Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 65
DAGBÓK
Ný
sending af
drögtum
frá
tískuverslun
v/Nesveg,
Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
FRÁ því elstu menn muna
hefur Eddie Kantar skrifað
varnarpistla í The Bridge
World undir fyrirsögninni
„Kantar for the Defence“.
Þetta eru oft mjög snúnar
þrautir með mörgum af-
brigðum, en hér er ein tær
og falleg.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 10
♥ D
♦ ÁDG6
♣ KDG843
Austur
♠ Á3
♥ G10874
♦ 1075
♣ Á109
Vestur Norður Austur Suður
– – – 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Makker kemur út með
lauftvist og þú tekur kóng
blinds með ás. Áætlun, takk
fyrir.
Þetta er ógnvekjandi
blindur og eina vonin til að
hnekkja geiminu er sú að
lauftvistur makkers sé
blankur. En ekki dugir að
gefa makker eina lauf-
stungu. Með trompásnum
gefur það aðeins þrjá slagi.
En kannski að makker eigi
hjartaás. Ætlarðu þá að
spila laufi til baka í öðrum
slag?
Norður
♠ 10
♥ D
♦ ÁDG6
♣ KDG843
Vestur Austur
♠ 65 ♠ Á3
♥ Á9632 ♥ G10874
♦ 98432 ♦ 1075
♣ 2 ♣ Á109
Suður
♠ DG98742
♥ K5
♦ K
♣ 765
Það væri óviturlegt á móti
hugsandi makker. Laufin
þín eru svo há að makker
gæti túlkað níuna sem kall í
hjarta og tekið upp á því að
spila undan hjartaásnum
með hræðilegum afleiðing-
um. En hann veit auðvitað
ekkert um spaðaásinn þinn
og er vís með að reyna að
koma þér inn á hjartakóng
til að fá aðra stungu.
Þetta mál er einfalt að
leysa. Áður en þú gefur
makker stunguna í laufi
leggurðu niður spaðaás. Þá
mun vestur ekki vera hönd-
um seinni að taka fjórða
slaginn á hjartaásinn sinn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STAÐAN kom upp í B-
flokki skákhátíðarinnar í
Wijk aan Zee. Hollenski
stórmeistarinn Friso Niboj-
er (2578) hafði hvítt og tókst
að snúa á unga Indverjann
P. Harikrishna (2514).
30.Rxe6!
bxc3+ 31.Ke2
Bd7 Ekki
gekk upp að
þiggja manns-
fórnina með
31...Hxf3 þar
sem eftir
32.Dxf3 Dxe6
33. Dxh5 verð-
ur svartur
óverjandi mát.
32.Hxf5 Bxe6
33.Df3 Bxf5
og svartur
gafst upp um
leið enda verð-
ur hann mát
eftir 34. Dxd5
o.s.frv. Skákin tefldist í heild
sinni: 1.e4 e6 2.d4 d5 3.Rc3
Bb4 4.e5 c5 5.a3 Bxc3+
6.bxc3 Re7 7.Dg4 O-O 8.Bd3
Rbc6 9.Dh5 Rg6 10.Rf3 Dc7
11.Be3 c4 12.Bxg6 fxg6
13.Dg4 Df7 14.Rg5 De8
15.h4 Re7 16.De2 Rf5 17.g4
Rxe3 18.Dxe3 h6 19.Rh3
De7 20.Dg3 Bd7 21.f4 Be8
22.Kd2 b5 23.f5 gxf5 24.g5 h5
25.g6 f4 26.Rxf4 Hf5 27.Hhf1
Bc6 28.Hf3 a5 29.Haf1 b4.
SKÁK
Umsjón Helgi
Áss Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
LJÓÐABROT
KVÆÐISBROT
Seggir þurfut ala ugg
(engu snýk’k í Viðurs feng
háði, kunnum hróðrar smíð
haga) of minn brag.
At væri borit bjórs
bríkar ok mitt lík
(rekkar nemi dauðs drykk
Dvalins) í einn sal.
Skorða var í föt færð
fjarðbeins afarhrein,
nýri slöng nadd-Freyr
nisting um mjaðar-Hrist.
Hrosta drýgir hvern kost
hauk lúðrs gæi-Þrúðr,
en drafnar loga Lofn
löstu rækir vinföst.
