Morgunblaðið - 28.02.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 28.02.2001, Síða 1
49. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 28. FEBRÚAR 2001 BRESKA stjórnin sagði í gær að stórum svæðum í sveitunum kynni að verða lokað fyrir almenningi í því skyni að hamla gegn frekari út- breiðslu gin- og klaufaveiki. Ýmsum íþróttaviðburðum, svo sem kappreið- um, var frestað og samtök bænda hvöttu Tony Blair forsætisráðherra til að hætta við áform sín um að boða til þingkosninga í vor. Ráðherrar bresku ríkisstjórnar- innar staðfestu að sex ný tilfelli hefðu greinst og sjúkdómsins hefði orðið vart á alls 18 stöðum í Bret- landi. Stjórnin veitti sveitarstjórnum heimild til að loka göngustígum og stórum svæðum í landbúnaðarhéruð- unum fyrir almenningi. Ákveðið var einnig að loka þjóðgörðum og fólk sem ferðast um sveitirnar, svo sem göngufólk og stangveiðimenn, var hvatt til að halda sig frá beitilöndum. Allar kappreiðar voru bannaðar í viku á Englandi og í Wales og ákveð- ið var að fresta rugby-leik milli Ír- lands og Wales, sem ráðgerður var í Cardiff á laugardag, þar sem óttast var að sjúkdómurinn gæti borist til Írlands með stuðningsmönnum írska liðsins. Sauðfé fargað í Frakklandi Sjúkdómurinn kann að verða til þess að Tony Blair þurfi að hætta við áform sín um að boða til þingkosn- inga í apríl eða maí. Samtök breskra bænda sögðu að ekki væri sann- gjarnt gagnvart sveitafólki að efna til kosninga ef banna þyrfti pólitísk- ar samkomur í sveitunum. Dýralæknanefnd Evrópusam- bandsins ákvað í gær að framlengja bann við innflutningi á dýrum og dýraafurðum frá Bretlandi til 9. mars. Nokkur ríki á meginlandi Evr- ópu hafa gert ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir gin- og klaufaveiki- smit. Franska stjórnin tilkynnti í gær að farga ætti 20.000 kindum sem fluttar voru til Frakklands frá Bret- landi fyrr í mánuðinum. Bretar gera ráðstafanir til að hindra frekari útbreiðslu gin- og klaufaveiki Skorað á Blair að hætta við þingkosningar í vor London. AFP, AP. BANDARÍKJAMAÐURINN Eric Scott býr sig undir að lenda eftir að hafa flogið yfir dansara á kjöt- kveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro sem lauk við sólarupprás í gær. Scott var með svokallað „eldflaug- arbelti“ og um 50.000 manns fylgd- ust með flugi hans yfir dansara sambaskólans Grande Rio á íþrótta- leikvangi í borginni. Reuters Eldflaugar- maðurinn lendir INDÓNESÍSKA lögreglan á Borneó skýrði frá því í gær að 600 Dajakar hefðu ráðist á bílalest með rúmlega 300 flóttamenn og myrt 118 þeirra. Tíu lögreglumenn fylgdu flóttafólkinu og lögðu á flótta þegar árásin hófst. Fórnarlömbin voru öll aðflutt fólk frá eyjunni Madúra, nálægt Jövu. Dajakar, frumbyggjar Borneó, hafa hótað að tortíma öllum Madúrum sem verða um kyrrt á indónesíska hluta eyjunnar. Dajakarnir réðust með sverðum og öxum á flóttamennina þegar þeir voru á leiðinni frá afskekktum þorpum í héraðinu Mið-Kalimantan til borgar- innar Sampit á sunnudagskvöld. Lög- reglumennirnir lögðu strax á flótta til að biðja um hjálp, enda voru þeir miklu færri en árásarmennirnir. Nær 200 flóttamönnum tókst að flýja með lögreglumönnunum en Daj- akarnir króuðu hina af og afhöfðuðu þá. Að minnsta kosti 400 lík hafa fund- ist frá því að Dajakar