Morgunblaðið - 28.02.2001, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FYRIR nokkru skrifaði ég smágrein
hér í blaðið um Mývatn. Nú hefur
Ásmundur Geirsson öryggisvörður
skrifað grein í blaðið sem hann nefn-
ir ,,Mývatn enn“ þar sem hann seg-
ist telja sér skylt að mótmæla grein
minni eins og hún leggur sig. Það
hefði nú verið óskandi fyrir hann að
geta rennt svolítið styrkari stoðum
undir þessa ákvörðun sína.
Í grein Ásmundar segir: ,,Víst
hefur kísilgúrtakan slæm áhrif á líf-
ríki Mývatns. Strax á öðru ári Kís-
iliðjunnar komu í ljós ýmsar áður
óþekktar breytingar á lífríki vatns-
ins, sem vörðuðu fisk og fugl.“ Þar
sem Ytri-Flói, þar sem Kísiliðjan er
að verki, er mjög einangraður frá
aðalvatninu, er þá ekki ólíklegt að
þessar breytingar séu Kísiliðjunni
að kenna? Er ekki trúlegt að önnur
sé orsökin?
Nú hafa vísindamenn fylgst með
Mývatni og Kísiliðjunni í meira en
30 ár og ekki fundið að hún hafi nein
slæm áhrif á lífríki vatnsins. Og nú
er 30 ára reynsla fengin hvernig til
hefur tekist þar sem grafið hefur
verið upp úr Ytri-Flóa. Oddviti
Skútustaðahrepps segir í Morgun-
blaðinu að síðasta sumar hafi lífríkið
verið þar með miklum blóma, mikið
hafi verið þar um fugl og varp tekist
einstaklega vel. Þá hafi helmingur af
þeim silungi sem veiddist í vatninu í
fyrrasumar komið úr Ytri-Flóa.
Einnig hefur lífríki Laxár, sem
rennur úr Mývatni, verið með besta
móti í sumar. Í annarri grein í
Morgunblaðinu stendur: ,,Í nýrri
skýrslu Jóns Kristjánssonar og
Tuma Tómassonar um Ytri-Flóa
segir m.a.: ,,Stór hluti af dældum
svæðum reyndist gróinn. Gróðurinn
á dældum svæðum var mjög blóm-
legur og kraftmikill, sá gróskumesti
sem við höfum séð í Mývatni.““ Enn
segir: ,,Sýni sem tekin voru á tveim-
ur stöðum úr Ytri-Flóa í ágúst 1990
sýndu að mýlirfur voru fleiri á dæld-
um en ódældum svæðum.“ Ekki
virðist því enn sem komið er að Kís-
iliðjan hafi slæm áhrif á lífríki Mý-
vatns. Svo lætur Ásmundur sér
sæma að kalla það ábyrgðarlausa
glæframennsku af ráðherra að veita
leyfi til áframhaldandi kísilgúrtöku
úr Mývatni og það sé nauðsynlegt að
taka í taumana til að stöðva þessi
hrikalegu náttúruspjöll! Hvaða
hrikalegu náttúruspjöll eru þetta
þar sem reynslan hefur sýnt að líf-
ríki vatnsins er betra þar sem Kís-
iliðjan hefur grafið en annars staðar
í Mývatni?
Þá segir Ásmunur að það sé bull
hjá mér þar sem ég segi að Mývatn
sé að grynnast og muni þorna upp
með tímanum ef ekkert verði að
gert. Nú vita allir að Mývatn er að
grynnast og það mun halda því
áfram. Það er náttúrulögmál að þeg-
ar setlög sem myndast í vatninu
falla niður á botninn hlýtur vatnið að
grynnast. Þá segir í greininni að
náttúrufræðingar hafi sýnt fram á
það með rannsóknum sínum að ár-
þúsundir muni líða áður en Mývatn
breytist í mýri. Varla breytist það í
mýri ef það grynnkar ekki. Mér
finnst það því heldur sterkt til orða
tekið hjá honum að tala um að það
sé bull hjá mér að segja að Mývatn
muni grynnka og þorna upp ef ekk-
ert verði að gert.
Skynsamlegast virðist manni vera
að leyfa áframhaldandi kísiltöku úr
Mývatni, en fylgjast vel með eins og
gert hefur verið hver áhrif það hefur
á lífríki vatnsins. Svo þegar lengri
reynsla hefur fengist að athuga þá
vel hvort lífríkið er blómlegra þar
sem grafið hefur verið eða þar sem
ógrafið er. Taka svo ákvörðun eftir
því hvort leyfa skuli kísilgúrtöku
áfram. Þá er reynslan látin ráða og
hún er ávallt ólygnust. Því tel ég
rétt eins og ég segi í grein minni og
ég vona að allir sannsýnir menn séu
á sama máli, að ráðherra hafi látið
heilbrigða skynsemi ráða þegar
hann veitt Kísiliðjunni leyfi til þess
að taka áfram kísilgúr úr vatninu.
BJÖRN LOFTSSON,
Drápuhlíð 42, Reykjavík.
Mývatn ennþá
Frá Birni Loftssyni:
ÉG ER krossbit og hef reyndar
verið lengi á öllum vandræðagang-
inum í kringum 125 ára afmæl-
isgjöf bæjarstjórnar til bæjarbúa.
Nú seinast gerðist það í gær
(þriðjudaginn 21. febrúar) að bæj-
arstjórnin samþykkti að fresta af-
hendingu gjafarinnar enn um sinn
– og henda henni þess í stað í fang-
ið á bæjarráði. Ég skal fúslega við-
urkenna vankunnáttu mína í póli-
tík en er ekki eitthvað skrýtilega
höttótt við að mál, sem búið er að
afgreiða frá bæjarráði þar sem all-
ir guldu því jáyrði sitt (að því er ég
best veit), skuli á nýjan leik vera
vísað til bæjarráðs? Til hvers?
Hvað er eiginlega að gerast? Er
verið að eyðileggja afmælisgjöfina
góðu – eða á kannski að skipta um
gjöf? Er það virkilega svo að ein-
hverjum komi til hugar í fullri al-
vöru að flytja bókasafnið úr sér-
hönnuðu safnahúsi í verslunar-
miðstöð í Sunnuhlíð?
Eða er kannski búið að ákveða
að gefa enga gjöf? Er viðbyggingin
við Amtsbókasafnið ef til vill ekki
annað en lík í hinni pólitísku lest,
lík sem enginn þorir þó að jarð-
syngja með formlegum hætti?
Hvenær á þessum kjánagangi
eiginlega að ljúka? Hvenær eiga
milljónatugirnir, sem við erum
þegar búin að láta í viðbygginguna
(án þess þó að bóli nokkuð á henni
ennþá), að bera ávöxt?
JÓN HJALTASON,
Byggðavegi 101b, Akureyri.
Amtsbókasafnið á Ak-
ureyri; líkið í lestinni?
Frá Jóni Hjaltasyni:
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, félag laganema