Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Grundvallaratriði er aðtryggja atvinnuöryggiog að skipulag ogvinnustaða bjóði upp á nægjanlegan sveigjanleika til þess að geta haldið fólki með alvarleg veikindi í vinnu. Slíkt verður best gert með því að skipulega sé unnið að heilsuvernd á vinnustað. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristins Tómassonar, yfirlæknis hjá Vinnueftirliti ríkis- ins, á ráðstefnu um krabbamein og vinnandi fólk. Fjallaði hann um aðstæður starfsmanna og vinnu- staða þegar starfsmaður hefur fengið krabbamein. Flutt voru er- indi um efnið frá ýmsum sjónar- hornum, m.a. sjúklings og stjórn- anda, um áfallahjálp, endurhæfingu, veikindarétt og batnandi lífshorfur þeirra sem greinast með krabbamein. Óvissa fylgir krabbameini Kristinn Tómasson sagði í upp- hafi erindis síns að tíðindi um krabbamein væru váleg fyrir flesta og hefði það margvísleg áhrif. Á einstaklinginn, starf hans og verkefni þar, fjölskyldu, vinnu- félaga og yfirmenn. Krabbamein hefði óvissu í för með sér varðandi meðferð, lækningu og vinnu sjúk- lingsins þótt þeir sem málið varð- aði sýndu skilning og samúð. Hann sagði brýnt að vinnustaðir gætu aðlagað sig þeim veruleika að starfsmenn hefðu orðið og mundu verða alvarlega veikir. Í erindi sínu tók Kristinn dæmi af nýlegri rannsókn um heilsufar, líðan og vinnuumhverfi starfsfólks í öldrunarþjónustu. Haft var sam- band við 1.886 starfsmenn, flesta konur, og fengust svör frá 1.518. Í hópi þeirra voru 23 sem fengið höfðu krabbamein. Úr þeirra hópi töldu 70% að starfið væri þeim andlega erfitt en 58% úr hópi heil- brigðra töldu svo vera. Þá fannst 47% sjúklinganna þeir síður njóta stuðnings yfirmanna sinna við andlega erfið verkefni en 57% úr hópi þeirra sem ekki höfðu sögu um krabbamein. Um 13% þeirra sem höfðu fengið krabbamein töldu að þeir byggju við mikið at- vinnuöryggi en 26% úr hópi hinna töldu svo vera. Þá fannst þeim sem fengið höfðu krabbamein starfsandinn ekki eins afslappað- ur og hinum. Í erindi Laufeyjar Tryggva- dóttur, faraldsfræðings hjá Krabbameinsfélagi Íslands, kom fram að lífshorfur hefðu batnað mikið frá upphafi krabbameins- skráningar hérlendis árið 1954. Þá hefði lifun þeirra sem veiktust að- eins verið um 20% af lifun jafn- aldra þeirra í þjóðfélaginu fimm árum eftir greiningu. Í dag er 5 ára lifun um 60% af því sem búast má við hjá sambærilegum aldurs- hópum og á það við ef öll mein eru tekin saman. Laufey sagði lífs- horfurnar hins vegar mjög breyti- legar eftir því í hvaða líffæri mein- ið byggi um sig. Fimm ára lífshorfur þeirra sem greinast með krabbamein í blöðruhálsi og brjóstum sagði hún vera yfir 80% miðað við jafnaldra en mun verri hjá þeim sem greindust með lungnakrabbamein. Horfur þeirra hefðu ekki batnað síðustu áratugi. Rúmlega 1.000 manns greinast á ári Nýgengi krabbameina hefur aukist um 50% síðustu 45 árin en það er einnig misjafnt eftir líffær- um hversu mikið það er og dæmi eru einnig um lækkandi nýgengi. Laufey sagði árlega greinast 540 konur með krabbamein hérlendis og 510 karla. Af þeim hópi væru tæplega 600 manns yngri en 70 ára. Í dag eru 7 þúsund manns á lífi sem fengið hafa krabbamein og sagði hún stóran hluta þeirra hafa verið í vinnu árum saman eftir greiningu og lækningu. Sagði hún það undirstrika mikilvægi þess að styðja fólk í að halda út í líf og starf að lokinni meðferð. Þá kom fram að eftir áratug er búist við að um 10 þúsund manns verði á lífi sem fengið hafa krabbamein, 4.000 konur og 3.000 karlar. Hjördís Ásberg, starfsmanna- stjóri Eimskips, ræddi málið út frá sjónarhóli stjórnanda og áhrif krabbameins á starfið. Hún sagði um 1.200 manns starfa hjá fyrir- tækinu, þar af um 800 á Íslandi, skrifstofufólk, sjómenn og starfs- menn sem tengjast flutningastörf- um. Hún sagði ekki haldna skrá um starfsmenn sem fengið hefðu krabbamein en við eftirgrennslan hefðu komið upp nöfn 18 starfs- manna sem greinst