Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 59
NÝVERIÐ útskrifuðust 16 viður-
kenndir bókarar frá Símennt Há-
skólans í Reykjavík.
Forsaga námsins er að í 1. gr. laga
nr. 29/1997, um breytingu á lögum
um bókhald, var ákveðið að setja á
laggirnar námskeið og próf fyrir þá
sem vilja öðlast viðurkenningu sem
bókarar. Í viðurkenningunni felst að
viðkomandi hefur staðist próf í bók-
færslu, helstu atriðum reiknings-
skila og lögum og reglum um skatt-
skil, auk þess sem þeir þurfa að
fullnægja ákveðnum almennum
hæfisskilyrðum sem talin eru upp í
lögunum. Markmið viðurkenningar-
innar samkvæmt lögunum er fyrst
og fremst að sinna þörfum þeirra
sem kaupa bókhaldsþjónustu. Með
opinberri viðurkenningu sem þess-
ari má gera ráð fyrir þegar fram
líða stundir að sá sem vill kaupa
þjónustu af hæfum aðila geti gengið
að því vísu að fá slíka þjónustu ef
fyrir liggur að viðkomandi þjónustu-
aðili hefur staðist próf samkvæmt
lögunum. Samningur var gerður ár-
ið 1999 milli fjármálaráðuneytisins
og Háskólans í Reykjavík um nám-
skeiðahald í þessu skyni.
Haustið 2000 sóttu 30 þátttak-
endur nám til prófs og hafa nú 16
þeirra lokið prófum og fá því til
staðfestingar afhenta viðurkenn-
ingu. Er þeim þar með heimilt að
kalla sig viðurkennda bókara.
Viðurkenndir bókarar útskrifaðir
frá Háskólanum í Reykjavík
Hópurinn sem útskrifaðist: Anna Antonsdóttir, Brynja Sigurjónsdóttir, Guðveig Jóna Hilmarsdóttir, Gunnar
Páll Ívarsson, Halla Auðunardóttir, Halla Guðbjörg Torfadóttir, Hólmfríður Þorvaldsdóttir, Hulda Jakobs-
dóttir, Ingibjörg Kristinsdóttir, Jóhanna Hallsdóttir, Már Jóhannsson, Rósa Ólafsdóttir, Rósant G. Aðalsteins-
son, Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir, Unnur Guðlaugsdóttir og Þórdís Guðrún Bjarnadóttir. Einnig eru á mynd-
inni Vignir Rafn Gíslason PricewaterhouseCoopers, Ragnheiður Snorradóttir, formaður prófanefndar, Sólrún
Smáradóttir, Símennt Háskólans í Reykjavík, og Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis.
annan hvern miðvikudag
VIÐSKIPTI mbl.is