Morgunblaðið - 28.02.2001, Page 22

Morgunblaðið - 28.02.2001, Page 22
LISTIR 22 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er óefað kórrétt skilgreining á listaverkasafnara, að þegar ein- hver er farinn að stafla aðfengnum myndverkum upp að vegg sé hann óafvitandi orðinn safnari. Aftur á móti eru menn ekki sjálfgefið safn- arar þótt allt veggrýmið heimafyrir sé þakið skiliríum, fengnum við hin aðskiljanlegustu tækifæri, ellegar keypt gagngert sem híbýlaprýði og stöðutákn. Listasagan greinir af fjölmörgum söfnurum margvísleg- ustu gerðar, sumir safna þverskurði eldri eða nýrri listar, aðrir afmörk- uðu tímabili á þröngum eða breiðum grunni, enn aðrir myndverkum ein- stakra listamanna. Svo eru þeir sem falla fyrir vissum aðferðum og tæknibrögðum svo sem vatnsfarva, teikningu eða grafík, og þeir finnast sem einskorða sig við rúmtakið. Eru þá einungis fáar tegundir safnara upptaldar því meint sérviskan hefur á sér ótal hliðar. Sverrir Sigurðsson, lengstum kenndur við Sjóklæðagerðina, er einn af þeim sem komst einn góðan veðurdag í þá aðstöðu að þurfa að fara að raða myndum upp við vegg. Fyrir margt löngu opnaði sá er hér skifar óforvarandis rangar dyr í rangölum byggingarinnar, þá hann var á leið í heimsókn til Þorvalds Skúlasonar, og þar stóð Sverrir við mikla hlaða af málverkum upp við alla veggi sem hann var að hagræða, trúlega í eins konar vettvangskönn- un. Önnur og jafnvel réttari skil- greining er að safnari kaupir mynd- verk vegna þess að hann verður fyrir alla muni að festa sér það þeg- ar hann ber það augum, og af þeim toga var hinn hrifnæmi Ragnar í Smára. Sverrir varð hins vegar upp- numin af rökfræði Þorvalds Skúla- sonar á núlistir, er hann kynntist málaranum á ferðalagi norður í Steingrímsfirði sumarið 1950, og fljótlega einnig myndverkum hans. Var viðkynningin í „Bindindishöll- inni“ svonefndu kímið að ævilangri og sögulegri vináttu þeirra, og þótt Sverrir ætti fyrir merkilegt safn mynda á veggjum sínum, ágerðist ástríða hans nú til allra muna, með Þorvald sem alltyfirgnæfandi leiði- stef. Hvers eðlis sem söfnunarárátta listaverka annars er, gerast viðkom- andi iðulega áhrifavaldar í listasög- unni, einkum vegna þess að um eðl- islægan og reynslubundinn áhuga er að ræða, en síður aðfengin og fjar- stýrðan lærdóm úr skóla. Menntun- argrunnurinn er þá nálgunin við sjálf myndverkin og viðkynningin við listamennina, og eru um það mörg fræg dæmi á spjöldum sög- unnar. Þannig er aðdáun Sverris á Þorvaldi hliðstæð dýrkun Þorvalds Guðmundssonar í Síld og fisk á Jó- hannesi Kjarval og verkum hans og hlutur þeirra beggja stór í íslenzkri listasögu. Alkunn er höfðingleg gjöf Sverris og eiginkonu hans Ingibjargar heit- innar Guðmundsdóttur í formi 140 myndverka til Háskóla Íslands 1980. Árið 1995 bætti Sverrir 100 mynd- um við í minningu konu sinnar, og á sl. ári gaf hann skólanum 10 millj- ónir króna til rannsókna á íslenzkri myndlist, jafnframt að hafa ánafnað honum mikið safn af uppköstum, skissum, Þorvalds Skúlasonar. En þrátt fyrir allan höfðingskapinn átti athafnamaðurinn nægilegt eftir til að fylla alla sali Gerðarsafns fjöl- þættum listaverkum, eðlilega yfir- gnæfandi flest eftir Þorvald Skúla- son. Þetta einstæða samsafn er nú til sýnis í Gerðasafni, en það mun þó fyrst hafa tekist eftir mikla eftir- gangsemi Guðbjargar Kristjáns- dóttur listsögufræðings og forstöðu- manns safnsins. Jafnvel mun Sverrir hafa hafnað að gerð yrði sérstök og vegleg skrá/bók í tilefni sýningar- innar, sem þó má telja umdeilanlega hógværð með tilliti til heimildagild- isins. Þó fylgir sýningunni hin prýði- legasta sýningarskrá á okkar mæli- kvarða, með formála eftir Sverri og hugleiðingu