Morgunblaðið - 13.03.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001 43
NÝTT
TANNLÍMBetra hald - Aukin vellíðan
Fæst í flestum apótekum
Innflytjandi: Pharmaco hf.
Bragðlaust og ofnæmisprófað
A
U
K
IN
VE
LLÍÐAN
BETRA
H
A
L
D
K
O
R
T
E
R
TAFLFÉLAG Reykjavíkur
sigraði á Íslandsmóti skákfélaga
sem lauk um helgina. Eins og fram
kom í skákþætti Morgunblaðsins
eftir fyrri hluta keppninnar var
TR þá í þeirri þægilegu stöðu að
vera með 1½ vinning í forskot á
helsta keppinautinn og Íslands-
meistara undanfarinna tveggja
ára, Taflfélagið Helli. Ólíklegt var
talið að Skákfélag Akureyringa,
sem var í þriðja sæti, næði að
blanda sér alvarlega í baráttuna
um efsta sætið. Þetta gekk eftir,
en baráttan um efsta sætið átti
eftir að reynast ótrúlega spenn-
andi og réðust úrslitin ekki fyrr en
á lokamínútum keppninnar.
Í fimmtu umferð (fyrstu umferð
seinni hluta keppninnar) sigraði
Hellir TR-B með sjö vinningum
gegn einum og A-lið TR lagði
Skákfélag Hafnarfjarðar einnig
7:1. Enn var forysta TR því 1½
vinningur þegar tvær umferðir
voru ótefldar. Í næstsíðustu um-
ferð mættu efstu liðin, TR og Hell-
ir, síðan neðstu liðunum í deild-
inni, Taflfélagi Garðabæjar og
Taflfélagi Kópavogs. Þrátt fyrir
6½:1½ sigur í báðum viðureignum
áttu þó bæði TK og TG heiður
skilið fyrir harða mótspyrnu og á
tímabili var útlitið t.d. mun verra
fyrir Helli heldur en lokatölurnar
gefa til kynna. Enn hélt TR því
óbreyttu forskoti þegar lokaum-
ferðin hófst. Þar sem Hellir hafði
sigrað í öllum sínum viðureignum
dugði þeim að jafna metin til að ná
Íslandsmeistaratitlinum þriðja árið
í röð.
Lokaumferðin varð ótrúlega
spennandi og úrslitin réðust ekki
fyrr en síðustu skákunum lauk. TR
sigraði Skákfélag Akureyrar
5½:2½, en Hellir vann TG 6½:1½.
Þar með hafði Hellir fengið sam-
tals 42½ vinninga, en TR 43 og
þessi hálfi vinningur réð úrslitum
um efsta sætið á mótinu. TR er því
Íslandsmeistari skákfélaga 2001.
Það virtist aldrei vera vafamál að
þriðja sætið í deildinni mundi
lenda hjá Skákfélagi Akureyrar.
Baráttan við falldrauginn í
fyrstu deild var ekki síður spenn-
andi. Ljóst þótti þegar seinni hlut-
inn hófst, að annaðhvort Taflfélag
Kópavogs eða Taflfélag Garða-
bæjar þyrfti að gera sér að góðu
að tefla í annarri deild. Taflfélag
Kópavogs stóð verr að vígi og var
tveimur vinningum á eftir TG. Í
fimmtu umferð tókst TK að
minnka forskot TG niður í einn
vinning og sá munur hélst í næstu
umferð. Lokaumferðin réð síðan
úrslitum um fallsætið eins og efsta
sætið í deildinni. Þar sem TG lenti
á móti A-liði Hellis var ljóst að á
brattan yrði að sækja fyrir
Garðbæinga. Kópavogsbúar lentu
hins vegar á móti B-liði Hellis.
Hellismenn, sem e.t.v. voru ekki
síður með hugann við viðureign A-
liðsins, reyndust full friðsamir og
TK sigraði 5-3 og tryggði sér
þannig áframhaldandi setu í fyrstu
deild. Taflfélag Garðabæjar verður
hins vegar að tefla í annarri deild
á næsta keppnistímabili.
