Morgunblaðið - 28.02.2001, Síða 16
VIÐSKIPTI
16 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TAP Flugleiða og dótturfélaga nam
939 milljónum króna á síðasta ári en
árið 1999 nam hagnaður samstæð-
unnar 1.515 milljónum króna. For-
ráðamenn Flugleiða nefna tvo þætti
sem skipta mestu hvað varðar versn-
andi afkomu félagsins. Annars vegar
versnandi rekstrarafkomu en hins
vegar til þess að á fyrra ári varð lið-
lega tveggja milljarða króna hagnað-
ur af eignasölu en var 131 milljón
króna árið 2000. Rekstrartap Flug-
leiða árið 2000 að teknu tilliti til fjár-
magnskostnaðar, en án skatta, var
1.475 milljónir króna, en árið 1999 var
hagnaður að fjárhæð 312 milljónir
króna. Samkvæmt upplýsingum frá
Flugleiðum hækkaði eldsneytis-
kostnaður um 1.600 milljónir króna
miðað við jafn mikið flug. „Rekja má
um 700 milljóna króna kostnaðar-
hækkun til hækkunar dollaragengis
gagnvart Evrópumyntum og launa-
hækkanir kostuðu félagið hérumbil
1.000 milljónir króna. Þetta er um
3.300 milljóna króna hækkun rekstr-
arkostnaðar.“ Veltufé frá rekstri
Flugleiða árið 2000 var 983 milljónir
króna en var 2.103 milljónir króna ár-
ið áður. Handbært fé frá rekstri var
1.778 milljónir króna en var 2.230
milljónir króna í árslok 1999. Hand-
bært fé í lok tímabilsins var 1.767
milljónir króna en var 1.893 milljónir
króna í árslok 1999. Eignir félagsins í
markaðsverðbréfum voru 933 millj-
ónir á móti 1.834 milljónum árið áður.
Á móti þessari lækkun kemur hins
vegar að félagið hefur greitt inn á nýj-
ar flugvélar og fjárfest í öðrum fasta-
fjármunum.
Hófleg bjartsýni um reksturinn í ár
Rekstraráætlun félagsins fyrir árið
2001 gerir ráð fyrir miklum umskipt-
um í starfseminni og hagnaði af
rekstrinum. Það byggist annars veg-
ar á markaðsspám um lækkun elds-
neytisverðs og hagstæðari þróun
gengis og hins vegar á þeim aðgerð-
um sem þegar hefur verið gripið til í
starfseminni. Að sögn Sigurðar
Helgasonar, forstjóra Flugleiða,
skýra mjög erfiðar ytri aðstæður
mikið tap Flugleiða á síðasta ári og
þrátt fyrir að félaginu hafi tekist
ágætlega á mörgum sviðum þá er af-
koman verri en vænst var. Félagið er
að sögn Sigurðar að meta kosti þess
að draga úr framleiðslugetu í alþjóða-
flugi og innanlandsflugi Flugfélags
Íslands. Á þessu ári og næsta skila
Flugleiðir til eigenda tveimur Boeing
737 þotum sem félagið hefur á leigu.
Á móti er félagið að kaupa á næstu 13
mánuðum tvær Boeing 757 þotur.
Vorið 2002 getur félagið skilað þrem-
ur Boeing 757 þotum sem það hefur á
leigu. Félagið hefur því tækifæri til að
gera töluverðar breytingar á flugflot-
anum þegar á næsta ári. Flugleiðir
minnkuðu flug um 10% á síðustu
mánuðum 2000 og fyrstu mánuðum
2001. „Í framhaldinu er félagið að
meta kosti þess að draga úr fram-
leiðslugetu í alþjóðaflugi, einkum yfir
veturinn. Góður árangur náðist í að
auka sætanýtingu á flestum leiðum
og á síðasta fjórðungi ársins jókst
sætanýting úr 61,3% í 69,9% eða um
8,6 prósentustig,“ að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu.
Sigurður segir að ekki sé verið að
setja neinar fargjaldahækkanir í
gang núna en þau hækkuðu eitthvað á
síðasta ári. Það taki hins vegar 6–12
mánuði að láta hækkanirnar skila sér
inn í reksturinn m.a. vegna langtíma-
samninga við ferðaheildsala. „Við
gerum ráð fyrir talsverðum umskipt-
um í starfseminni strax á þessu ári.
