Morgunblaðið - 15.02.2001, Síða 42
UMRÆÐAN
42 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í GREIN í Morgun-
blaðinu á dögunum var
bent á það að heiti á ís-
lenskum þjóðgörðum
væru óþjál í munni og
nafnið Vatnajökuls-
þjóðgarður nefnt sem
dæmi um það. Ég tel að
nafn þessa þjóðgarðs
sé mikilvægt því hann
gæti haft alla burði til
að verða frægasti, frá-
bærasti og stærsti
þjóðgarður Evrópu.
Það er bara til eitt
svona svæði á jörðinni.
Vatnajökull og um-
hverfi hans er kóróna
Íslands, það einstæðasta sem þetta
land býr yfir.
Vestfirðir, Austfirðir og Miðnorð-
urland eiga sér samsvaranir á Græn-
landi og í Noregi en gildi þessara
landsvæða felst í því að vera í sam-
býli við hina ólgandi miðju elds og
íss. Með henni mynda þeir heildina
Ísland, sem líkja má við söngkvart-
ett þar sem gæði hins raddaða söngs
eru meiri en samanlögð gæði radd-
anna fjögurra.
Við lifum á tímum markaðssetn-
ingar þar sem skilaboðin verða að
vera sem skiljanlegust og árangurs-
ríkust. Orðið „Vatnajökull“ hljómar
eins og hebreska fyrir þá milljarða
jarðarbúa sem þrá að upplifa eitt-
hvað í líkingu við það sem þjóðgarð-
ur, tengdur jöklinum, gæti boðið upp
á.
Ég sting upp á nöfnunum „Íselda-
garður“, „Íseldaþjóðgarður“ eða „Ís-
eldavíðerni“ en í markaðssetning-
unni erlendis væri áherslan lögð á
enska heitið „Ice and fire park“ eða
jafnvel „Icefire park“. Ef fólki finnst
park-nafnið ekki viðeigandi má
benda á að Skaftafellsþjóðgarður
getur orðið hluti hans og að um-
hverfisráðherra hefur lýst yfir
áhuga á að þjóðgarðurinn nái út í
framtíðinni út fyrir jökulinn. Til
samanburðar má nefna að í stærsta
þjóðgarði heims, á Norðaustur-
Grænlandi, slagar autt land upp í að
vera jafn víðáttumikið og allt Ísland.
Heitin „Ice and fire national park“
eða „Ice and fire wilderness“ fela í
sér að þessi fyrirhugaði þjóðgarður
sé engum öðrum líkur og eigi engan
beinan keppinaut í víðri veröld.
Lítum á nokkrar staðreyndir sem
varpa ljósi á það:
1. Vatnajökull er stærsti jökull Evr-
ópu og stærsti hjarnjökull heims
utan heimskautajöklanna á Græn-
landi og Suðurskautslandinu.
2. Undir Vatnajökli er miðja annars
af tveimur stærstu
möttulstrókum jarð-
ar, þar sem hraun
brýst upp í gegnum
jarðskorpuna. Hinn
er undir Hawaiieyj-
um, sem eru fjórum
sinnum minni en Ís-
land að flatarmáli og
að mestu orðnar
manngerðar.
3. Af þessu leiðir að
samspil elds og íss
undir Vatnajökli og
ummerki um þetta
samspil í nágrenni
hans eiga sér enga
hliðstæðu á jörðinni.
4. Undir Vatnajökli og fyrir suðvest-
an og norðaustan hann er eldvirkt
svæði sem er dæmalaust. Norðan
og sunnan jökulsins eru langar
gígaraðir, nokkuð sem Ísland eitt
hefur upp á að bjóða. Norðan jök-
ulsins eru fleiri gosdyngjur en
þekkjast annars staðar og þar eru
líka svonefndir stapar (Herðu-
breið, Snæfell o.fl.) sem urðu til í
einstæðu samspili eldgosa við jök-
ulbreiðuna þegar hún var stærri
en nú og þakti mestallt landið.
