Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 64
DAGBÓK 64 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Mánafoss kemur í dag. Sava Lake og Helgafell fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Laura Helena og Rán fara á morgun. Haukur fór í gær. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bókband, kl. 9–16.30 penna- og bútasaumur, kl. 9.45 morgunstund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 opin smíðastofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9 leikfimi, kl. 9–12 mynd- list, kl. 9–16 handavinna, kl. 14 dans, kl. 14–17 glerskurður. Ásdís hjá Samvinnuferðum- Landsýn verður með ferðakynningu í dag kl. 15. Allir velkomnir. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13–16.30, spil og föndur. Leikfimi í íþróttasal á Hlaðhömrum, þriðjud. kl. 16. Sundtímar á Reykjalundi kl. 16 á miðvikud. Pútttímar í Íþróttahúsinu á Varmá kl. 10–11 á laugard. Kóræfingar hjá Vorboð- um, kór eldri borgara í Mos. á Hlaðhömrum á fimmtud. kl. 17–19. Jóga kl.13.30 –14.30 á föstud. í Dvalarheimili Hlað- hömrum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9 handavinnustofan opin, kl. 9.30 danskennsla, gler- og postulínsmálun, kl. 13 opin handa- vinnustofan og klippi- myndir, kl. 14.30 söng- stund. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 11.10 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Kl. 15. bingó. Félagsst. Furugerði 1. Kl. 9 smíðar og út- skurður, glerskurður og leirmunagerð, kl. 9.45 verslunarferð í Austur- ver, kl. 13.30 boccia. Blómaball í kvöld kl. 17.30 Hljómsveitin „Í góðum gír“ leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Messa á morgun kl. 14. Prestur sr. Ólafur Jó- hannsson, kaffiveitingar eftir messu. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Púttæfingar í Bæjarút- gerðinni kl. 10–12. og Opið hús kl. 14 í boði Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði. Laugardag- inn 17. febr. kl. 16 halda tveir kórar eldri borg- ara tónleika í Víðistaða- kirkju, Hljómur frá Akranesi og Gaflarakór- inn frá Hafnarfirði. Leikhúsferð laugardag- inn 24. febr. Á sama tíma síðar. Skráning stendur yfir í Haunseli. Félagstarf aldraðra, Garðabæ. Spilað í Kirkjulundi á þriðjudög- um kl. 13.30. Spilað í Holtsbúð í dag kl. 13.30. Bingó og skemmtikvöld í Kirkjuhvoli 22. febrúar kl. 19.30 á vegum Lions- klúbbs Garðabæjar. Rútuferðir samkvæmt áætlun. Ferð í Þjóðleik- húsið 24. febrúar kl. 20. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids í dag kl. 13. Leikhópurinn Snúð- ur og Snælda sýna „Gamlar perlur“. Sýn- ingar eru á miðviku- dögum kl. 14 og sunnu- dögum kl. 17. Miða- pantanir í símum 588-2111, 568-9082 og 551-2203. Sjávarfangs- veisla, verður haldin 16. febrúar, dansað á eftir borðhaldi. Skráning haf- in á skrifstofu FEB. Að- alfundur FEB verður haldinn í Glæsibæ, 24. febr. kl. 13.30. Uppl. í s. 588-2111. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 op- in vinnustofa, gler- skurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og böðun, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 bókabíll, kl.15.15 dans. Gerðuberg, félagsstarf. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.30, kl. 10.30 helgistund í umsjá Lilju G. Hall- grímsdóttur, frá hádegi vinnustofur og spilasal- ur opin, m.a. glermálun í umsjón Óla Stína. Allar veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Aðstoð frá Skattstofu við skatt- framtöl verður veitt miðvikud. 7. mars. Skráning hafin. Allar upplýsingar um starf- semina á staðnum og í s. 