Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 47

Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 47 NÚ styttist í að yf- irstandandi starfsári Stúdentaráðs ljúki. Að venju verður blásið til Stúdentaráðskosninga í febrúar og því eðli- legt að líta um öxl og athuga hvað áunnist hefur á þessu 80. af- mælisári ráðsins. Stúdentum Háskóla Íslands er mikill akkur í að eiga þann öfluga málsvara sem Stúd- entaráð er, enda skip- ar ráðið veigamikinn sess og getur haft mikil áhrif. Það hefur komið berlega í ljós á undanförnum mánuðum. Námslánin hækka annað árið í röð Fulltrúar Stúdentaráðs fóru af fullri hörku inn í vinnu við endur- skoðun úthlutunarreglna LÍN síð- astliðið vor. Harður slagur varð inn- an stjórnar LÍN en niðurstaðan var mikill áfangasigur fyrir okkur námsmenn. Mestu skipti þar að grunnframfærslan hækkaði um 6,7%, annað árið í röð. Auk þess hækkaði frítekjumarkið og skerð- ingarhlutfallið lækkaði. Þeir þrír grundvallarþættir sem áhrif hafa á upphæð námslána breyttust því all- ir til hagsbóta fyrir námsmenn. Auk þess urðu ýmsar smávægi- legri breytingar á reglum LÍN, t.d. var réttarstaða fyrsta árs nema bætt. Þjónusta LÍN hefur verið bætt verulega, t.d. hefur LÍN tekið upp rafræn eyðublöð á Netinu að kröfu námsmanna. Stúdentaráð lét reyna á hvort tekjutenging LÍN við maka stæðist lög og niðurstaða er væntanleg á næstu vikum. Umboðs- maður Alþingis tók undir málflutn- ing Stúdentaráðs nú í janúar þegar hann féllst á að yfirstjórn LÍN hefði ekki rökstutt nægilega upphæð grunnfram- færslunnar og ekki sinnt rannsóknar- skyldu sinni. Þetta skapar mikil sóknar- færi í áframhaldandi baráttu fyrir hærri lánum. Aðstöðumálin tekin föstum tökum Stúdentaráð skar upp herör gegn að- stöðuleysi. Á þriðja þúsund stúdentar sendu póstkort til menntamálaráðherra með áskorun um úr- bætur og eitt helsta forgangsmál Stúdentaráðs hlýtur að vera að halda þeim kröfum áfram á lofti. Auk baráttunnar fyrir auknu fjár- magni hefur Stúdentaráð haft frum- kvæði að margskonar „innanhúsað- gerðum“ til að nýta sem best það pláss sem fyrir er. Má sem dæmi nefna að kennslustofur voru opn- aðar sem lesaðstaða, lesbásum fjölgað í Odda og skilvirku skrán- ingarkerfi komið á í Þjóðarbókhlöð- unni. Sýnilegt og opið Stúdentaráð Auk hinnar hefðbundnu hags- munabaráttu hefur áhersla verið lögð á að lífga upp á háskólasamfé- lagið. Stúdentaráð stóð í samvinnu við nemendafélögin fyrir fyrsta Stúdentadeginum þann 15. septem- ber. Heppnaðist hann frábærlega og er dagurinn ótvírætt kominn til að vera. Haldið var upp á 80 ára af- mæli Stúdentaráðs með tónleikum Sigur Rósar þar sem stúdentar fengu miða á 80 krónur og troð- fylltu Háskólabíó. Stúdentaráð tók upp viðræður við Skjá 1 um að koma á fót sjónvarpsþætti um há- skólasamfélagið, sem skilaði sér í háskólaþættinum Pensúm. Stúd- entaráð hefur auk þess staðið fyrir margskonar þemadögum svo sem „Geðveikum dögum“ og „Starfsdög- um í HÍ“. Einkunnaskil bætt – betri kennsla Á starfsárinu hefur verið lögð áhersla á jákvætt aðhald með kenn- urum. Gripið var til markvissra að- gerða til að bæta einkunnaskil kennara, svo sem með einkunnaski- lasíðu Stúdentaráðs og með því að auglýsa opinberlega. Aðgerðirnar skiluðu verulegum árangri, og ein- kunnaskilin bötnuðu um 34% á hálfu ári. Vel hefur miðað í