Önnur deild
Eftir fyrri hluta Íslandsmótsins
virtist ekki leika neinn vafi á því,
að „spútnik“-sveit Grand-Rokk
mundi sigra í annarri deild, enda
var hún þá með fjögurra vinninga
forystu. Helsti keppinautur henn-
ar, Taflfélag Bolungarvíkur, var
þó ekki tilbúið til þess að sætta sig
við þá niðurstöðu. Þegar kom að
innbyrðis viðureign félaganna í
sjöttu umferð sigruðu Bolvíkingar
4:2. Forskot Grand-Rokk var því
horfið þegar lokaumferðin hófst. Í
lokaumferðinni hafði Grand-Rokk
hins vegar betur og hreppti efsta
sætið, einum vinningi á undan
Taflfélagi Bolungarvíkur. Skák-
félag Grand-Rokk mun því tefla í
fyrstu deild á næsta keppnistíma-
bili.
Taflfélag Reykjavíkur, sem haft
hefur tvö lið í annarri deild, verður
einungis með eitt lið í deildinni á
næsta ári, því TR-D féll í þriðju
deild.
Þriðja deild
Taflfélag Vestmannaeyja hafði
forystuna í þriðju deild eftir fyrri
hluta Íslandsmótsins og hélt henni
til loka mótsins. Eyjamenn eru því
komnir í aðra deild. Skáksamband
Austurlands fellur í fjórðu deild.
Fjórða deild
Lið Taflfélags Grand-Rokks
sigraði D-sveit Skákfélags Akur-
eyrar í úrslitaviðureigninni í fjórðu
deildinni og teflir í þeirri þriðju á
næsta ári.
Seinni hluti Íslandsmótsins var
haldinn í Hellisheimilinu í Þöngla-
bakka 1. Skákstjórar voru Ólafur
S. Ásgrímsson, Þráinn Guðmunds-
son, Kristján Örn Elíasson, Har-
aldur Blöndal og Bragi Kristjáns-
son.
Ferðamannastraumur
Aldrei áður hafa jafnmargir er-
lendir skákmeistarar verið ferjaðir
til Íslands vegna Íslandsmóts
skákfélaga. Undirritaður hefur séð
ástæðu til þess að vara við þessari
þróun af eftirtöldum ástæðum:
Það leiðir til aukins
kostnaðar fyrir skák-
félögin, án þess að
styrkja innri starfsemi
þeirra þegar erlendir
skákmenn eru „fluttir
inn“ einungis til þátt-
töku í Íslandsmótinu.
Félagsmenn viðkom-
andi taflfélaga færast
niður um borð í liði
sínu og fá þar af leið-
andi ekki eins áhuga-
verða andstæðinga.
Þeir sem annars hefðu
teflt á neðstu borðum
missa sæti sitt og verða
að láta sér nægja að
fylgjast með í stað þess
að taka þátt í barátt-
unni.
Það eykur vissulega fjölbreytn-
ina að fá hingað erlenda skák-
menn, en til þess gefast einnig
fjölmörg önnur tækifæri og skák-
menn viðkomandi félaga hefðu
örugglega meira gaman af því að
fá að etja kappi við erlendu meist-
arana heldur en að horfa yfir öxl-
ina á þeim þegar þeir tefla við
skákmenn úr öðrum félögum.
Ljóst er, að þátttaka erlendra
skákmanna á Íslandsmóti skák-
félaga er farin að ráða úrslitum í
einstökum deildum og ekkert lát
virðist vera á þeirri þróun. Það er
því e.t.v. varla ástæða til þess hér
eftir að berjast gegn straumnum.
Jón Viktor
hraðskákmeistari Íslands
Jón Viktor Gunnarsson varð
hraðskákmeistari Íslands 2001 eft-
ir spennandi keppni um efsta sæt-
ið við Björn Þorfinnsson, sem varð
annar. Fyrir síðustu umferð hafði
Björn Þorfinnsson tveggja vinn-
inga forskot á Jón Viktor. Þeir
mættust í lokaumferðinni. Jón
Viktor þurfti að vinna báðar skák-
irnar til að eiga möguleika á sigri.
Það tókst og þurftu þeir Björn því
að tefla úrslitaeinvígi um titilinn.
Tefldar voru tvær skákir, sem Jón
Viktor vann báðar og varð því Ís-
landsmeistari í hraðskák annað ár-
ið í röð. Röð efstu manna varð
þessi:1. Jón Viktor Gunnarsson
13½ v. 2. Björn Þorfinnsson 13½ v.
3. Bragi Þorfinnsson 12½ v. 4.–5.
Guðmundur S. Gísla-
son og Arnar Gunn-
arsson 12 v. 6. Stef-
án Kristjánsson 11½
v. 7. Rúnar Sigur-
pálsson 11 v. 8.–12.