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan op- in, gler og postulín kl. 9.30, leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50 og kl. 10.45, kl. 13 taumálun, og klippi- myndir, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Myndlistarsýning frístundamálara í Gjá- bakka stendur yfir til 23. febrúar. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 jóga og ganga, kl. 13 brids, kl. 14 boccia, kl. 13–16 handavinnustofan opin. Hraunbær 105. Kl. 9– 16.30 bútasaumur, perlusaumur og korta- gerð, kl. 9.45 boccia, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 opin handavinnustofa búta- og brúðusaumur, kl. 10 boccia, kl. 13 handavinna, kl. 14 félagsvist. Norðurbrún 1. Kl. 9 handavinnustofurnar opnar, útskurður, kl. 10 leirmunanámskeið. Guð- rún K. Þórðardóttir, djákni í Áskirkju, verð- ur með helgistund í mat- sal kl. 14. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13–14 leik- fimi, kl. 13–16 kóræfing. Á morgun kl. 15 verður ferðakynning á vegum Samvinnuferðar-Land- sýnar. Rjómabollur með kaffinu. Miðvikudaginn 21. febrúar verður farið kl. 13.20 í Ásgarð, Glæsibæ. Sýndar verða gamlar perlur með Snúð og Snældu. Kaffiveit- ingar seldar í hléinu, skráning í síma 562- 7077. Í dag kl. 10.30 verður fyrirbænastund í umsjón sr. Hjálmars Jónssonar Dómkirkju- prests. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9.30 glerskurður, fatasaumur og morgun- stund, kl. 10 boccia, kl. 13 handmennt, körfu- gerð og spilað. Gullsmárabrids. Brids- deild FEBK í Gullsmára býður alla eldri borgara velkomna að brids- borðum í félagsheim- ilinu að Gullsmára 13 á mánu- og fimmtudög- um. Mæting og skrán- ing kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. ÍAK. Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11 í Digranes- kirkju. Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverf- isgötu 105, kl. 14–17: Handverk af ýmsu tagi í styrktar- og fjáröflunar- skyni. Allir velkomnir. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58–60. Biblíulestur í dag kl. 17 hefur Benedikt Arnkelsson. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, Hátúni 12. Í kvöld kl. 19.30 tafl. GA-fundir spilafíkla eru kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtud. í fræðsludeild SÁÁ, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safnaðar- ins við Háteigsveg á laugard. kl. 10.30. Húnvetningafélagið, félagsvist í Húnabúð Skeifunni 11 í kvöld kl 20. Þriðja kvöld í fjög- urra kvölda parakeppni. Deild leikskólakennara á eftirlaunum heldur aðalfund sinn í dag kl. 14.30 á Grettisgötu 89, 2. hæð. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfund- arstörf. Gestur fund- arins verður Björg Bjarnadóttir, formaður Félags ísl. leikskóla- kennara, og mun hún kynna nýgerða kjara- samninga félagsins. Kvenfélag Kópavogs, fundur í kvöld kl. 20.30 í Hamraborg 10, mynda- sýning. Úrvalsfólk. Vorfagn- aður Úrvalsfólks verður haldinn á Hótel Sögu, Súlnasal, föstudaginn 16. febrúar kl. 19, miða- og borðapantanir hjá Rebekku og Valdísi í síma 585-4000. Í dag er fimmtudagur 15. febrúar, 46. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Berið hver annars byrðar og upp- fyllið þannig lögmál Krists. Sá sem þykist vera nokkuð, en er þó ekkert, dregur sjálfan sig á tálar. (Gal. 6, 2.-4.