Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 46
SKOÐUN
46 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MAÐUR nokkur
fylgdist með undrun
með tveimur mönnum
við vinnu sína. Annar
gróf myndarlega holu
en hinn fylgdi honum
fast á eftir, fyllti hol-
una og þjappaði vel
yfir. Hann innti þá
eftir því hvað þeir
væru að gera. Þeir
voru að gróðursetja.
En hvar eru plönturn-
ar? Ja, við erum raun-
ar þrír í hópnum, en
sá sem vanalega sér
um græðlingana er
lasinn svo við klárum
þetta bara tveir. Það gengur raun-
ar prýðilega, svona gröfum við
fleiri holur ótruflaðir af þeim með
plönturnar.
Ekki er alltaf auðvelt að finna
mælikvarða á afköst og vinnufram-
lag. Ekki trúi ég að ég hafi verið
einn um að brosa svolítið út í ann-
að þegar þingmaður nokkur hélt á
dögum framhaldsskólakennara-
verkfallsins þrumuræðu yfir tóm-
um þingsal um það, að víst ættu
kennarar kannski
skilda einhverja
launahækkun, en þá
yrði að gera „viðveru
þeirra sýnilegri“. Ein-
hvern tíma kom fram,
að þingmönnum sjálf-
um, sem sitja þingið
varla lengur en á þeim
tímum, þegar hestur-
inn var helsta sam-
göngutækið, þætti
súrt í broti að afköst
þeirra væru einvörð-
ungu metin eftir við-
veru í þingsölum.
Lögfræðingum þætti
líklega jafnslæmt ef
afköst þeirra væru einungis mæld
eftir viðveru í réttarsal, – og þann-
ig mætti vitaskuld lengi telja.
Í umræðu um heilsugæsluna
undanfarið hefur því verið haldið
fram að í kjölfar kjarabreytinga
1996 hafi afköst minnkað. Verður
ekki annað séð en þar sé verið að
telja holur en ekki hirt um inni-
hald. Umræddar kjarabreytingar
fólust í því að umbun til heim-
ilislækna breyttist að mestu úr
taxtagreiðslum fyrir unnin verk í
föst laun. Leysti það lækna undan
því ófaglega og óvirðulega hlut-
verki að reyna að pota sjúklingum
sínum sem hraðast í gegnum hver
samskipti en hljóta verri launakjör
ella. Margar holur, lítið innihald.
Ég held satt að segja að heim-
islilæknar hafi undir þessum kring-
umstæðum yfirleitt sýnt ágæta
fagmennsku og ekki freistast um of
til að stunda „fimm mínútna lækn-
isfræði“ eins og þekkist í einstaka
öðrum nálægum löndum. Til voru
einmitt læknar sem leystu oft
fjölda vandamála í einu viðtali í
stað þess að gera sjúklingum að
koma aftur og aftur til þess eins að
framleiða fleiri reikninga („græna
seðla“). Þeir sem þannig unnu
samviskusamast hlutu minnst úr
býtum. Í þessu sambandi verður að
fara nokkrum orðum um aðferða-
fræði í heimilislækningum.
Heimilislækningar
Í heimilslæknisfræðinni er lögð
megináhersla á heildarsýn, sam-
fellda þjónustu og ráðgjöf og sam-
ræmingu allra þátta heilbrigðisum-
sjár, sem yfirleitt er veitt í bútum
hér og þar í kerfinu. Heimilislækn-
irinn styður með viðtölum virkjun
sjúklings og fjölskyldu hans til
sjálfshjálpar, meðferðarheldni og
forvarna, linar áhyggjur. Í um-
hverfi hratt vaxandi sérhæfni með
tilheyrandi vélgengi og niðurbútun
viðfangsefnisins – þeirrar mann-
eskju sem í þessu samhengi nefnist
sjúklingur, er síst minni þörf fyrir
lækni, sem skoðar hann í heild
sinni og tengslum við sína fjöl-
skyldu, umhverfi og raunar allt
samfélagið. Heimilislæknisfræðin
hefur með ótvíræðum hætti sýnt
fram á með rannsóknum, að lækn-
ing, hvort sem er í líki lyfjameð-
ferðar, aðgerða, eða annarrar hefð-
bundinnar tæknibeitingar, gengur
hraðar fyrir sig og er endingar-
betri og varanlegri ef nýtur stuðn-
ings og nærveru læknis sem þekkir
til heildarsögu sjúklings, fjöl-
skylduaðstæðna, styrk þeirra og
veikleika. Þessar aðferðir eru ekki
til orðnar fyrir kurteisissakir einar
heldur hafa þau beint hagnýtt gildi
fyrir viðhald heilbrigði og lækn-
ingar. Einnig hefur verið sýnt fram
á í heimilislæknisfræði, að upp að
vissu marki eru viðtöl gagnlegri að
þessu leyti því lengri sem þau eru.