hefðu með krabbamein undanfarin ár. Þeir hefðu verið í mismunandi störfum, á öllum aldri, staða þeirra ólík og sjúkdómurinn mislangt genginn við greiningu. „Ég hugleiddi út frá þessum staðreyndum hvað það væri sem fyrirtækið og stjórnendur gætu gert og hvert þeirra verkefni og ábyrgðasvið gæti verið í tengslum við alvarlega sjúkdóma hjá starfs- mönnum,“ sagði starfsmanna- stjórinn. „Að mínu mati er ábyrgðin tvískipt: Annars vegar í því hvers konar starfsumhverfi við bjóðum og hvernig við hlúum að starfsmönn- um yfirleitt, þannig að það stuðli að betri heilsu. Þessir þættir koma fram í starfsmannastefnu fyrirtækja með ýmsum hætti. Og hins vegar í því hvernig við bregð- umst við þegar greining hefur átt sér stað og úrskurður liggu um sjúkdóminn.“ Veikindaréttur teygð þágu starfsmanns Hjördís sagði Eimskip ha áherslu á ýmis almenn at vörðuðu heill starfsmann sem góða vinnuaðstöðu, fr sem tengdist bæði starfinu og persónulegri uppbyg hvatningu til líkamsrækt fylgjast með velferð starfs og bjóða stuðning vegna l þjónustu eða annarrar sér aðstoðar. Þá lýsti hún sérst hvernig brugðist væri við starfsmaður greindist krabbamein og nefndi meða ars: Réttur starfsmanns til ób starfs, sveigjanleiki hvað vinnuframlag og fjarveru, indaréttur væri teygður og ur í þágu starfsmanns og te lit til aðstæðna er sne tryggingum og annarra sem hefðu áhrif á fjárhag og brýnt væri að sýna skiln tillitssemi og stuðning í endu ingu. Hún sagði fyrirtæki þessi atriði í heiðri. „Fjárha sjónarmiðin hafa einfaldleg ráðið ferðinni þegar alvarle sem þessi hafa komið upp. skilningur á því að óvissuþæ séu nógu margir vegna sjúk ins sjálfs þótt ekki bæti áhyggjur af starfi og vinnu lagi.“ Hjördís sagði að með teygja á réttindum í þágu manns væri ekki aðeins ve stuðla að velferð hans held að skapa ákveðinn brag í Krabbamein og vinnandi fólk – rætt frá ýmsu Brýnt að tryggja a öryggi og sveigja Um sjö þúsund manns, sem fengið h krabbamein, eru á lífi í dag en talið e sá hópur geti verið orðinn um 10 þúsu eftir áratug. Lífshorfur krabbamein sjúklinga hafa farið mjög batnand Fimm ára lífshorfur þeirra sem grein með krabbamein í blöðruhálskirtli e brjósti eru 80%. Morgunblaðið/Árni S Um 200 manns sátu ráðstefnu um krabbamein og vinnandi fó VIGDÍS Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti Íslands og verndari Krabbameinsfélags Ís- lands, setti ráðstefnuna og stýrði henni. Hún sagði tilefni hennar m.a. fyrirhugaða lands- söfnun 3. mars næstkomandi og 50 ára afmæli í júní. Ráðstefnan væri eins konar inngangur afmælisársins og framundan væri síðan söfn- unarátakið laugardaginn 3. mars. Markmið hennar væri að treysta núverandi starf félags- ins, efla forvarnir og auka þjón- ustu við krabbameinssjúkinga meðal annars með því að hjálpa þeim að komast út í lífið á Vigdís sagði félagið hafa grettistaki með 50 ára star sínu að krabbameinsleit, r sóknum, forvörnum og fræ starfi auk margháttaðrar a stoðar við krabbameinssjú og aðstandendur þeirra. E minntist hún hópanna sem sjúklingum og aðstandend margháttaðan stuðning me starfi sínu. Vigdís sagði ein hverjum þremur Íslending krabbamein einhvern tíma lífsleiðinni og hún kvaðst g talað um það af eigin reyn sem sjúklingur fyrir nærri arfjórðungi. Inngangur að landssöfnu BARÁTTA BER ÁRANGUR EINKAVÆÐING KÍSILIÐJUNNAR FRAMLÖG TIL VÍSINDA Rannsóknarráð Íslands til-kynnti um úthlutanir til vís-indamanna úr tækni- og vísindasjóðum sínum fyrir árið 2001 síðastliðinn fimmtudag. Fjöldi umsókna hefur verið svip- aður undanfarin ár en það er til merkis um grósku og framsækni í íslensku vísindasamfélagi að betri umsóknum um styrki fjölgar frá ári til árs. Undanfarin ár hefur talsverð umræða farið fram um mikilvægi þess að auka framlög til rannsókn- arstarfa enda væri þar unnið grundvallarstarf fyrir þróun ís- lensks menningar- og atvinnulífs inn í nýja þekkingaröld. Spjótin hafa einkum beinst að hinu opin- bera en