Nýir stapar eru að myndast undir
jöklinum og þeir kunna að koma í
ljós ef hann minnkar.
Fyrstu aldirnar eftir að síðustu ís-
öld lauk, hækkaði land hratt norð-
an jökulsins og þá var þar meiri
eldvirkni en dæmi eru um á jörð-
inni um árþúsundaskeið. Það er
ekki tilviljun að Ódáðahraun er
stærsta hraunbreiða landsins.
5. Fljótin sem renna frá Vatnajökli,
aurug af framburði sem jökullinn
rífur upp úr jarðeldasvæðunum
undir honum, eru hluti af þessu
stórbrotna náttúruundri; slagæð-
ar hins heita íshjarta, fullar af
kolmórauðu blóðinu sem flæðir út
frá því.
6. Gróðurvinjarnar í eldfjallaeyði-
mörkinni norðan jökulsins eru
hluti af samspili lífs og dauða,
sköpunar og eyðingar, elds og íss,
sem gerir Vatnajökul og landið
undir honum og umhverfis hann
að heimsviðundri.
7. Það er bara til ein Askja í heim-
inum og ein Kverkfjöll, einstæð-
asta náttúrufyrirbæri Íslands;
djásnið í kórónu landsins.
Þess vegna fóru geimfarar í Öskju
til að undirbúa tunglferð sína og
helsti geimferðasérfræðingur
heims skoðaði Kverkfjöll í fyrra til
að undirbúa ferð til Mars.
8. Gunnar Jónsson á Daðastöðum
benti mér á að það væri styttra frá
París til Egilsstaða en frá New
York til Yellowstone.
Leið Evrópubúa til Yellowstone-
þjóðgarðsins liggur fram hjá Ís-
landi yfir Atlantshaf og vestur fyr-
ir miðja Ameríku til Salt Lake
City, en þaðan er 650 kílómetra
akstur til Yellowstone.
Flugleið Evrópubúans til Íselda
yrði nær þrefalt styttri, og aðeins
tuttugu kílómetra akstur yrði frá al-
þjóðaflugvellinum á Egilsstöðum inn
í þjóðgarðinn ef hann næði norður á
Fljótsdalsheiði. Þrjár milljónir
manna koma árlega í Yellowstone-
garðinn og helmingur þeirra, 1,5
milljónir, frá öðrum heimsálfum en
Ameríku. Afraksturinn nemur
hundruðum milljarða króna. Hvar-
vetna blasa við skilti sem útskýra
jarðfræðilega myndun garðsins og
tíunda undur hans, sem möttulstrók-
urinn undir honum hefur skapað.
Að bera saman Yellowstone og Ís-
elda er eins og bera saman appelsínu
og epli þar sem aðeins eitt eintak
væri til af hvoru í heiminum. Mun-
urinn er þó sá að appelsínan er
heimsfræg en sárafáir vita um eplið
fagurrauða, hið eina sinnar tegundar
á jarðríki.
Það er ekki bæði hægt að eiga það
og éta það líka. En það má samt dást
að því og njóta þess og jafnvel græða
á því að sýna það, ef menn telja pen-
ingagróða vera forsendu þess að
varðveita það.
Íseldagarðurinn er eins og þyrni-
rós sem sefur, umlukin þyrnigerði
þekkingarleysis okkar og vanmats á
verðmætum landsins. Þessi prins-
essa, sem ber kórónu landsins, bíður
eftir því að prinsinn komi og veki
hana með kossi. Þá kann sú tíð að
renna upp að Íseldagarðurinn verði
frægari en Ísland og Íslendingar,
rétt eins og Yellowstone er frægari
en Wyomingríki og íbúar þess, sem
eru stoltir af því og ríkir að hafa
fóstrað og varðveitt alheimsfjársjóð
fyrir allt mannkyn að njóta.
Sérfræðingar spá samfelldum og
örum vexti ferðamannastraums í
heiminum næstu áratugi. Verður
Þyrnirós vakin? Verður líka kátt í
höllinni á Íslandi? Eða verður ljómi
Íseldanna settur undir mæliker?