Viðtalið er meginverkefni heimilis-
læknisins og þrátt fyrir allt virðast
enn flestir sammála því að „góð
saga“ sé kjarni lækninga sem
byggja ekki alfarið á notkun tækja
og tóla.
Fyrir um 35 árum hófst sk. end-
urreisn heimilislæknisfræðinnar
þar sem þessi viðhorf voru sett í
forgrunn og sýnt fram á læknandi
slagkraft sambandsins milli heim-
ilislæknis og sjúklings, mátt lækn-
isins sem „lyfs“ til að efla í viðtali
sjúkling í rimmu sinni við heilsu-
brest og virkja hann til meðferð-
arinnar á ábyrgan hátt, hvort sem
væri í bráðum eða langvinnum
kvillum. Vitaskuld var sú hugsun í
sjálfu sér ekki ný af nálinni, en hún
var skilgreind, rannsökuð og
ástunduð á markvissari og meðvit-
aðri hátt en áður. Fyrr hafði meira
verið um svonefnda tilfellalæknis-
fræði að ræða, þ.e. að bregðast við
tilfallandi kvilla einum og sér
hverju sinni (e: episodic).
Læknavaktin
Í grein í Morgunblaðinu 08.03. sl.
fer kollegi minnn, Atli Árnason,
formaður Læknavaktarinnar í
Reykjavík, býsna fögrum orðum
um fyrirtæki sitt, og það að verð-
leikum. Læknavaktin er prýðilega
vel rekin. Þar er stunduð sértæk-
asta tegund tilfellalækninga. Fólk
með brýn vandamál mætir á stað-
inn, fær afgreiðslu fljótt og vel. En
ég get ekki verið Atla sammála um
að starfsemi vaktarinnar sé sér-
stakur sýnigluggi fyrir heimilis-
læknisfræðina. Skyndiafgreiðsla
UM AFKÖST, EINKUM
Í HEILSUGÆSLU
Ólafur Mixa
Heilsugæslan, segir
Ólafur Mixa, er talin
framvörður heilbrigðis-
þjónustunnar.
ÝMISLEGT
XVI. Vornámskeið Greiningarstöðvar:
Þroska og hegðunarfrávik barna -
frá greiningu til meðferðar
Háskólabíói 10. og 11. maí 2001
Fimmtudagur 10. maí
Fundarstjóri: Arthur Morthens, forstöðumaður
þjónustusviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur.
Kl. 9:00 - 9:10 Námskeiðssetning.
Kl. 9:10 - 9:50 Meðferð þroska- og hegðunar
raskana - til hvers?
Stefán J. Hreiðarsson, barnalæknir.
Kl. 9:50 - 10:25 Er hægt að móta miðtaugakerfið?
Solveig Sigurðardóttir, barnalæknir.
Kaffi
Kl. 10:55 - 11:25 Hvernig rúmast meðferð innan
leikskóla?
Ingi Jón Hauksson, sálfræðingur.
Kl. 11:25 - 12:00 Fagfólk og foreldrar –
sameiginleg ábyrgð,
Maggý Magnúsdóttir, félagsráðgjafi.
Matarhlé
Kl. 13:15 - 13:50 Málörvun í skóla og leikskóla.
Anna Jórunn Stefánsdóttir,
talmeinafræðingur.
Kl. 13:50-14:25 Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir.
Sigrún Grendal Magnúsdóttir,
talmeinafræðingur.
Kl. 14:25 -15:00 Málörvunarkerfi Irene Johansen.
Ásta Sigurbjörnsdóttir,
talmeinafræðingur.
Kaffi
Kl. 15:20 -16:00 Eilíf kraftaverk
(um meðferðarúrræði á miðöldum).
Pétur Gunnarsson, rithöfundur.