baráttunni fyrir betri kennslu. Vinna við gæðastefnu um kennslu er hafin og ný kennslu- miðstöð komin á laggirnar. Þar munu kennarar hafa greiðan að- gang að margvíslegri aðstoð við kennslu og geta sótt fjölmörg nám- skeið sem stuðla eiga að betri kennslu við Háskóla Íslands. Komið var á laggirnar skilaboðaskjóðu kennara sem gefur nemendum möguleika á að senda nafnlausar ábendingar um kennslu á kennara. Nýr Stúdentagarður – hækkun húsaleigubóta Lögð hefur verið áhersla á að gera húsnæðiskerfið „stúdenta- vænna“ og teknar upp viðræður við stjórnvöld í því skyni. Í kjölfarið var hámark húsaleigubóta hækkað um 10.000 krónur á mánuði. Mark- visst var unnið að frekari uppbygg- ingu Stúdentagarða og fljótlega hefst bygging nýs Stúdentagarðs – þess stærsta hingað til. Hann mun rúma u.þ.b. 130 einstaklingsíbúðir. Háskólinn færður inn í framtíðina Stúdentaráð útvegaði nemendum hagstæð tilboð á fartölvum og átti frumkvæði að því að Háskólinn hæfi uppsetningu þráðlausra staðarneta á háskólasvæðinu. Í samstarfi við kassi.is var komið á skiptibóka- markaði á Netinu. Lögð var mikil áhersla á umhverfismál og vinna við umhverfisstefnu HÍ er komin á lokastig. Skýr stefna Röskvu skilar árangri Hér hefur aðeins verið drepið á hluta af verkum Stúdentaráðs á yf- irstandandi starfsári. Röskva hefur skipað meirihluta ráðsins og starf- semin því byggst á þeim stefnu- málum sem Röskva setti fram í síð- ustu kosningum. Þessi stefnumál eru nú í höfn og Röskva leggur verk sín glöð í dóm stúdenta. Þótt mikill árangur hafi náðst gerum við okkur grein fyrir því að þetta eru einungis áfangasigrar á réttri leið. Baráttunni er hvergi nærri lokið og Röskva sækist eftir umboði til að halda áfram á réttri braut og taka næstu skrefin í hags- munabaráttu okkar stúdenta. Það eru mörg sóknarfæri og þau sókn- arfæri vill Röskva nýta. Röskva skilar stúdentum árangri Eiríkur Jónsson Stúdentaráð Þeir þrír grundvall- arþættir sem áhrif hafa á upphæð námslána, segir Eiríkur Jónsson, breyttust því allir til hagsbóta fyrir náms- menn. Höfundur er formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. NÝTT Fæst í flestum apótekum Innflytjandi: Pharmaco hf. A U K IN V EL LÍÐAN HVÍTAR I TE N N U R Hreinni og hvítari tennur W H I T E N I N G Fyrir gervitennur K O R T E R CRESCENDO MASCARA AUGNHÁRALITUR SEM BYGGIR AUGNHÁRIN UPP NÁTTÚRULEG EÐA MIKILFENGLEG Nýjung HR: Ný lúxus formúla gerir þér kleift að byggja augnhárin upp. Liturinn þekur hvert hár, lengir, sveigir og aðskilur. Augnhárin styrkjast verulega (ótrúlega) við hverja stroku. Náttúruleg eða mikilfengleg förðun. Valið er þitt með Crescendo. Kynning í dag, föstudag og laugardag á hágæða snyrtivörum frá Veglegir kaupaukar Bankastræti, sími 551 3140 Álfheimum 74, sími 568 5170 Barnaskautar (Smelluskautar) Stærðir 29-36 Áður kr. 3.990 nú kr. 2.400 Skeifunni 11, sími 588 9890 Opið laugardaga frá kl. 11-15 40% AFSLÁ TTUR Ú T S A L AListskautarVinilHvítir: 28-44Svartir: 33-46Áður kr. 4.201 nú kr. 2.500 Hokkískautar Reimaðir Stærðir 37-46 Áður kr. 9.338 nú kr. 5.600 Smelluskautar Stærðir 29-41 Áður kr. 4.989 nú kr. 2.993 Hokkískautar Smelltir Stærðir 36-46 Áður kr. 5.990 nú kr. 3.600 Listskautar Leður Hvítir: 31-41 Svartir: 36-45 Áður kr. 6.247 nú kr. 3.800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.