hófu drápin á Madúrum fyrir rúmri viku og óttast er að þeir hafi myrt hundruð manna til viðbótar. Óöldin á Borneó Dajakar myrða 118 flóttamenn Palangkaraya. AFP. BLAÐAMENN á norska blaðinu Bergens Tidende eiga ekki von á góðu ef þeim verð- ur á stafsetningar- eða inn- sláttarvilla því ritstjórar blaðsins hyggjast sekta þá fyrir slík mistök í framtíðinni. Hver villa í fréttatexta mun kosta viðkomandi blaðamenn tæpar 9 kr. ísl., villa í inngangi fréttar um 45 kr. en villa í fyr- irsögn mun kosta blaðamenn- ina um 90 kr. hver. Kjell-Eirik Mikkelsen, ritstjórnarfulltrúi blaðsins, segir stafsetningar- og innsláttarvillur hafa aukist mjög síðustu ár. „Ég hef sent upplýsingar, um hvernig staf- setja eigi einstök orð, um rit- stjórnina en það dugar ekki til. Eftir nokkra daga er allt gleymt. Við vonum að þetta bæti ástandið,“ segir hann. Blaðamenn sektaðir fyr- ir ritvillur Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Mikil menningarverðmæti í hættu í Afganistan AP 53 metra há Búddha-stytta í Bamiyan, ein af 2.000 ára gömlum styttum sem Talibanar í Afganistan ætla að eyðileggja. TALIBAN-hreyfingin í Afganistan sagðist í gær ætla að eyðileggja allar fornar styttur sem tengj- ast ekki íslömskum sið. Flestar stytturnar eru um 2.000 ára gamlar og frá þeim tíma þegar Afgan- istan var miðstöð lærdóms og pílagrímsferða búddhatrúarmanna. Hermt er að talibanar hafi þegar ráðist á tvær af þekktustu styttum heims, stórar Búddha-stytt- ur sem ristar voru í klett í Bamiyan, um 150 km vestan við Kabúl. „Þetta er ákvörðun trúarlegra fræðimanna okk- ar og henni verður örugglega framfylgt,“ sagði sendiherra Taliban í Pakistan, eftir að hafa lesið formlega tilskipun leiðtoga hreyfingarinnar um að styttunum yrði eytt. Hópur sendiherra á vegum Menningarstofnun- ar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, mótmælti til- skipuninni. „Ef þeir eyðileggja stytturnar missir heimurinn mikil menningarverðmæti,“ sagði gríski sendiherrann Dimitri Loundras sem fer fyrir hópnum. Loundras bætti við að sendiherrunum hefði ver- ið meinað að skoða safn í Kabúl þar sem talið er að 12–60 styttur hafi þegar verið eyðilagðar. Vilja tryggja að enginn „dýrki styttu“ UNESCO skoraði á Afgana að „hætta að eyða eigin menningararfi“. „Afganistan var við forna Silkiveginn og nýtur einstaks menningararfs sem einkennist af áhrifum frá Persíu, Grikklandi, hindúatrú, búddhatrú og íslam,“ sagði í yfirlýs- ingu frá stofnuninni. Talibanar saka UNESCO um afskipti af innan- ríkismálum Afganistans og trúarlegri stefnu hreyfingarinnar. Þeir segja tilskipunina nauðsyn- lega „til að tryggja að enginn dýrki styttu“. 2000 ára gamlar styttur eyðilagðar Íslamabad. Reuters. NASDAQ-hlutabréfavísitalan lækkaði um 4,36% í gær og hefur ekki verið jafnlág í rúm tvö ár. Verðbréfamiðlarar rekja þetta til nýrra hagtalna sem benda til þess að traust neytenda á efna- hagnum hafi minnkað í febrúar, fimmta mánuðinn í röð. Sala á fast- eignum dróst einnig verulega sam- an í janúar. Þessar upplýsingar kyntu undir áhyggjum fjárfesta af því að hætta kynni að vera á alvarlegum efna- hagssamdrætti í Bandaríkjunum. Dow Jones-vísitalan hélst þó nánast óbreytt. Nasdaq lækkar New York. Reuters.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.