– – –
Ormur Steinþórsson.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert dálítið tvöfaldur í roð-
inu því þú ert ýmist opinn og
sveigjanlegur eða stífur og
fastur á þinni meiningu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það skiptir öllu máli að þú far-
ir vel af stað og náir forskoti á
keppinauta þína. Vertu því
einbeittur þegar startskotið
ríður af.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú skalt ekki láta eins og
breytingar séu þér að skapi ef
þær eru það ekki heldur segðu
hreint út þinn hug þannig að
enginn velkist í vafa um af-
stöðu þína.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér mun verða trúað fyrir
leyndarmálum sem liggja að
þýðingarmikilli ákvörðun og
það kemur í þinn hlut að vega
hana og meta áður en henni er
hrint í framkvæmd.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er óþarfi að taka alla
skapaða hluti bókstaflega því
það kallar bara á álag og ör-
væntingu. Sumir hlutir eru
bara til þess að hlæja að þeim.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur ráð undir rifi hverju
svo þú skalt ekki hika við að
stíga á svið og segja tæpi-
tungulaust hvernig best er að
fara að hlutunum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Stundum er best að láta
spurningum ósvarað og tjá
ekki upp hug sinn þótt eftir
honum sé leitað. Segðu því að-
eins skoðun þína að þér finnist
efnið þess virði að sinna því.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gefðu þér tíma til þess að
grandskoða tilfinningar þínar
svo þú getir gert þér grein fyr-
ir því hvað og hverjir eru þér
þess virði að þú sinnir þeim.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert einn fárra sem hafa
fullan skilning á því máli sem
mest er rætt á vinnustað þín-
um. Sýndu drengskap og
taktu forystuna fyrir félögum
þínum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Lánið vill leika við þig en það
er ekki að ófyrirsynju eða út í
bláinn því öll uppskerum við
eins og við sáum og þú þá líka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ef þú hefur unnið heimavinn-
una þína veistu nú hvar málin
standa og hverjir eru með þér
og hverjir á móti. Það er nauð-
synlegt fyrir þig að hafa þá
mynd á hreinu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er ekki ástæða til annars
en að vera léttur í lund og láta
lífið leika við sig. Mundu bara
að svo tekur alvaran við aftur
bæði hjá þér og öðrum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú er ekki rétti tíminn til þess
að baða sig í sviðsljósinu en
þér er heldur ekki fyrir bestu
að draga þig algerlega í hlé.
Leitaðu hins gullna meðal-
hófs.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 15.
febrúar, verður sextugur
Örnólfur Árnason rithöf-
undur. Hann tekur á móti
gestum á Hótel Cabin við
Borgartún milli kl. 18–20.
50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 15.
febrúar, verður fimmtugur
Engilbert Gíslason, fram-
kvæmdastjóri, Austurbrún
25, Reykjavík. Engilbert og
fjölskylda taka á móti gest-
um í Oddfellow-húsinu, Von-
arstræti 10, Reykjavík, á af-
mælisdaginn milli kl. 15–17.
80 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 15.
febrúar verður áttræð Jó-
hanna Þórólfsdóttir,
Lönguhlíð 3, Reykjavík. Jó-
hanna er að heiman í dag.
Með morgunkaffinu
Segðu „aaaa“.
FUGLAVERNDARFÉLAG Ís-
lands, Náttúruverndarsamtök Ís-
lands og SUNN fagna því að nú sér
fyrir endann á kísilgúrnámi á botni
Mývatns, segir í ályktun frá félögun-
um.
Ennfremur segir: „Stjórnvöld og
hið nýja fyrirtæki um stofnun kísil-
duftsverksmiðju í Mývatnssveit eiga
að grípa tækifærið nú og lýsa yfir að
frekara kísilgúrnámi verði hætt um
leið og hráefni í Ytriflóa þrýtur og að
ekki verði gerð tilraun til að afla
starfsleyfis fyrir kísilgúrnám í Syðri-
flóa.
Ofangreind samtök telja brýnt að
hluti þess fjár sem stjórnvöld hyggj-
ast nota til að efla atvinnulíf í Mý-
vatnssveit verði nýttur til að efla nátt-
úruvernd og landvörslu við Mývatn
og Laxá. Einstæð náttúra svæðisins
er ein helsta auðlind þeirra sem það
byggja og náttúrugersemi á heims-
vísu. Tryggja verður aukið fé til land-
vörslu allt árið um kring, gerð vernd-
aráætlunar fyrir Mývatn og Laxá í
samræmi við ákvæði Ramsarsamn-
ingsins og komið verði á fót alþjóð-
legri rannsóknarmiðstöð við Mývatn
til að efla rannsóknir á lífríki þess.“
Fagna endalokum
kísilgúrnáms
GÓÐVINAFÉLAG FG stendur fyrir
samkomu í nýjum húsakynnum Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar föstudaginn
16. febrúar. Markmið samkomunnar
er að fjölga í hópi félagsmanna, fá
hugmyndir um hvernig félagið geti
sem best stutt við bakið á starfsemi
skólans og síðast en ekki síst að koma
saman. Fagnaðurinn hefst kl. 17 og
er áætlað að hann standi til kl. 21.
Hljómsveit hússins mun spila,
gömul skólablöð munu styðja fólk í að
rifja upp liðna tíð, óvæntar uppákom-
ur, karókí og fleira. Stjórn GFG hvet-
ur alla til að mæta og eru allar hug-
myndir um starfsemi félagsins vel
þegnar, segir í fréttatilkynningu.
Léttar veitingar verða í boði.
Góðvinafélag FG
með fagnað
FRÉTTIR