergi á íslensku leiksviði sé betur dansað og sungið um þessar mundir en í Loftkastalanum. Fagmennska og vald Verzlinga á þessum við- fangsefnum er einstakt. Í saman- burði verður leiktúlkunin oft æði viðvaningsleg, og má vel vera að óhagstæður samanburður við full- komnunina á hinum sviðunum geri ágallana meira áberandi en annars væri. En munurinn snýst ekki bara um gott og slæmt, fagmennsku og fúsk. Hann liggur að mér virðist líka í afstöðunni til viðfangsefnisins, og þar snýst dæmið í vissum skilningi við. Leiktextinn er fullur af fyndni, háði og hugmyndum, eins og við er að búast frá Hallgrími, og fléttan vísvitandi áreynslukennd stundum, eins og í gömlum farsa sem við hlæj- um að fyrst og fremst fyrir hallær- isganginn. Það er einkum í leiktextanum sem skopstælingin á öld Gleðibankans birtist. Þegar kemur að tónlistaratriðun- um færist hins vegar fagmannleg al- vara yfir hópinn, það vottar ekki fyr- ir háðinu og kraftmiklu stjórn- leysinu sem einkennir leikatriðin. Undantekningin er frelsissöngur föðurins, algerlega óborganlegt at- riði sem sýndi hvers konar mögu- leikar voru fyrir hendi ef skítaglottið úr leikatriðunum hefði fengið að færast betur yfir tónlistarnúmerin. En nóg komið af greiningu, þrátt fyrir þetta er auðvitað óhemju gam- an og frammistaða margra prýðileg á öllum vígstöðvum. Fyrstan ber þá að telja Þorvald Davíð Kristjánsson sem tímaflakkarann Tomma. Þetta er „virtúósahlutverk“ sem Þorvald- ur skilar eins og sá sem valdið hefur. Foreldrar hans eru þau Valdimar Kristjónsson og Rakel Sif Sigurðar- dóttir og eru bæði prýðileg. Af smærri hlutverkum má nefna Sigurð Hrannar Hjaltason sem er sannfær- andi viðurstyggð sem Ómar ofurtöff- ari og grúppíurnar Jódísi og Glódísi sem Lydía Grétarsdóttir og María Þórðardóttir gerðu hárrétt skil. Allt útlit er nógu rétt til þess að slá út köldum svita á okkur sem upp- lifðum tímabilið og svo verða líklega jafnt Duran Duran-menn sem Whamliðar að horfast í augu við það: Þetta er ekki lífvænleg tónlist. Wake me up before you go go er prýðileg skemmtun. Leikverkið er hraðsoðið en fullt af lífi og skemmti- legheitum, leikurinn misgóður en alltaf kraftmikill. Tónlistin er frá- bærlega flutt en kannski af óverð- skuldaðri virðingu. Líklega er hér eitthvað fyrir alla. Duran eða Wham? LEIKLIST N e m e n d a m ó t V e r z l u n a r s k ó l a Í s l a n d s Handritshöfundur: Hallgrímur Helgason. Leikstjóri: Gunnar Helgason. Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson. Leikmynd og ljós: Sig- urður Kaiser. Danshöfundur: Guð- finna Björnsdóttir. Loftkastalanum þriðjudaginn 13. febrúar 2001. „WAKE ME UP BEFORE YOU GO GO“ Þorgeir Tryggvason AÐALSTEINN Ingólfsson listfræð- ingur flytur fyrirlestur um grafíska hönnun Harðar Ágústssonar, mynd- listarmanns og fyrrverandi skóla- stjóra Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands, í Listahá- skóla Íslands, Laugarnesvegi 91 í kvöld kl. 20 í stofu 24. Þetta er síðari fyrirlesturinn um verk Harðar en Listaháskóli Íslands fékk einnig list- fræðinginn Halldór Björn Runólfs- son til þess að flytja fyrirlestur um verk hans í síðustu viku. Eftir fyr- irlesturinn svarar Hörður fyrir- spurnum ásamt fyrirlesara. Fyrirlestur um Hörð Ágústsson Hörður Ágústsson HJÁ leikhópnum Veru á Fá- skrúðsfirði standa nú yfir æfingar á hinu sígilda barnaleikriti Thor- björns Egners Dýrunum í Hálsa- skógi og verður frumsýning í félagsheimilinu Skrúði föstudags- kvöldið 2. mars. Velflestir leikarar nemendur í grunnskólanum Sýningin er samstarfsverkefni leikfélagsins og grunnskóla Fá- skrúðsfjarðar og eru velflestir leikarar nemendur í skólanum. Kennarar leggja til aðstoð við leikmynd, búninga og fleira. Leikstjóri sýningarinnar er Björn Gunnlaugsson. Að sögn hans hefur leikhúslíf staðið í mikl- um blóma á Fáskrúðsfirði undan- farin misseri, en fyrr í vetur var Ágústa Skúladóttir fengin til að halda leiklistarnámskeið og var í framhaldi af því sett á svið skemmtidagskráin „Viltu með mér vaka?