Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 45
Kringlunni
s. 533 1740
NÝTT
KORTATÍMABIL
NÝJAR VÖRUR
Í DAG
OPIÐ TIL 21.00
ALLA FIMMTUDAGA
MÁNUDAGINN 12.
febrúar 2001 var Þórð-
ur Friðjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnun-
ar, viðmælandi frétta-
manna í Kastljósþætti
Sjónvarpsins. Um-
ræðuefnið var ráðgerð
200 milljarða fjárfest-
ing í stóriðju á Austur-
landi en einnig komu til
tals hliðstæðar fram-
kvæmdir á Suðvestur-
landi.
Kvaðning þjóðhags-
stjóra í þennan þátt
virðist hafa verið byggð
á röngum forsendum
þar eð ekki verður séð
að Þórður Friðjónsson sé sem þjóð-
hagsstjóri bær um að fjalla um um-
rædd fjárfestingaráform né heldur að
Þjóðhagsstofnun undir hans stjórn
geti gegnt lögboðnu ráðgjafarhlut-
verki í efnahagsmálum. Efnislega var
framlag þjóðhagsstjóra í þættinum
nánast fyrirvaralaus blessun yfir um-
ræddum framkvæmdaáformum, ekki
aðeins út frá efnahagslegum forsend-
um heldur einnig í byggðalegu og við-
skiptalegu tilliti, m.a. að því er varð-
aði raforkuverð. Af einhverjum
ástæðum láðist þjóðhagsstjóra að tjá
sig líka um umhverfisþátt nefndra
framkvæmda. Í þættinum birtist
þjóðhagsstjórinn sem einsýnn áróð-
ursmaður fyrir stóriðjustefnu stjórn-
valda. Röksemdir hans voru gamal-
kunnar og engar efasemdir uppi
hafðar um ágæti málsins.
Svo vill til að nefndur þjóðhags-
stjóri er fljótur að hafa fataskipti og
hefur birst alþjóð í ýmsum gervum
síðastliðin fimm ár, svo
ekki sé litið lengra til
baka. Þannig skrapp
hann úr hlutverki þjóð-
hagsstjóra þegar mikið
lá við og gerðist ráðu-
neytisstjóri í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu á
annað ár, nánar tiltekið
frá 14. apríl 1998 til 15.
ágúst 1999. Á þessum
tíma stóðu yfir samn-
ingaumleitanir um svo-
nefnt NORAL-verkefni
milli íslenskra stjórn-
valda og Norsk Hydro
um bygginu álverk-
smiðju í Reyðarfirði og
virkjana í hennar þágu.
Þórður Friðjónsson var skipaður í
samráðsnefnd um NORAL-verkefnið
af hálfu ríkisstjórnarinnar í apríl 1998
og um leið formaður nefndarinnar.
Hélt hann áfram setu í NORAL-
nefndinni þótt hann smeygði sér á ný
í forstjórafrakkann í Þjóðhagsstofn-
un og gegni enn sem nefndarformað-
ur! Frá þeim tíma hafa umsagnir
stofnunarinnar og innlegg í NORAL-
málið verið ómarktækir pappírar.
Stjórnendur sjónvarpsþáttarins
virðast ekki hafa áttað sig á afskipt-
um þjóðhagsstjórans af 200 miljarða
málinu í allt öðru samhengi en gefið
var í skyn í kynningu. Það rýrði jafn-
framt gildi þáttarins að Þórður einn
var kvaddur til að ræða þetta stóra og
mjög svo umdeilda mál. Hafa þó
margir hagfræðingar að undanförnu
tjáð sig um stóriðjuáform stjórnvalda
og dregið í efa efnahagslegar for-
sendur þeirra.
Lögum samkvæmt er Þjóðhags-
stofnun ekki aðeins ætlað að vera rík-
isstjórn til ráðuneytis í efnahagsmál-
um heldur einnig Alþingi og láta
alþingismönnum og nefndum Alþing-
is í té upplýsingar um efnahagsmál.
Þessum lagaákvæðum verður ekki
fullnægt svo viðhlítandi sé á meðan
Þjóðhagsstofnun dæmir sig út leik og
á forstjórastóli þar situr einstakling-
ur sem ekki virðist lengur skynja í
hvaða hlutverki hann er frekar en
Mandelson hinn breski. Það er sann-
arlega illt á meðan í stjórnkerfinu er
hvergi að hafa hlutlægt mat á efna-
hagsmálum og fyrirætlunum stjórn-
valda á því sviði.
Er Þjóðhagsstofn-
un trúverðug?
Hjörleifur
Guttormsson
Stóriðja
Ekki verður séð að
Þórður Friðjónsson sé
sem þjóðhagsstjóri bær
um að fjalla um umrædd
fjárfestingaráform, seg-
ir Hjörleifur Guttorms-
son, né heldur að Þjóð-
hagsstofnun undir hans
stjórn geti gegnt lög-
boðnu ráðgjafarhlut-
verki í efnahagsmálum.
Höfundur er fyrrverandi alþing-
ismaður.