Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 57
BRAUTSKRÁNING stúdenta frá
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ fór
fram laugardaginn 10. febrúar. Alls
voru stúdentarnir 32 talsins af sex
námsbrautum. Athöfnin fór fram í
Vídalínskirkju. Þorsteinn Þor-
steinsson, skólameistari, flutti
ávarp og afhenti nemendum próf-
skírteini en Gísli Ragnarsson að-
stoðarskólameistari stýrði athöfn-
inni.
Skólameistari ræddi um starfið á
liðinni önn og þær sérstöku að-
stæður sem sköpuðust við verkfall
kennara. Hann þakkaði nemendum
þolinmæðina og kennurum fyrir
dugnað og þrautseigju þegar leysa
þurfti snúin mál að verkfallinu
loknu. Þá ræddi hann námskipan
skólans sem er og verður fyrst og
fremst bóknámsskóli en með sér-
staka áherslu á öfluga listnáms-
braut. Varðandi húsnæðismál hans
er framundan vígsla 600 manna há-
tíðasalar skólans. Verður skólinn
þá rúmlega 5.600 fermetrar. Skóla-
meistari ræddi þá þjónustu sem
leitast væri við að veita hinum ólíku
hópum nemenda og sagði góðan
skóla vera spegilmynd mannlífsins í
réttustu og bestu mynd sinni.
Skólameistari ávarpaði nem-
endur þegar brautskráningu var
lokið. Hann minnti á að mannsævin
skiptist í nokkur tímabil. Listin að
lifa væri að gera hvert tímabil að
því besta, taka steinvöluna sem
lægi við fætur manns og upplifa
tækifærið sem í henni byggi. Mik-
ilvægt væri að setja sér markmið en
einnig að líta til himins í hversdags-
leikanum og upplifa mikilfengleik
óendanleikans.
Formaður skólanefndar, Matth-
ías G. Pétursson, flutti hinum ný-
brautskráðu nemendum kveðju og
Hjörtur Brynjólfsson flutti ávarp
fyrir hönd nýstúdenta.
Halla Viðarsdóttir
dúx
Dúx skólans var Halla Viðars-
dóttir, stúdent af eðlisfræðibraut,
og hlaut hún viðurkenningu fyrir
frábæran árangur, ágætiseinkunn í
54 af 55 námsáföngum. Halla og tví-
burasystir hennar, Hanna Viðars-
dóttir, fengu báðar verðlaun fyrir
mjög góðan árangur í íslensku,
stærðfræði, eðlisfræði, íþróttum,
frönsku og líffræði ásamt við-
urkenningu fyrir frábæra skóla-
sókn. Hanna hlaut ennfremur verð-
laun fyrir mjög góðan árangur í
efnafræði.
Ólöf Jónsdóttir hlaut viðurkenn-
ingu fyrir flestar námseiningar,
159 talsins, en lágmarksfjöldi ein-
inga er 140. Kvenfélag Garðabæjar
veitti verðlaun fyrir góðan árangur
í fata- og textílhönnun og féllu þau í
skaut Ástu Rúnar Jónsdóttur. Aðrir
nemendur sem hlutu viðurkenn-
ingu voru Monika Hrönn Ingólfs-
dóttir fyrir góðan árangur í mynd-
listargreinum, Gunnhildur
Róbertsdóttir í félagsgreinum, Atli
Sævarsson í félagsgreinum og
sögu, Sara Jóhannsdóttir í sögu, og
Birna Rún Pétursdóttir, Eiríkur
Ari Eiríksson og Ólöf Jónsdóttir
fyrir ágæta skólasókn.
Nýstofnaður Kvennakór Garða-
bæjar flutti nokkur lög við athöfn-
ina, m.a. skólasöng Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ undir stjórn
Ingibjargar Guðjónsdóttur söng-
konu. Skólasöngurinn er eftir Arn-
þrúði Lilju Þorbjörnsdóttur við
texta eftir Bjarka Bjarnason.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Brautskráning frá Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ
Sléttari húð, aukinn ljómi og
fullkomin ró. Róandi næturkrem
sem færir húðinni vítamín.
D-STRESS NÆTURKREM
Háholti 14,
sími 586 8000
Kynning í dag og á morgun:
Spennandi tilboð á rakakremum.
Kaupauki: Kertastjaki fylgir þegar
verslað er fyrir kr. 3.000 eða meira.
Tölvur
Compaq EX vinnustöð
taeknival.is
89.900.- verðm.vsk*
733/133Mhz Intel PIII örgjörvi
64 Mb vinnsluminni
Geisladrif & hljóðkort
10 Gb harður diskur
Windows 98 stýrikerfi
3 ára ábyrgð
Sérstaklega skarpur og bjartur snertiskjár • Upplausn 240x320pixel
Lyklaborð í vél • Þekkir handskrift • Upptökumöguleiki • Tengikví með
serial tengingu • Innrautt tengi 115kbs • Hljóðnemi og hátalari •
Lithium rafhlaða með 15 klst. endingu • Stærð aðeins 130x15,9x83,5
mm • Þyngd aðeins 170 gr. • Hægt að tengja aukabúnað –GSM, GPS
þráðlaus netkort ofl.
Compaq Ipac H3630 lófatölva
69.900.- verðm.vsk
Keflavík • Sími 421 4044Reykjavík • Sími 550 4000 Akureyri • Sími 461 5000
Ath: skjár ekki innifalinn í verði