Íseldagarður
Ómar Ragnarsson
Vatnajökull
Íseldagarðurinn er eins
og Þyrnirós, segir Ómar
Ragnarsson, og sefur
umluktur þyrnigerði
þekkingarleysis okkar.
Höfundur er fréttamaður.
G
agnrýni getur verið
með ýmsum hætti.
Eftirfarandi er stutt-
araleg og hróplega
ósanngjörn sam-
antekt (gagnrýni) þess sem situr
eftir í minni undirritaðs af sýn-
ingum á íslenskum leikritum það
sem af er þessum vetri.
Sigurður Pálsson átti fyrsta út-
spil haustsins með Einhver í dyr-
unum. Merkt leikrit þar sem höf-
undur tekst á við innri vanda
persónu og gerir athyglisverða til-
raun til að finna því dramatískt
form og leikræna umgjörð. Sig-
urður sker sig úr hinum annars
sundurleita hópi íslenskra leik-
skálda með því að honum er hug-
leikið eðli tungumálsins, hann
vinnur innávið í leikritaskrifum
sínum, skoðar samhengi tilfinn-
inga og tjáningar og er sífellt að
velta fyrir sér
leikrænum
möguleikum
skáldskapar
síns. Þetta
verk hefði átt
að sæta meiri
tíðindum og er merkur áfangi á
höfundarferli Sigurðar. Vonandi
stendur Borgarleikhúsið við orð
sín og tekur leikritið til sýninga að
nýju við fyrsta tækifæri.
Dóttir skáldsins var síðan
fyrsta sýningin af sex sem til-
heyrði syrpunni Á mörkunum.
Þar fór Sveinn Einarsson ofan í
Laxdælu og benti á að Þorgerður
Egilsdóttir, ættmóðir hetja og
dóttir skáldsins á Borg, hefði
horfið í skuggann fyrir Guðrúnu,
Kjartani og Bolla. Sveinn hefur
þróað með sér ákveðinn stíl sem
leikhópur hans Bandamenn hafa
tileinkað sér með ágætum og út úr
þeirri samvinnu hafa komið þrjár
athyglisverðar leiksýningar. Dótt-
ir skáldsins bar þess merki að
vera upphaflega skrifað á ensku
og hefði þurft rækilegri endur-
skoðun til að henta íslenskum
áhorfendum. Ennfremur var leik-
hópurinn greinilega ekki nægi-
lega handgenginn hugsuninni um
leikræna útfærslu sem bjó að baki
handritinu. Sveinn staðfesti þessa
skoðun með sýningu Bandamanna
sinna á Edda.ris þar sem hóp-
urinn lagði útaf Skírnismálum og
sneri efninu upp í kómíska skoðun
á fordómum gagnvart framandi
menningu og kynþáttum. Litrík
og skemmtileg sýning sem á fullt
erindi við nemendur á framhalds-
skólastigi og efri bekkja grunn-
skóla.
Þar á eftir var okkur boðið upp
á Vitleysingana í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu. Sýning sem reyndist
smellur, skemmtilega sviðsett og
leikritið vel skrifað – að mestu
leyti – satírísk kómedía um afdrif
nokkurra einstaklinga af 68 kyn-
slóðinni. Ólafur Haukur ristir nær
sjálfum sér í þessu verki en oftast
áður og í fyrri hlutanum byggir
hann upp sterkan persónuhóp
með skýrar tilfinningasögur, en í
seinni hlutanum leysist þetta að
nokkru leyti upp, verður sketsa-
kennt og niðurstaðan er ófull-
nægjandi. Styrkur Ólafs er enn
sem fyrr fólginn í skýrum per-
sónulýsingum og beittum sam-
tölum, oft óborganlega fyndnum.
Trúðleikur Hallgríms Helga-
sonar í Iðnó var vel unnin sýning
þar sem Halldór Gylfason og
Friðrik Friðriksson léku tvo ís-
lenska trúða í tilvistarkreppu.
Önnur satíra á ferðinni þar sem
frábært efni í góðan einþáttung
var teygt upp í heila sýningu.