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Víkverji skrifar... VÍKVERJI rakst nýverið á aug-lýsingu frá Heimsferðum um fargjald til Alicante. Í henni kom fram að fargjald í sumar væri 27.400 kr. miðað við ferð fyrir hjón með tvö börn. Víkverji hafði einmitt ráðgert að fara til Spánar og dreif sig því að panta ferð á þessu góða verði. Vík- verji hafði reiknað út að hann kæm- ist til Spánar með alla fjölskylduna fyrir 109.600 kr. Víkverji flýtti sér því niður í að- alstöðvar Heimsferða til að ganga frá kaupum á ferðinni. Í ljós kom hins vegar að þetta fargjald miðaðist einvörðungu við að farið væri út ann- an hvern fimmtudag og ferðin stæði í tvær eða fjórar vikur. Þetta hentaði Víkverja ekki en honum var hins vegar boðið að fara út á föstudegi og vera í þrjár vikur gegn því að greiða örlítið hærra verð. Víkverji þótti þetta slæm skipti en sætti sig við það. Það kom honum hins vegar á óvart þegar sölumaður Heimsferða tilkynnti honum að að ferðin kostaði samtals um 135.000 kr. Skýringin á þessum mismun reyndist vera sú að auglýst verð í bæklingi fyrirtækisins var án flugvallarskatts. Víkverji fór eðlilega að skoða bæklinginn betur og sá þá það sem hafði farið fram hjá honum, að undir auglýsingunni um ferð til Alicante stóð með litlum stöfum: „Skattar ekki innifaldir.“ Á opnunni fyrir framan í bæklingi Heimsferða er hins vegar auglýst ferð fyrir fjöl- skylduna til Benidorm. Verð sem upp er gefið á ferðinni er með flug- vallarsköttum. Hver er tilgangur ferðaskrifstof- unnar að auglýsa verð án flugvall- arskatts? Er ástæðan sú að farþegar sem ferðast til Alicante geta valið um það hvort þeir borga þennan skatt eður ei? Finnst stjórnendum Heims- ferða eðlilegt að þeir séu plataðir í matvörubúð með auglýsingum á grænmeti án virðisaukaskatts? Hvers vegna auglýsa Heimsferðir ekki bara álagningu sína fyrst fyr- irtækið telur boðlegt að auglýsa að- eins hluta af heildarverði ferðarinn- ar? x x x VÍKVERJI fékk fyrir skömmuinnheimtuseðil vegna fast- eignagjalda. Þessi gjöld hafa hækk- að ár frá ári og er nýbyrjað ár þar engin undantekning. Víkverji komst því í vont skap. Daginn eftir kom annað bréf til Víkverja sem reyndist hafa að geyma barnabætur, heilar 4.184 kr. Þetta var óvænt enda hafa slíkar bætur ekki borist inn á heimili Víkverja í mörg ár. Víkverji varð svo kátur við að hann kyssti yngsta barnið á heimilinu og þakkaði því innilega fyrir barnabæturnar. Barnið varð að vonum hissa og spurði hvað barnabætur væru, hélt reyndar á tímabili að þetta væru „barnafætur“. Víkverji reyndi að út- skýra það fyrir barninu sem krafðist þess samstundist að fá barnabæt- urnar greiddar og kvaðst ætla að fjárfesta í Pokémon-myndum. Það var sama hvernig Víkverji reyndi að útskýra fyrir barninu að þessum fjármunum væri ætlað að standa straum af kostnaði við uppeldi þess; barnið krafðist þess að fá barnabæt- urnar sínar. x x x VÍKVERJI fór í vetur með bílinná þvottastöð á Þórðarhöfða í Reykjavík. Hann fékk þar ágætis þjónustu og m.a. afsláttarkort sem var væntanlega ætlað að hvetja hann til að nýta sér þjónustuna aftur. Í síð- ustu viku hugðist Víkverji aftur þvo bíl sinn, en nú brá svo við að hann gat ekki fundið bílaþvottastöðina. Þar sem Víkverja minnti að hana væri að finna reyndist vera komið réttingar- verkstæði. Framan við húsið og á því voru hins vegar stór og mikil skilti þar sem vegfarendur voru minntir á að í því væri að finna bílaþvottastöð. ÉG þakka Morgunblaðinu fyrir áður birta athuga- semd mína við kjöri Magn- úsar Þórs sem mann ís- lenskrar tungu ársins 2000. Allt orkar tvímælis þá gjört er og í ljósi þess að að ég þekki ekkert verk Meg- asar, sem að mínu mati gæti lyft honum í þetta virðingarsæti, fór ég vin- samlega fram á það við Guðrúnu Nordal að hún fengi birt í Morgunblaðinu verkin sem valnefndin byggði val sitt á. Engin svör hafa birst en í Morgunblaðinu 12. janúar sl. á bls. 56 er ljóð eftir Megas