framlög úr einkageiranum hafa aukist verulega á undanförn- um árum. Þar kemur til bæði já- kvæð áhrif opins og virks fjár- magnsmarkaðar og tilkoma einstakra fyrirtækja á sviði erfða- vísinda og hátækni af ýmsu tagi. Einstökum fyrirtækjum í þess- um geirum hefur tekist að afla meira fjármagns til vísindarann- sókna og þróunarstarfs en hægt er að gera ráð fyrir að renni úr sjóð- um ríkisins. Efling slíkra sjóða er hins vegar afar mikilvæg, einkum af tveimur ástæðum: Aðgangur vísindagreina að einkafjármagni er afar misjafn og einkafjármagnið leitar þar að auki frekar í þróunarstarf en grunn- rannsóknir, en í grunnrannsóknum er lagður grundvöllur að þróun nýrrar þekkingar. Ríkisstjórnin hefur brugðist við með ýmsum hætti á undanförnum árum þótt ekki hafi verið nóg að gert. Framlög ríkisins til sjóða Rannsóknarráðs verða aukin um fimmtíu milljónir á þessu ári og hefur menntamálaráðuneytið gefið fyrirheit um að þessari aukningu verði haldið áfram á næstu árum. Er vonast til þess að á næstu þremur árum muni ráðstöfunarfé vísindasjóðs tvöfaldast og verði á núvirði þrjú hundruð milljónir. Þessu ber að fagna mjög eins og öllum auknum framlögum til rann- sókna sem geta haft úrslitaáhrif á stöðu þjóðarinnar í síharðnandi samkeppnisumhverfi nýrrar aldar. Allt bendir til þess, að baráttaAuðar Guðjónsdóttur, hjúkrun- arfræðings, í þágu mænuskaddaðra sjúklinga muni bera þann árangur, að skipulega verði unnið að því á al- þjóðavettvangi að leita leiða þeim til hjálpar og lækninga. Í júníbyrjun verður haldin ráð- stefna í Reykjavík undir merkjum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og heilbrigðisráðuneytisins, til að gera læknum og vísindamönn- um kleift að bera saman bækur sínar um þróun í lækningum á mænusk- aða og verða WHO til ráðuneytis um mótun framtíðarstefnu í þeim efn- um. Vonast er til, að í kjölfar ráð- stefnunnar verði gagnagrunni kom- ið á fót, þar sem læknar og vísinda- menn geta komið upplýsingum á framfæri, hvar sem þeir starfa í heiminum. Opinn aðgangur verði að þessum upplýsingabanka fyrir fag- fólk, sjúklinga og aðstandendur þeirra. Þá mun verða fjallað um þá hug- mynd á ráðstefnunni, að WHO stofni styrktarsjóð til að hjálpa læknum að flytja þekkingu úr rannsóknarstof- um til meðferðar á sjúklingum. Verkefni Reykjavíkurráðstefn- unnar eru vissulega verðug og það er ánægjulegt, að heilbrigðisráðu- neytið, utanríkisráðuneytið og aðrir áhugasamir aðilar hér á landi hafi forgöngu um að koma slíku alþjóð- legu samstarfi á laggirnar. Það er líka sérlega ánægjulegt, að nú hillir undir það, að eldmóður og þrotlaus barátta Auðar Guðjónsdóttur skili árangri í þágu þess mikla fjölda mæ- nuskaddaðra sjúklinga sem er að finna um heim allan. Auður og um- bjóðendur hennar eiga svo sannar- lega skilið alla þá hjálp og aðstoð sem stjórnvöld, fyrirtæki og ein- staklingar geta veitt þeim. Allies EFA, sem er dótturfyr-irtæki Eignarhaldsfélags Alþýðubankans og bandaríska áhættufjárfestingarfélagsins Al- lied Resource Corporation, eign- aðist í fyrradag 98,56% hlut í Kís- iliðjunni við Mývatn, þar með 51% hlut ríkisins. Með því er ríkissjóð- ur búinn að draga sig út úr fyr- irtækinu að fullu, en viðræður um sölu á hlut þess hófust á árinu 1998. Nýir eigendur Kísiliðjunnar hyggjast stofna félagið Promeks á Íslandi og reka kísilduftverk- smiðju, en ákvörðun um byggingu hennar verður tekin í ágústmánuði á næsta ári. Bygging hennar hefst þá árið 2003 og reksturinn 2004, sama ár og náma-leyfi í vatninu rennur út. Ríkissjóður hyggst nota andvirði það, sem hann fékk fyrir sinn hlut, til þess að efla atvinnulíf í Mývatnssveit. Það er ánægjulegt, að ríkið hættir afskiptum af Kísiliðjunni og hefur selt sinn hlut. Ríkið á ekki að standa í fyrirtækjarekstri, enda er hann betur kominn í höndum einkaaðila. Með þessari sölu lýkur líka pólitískum afskiptum af þess- um atvinnurekstri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.