Bæði er eldsneytisverð lægra en það
var að meðaltali á síðasta ári og evran
hefur verið að styrkjast gagnvart
dollar, sem er mjög mikilvægt fyrir
okkur. Við sjáum líka fram á að ekki
verði um jafn miklar launahækkanir í
ár og á því síðasta. Við erum því hóf-
lega bjartsýn um reksturinn í ár,“
segir Sigurður.
Neikvæð áhrif dótturfélaga
upp á 532 milljónir króna
Samkvæmt ársreikningi Flugleiða
eru áhrif dótturfélaga neikvæð á af-
komu móðurfélagsins um tæpar 532
milljónir króna á síðasta ári saman-
borið við rúmar 100 milljónir króna
árið 1999.
Afkoma dótturfélaga versnaði um
samtals 200 milljónir króna síðustu
þrjá mánuði ársins samanborið við
fyrra ár og samtals er því afkoma
samstæðunnar af rekstri fyrir skatta
á síðasta ársfjórðungi um 800 millj-
ónum króna lakari en á sama tímabili
1999. „Rekstur Ferðaskrifstofu Ís-
lands gekk þokkalega á árinu þótt af-
koman versnaði nokkuð. Rekstur
Kynnisferða sf. gekk mun verr en á
fyrra ári vegna áfalla sem fyrirtækið
varð fyrir í löngu verkfalli bifreiða-
stjóra síðastliðið sumar,“ að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Samdráttur í rekstri dótturfélaga
Hrundið hefur verið af stað breyt-
ingum í starfsemi dótturfyrirtækja
og afkomueininga sem miða að því að
draga saman í rekstri sem ekki skilar
félaginu arði. Má þar nefna fækkun
um fjögur hótel í heilsárs hótelrekstri
Flugleiðahótela sem kemur til fram-
kvæmda á næstu vikum. Óarðbæru
flugi Flugfélags Íslands til fámennari
byggðarlaga innanlands var hætt.
Það flug var boðið út og er nú rekið
með ríkisstyrk. Sömu sögu er að
segja af flugi milli Íslands og Græn-
lands, sem ákveðið var að hætta en er
nú starfrækt með tilstyrk græn-
lensku landstjórnarinnar. Töluverður
samdráttur verður í starfsemi í við-
haldsstöðinni á Keflavíkurflugvelli
vegna versnandi markaðsstöðu í við-
haldi fyrir önnur flugfélög.
Áætlað er að tæknibreytingar hjá
Flugfélagi Íslands muni leiða til 60
milljóna króna lækkunar kostnaðar á
árinu 2001. Fleiri aðgerðir eru í bí-
gerð, sem verða kynntar á fyrri hluta
þessa árs, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Flugleiðum.
Hlutafé í dótturfélögum aukið
um 890 milljónir króna
Á árinu jók félagið hlutafé sitt í
þremur dótturfélögum, Flugfélagi Ís-
lands, Flugleiðu–Frakt og Bílaleigu
Flugleiða um 510 milljónir króna að
nafnverði. Á seinni hluta árs 2000
stofnaði félagið tvö ný dótturfélög,
Ferðasmiðinn hf. og Flugþjónustuna
Keflavíkurflugvelli ehf. Innborgað
hlutafé nam 380 milljónum króna.
Arnbjörn Ingimundarson, starfs-
maður greiningar Íslandsbanka–
FBA, segir að tap Flugleiða sé tals-
vert meira en Íslandsbanki–FBA hafi
átt von á, „en bæði voru rekstrargjöld
hærri og fjárhagsliðir verri en við
höfðum áætlað. Tekjur voru aftur á
móti í samræmi við okkar spá. Það lá
ljóst fyrir að kostnaðarhækkanir og
óhagstæðar gengishreyfingar myndu
hafa slæm áhrif á afkomu félagsins,
en þegar rekstrargjöld eru hátt á
fjórða tug milljarða getur tiltölulega
lítil sveifla á kostnaðarliðum breytt
afkomu um hundruð milljóna. Flug-
leiðir áætla að félagið verði rekið með
hagnaði árið 2001 og er ein af for-
sendum þeirrar áætlunar að elds-
neytisverð muni lækka og gengisþró-
un verði hagstæðari en á liðnu ári. Sá
fyrirvari endurspeglar þá áhættu
sem er fólgin í rekstri af þessu tagi,
en engin trygging er fyrir því að for-
sendurnar gangi eftir. Greining Ís-
landsbanka–FBA er þó jákvæð á þær
aðgerðir Flugleiða sem miða að því að
draga félagið úr óarðbærari hluta
starfseminnar, t.d. með því að minnka
vetrarflug.“
! ! !