Hugmyndin var uppurin áður en
sýningunni lauk.
Svo var sýnd situasjónskómíkin
Góðar hægðir eftir Auði Haralds.
Þar sáum við miðaldra konu berj-
ast upp á líf og dauða við börn sín
og halda dauðahaldi í sjálfa sig
sem kynveru í leiðinni. Góð hug-
mynd en illa samið leikrit. Stílein-
kenni Auðar Haralds njóta sín þó
mætavel þar sem hún setur sjálfa
sig í aðalhlutverk og kallar á aðrar
persónur eftir þörfum.
Hallgrímur Helgason á sína
uppákomu með Skáldanótt í
Borgarleikhúsinu. Grunn-
hugmyndin er fantasía um dauð
skáld sem fara á kreik og lifandi
skáld reyna að ná fundi þeirra.
Sniðug hugmynd og heilmikill
leirburður í bundnu máli er rétt-
lættur með því að smáskáldin geta
ekki betur. Sviðsetningin lífleg og
mikill kraftur í leikendum sem
straujar yfir helstu vankanta
verksins. Satíra í bland við kómík
þar sem allar klisjurnar um góð-
skáldin eru undnar þurrar.
Andri Snær Magnason á eina
nýja íslenska barnaleikritið á
þessum vetri (það sem af er) eftir
hinni stórfenglegu sögu Bláa
hnettinum. Andri Snær er jafn-
framt eini höfundurinn á þessu
hausti sem ekki beitir kaldhæðni
og satíru til að koma hugmyndum
sínum á framfæri. Hann byggir
sögu sína upp sem hefðbundið æv-
intýri en víkur af leið í öðru hverju
skrefi og tengir söguna á mynd-
rænan og táknrænan hátt við um-
hverfismál, siðfræði, sölumennsku
og markaðshugmyndir með þeim
hætti að úr verður endalaus upp-
spretta hugmynda fyrir fullorðna
að útlista fyrir börnum sínum.
Barnaleikrit fyrir fullorðna er
réttnefni á þessu verki sem fær
aðdáunarlega hófstillta meðferð í
leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar.
Kristján Þórður Hrafnsson hef-
ur fengið óverðskuldaðan skæting
fyrir verk sitt Já, hamingjan.
Vissulega er verkið sumpart gall-
að, persónusköpunin óljós og text-
inn endurtekningasamur. EN...
hér á ferðinni ungur höfundur
sem hefur valið sér leikhúsið sem
tjáningarform. Hann hefur greini-
lega hæfileika og skrifar af mikl-
um þrótti og metnaði. Slíkt á meta
og hvetja manninn til dáða. Auk
þess er leikritið ágætt skemmtun
og eiga höfundur og leikarar þar
jafnan hlut. Já, hamingjan lofar
góðu og er veruleg framför frá
einþáttungnum Leitum að ungri
stúlku.
Fyrir ungan höfund er auðvelt
að missa móðinn þegar viðtökur
eru svo miskunnarlausar þegar
reyndari höfundar sem skrifa af
fullri alvöru og einlægni virðast
ekki heldur eiga upp á pallborðið á
vinsældalistunum.
Hægan Elektra og Einhver í
dyrunum, verk sem bjóða upp á
nær endalausa túlkunarmögu-
leika, náðu ekki neinni fjöldahylli
enda á ferðinni alvarlega saminn
skáldskapur fyrir leiksvið þar sem
höfundar gera strangar kröfur til
áhorfenda ekki síður en sjálfs sín.
Að því verður að hlúa svo ekki
blómstri bara erlendar stofu-
plöntur. Okkur vantar ekki fleiri
slíkar.