um skáldið Jónas, svohljóðandi: Sauðdrukk- inn útiíhrauni lá Hallgríms- son Jónas/ og hraut eins og sögunarverksmiðja í Bras- ilíu/ mamma kondu ekki ná- lægt með nefið þitt fína það er nálykt af honum þú gæt- ir fengið klígju. Hann orti um fallega hluti það er hlálegt/ og hellti svo bjór yfir pappír- inn og yfir orðið/ gættu þín mamma maðurinn hann er með sýfillis/ og mundu að þegar hann fer skaltu dekka borðið. Já hræið af Jónasi er sannanlega sjórekið/ sjó- rekið uppá fjörur gull- strandlengjunnar/ sjáðu mamma manninum honum er illt/ hann muldraði eitt- hvað um hrun og grípur um pyngjuna... Ég leyfi mér að vona að þetta sé ekki ljóðið sem heillaði Guðrúnu en meðan hún eða samnefndarmenn hennar birta ekki verð- launaverk Megasar er ég sama sinnis og áður, tel út- nefningu þeirra napurt háð fyrir tungu vora. Hvað dvelur nú orminn langa? Hvers vegna má ekki birta verkin góðu? Von mín er að 21. öldin nái að halda verndarhendi yfir okkar fagra móðurmáli því Klettafjallaskáldið sagði réttilega: Ið greiðasta skeið til að skrílmenna þjóð/ er skemmdir á tungunni vinna............. Hamingjan forði okkur frá þeirri vá og megi svo hin nýja öld okkur öllum gæfu veita. Pálmi Jónsson, Sauðárkróki. Níðskrif BIRTING á „vísnabréfi að vestan“, tileinkað forsætis- ráðherranum, sem birtist í Morgunblaðinu 11. febrúar sl. er eitthvað grófasta og ömurlegasta níð sem sést hefur á prenti um langt skeið. Útskýringar fylgdu hverri níðvísu enda kveð- skapurinn býsna slappur með illkvittni að öndvegi! Ef skammdegið fer illa í skáldið vestur í Djúpi væri e.t.v. heppilegt að halda kveðskapnum í heima- byggð á þessum árstíma! Hins vegar er það sorglegt að blessaður Mogginn okk- ar skuli láta misnota sig með svo meinfýsnum hætti. Ljóðaunnandi. Sagan undir malbik- inu og eyjan hvíta VEGNA væntanlegarar út- komu bókar minnar Sög- unnar undir malbikinu og eyjunnar hvítu, sem gæti komið út í haust, vil ég biðja þá sem hafa talað um að kaupa bókina að hafa sam- band við mig. Mér hefur láðst að skrifa niður nöfn. Snorri Bjarnason, Blönduósi, s. 452-4581. Tapað/fundið Svört hettukápa tapaðist SVÖRT hettukápa no. 8 frá Debenhams hvarf frá List- dansskóla Íslands v/Engja- teig, þriðjudaginn 6. febrú- ar sl. Skilvís finnandi er vin- samlegast beðinn að hafa samband í síma 552-5378 eða 866-6860 eða skila káp- unni í Listdansskóla Ís- lands. Brúnt peninga- veski tapaðist BRÚNT leðurpeninga- veski, eins og umslag í lag- inu, tapaðist, annaðhvort á Grettisgötu, Njálsgötu eða í miðbæ Reykjavíkur, föstudaginn 9. febrúar síð- astliðinn. Upplýsingar í síma 511-3360 eða 562- 4194. Dýrahald Kanína í óskilum RAUÐBRÚN kanína fannst við Mýrargötu mið- vikudaginn 7. febrúar síð- astliðinn. Upplýsingar í síma 551-2677. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hvað tefur ljóða- birtinguna? 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 vatnsósa, 8 furða, 9 þekki, 10 hag, 11 bjálfar, 13 ákveð, 15 vísa á bug, 18 brattur, 21 illmenni, 22 hali, 23 skynfærið, 24 skammur spölur. LÓÐRÉTT: 2 lýkur, 3 líkamshlutar, 4 ginna, 5 öldu, 6 húsdýr, 7 drótt, 12 elska, 14 eignast, 15 byggingu, 16 kuldi, 17 hindri, 18 æki, 19 reika stefnulítið, 20 trassi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 brúða, 4 dátar, 7 ýtinn, 8 lamin, 9 akk, 11 Anna, 13 hani, 14 læður, 15 falt, 17 átta, 20 ull, 22 óðinn, 23 úldið, 24 seiga, 25 ag- inn. Lóðrétt: 1 brýna, 2 úðinn, 3 unna, 4 dólk, 5 tomma, 6 runni, 10 kaðal, 12 alt, 13 hrá, 15 flóns, 16 leiði, 18 tuddi, 19 arðan, 20 unga, 21 lúða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.