Sæberg Sigurðsson,
Sigurður Daði Sig-
fússon, Gylfi Þór-
hallsson, Ögmundur
Kristinsson og
Hrannar Baldursson
10½ v. 13.–14. Snorri
Bergsson og Áskell
Örn Kárason 10 v.
15.–16. Halldór B.
Halldórsson og Jó-
hann Ingvarsson 9½
v. 17.–21. Lenka
Ptácníková, Stefán
Baldursson, Stefán Bergsson, Sig-
urður Eiríksson og Eiríkur K.
Björnsson 9 v. o.s.frv.
Alls tóku 37 keppendur þátt í
mótinu. Teflt var í félagsheimili
TR í Faxafeni. Skákstjóri var
Kristján Örn Elíasson.
Skákmót öðlinga
Skákmót öðlinga, 40 ára og
eldri, hefst miðvikudaginn 14.
mars kl. 19:30 í Faxafeni 12 (TR).
Tefldar verða 7 umferðir eftir
Monrad-kerfi. Umhugsunartími er
1½ klst. á 30 leiki og síðan 30 mín-
útur til að ljúka skákinni. Umferð-
ir verða á miðvikudögum og hefj-
ast ávallt kl. 19:30. Mótinu lýkur 2.
maí, en hraðskákmót öðlinga fer
fram 9. maí. Rétt til þátttöku eiga
allir sem náð hafa 40 ára aldri. Að
venju er keppt um veglegan far-
andbikar, en auk þess eru verð-
launagripir fyrir þrjú efstu sætin.
Þátttökugjald er kr. 1.500 og er
boðið upp á frítt kaffi. Skráning
stendur yfir hjá Ólafi Ásgrímssyni
í tölvupósti (olafur.asgrimsson@-
lais.is) eða í síma 895 5860.
Skákmót á næstunni
14.3. Skákmót öðlinga hjá TR
15.3. SA. 10 mínútna mót
16.3. SÍ. Íslandsm. grunnsksv.
16.3. TR. Íslandsm. framhsksv.
17.3. Grand. VN-mótaröðin
18.3. SA. Mars-hraðskákmótið
TR Íslandsmeistari
skákfélaga
Daði Örn Jónsson
SKÁK
H e l l i s h e i m i l i ð
9.–10.3 2001
ÍSLANDSMÓT
SKÁKFÉLAGA
Tveir af máttarstólpum Íslandsmeistara TR í seinni hluta Íslandsmóts
taflfélaga, Þröstur Þórhallsson og Robert Astrom.
Jón Viktor
Gunnarsson sigraði
á Jónsmessumótinu.
Sveit Hjördísar Sigurjóns-
dóttur Íslandsmeistari kvenna
í sveitakeppni
Mjög góð þátttaka var í Íslands-
móti kvenna í sveitakeppni sem
spilað var um helgina eða 14 sveit-
ir. Mótið var jafnt og spennandi,
en sveit Hjördísar Sigurjónsdóttur
tók þó snemma forystuna og sigr-
aði sannfærandi. Sigursveitina
skipa auk Hjördísar: Ragnheiður
Nielsen, Anna Ívarsdóttir og Guð-
rún Óskarsdóttir.
Sveit Erlu Sigurjónsdóttur
hreppti annað sætið á lokasprett-
inum en sveit Þriggja Frakka end-
aði í þriðja sæti.
Lokastaðan:
Hjördís Sigurjónsdóttir 251
Erla Sigurjónsdóttir 230
Þrír Frakkar/Esther Jakobsd. 229
Soffía Daníelsdóttir 206
Fjögralaufa smárinn/Unnur Sveinsd. 204
Bryndís Þorsteinsdóttir 196
Í flokki yngri spilara kepptu að-
eins tvær sveitir um Íslands-
meistaratitilinn. Spilaðar voru sex
16 spila lotur. Leikurinn var í
járnum alveg fram í síðustu lotu
en sveit Sigurbjörns Haraldssonar
sigraði sveit Frímanns Stefáns-
sonar með 270 impum gegn 255. Í
sigursveitinni spiluðu auk Sig-
urbjörns: Heiðar Sigurjónsson,
Ingvar Jónsson og Ásbjörn
Björnsson.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Íslandsmeistarar kvenna 2001. Talið frá vinstri: Guðmundur Ágústs-
son, forseti BS, en hann afhenti verðlaunin, Hjördís Sigurjónsdóttir,
Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir og Ragnheiður Nielsen.