Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ KOSTNAÐUR Akureyrarbæjar vegna ný- og viðbygginga sem og endurbætur á leik- og grunnskólum nemur á bilinu þremur til fjórum milljörðum króna fram til ársins 2010 miðað við að fjölgun íbúa verði um 1,7% á ári á þessu tímabili. Þetta kom fram í erindi Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjarstjóra á hádegisverð- arfundi sem Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Háskólinn á Akureyri og Aksjón efndu til í gær. Kristján Þór fjallaði í erindi sínu um hugs- anlega þróun á Akureyri á næstu tíu árum, hvað varðar fjölgun íbúa, ný hverfi, leik- og grunnskólabyggingar og fleira sem þessu tengist, en áður brá Benedikt Guðmundsson forstöðumaður þróunarsviðs Atvinnuþróunar- félags Eyfirðinga upp mynd af hugsanlegri þróun á Akureyri hvað varðar fjölgun íbúa miðað við hinar ýmsu forsendur. Gengið var út frá að fjölgunin næmi 1,7% á ári sem þýðir að íbúar á Akureyri verða rúmlega 18 þúsund ár- ið 2010, en árið 2030 verði þeir um 25 þúsund talsins. Kristján Þór sagði að á Akureyri hefðu menn örlítið komist upp úr þeirri kreppu sem ríkt hefði á síðustu árum hvað varðaði fjölgun íbúa, en það væri ekki sjálfgefið að sú þróun héldi áfram. Hann nefndi að fækkun starfa í frumvinnslunni hefði verið umtalsverð á síð- asta áratug eða um 1840 störf, en vöxtur væri m.a. í verslun, iðnaði og byggingariðnaði og til þessa þyrftu menn að horfa þegar litið væri til framtíðar. Ekkert benti til að vöxtur yrði í þessum frumframleiðslugreinum, þannig að menn þyrftu að horfa til nýrra atvinnugreina, m.a. verslunar og á sviði hugbúnaðar. Einn nýr grunnskóli og 3–4 leikskólar Akureyringar verða um 18.200 árið 2010 ef spá um íbúafjölgun gengur eftir, en það er aukning um tæplega 3000 íbúa frá því sem nú er. Kristján Þór sagði að gera mætti ráð fyrir að nemendum grunnskólanna myndi fjölga um 316 á þessu tímabili og yrðu allir grunnskóla bæjarins fullsetnir í lok þessa tímabils. Til að mæta þessari aukningu þyrfti einnig að reisa fyrsta áfanga nýs skóla í Naustahverfi á árunum 2005 til 2007. Hvað leikskólana varðar sagði Kristján Þór að gera mætti ráð fyrir að á næstu 10 árum þyrfi að fjölga leikskólarýmum umtalsvert eða um 260 rými alls, fyrir um 350 börn. Á þessu tímabili þyrfti því að byggja þrjá til fjóra nýja leikskóla. Að auki þyrfi að endurnýja nokkra þeirra á tímabilinu. Alls sagði bæjarstjóri að kostnaður við framkvæmdir gætu verið um tveir milljarðar króna á tímabilinu 2003 til 2010. Á þessu ári er áætlað að framkvæmdir við leik- og grunn- skóla nemi 365 milljónum króna og um 260 á því næsta. Kristján Þór fjallaði einnig um næstu bygg- ingasvæði bæjarins en til umráða eru nú um 114 hektarar samkvæmt skipulagi. Þar er um að svæði við Klettaborg, 4,2 hektarar að stærð fyrir að minnsta kosti 55 íbúðir, Giljahverfi 4 sem einnig er 4,2 hektarar að stærð og rúma í það minnsta 64 íbúðir, við Lindasíðu er skipu- lagt svæði fyrir um 30 íbúðir, samtals 1,6 hekt- arar og þá verður Naustahverfi tilbúið á næsta ári, samtals 104 hektarar en þar er rými fyrir tvö til þrjú þúsund íbúðir. Samtals er því til skipulagt svæði fyrir um tvö til fimm þúsund íbúðir á þessum svæðum. Fram kom í máli Kristjáns Þórs að gera mætti ráð fyrir að fjölgun íbúa á þessu tímabili myndi skila bænum tæpum einum milljarði króna í auknum tekjum. Við umræður að loknu framsöguerindi bæj- arstjóra var m.a. fjallað um hvort byggðin myndi þróast áfram til suðurs eða hvort byggð yrði með strandlengjunni til norðurs en í því sambandi sagði Kristján Þór að á næstu árum yrði byggt til suðurs, vel væri athugandi að byggja meðfram ströndinni en það væri ekki endilega á dagskrá strax. Samkvæmt mannfjöldaspám verða Akureyringar orðnir ríflega 18 þúsund talsins árið 2010 Framkvæmdir við skóla nema allt að 4 milljörðum RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær að leggja fram eina milljón króna af ráð- stöfunarfé sínu til tveggja um- hverfisverkefna á vegum norð- urskautsráðsins, eða 500 þúsund krónur til hvors verk- efnis. Verkefnin sem um ræðir snúa að umhverfisvernd á norð- urskautssvæðinu, en helstu hættur þar eru raktar til ástands umhverfismála í Norð- vestur-Rússlandi og hafsvæð- inu þar í kring. Leitað var eftir því við íslensk stjórnvöld að þau legðu fram fjármagn til þessara tveggja verkefna, en annars vegar er um að ræða gerð framkvæmdaáætlunar um varnir gegn mengun sjávar frá landi og tekur það til allrar nú- verandi starfsemi sem losar mengandi úrgang í sjó. Hins vegar er um að ræða verkefni sem lúta að hreinsun á PCB sem ógnar umhverfinu verði ekkert að gert. Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri PAME- skrifstofunnar á Akureyri, sagði að gert væri ráð fyrir að öll ríki norðurskautsráðsins, sem eru 8 talsins myndu leggja fram fé til þessara verkefna enda teldu menn að þau skiptu miklu fyrir umhverfisvernd á norðurskautssvæðinu. Soffía hefur einkum fylgst með fram- gangi mála að því er varðar rússneska verkefni og sagði hún að þar væri um að ræða merkilegt verkefni og brýnt. Það snerist um verndun haf- svæðisins á þessu svæði sem og um mengun sem til félli frá landi. Hún sagði að rússneska þingið myndi taka þetta mál fyrir 12. mars næstkomandi, en þetta verkefni yrði að vinna að frumkvæði heimamanna. Soffía sagði að um yrði að ræða svæðisbundnar aðgerðir og væri þetta eitt stærsta verk- efni sinnar tegundar á þessu sviði. „Það er brýnt að ráðast í þetta verkefni og það er vilji þeirra landa sem aðild eiga að norðurskautsráðinu að hefja það,“ sagði Soffía. Varnir gegn meng- un sjávar og hreinsun á PCB Ríkisstjórnin styrkir tvö um- hverfisverkefni AKUREYRARBÆR hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra til að greiða Ingibjörgu Ey- fells, fyrrverandi deildarstjóra leik- skóladeildar bæjarins, rúmar 1,8 milljónir króna í bætur með dráttar- vöxtum frá 29. júní á síðasta ári, vegna mismununar í launakjörum og 500 þúsund krónur í málskostnað, meðal annars vegna reksturs málsins fyrir kærunefnd jafnréttismála. Ingibjörg var ráðin í stöðu deild- arstjóra dagvistardeildar árið 1991 og þegar við ráðningu gerði hún at- hugasemdir við launakjör sín. Farið var fram á að launaflokkaröðun deild- arstjóra dagvistardeildar yrði skoðuð með tilliti til eðlis, ábyrgðar og um- fangs starfsins og endurmetin til samræmis við aðrar deildarstjóra- stöður hjá bænum. Fór Ingibjörg fram á að launakjör sín yrðu tekin til endurskoðunar og metin til samræm- is við laun annarra deildarstjóra á vegum bæjarins en án árangurs. Starfsheiti hennar breyttist úr deild- arstjóri dagvistardeildar í deildar- stjóri leikskóladeildar árið 1992. Í nóvember 1998 kærði Ingibjörg Akureyrarbæ til kærunefndar jafn- réttismála vegna þess launamisréttis sem hún taldi sig hafa verið beitta. Kærunefndin komst að þeirri niður- stöðu að bærinn hefði brotið jafnrétt- islög við launaákvarðanir sínar gagn- vart Ingibjörgu. Þar sem bærinn varð ekki við tilmælum Ingibjargar og kærunefndar jafnréttismála að bæta mun á kjörum hennar og deild- arstjóra öldrunardeildar var höfðað mál á hendur Akureyrarbæ. Ingbjörg byggði kröfur sínar m.a. á því að við ákvörðun launa og fríð- inda skyldi þess gætt að kynjum væri ekki mismunað. Horfa skyldi sérstak- lega til þess að meta jafnt mismun- andi starfssvið, reynslu og menntun kvenna og karla. Einnig vísaði hún til laga þar um sem segir að atvinnurek- endum sé óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kynferði og gildir það t.d. um laun, launatengd fríðindi og hvers konar aðra þóknun fyrir vinnu, m.a. í formi bifreiðastyrks. Í málinu krafðist Ingibjörg skaða- bóta sem nema launa- og launakjara- mismun, aðallega milli atvinnumála- fulltrúa og deildarstjóra leikskóla- deildar en til vara milli deildarstjóra öldrunardeildar og deildarstjóra leik- skóladeildar. Taldi hún að störfin væru jafn verðmæt og sambærileg þótt þau væru ekki eins. Deildarstjóri fái bætur vegna launamisréttis Akureyrarbær dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands ÞAÐ birtir yfir mönnum með hækk- andi sól,“ sagði Kolbeinn Sig- urbjörnsson sem spókaði sig í sól- inni í Sundlaug Akureyrar í hádeginu í gær ásamt félaga sínum Vigni Hjaltasyni. Þeir sögðust vera að ræða heims- málin og þóttust komnir langt með að leysa flest þeirra. Það vantaði nokkra fastagesti í hópinn og fyrir vikið gekk þeim mun betur að leysa öll heimsins mál. „Þau mál sem liggja óleyst eftir daginn verða af- greidd á morgun,“ sögðu þeir félagar. Golfíþróttina bar einnig á góma enda skemmtilegt umræðuefni og af nógu að taka. Þeir ræddu meðal annars stöðu eins félagans sem varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að týna sveiflunni í golf- hermi og þótti ekki nógu gott. Morgunblaðið/Kristján Birtir yfir mönnum með hækk- andi sól

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.