*+,
%*-,.
%*-/01
!"
#"$$
"!#$#
!#$
%&'
%"
%"$
#&&
%"&!
"!'$
!'$
#!
#( )
#()
!(#&
# $
"'(
$)(
*+,(
$%(
%,%(
*&#(
$)(
*")(
%'(
$)(
*'%(
-(
./ /
./ /
./ /
Tap Flugleiða
nemur 939 millj. kr.
HAGNAÐUR Opinna kerfa hf. eftir
skatta á árinu 2000 var 306 milljónir
króna, sem er 42% aukning frá fyrra
ári, en þá nam hagnaðurinn 216 millj-
ónum. Hagnaður fyrir tekjuskatt
jókst um 55% milli ára. Hagnaður
móðurfélagsins fyrir tekjuskatt var
463 milljónir króna sem er 40% aukn-
ing frá fyrra ári. Rekstrartekjur
samstæðunnar jukust um 43% milli
ára og eigið fé jókst um 258 milljónir.
Arðsemi eigin fjár móðurfélagsins
hækkaði úr 38,5% í 40,4% á milli ára.
Veltufé samstæðunnar frá rekstri
var 349 milljónir króna.
Veltuaukning yfir 30%
sjötta árið í röð
Velta móðurfélagsins jókst um
44% frá fyrra ári. Árið 2000 var sjötta
árið í röð þar sem veltuaukning móð-
urfélagsins var yfir 30%. Í tilkynn-
ingu frá félaginu segir að velgengnin
í rekstri móðurfélagsins eigi sér ræt-
ur í aukinni sölu á UNIX- og NT-
netþjónum, Cisco netbúnaði og
tengdri þjónustu svo sem rekstrar-
þjónustusamningum. Einnig sé góð-
ur vöxtur í sölu á fartölvum, prent-
urum, rekstrarvörum og Microsoft
hugbúnaði.
Starfsmönnum móðurfélagsins
fjölgaði um 20% á árinu og störfuðu
um 64 starfsmenn hjá félaginu að
meðaltali á árinu 2000.
Dótturfélög Opinna kerfa hf. eru
Skýrr hf. (52%) og Tölvudreifing hf.
(55%). Hlutdeildarfélög Opinna kerfa
hf. eru 5 talsins og segir í tilkynningu
félagsins að mörg þeirra hafi gengið í
gegnum miklar breytingar á síðast-
liðnu ári. Teymi hf. stofnaði dóttur-
fyrirtæki í Svíþjóð og Danmörku og
var allur kostnaður því samfara
gjaldfærður. Aco hf. keypti tækni-
deild Japis og flutti á sama tíma í nýtt
húsnæði, kostnaður þessu samfara
var að mestu leyti gjaldfærður. Áhrif
hlutdeildarfélaga voru neikvæð um
17 milljónir króna samanborið við
hagnað upp á 18 milljónir árið 1999.
Vegna endurskipulagningar á IP-
fjarskiptum ehf. var eign félagsins
þar færð niður um 20 milljónir króna.
Gengismunur samstæðunnar
breyttist verulega milli ára, eða frá
því að vera jákvæður um 9 milljónir
króna árið 1999 í að vera neikvæður
um 43 milljónir króna.
Markaðsvirði 9 milljarðar
um síðustu áramót
Í tilkynningu Opinna kerfa segir
að áætlanir félagsins fyrir árið 2001
geri ráð fyrir að hagnaður samstæð-
unnar verði yfir 280 milljónir króna
eftir skatta.
Gengi hlutabréfa Opinna kerfa hf.
var 24 í lok árs 1999 en 43 í lok árs
2000, sem er um 80% hækkun á milli
ára. Markaðsvirði félagsins um ára-
mót var því um 9 milljarðar króna.
Lokaverð hlutabréfa félagsins var
36,00 í gær. Hluthafar eru 1594 tals-
ins.
