Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 31
Í TILEFNI þess að djassljóða-
diskurinn Októberlauf kom út á veg-
um Smekkleysu eftir mikla hrakn-
ingar, efndu aðstandendur til
djassljóðaveislu í Ráðhúsinu. Þar lék
tríó píanistans Carls Möllers, sem
samið hefur tónlistina á diskinum og
skáldin Ari Gísli Bragason og Matth-
ías Johannessen lásu úr ljóðum sín-
um. Una Margrét Jónasdóttir las ljóð
föður síns Jóns Óskars og Guðrún
Gísladóttir, leikari, las ljóð eftir Nínu
Björg Árnadóttur, en Jón Óskar og
Nína Björk eru bæði látin einsog
flestum mun kunnugt. Karl Guð-
mundsson, leikari, las ljóð eftir þá
feðga Jóhann Hjálmarsson og Þorra
Jóhannsson. Þorri er fjarri fóstur-
jarðar ströndum, en Jóhann naut
þess greinilega að sitja í Tjarnarsaln-
um og hlusta á ljóð og djass.
Í gegnum tíðina hefur Carl Möller
hafið ljóðadjassuppákomur þær er
hann hefur stjórnað með lagi sínu Sir
Pipp, og svo var einnig nú. Þessi seið-
andi ópus er orðinn íslensk djass-
klassísk og væri ekki úr vegi að yngri
kynslóðin tæki hann til flutnings í
stað þess að eltast eilíflega við sömu
erlendu standardana þegar eigin
verk eru ekki á efnisskránni. Það var
gaman að heyra Norræna kvartett-
inn sænsk-danska glíma við verk Sig-
urðar Flosasonar í Múlanum í síðasta
mánuði. Hvernig væri að einhver ís-
lensk djasssveit setti saman dagskrá
helgaðri bestu djassstandördunum
íslensku? Verðugt verkefni á næstu
djasshátíð.
Ari Gísli var fyrstur til að kveðja
sér hljóðs. Ljóð hans stutt voru
tengd saman af tónlistinni ólíkt því er
aðrir lásu upp og tónlistin afmarkaði
hvert ljóð. Vel var við hæfi að Guðrún
Gísladóttir væri næsti lesari, en hún
flutti ljóð Nínu heitinnar Bjarkar,
móður Ara Gísla. Nína var einstak-
lega næmur upplesari, rödd hennar
einsog hluti ljóðanna. Guðrún fór for-
kunnarvel með ljóðin og féll lesturinn
fullkomlega að tónlistinni, en það er
oft Akkilesarhæll skálda sem lesa
með tónlist, að sameina hrynjanda
ljóðs og tóna. Þó er auðveldara að
gera slíkt þegar djassmenn leika með
því engir tónlistarmenn eru reyndari
í því að laga sig að aðstæðum hverju
sinni. Guðrún túlkaði Hvíta trúðinn
dálítið öðruvísi en Nína Björk, en
náði sterkum áhrifum þar sem sagði
um vel ydd vopnin: ,,þau eru hálfopn-
ir hlátrar/ þau eru kæfð óp“.
Karl Guðmundsson las ljóð Þorra
Jóhannssonar af miklum krafti, eins-
og Þorra er háttur, afturá móti skipti
hann um stíl er kom að ljóðum Jó-
hanns og las þau dempað í anda
skáldsins. Karli fór að mörgu betur
að túlka ljóð Þorra og urðu þau á
stundum áhrifamikil: ,,með marg-
breytileika moldugrar gyðjunnar/
flaut það á brott/ á úldnu kjöti niður
lækinn/ við glymjandi nið fossins,“
las leikarinn af mikilli tilfinningu sem
tónlistin dýpkaði.