Föstudagur 11. maí
Fundarstjóri: Ólafur Guðmundsson, yfirlæknir Barna-
og unglingageðdeildar.
Kl. 9:00 - 9:40 Helstu meðferðarleiðir hreyfihaml-
aðra barna.
Steingerður Sigurbjörnsdóttir,
barnalæknir.
kl. 9:40 -10:20 Tölvur sem þjálfunartæki.
Sigrún Jóhannsdóttir,
f orstöðumaður Tölvumiðst. fatlaðra.
Kaffi
Kl. 10:40 -11:20 Þáttur sjúkraþjálfunar.
Áslaug Jónsdóttir, sjúkraþjálfari.
Kl. 11:20 -12:00 Þáttur iðjuþjálfunar.
Þóra Leósdóttir, iðjuþjálfi.
Matarhlé
Kl. 13:15 -13:50 Hegðunarfrávik fatlaðra og
meðferðarleiðir.
Tryggvi Sigurðsson, sálfræðingur.
Kl. 13:50 - 14:25 Atferlismeðferð vegna erfiðrar
hegðunar.
Sigríður Lóa Jónsdóttir, sálfræðingur.
Kl. 14:25 -15:00 Lyfjameðferð við hegðunarröskunum.
Stefán J. Hreiðarsson, barnalæknir.
Kaffi
Kl. 15:20 - 16:00 Foreldrahlutverk – meðferðar-
hlutverk – hvar eru mörkin?
Andrés Ragnarsson, foreldri.
Skráning 23. apríl - 4. maí í síma 564 1744, á fax 564 1753, eða á netfang: fraedsla@greining.is
Forval
Umsýslustofnun varnarmála, Sala varnarliðseigna,
f.h. Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli auglýsir
hér með eftir aðilum til að taka þátt í forvali vegna
útboðs á verki innan varnarsvæðisins á Keflavíkur-
flugvelli: Viðgerðir og breytingar á byggingu
635, Bachelor Officers Quarters.
Nánari verklýsing fylgir forvalsgögnum. Tilkynn-
ing þessi tekur einungis til íslenskra lögaðila.
Forvalsgögn fást hjá Umsýslustofnun varnarmála,
Sölu varnarliðseigna, Grensásvegi 9, Reykjavík,
og á Brekkustíg 39, Reykjanesbæ. Þau ber að fylla
út af umsækjendum og áskilur forvalsnefnd utan-
ríkisráðuneytisins sér rétt til að hafna forvalsgögn-
um sem ekki eru fullnægjandi. Ekki verður tekið
við upplýsingum frá þátttakendum eftir að forvals-
frestur rennur út.
Umsóknum skal skilað til Umsýslustofnunar
varnarmála, Sölu varnarliðseigna, Grensás-
vegi 9, Reykjavík, eða Brekkustíg 39, Njarð-
vík, fyrir kl. 16.00, miðvikudaginn 25. apríl
nk.
Umsýslustofnun varnarmála.
Sala varnarliðseigna.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Forval
Umsýslustofnun varnarmála, Sala varnarliðseigna
f.h. Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, auglýsir
hér með eftir aðilum til að taka þátt í forvali vegna
útboðs á þjónustusamningi um akstur á starfs-
mönnum Varnarliðsins. Samningurinn er til
eins árs með möguleika á framlengingu fjórum
sinnum, til eins árs í senn. Samningstími er frá
1. júlí nk.
Nánari verklýsing fylgir forvalsgögnum. Tilkynn-
ing þessi tekur einungis til íslenskra lögaðila.
Forvalsgögn fást hjá Umsýslustofnun varnarmála,
Sölu varnarliðseigna, Grensásvegi 9, Reykjavík
og á Brekkustíg 39, Reykjanesbæ. Þau ber að fylla
út af umsækjendum og áskilur forvalsnefnd utan-
ríkisráðuneytisins sér rétt til að hafna forvalsgögn-
um sem ekki eru fullnægjandi. Ekki verður tekið
við upplýsingum frá þátttakendum eftir að forvals-
frestur rennur út.
Umsóknum skal skilað til Umsýslustofnunar
varnarmála, Sölu varnarliðseigna, Grensás-
vegi 9, Reykjavík, eða Brekkustíg 39, Njarð-
vík, fyrir kl. 16:00, föstudaginn 20. apríl nk.
Umsýslustofnun varnarmála.
Sala varnarliðseigna.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R