Aðalfundur Opinna kerfa hf. verð-
ur haldinn 7. mars næstkomandi og
segir í tilkynningunni að stjórn
félagsins muni meðal annars leggja
fram tillögu um arðgreiðslu að fjár-
hæð 42 milljónir króna, eða 20% af
nafnvirði hlutafjár, og að heimild
verði veitt til 10% hlutafjáraukningar
án forkaupsréttar hluthafa.
Afkoman vel viðunandi
Sigríður Torfadóttir hjá rannsókn-
um og greiningu Búnaðarbanka Ís-
lands, Verðbréfum, segir að rekstur
Opinna kerfa hafi gengið mjög vel á
árinu 2000 og mun betur en annarra
upplýsingatæknifyrirtækja á
Verðbréfaþinginu. Rekstrartekjur
móðurfélagsins hafi aukist um 44%
og samanborið við vöxt samkeppnis-
aðila þá sé félagið að auka markaðs-
hlutdeild sína til muna. Framlegð
félagsins hafi aukist úr 7,9% í 8,1% og
hagnaður fyrir afskriftir, fjármagns-
liði og skatta (EBITDA) hafi aukist
um tæplega 49% milli ára. „Rétt er að
taka fram að inni í þessum tölum er
enginn söluhagnaður,“ segir Sigríð-
ur. „Söluhagnaður móðurfélagsins af
eignarhlutum í öðrum félögum jókst
um 10 milljónir króna milli ára eða
rúmlega 14%. Hagnaður af dóttur-
félögum rúmlega tvöfaldast milli ára
og þar hefur söluhagnaður Skýrr
mikið að segja. Ef einungis er tekið
mið af hagnaði af reglulegri starf-
semi Skýrr, rúmlega 100 milljónir
króna, þá hefði afkoma Opinna kerfa
verið um 60 milljónum króna lægri. Á
móti kemur að vegna tæknilegra erf-
iðleika Cascadents, sem er í eigu IP-
fjarskipta, og endurskipulagningar á
fyrirtækinu í framhaldi af því eru
gjaldfærðar um 20 milljónir króna.“
Sigríður segir að afkoma Opinna
kerfa sé mjög viðunandi að mati
greiningadeildar Búnaðarbankans
Verðbréfa. Í afkomuspá greininga-
deildar hafi verið gert ráð fyrir að
hagnaður móðurfélagsins fyrir af-
skriftir, fjármagnsliði og skatta
(EBITDA) yrði um 250 milljónir
króna og að hagnaður fyrirtækisins
yrði um 300 milljónir.
Hagnaður Opinna
kerfa hf. eykst um 42%
0
*
+ ,
-
+ ,
-
.
123
23
/3
"!/
&!
%)%
$
!
#)&
!
$-&
%&
'$"
!'$
! !
!( !
(
"(&)
#!#
#$1,(
%&1)(
+'1&(
,-1%(
'#1-(
#&1%(
',1#(
#"1&(
#$1#(
%$1%(
-%1"(
#'1#(
#$1#(
+1'(
./ /
./ /
./ /
HÓPUR fjárfesta undir forystu
Friðriks Pálssonar hefur keypt allt
að helmingshlut í Oddhól Ferðaþjón-
ustu ehf., eignarhaldsfélagi Hótel
Rangár. Hótel Rangá var áður alfar-
ið í eigu Sigurbjörns Bárðarsonar og
Axels Ómarssonar, en hótelið var
tekið í notkun á miðju síðasta ári og
rekið fram á haust og hefur það síðan
verið opið fyrir hópa í vetur.
Hótel Rangá stendur við bakka
Eystri-Rangár, á milli Hellu og
Hvolsvallar og er aðalbyggingin
tveggja hæða og tengist hún her-
bergjaálmum í austur og vestur. Að-
almatsalur hótelsins er á neðri hæð
aðalbyggingarinnar og tekur um 50
gesti í sæti. Á efri hæðinni er bar,
koníaksstofa og lokaður fundarsalur
sem tekur um 20–30 fundargesti. Á
hótelinu er 21 2ja manna herbergi.
Stjórnarformaður nýrrar stjórnar
félagsins er Friðrik Pálsson og fram-
kvæmdastjóri er Axel Ómarsson.
Nýir eigendur
að Hótel
Rangá