Matthías Johannessen var síðast-
ur á mælendaskrá og las m.a. í orða-
stað Gísla Súrssonar: Hvít eru sól-
skin. Magnað ljóð þarsem rigndi
blóði og hefndin réði. Þar hefði tríó
Carls mátt verða dramatískara í leik
sínum. En sem fyrri daginn var það
léttleikinn sem var aðal tónlistarinn-
ar. Þó báru lokatónarnir í In mem-
oriam í sér kjarna svítunnar er mér
finnst hann verða að semja um Eyr-
byggjukvæði Jóhanns Hjálmarsson-
ar.
Tilbrigði tóna
við orð
TÓNLIST
T j a r n a r s a l u r R á ð h ú s s
R e y k j a v í k u r
Tónlist: Carl Möller píanó, Birgir
Bragason bassi og Guðmundur
Steingrímsson trommur. Lesarar:
Ari Gísli Bragason, Una Margrét
Jónsdóttir, Karl Guðmundsson,
Guðrún Gísladóttir og Matthías
Johannessen. Laugardaginn 7.
apríl 2001.
LJÓÐ OG DJASS
Vernharður Linnet
SKÁLHOLTSKÓRINN flytur Glor-
iu í D-dúr RV 589 eftir Vivaldi í
Skálholtskirkju á skírdag, kl. 16.
Einsöng með kórnum syngja Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Anna Sigríður
Helgadóttir, ásamt kammersveit
undir stjórn Hilmars Arnar Agnars-
sonar. Þorkell Jóelsson leikur á
horn. Organisti er Kári Þormar.
Auk Gloriu verða fluttar perlur
úr kirkjuverkum, m.a. Agnus Dei
eftir G. Biset og Laudate Dominum
eftir Mozart. Einnig mun kórinn
frumflytja Ave Verum eftir Gabriel
Fauré.
Kórinn hefur, í samstarfi við kóra
úr Grímsnesi og Laugardal, haldið
tónleika og ball síðasta vetrardag í
Aratungu í nokkur ár, og verða þeir
miðvikudaginn 18. apríl kl. 21.
Skálholts-
kórinn flyt-
ur Gloriu
eftir Vivaldi
LISTVELDI Odds Nerdrums
verður flutt í þættinum Víðsjá í
Ríkisútvarpinu í dag, miðvikudag,
kl. 17.40. Listveldið var flutt á
opnun sýningar Odds á Kjarvals-
stöðum sl. laugardag en útvarpið
fékk leikarana Sigurð Karlsson
og Arnar Jónsson til að koma í
útvarpshúsið og flytja þáttinn.
Leikstjóri er Hávar Sigurjóns-
son.
Nerdrum er kunnasti núlifandi
listamaður Norðmanna. Listveld-
ið er samtal tveggja manna.
Mennirnir eru Odd sjálfur og
norski listmálarinn Edvard
Munch. Listveldið er varnarræða
Nerdrum, réttlæting á því hvers
vegna hann málar eins og hann
gerir. Hann lætur Munch sann-
færa sig um að hann sé kitsch-
málari og hafi rétt til þess að vera
það.
En Nerdrum sér sjálfan sig að
einhverju leyti í Munch, telur að
hann hafi verið dáður um ein-
hvern tíma en síðan fyrirlitinn.
Munch málaði þar til hann dó árið
1945. Nokkrum mánuðum síðar
fæddist Nerdrum.
Verkið er hugmyndafræðilegt
samtal, sem notað er til að koma
skoðunum á framfæri, en ekki
leikrænt samtal. Í því koma fram
skoðanir hans á þýskri heimspeki
og hugmyndafræði sem mótaðist
á tímum Kants og Hegels fyrir
um það bil 200 árum. En Nerd-
rum vill mála samkvæmt fagur-
fræði og tækni sem var í tísku
fyrir þann tíma. Þessa tækni kall-
ar hann kitsch. Verkið lýsir einn-
ig Nerdrum sem persónu og hans
skoðunum á nútímalist.