Skáld í
eyðurnar
„Að innlendum gróðri verður að
hlúa, svo ekki blómstri bara erlendar
stofuplöntur.“
VIÐHORF
Eftir Hávar
Sigurjónsson
havar@mbl.is
FRAMTÍÐ fiskeldis
er ekki aðeins framtíð
fiskeldismanna heldur
allrar þjóðarinnar sem
hefur og mun njóta
góðs af útflutnings-
tekjum atvinnugreinar-
innar. Þetta er sérstak-
lega áríðandi að hafa í
huga á þeim tímum sem
fiskveiðar úr sjónum
umhverfis landið sem
hafa verið lífsviðurværi
landans um árhundruð
virðast flestir vera full-
nýttir og jafnvel ofnýtt-
ir. Hefur þjóð sem Ís-
lendingar efni á að slá
atvinnugrein út af borðinu sem hugs-
anlega getur skilað milljörðum í
aukningu á útflutningstekjum á
næstu árum? Ég tel svo ekki vera
enda sé ég ekki neina aðra atvinnu-
grein betur til þess fallna að styrkja
dreifðar byggðir landsins sem eiga í
vök að verjast vegna skorts á atvinnu-
tækifærum. Fiskeldi er náttúruvænn
iðnaður sem veldur lífríkinu engum
skaða svo lengi sem það er stundað í
eðlilegu magni á þeim svæðum sem
ákjósanlegastir eru með tilliti til um-
hverfisaðstæðna. Enginn fiskeldis-
maður vill missa fisk, hvorki vegna
galla á kvíum, sjúkdóma eða annarra
orsaka. Þeir vilja ein-
faldlega skila hagnaði
og það verður ekki gert
með stórkostlegum af-
föllum á fiski né heldur
ef fiskur sleppur úr kví-
um. Aðföng í fiskeldi
eru að stórum hluta inn-
lend, mætti þar helst
nefna loðnumjöl sem
notað er til fóðurfram-
leiðslu en það gerir
þessa atvinnugrein að
enn betri kosti þar sem
lítið þarf að flytja inn til
framleiðslunnar. Í sjón-
varpsþætti BBC sem
sýndur var á Stöð 2 var
dregin upp dökk mynd af fiskeldi.
Ekki ætla ég að leggja mat á þær full-
yrðingar sem þar komu fram varð-
andi umhverfisáhrif en eitt er víst að
enginn fiskeldismaður hér á landi vill
að svona fari, það er einfaldlega óhag-
kvæmt. Margt væri eflaust hægt að
gera og ber að gera svo að öryggi
villtra laxastofna verði ekki ógnað
eins og t.d. að gelda allan fisk áður en
hann væri settur út í kvíar og að sjálf-
sögðu að gera kröfu um að kvíar séu
nægjanlega sterkar til að þola það
álag sem þarf. Það þykir mér sárast
að sjá í þessari umræðu eins og fram
kom miðvikudaginn 7. febrúar að
fréttamenn Stöðvar 2 skuli reyna að
draga fram ýktar skoðanir frá mönn-
um sem hafa aðeins áhuga á að nýta
sér fiskistofna og náttúru landsins sér
til dægradvalar en ekki til fram-
færslu. Þetta tel ég ekki vera til bóta í
umræðunni um fiskeldi. Villtir laxa-
stofnar á íslandi þurfa alls ekki að
vera í hættu ef vinnubrögð stjórn-
valda við smíði reglugerða eru með
þeirri sérfræðikunnáttu sem til er.
Þetta er eitt af þeim störfum sem lýð-
ræðislega kosnir þingmenn og ráð-
herrar eiga að sinna. Tækifærið er
núna, ekki er hægt að sitja lengur
með hendur í skauti og bíða, fjárfest-
ar eru tilbúnir að leggja fjármagn í
uppbyggingu á fiskeldi. Það er skylda
stjórnvalda að nýta þetta tækifæri til
að auka útflutningstekjur þjóðarinn-
ar og gera það með þeim hætti að
ekki skapist stórkostleg ógn við
hreint og viðkvæmt lífríki landsins.
Framtíð fiskeldis
Jón Bek
Umhverfi
Fiskeldi er náttúru-
vænn iðnaður, segir Jón
Bek, og veldur lífríkinu
engum skaða.
Höfundur er fiskeldisfræðingur og
nemandi í viðskiptaháskólanum á
Bifröst.