frá hendi Aðalsteins Ingólfssonar listsögufræðings, prýdd mörgum heilsíðu litmyndum. Guðbjörg Kristjánsdóttir virðist hafa tekið að sér að gera úttekt á listaverkaeign íslenzkra einkasafn- ara og er þessi hin þriðja í röðinni á einu ári. Fyrst var það hin eftir- minnilega sýning á safni Þorvalds í Síld og fisk, síðan safn Péturs Ara- sonar í Faco, sem helst hefur ein- skorðað sig við naumhyggju, og kannski lag að leita næst í mal Braga Guðlaugssonar veggfóðrara sem hefur sankað að sér myndverk- um um árabil og gæti hægast fyllt salina af myndum er spanna frá Þór- arni B. Þorlákssyni til nútímans. Framtakið er hið lofsverðasta og þótt Sverrir Sigurðsson hafi þegar gefið mörg lykilverk sín til Háskól- ans, og þetta sé þannig engan veg- inn fullkomin heimild né yfirsýn söfnunaráráttu hans, eru áhöld um að sterkari sýningar verði settar upp í sýningarsölunum á árinu. Jafnframt undirstrikar hún ræki- lega af hvílíkri aðdáunarverðri alúð Sverrir hefur gengið til verks við að halda til haga verkum vinar síns og uppfræðara á núlistir, og öðru sem hann hefur sankað að sér, eðlilega helst því sem tengist hugmynda- fræði málarans. Þjóðin stendur í ómældri þakkarskuld við Sverri Sig- urðsson, að hafa á þennan hátt skrá- sett fyrir framtíðina allan feril eins okkar mesta málara liðinnar aldar. Þá finnast í þessu samsafninu í Gerðarsafni verk eftir eldri mynd- listarmenn eins og Jón Stefánsson, Kjarval, Ásmund Sveinsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Kristínu Jónsdóttur, Gunnlaug Scheving, Gunnlaug Blöndal, Jón Engilberts, Jón Þor- leifsson, Jóhann Briem og Nínu Tryggvadóttur, sum mikilsháttar. Að auk verk félaga hans Snorra Ar- inbjarnar, Kristjáns Davíðssonar, Svavars Guðnasonar og Guðmundu Andrésdóttur, sem og yngri kyn- slóða eða allt til Georgs Guðna, Birgis Andréssonar og Þórdísar Öldu Sigurðardóttur. Þetta er sýning sem enginn list- unnandi sem vill vera hlutgengur á samtímalist má láta fram hjá sér fara. MYNDLIST L i s t a s a f n K ó p a v o g s , G e r ð a r s a f n Opið alla daga frá 11–17. Lokað mánudaga. Til 31. mars. Aðgangur 300 krónur, sýningarskrá 200 krónur. MYNDVERK ÚR EINKASAFNI SVERRIS SIGURÐS- SONAR Brot af miklu safni Bragi Ásgeirsson Gunnlaugur Scheving, Í róðri, olía á léreft, 1955. Jóhann Briem, Skógarferð, olía á léreft, 1982. GLERMÁLUN er ekki algeng en Aðalheiði S. Eysteinsdóttur ferst það vel úr hendi í stórum veggverk- um sínum á Kaffi Karólínu við Kaup- vangsstræti. Aðalheiður notar einungis einn lit, sem hún skefur síðan í mynstur svo út koma fígúrur í erótískum stelling- um. Verkin eru þó gerð með þeim hætti að sjálf hrynjandi skafinna lín- anna tekur öll völd á fletinum svo myndefnið opinberast ekki fyrr en eftir dágóða skoðun. Gildi þessara verka er aðallega fólgið í léttleikanum og hraðanum sem virðist vera samfara máluninni. Þunn áferðin bakvið glerið minnir á fljótandi lakkliti Gary Hume, enda er fígúratíf teikning Aðalheiðar poppískrar ættar líkt og hjá honum. Þá verður að segja að glermyndirnar njóta sín afar vel sem innrétting á kaffihúsinu. Það er ekki úr vegi að eigendur velti fyrir sér hvort hér sé endanlega komið verk til að vera. Sýningahaldið gæti þá bara haldið áfram á efri hæðinni. Aðalheiður, sem jafnframt er þekkt fyrir að reka ljósmyndagall- eríð Kompuna beint á móti kaffihús- inu, lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Í tímaritinu Ský, sem ágætt er að lesa á leiðinni norður, má sjá að hún er lögð upp í mikið ferðalag til Burk- ina Faso – sem hét áður Efri-Volta – í vestanverðri Afríku til að kynna þar list sína. Aðdragandann að þessum verkum segir Aðalheiður vera sjálfsmyndir sem smám saman hafi svo þróast yfir