“ sem hlaut góðar við- tökur. Einnig hefur leikfélagið staðið fyrir götuleikhúsi í tengslum við franska daga á Fá- skrúðsfirði og mun ætlunin að endurtaka þann leik nú í ár. Næstu sýningar á Dýrunum í Hálsaskógi verða 4., 10., 11. og 18. mars. Dýrin í Hálsaskógi æfð á Fáskrúðsfirði Í BYRJUN þorra var haldin í Edinborg þriggja daga norræn tónlistarveisla sem bar yfirskriftina „Nætur norðursins“. Tónlistar- viðburður þessi var til heiðurs norrænum tón- skáldum. Af þrettán tónskáldum áttu Ís- lendingar þrjú; Hafliða Hallgrímsson, Atla Heimi Sveinsson og Jón Nordal. Tónleikarnir fengu lofsamlega dóma í dag- blöðum í Skotlandi og þá ekki síst þáttur Haf- liða. Síðasta dag hátíð- arinnar flutti Skoska BBC-sinfóníu- hljómsveitin verk eftir fjögur tónskáld í beinni útsendingu. Að loknum tónleikunum voru höfundar teknir tali og spurðir út í verkin. Þau voru Anders Hillborg frá Svíþjóð, verkið „Celestial Mechanics“, Haf- liði Hallgrímsson, verkið „Still Life“, Karin Rehnqvist frá Svíþjóð, verkið „Time of Taromir“ og Poul Ruders frá Danmörku, verkið „Corpuscum figuris“. Flutningurinn var undir stjórn ungs sænsks stjórnanda, Sus- önnu Málkki. Að sögn Hafliða var þetta að sumu leyti ný reynsla, að verða allt í einu sýnilegur fyrir áheyrendum. En við- brögð þeirra voru góð við að heyra og sjá höfundana og heyra um upp- lifun þeirra á flutningnum. Litskrúðugt tónlistarlíf Í Edinborg er tónlistarlífið afar litskrúðugt, með sinfóníum og kammersveitum. Nokkuð er gert af því að flytja nýja klassíska tónlist, en Edinborg státar af einni stærstu tónlistarhátíð klassískra verka í Evrópu. Leið Hafliða og eiginkonu hans, Ragnheiðar Árnadótt- ur tónlistarkennara, lá til Edinborgar fyrir 23 árum. Þau höfðu verið búsett á sjöunda ára- tugnum í London og voru það blómlegir tímar í lífi tónskáldsins, en þegar fyrsta barn þeirra hjóna kom í heiminn var hugað að heimferð. Um sama leyti fékk Hafliði boð um að spila sem fyrsti sellóleikari í Edinborg. Var það einungis hugs- að sem millilending á leiðinni heim til Ís- lands. Nú, 23 árum síð- ar og með stærri fjölskyldu, hafa þau hjónin búið sér sérstaklega notalegt heimili rétt við miðborgina, en heim- ili þeirra er í dag vinnustaður hans. Áhugi á Norður- löndunum Að sögn Hafliða hefur mikill vöxt- ur færst í tónlistarlífið í borginni og er alltaf að eflast. Hér í Skotlandi er meiri áhugi á Norðurlöndunum en í Englandi og njóta tónskáldin meðal annars góðs af því. Þegar Hafliði hafði starfað í fimm ár í Edinborg sem fyrsti sellóleikari ákvað hann að helga sig alfarið tónsmíðum, en tón- smíðar eru líf hans og yndi. „Ekki hefur þetta alltaf verið auðvelt líf, en þetta er eins og önnur vinna, stund- um gjöful og ábatasöm en þess á milli fórnir og hörð barátta,“ sagði hann. Með blik í augum segist hann aldr- ei hefði megnað að ganga þessa braut, að helga sig alfarið tónsmíð- um, nema með frábærum stuðningi konu sinnar og sona. „Án Ragnheið- ar, styrks hennar og trúar á starf mitt hefði mér ekki verið þetta mögulegt.“ Hafliði Hallgrímsson tónskáld Allt í einu sýnilegur áheyrendum Edinborg. Morgunblaðið. Hafliði Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.