Listveldið var upphaflega birt í
bandaríska listtímaritinu art
news fyrir tveimur árum. Síðan
hefur það verið flutt tvisvar. Einu
sinni í Noregi og síðar við opnun
þessarar sömu sýningar í Svíþjóð.
Þátturinn tekur 15 mínútur í
flutningi.
Listveldi Odds Nerd-
rums flutt í Víðsjá
SÝNING færeysku hjónanna Katr-
ínar og Cederfeldt Olsen frá Tvør-
oyri á Suðurey í Færeyjum stendur
yfir í Vestnorræna menningarhúsinu
í Hafnarfirði.
Þar sýnir Cederfeldt líkön af
gömlum færeyskum bátum og full-
vinnur hér, meðan á sýningunni
stendur, hálfkláraðan bát. Einnig
smíðar hann færeyska lása „hvølpa-
lás“ og sýnir færeysk eldhúsáhöld,
tyril og sneis, sem enn eru í notkun í
dag.
Katrín sýnir færeyska kvenþjóð-
búninga sem hún saumar sjálf. Jafn-
framt verða til sýnis myndir af fær-
eyska kven- og karlbúningnum í
gegnum tíðina.
Sýningin stendur til 20. apríl.
Sýning á
færeysku
handverki
sýningunum. Sýning Kristins ber yf-
irskriftina Garðljóð en sýning Jón-
asar Portrait of Iceland. Kristinn
leitar fanga í fíngerðar lífæðar nátt-
úrunnar milli þess sem hann dregur
upp svipmiklar myndir af mannlíf-
inu og húsunum í bænum. Í öðrum
klefa vestursalarins er að finna
vinnustofu Jónasar og geta áhorf-
endur spjallað við listamanninn.
Pakkhúsið á Höfn
Í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði
verða opnar um páskahátíðina frá kl.
14–17. Opnuð verður safnarasýning
í Gömlubúð (byggðasafni).
Sýnd verða söfn í eigu einstak-
linga. Jafnframt verður byggðasafn-
ið opið og náttúrugripasafnið á efri
hæð. Enn fremur stendur nú yfir
sýning ljósmyndaranna Nökkva Elí-
assonar og Brians Sweeneys og
nefnist hún Eyðibýli. Aðgangur að
sýningunum er ókeypis.
Listasafn Reykjavíkur
Listasafn Reykjavíkur verður op-
ið alla daga hátíðarinnar á hefð-
bundnum opnunartíma: Listasafn
Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir er op-
ið alla daga frá kl. 10-17 en miðviku-
daga 10-19. Á annan dag páska verð-
ur leiðsögn um sýningar
Kjarvalsstaða kl. 15. Þar verður
gengið um sýningarnar Odd Ner-
drum – kitsch-málarinn og Myndir
úr Kjarvalssafni.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmund-
arsafn er opið alla daga frá kl. 13-16.
Þar stendur nú yfir sýningin Fjöll
rímar við tröll, verk Páls Guðmunds-
sonar frá Húsafelli og Ásmundar
Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnar-
hús er opið alla daga frá kl. 11-18,
fimmtudaga til kl. 19. Á annan dag
páska verður leiðsögn um sýningar
safnsins kl. 16. Þar eru nú sýnd verk
eftir Bandaríkjamanninn John Bal-
dessari og Bretann John Isaacs.
Einnig standa yfir sýningarnar
Heimskautslöndin unaðslegu: Arf-
leifð Vilhjálms Stefánssonar og
Myndir á sýningu, verk úr eigu
safnsins.
Listasafn Akureyrar
Á Akureyri verður opið um
páskana frá kl. 13-22. Þar standa yf-
ir sýningar á verkum Kristins G. Jó-
hannssonar og Jónasar Viðars.
Listamennirnir verða með leiðsögn
um sýningarnar laugardag, sunnu-
dag og mánudag kl. 16, en þá lýkur
Sýningar opnar
um páskana
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
Stretchbuxur
St. 38–50 - Frábært úrval
♦ ♦ ♦