í myndir af negrum og indíánum. Í fyrrasumar málaði hún á allar rúður í Gilinu og sagði það vera fyrir þá sem ekki nenntu inn á listasöfn. Þetta voru eins konar aktu-taktu- verk því þeir sem óku Kaupvangs- stræti gátu notið glerjanna meðan þeir þutu hjá. Nú eru glermálverkin búin að fá sinn fastastað meðfram veggnum móti afgreiðsluskenknum á Kaffi Karólínu. Þessar lostaskotnu para- dísarmyndir sverja sig í ætt við alda- langa lautamyndahefð og búkólísk sveitasæluminni, en rætur slíkra verka má rekja allt aftur til grísk- rómverskra veggjamynda frá Róm og Pompeii. Gildi glerverka Aðal- heiðar er ekki hvað síst fólgið í því hve nútímalega hún tekur á þessari ævafornu hefð. MYNDLIST K a f f i K a r ó l í n a , A k u r e y r i Til loka febrúar. Opið þegar kaffið er opið. MÁLVERK – AÐALHEIÐUR S. EYSTEINSDÓTTIR Gler og gleði Halldór Björn Runólfsson Ljósmynd/Halldór B. Runólfsson Hluti af glermálverkum Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur á Kaffi Karólínu.  HETJULJÓÐ og sögur er fimmta ljóðabók Tryggva V. Lín- dal. Að þessu sinni hefur Tryggvi aukið við nokkr- um smásögum. „Enn er víða komið við í tíma og rúmi; svo sem í Grikklandi hinu forna. Ástin og til- vistarangistin eru nú sjaldnast langt undan,“ segir Tryggvi. „Segja má að sköpun á hetjum og andhetjum ein- kenni ljóðin og sögurnar í þessari bók; þess konar hetjulund sem skáld þurfa að rækta með sér til að ná að haldast galopin fyrir sársaukafullum áreitum lífsins; til að tréna ekki þótt þau séu komin á miðjan aldur.“ Eftir Tryggva hafa birst smásög- ur og ljóðaþýðigar Útgefandi er Valtýr. Bókin er 59 bls. Verð: 1.000 kr. Nýjar bækur Tryggvi V. Líndal  ÚT er komið ritið Dagbog fra Is- land, Ferðasaga frá árunum 1863– 1871, eftir Harald Krabbe. Útgef- andi er Ivan Katic fyrrverandi yf- irbókavörður við bókasafn Dýra- lækninga- og landbúnaðarháskólans í Kaupmannahöfn. Í ritinu eru birtar ferðasagnir og rannsóknarniður- stöður Haralds Krabbe en hann ferðaðist um Ísland og rannsakaði smitleiðir sullaveiki, orsakir hennar og útbreiðslu. Rannsóknir hans höfðu mikla þýðingu fyrir stjórnvöld að ráða niðurlögum þessa sjúkdóms. Harald Krabbe (1831-1917) var kennari og prófessor í dýralæknis- fræði við Dýralækninga- og land- búnaðarháskólann í Kaupmanna- hafnarháskóla og var einn af mikils- metnustu vísindamönnum í sinni grein. Hann kvæntist íslenskri konu, Kristínu Jónsdóttur frá Kirkjubæ, dóttur Jóns Guðmundssonar rit- stjóra og synir þeirra Kristínar og Haralds voru Oluf H. Krabbe, Jón Krabbe, Thorvald Krabbe og Knud H. Krabbe. Árið 1931 var stofnaður minningarsjóður um Harald Krabbe en styrkir úr honum er veittir ís- lenskum og dönskum stúdentum er leggja stund á dýralækningar í Kaupmannahöfn. Auk dagbókanna er birt ritgerð eftir Pál A. Pálsson yfirdýralækni um útrýmingu sullaveiki á Íslandi og einnig skrifar Kristín Helga Þórar- insdóttir um hringrás sullaveikis- smits. Þá er sagt frá sonum þeirra hjóna, Haralds Krabbe og Kristínar Jóns- dóttur og birtur stuttur kafli úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Kiljan Laxness er nefnist Frjálsir menn. Dagbog fra Island er 112 bls. að lengd. „SKIPULAGÐUR hávaði“ úr smiðju Tom Waits verður endur- fluttur á litla sviði Borgarleikhúss- ins annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21. Kvöldið samanstendur af lögum Waits frá árunum 1980– 2000 kryddað með sögum af honum og sögum í hans anda. Flytjendur eru Valur Freyr Einarsson, Hall- dór Gylfason, Stefán Már Magn- ússon, Karl Olgeir Olgeirsson, Friðrik G. Júlíusson, Vernharður Jósefsson, Birkir Matthíasson og Ottó Tynes. Lög Waits í Borgarleik- húsinu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.