Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ BARBARA Kingsolver hefur gefið út nokkrar bækur. Má þar nefna Pigs in heaven og The pois- onwood Bible, sem áður hefur verið fjallað um hér. Kingsolver er líf- fræðingur að mennt og verk hennar vitna um, að hún ber mikla virðingu fyrir lífinu. Í bókinni um baunatrén er fjallað um Taylor nokkra Greer, dóttur einstæðrar móður í Kentucky. Mamman vinnur hörðum höndum til að sjá þeim farborða. Hún hefur óbilandi trú á dóttur sinni og vill allt til þess vinna, að Taylor hljóti betra hlutskipti en hún og þurfi ekki að slíta sér út í illa launuðu starfi. Hún hvetur hana að sækja um vinnu á rannsóknarstofu hér- aðssjúkrahússins og þar vinnur Taylor í nokkur ár, eða þar til hún er búin að safna sér fyrir bíl. Þá kaupir hún gamla Volkswagen- bjöllu, algjöra druslu og leggur af stað frá Kentucky og ekur í vest- urátt, áleiðis til fyrirheitna lands- ins. Áfangastaðurinn er óviss, hún ætlar bara að setjast að þar sem bíllinn hennar gefst upp. Á einum áningarstaðnum er henni gefin lítil indjánastúlka, sem hún gengur strax í móðurstað. Þegar Taylor kemur til Tucson í Arizona bilar bíllinn, hún á ekki fyrir viðgerð, svo hún sest þar að. Hún fer að vinna, eignast sitt heimili og festir rætur. Þessi bók er um konur og aftur konur. Þær eru nokkrar konurnar, sem eru áhrifavaldar í lífi Taylor Greer, móðir hennar, dóttir, vinnuveitandi, sambýlingur og fleiri mætti telja upp. Kings- olver lýsir samskiptum þeirra og samvinnu af- skaplega vel. Konurnar eru þó ekki alveg lausar við karlmenn, en þeir eru í algjörum minni- hluta og flestir þeirra heldur lítilsigldir. Þeir karlar, sem eru í lagi, eru svona eins og nyt- samir sakleysingjar. Barbara Kingsolver lít- ur á konur sem hið sterka kyn og konunum hennar er ekkert ómögulegt ef þær standa saman. Sagan af Taylor Greer og vinkonum hennar minnir að mörgu leyti á kvikmyndina um Forrest Gump. Hún er bráðskemmtileg og grípur mann strax á fyrstu síðu. Sameinað- ar stöndum vér THE BEAN TREES eftir Barböru Kingsolver. HarperPaperbacks gefur út árið 1998. 312 síðna kilja og fæst í bókabúð Máls og menningar. Ingveldur Róbertsdótt ir Forvitnilegar bækur ÞAÐ VAR tvennt við þessa bók, sem vakti forvitni mína. Annars veg- ar var það hin skrautlega bókarkápa og hins vegar upptalningin á öðrum verkum eftir höfundinn, en Lilian Jackson Braun hefur skrifað a.m.k. tuttugu bækur, m.a. söguna um kött- inn sem kom í morgunverð og aðra um köttinn sem fór inn í skápinn, svo einhverjar séu nefndar. Allar þessar sögur eiga það sam- merkt að vera eins konar leynilög- reglusögur, þótt þar sé ekki neinum leynilögreglumanni fyrir að fara. Sögusviðið er borgin Pickax í Moose County, sem er einhvers staðar norðan við „Down below“ í Banda- ríkjunum, eða eins og segir í bókinni, „400 mílum norðan við allt“. Þetta er frekar einangraður staður, þarna er allt frekar gamaldags og íbúarnir gleypa ekki auðveldlega við nýjung- um, eins og sést á því, að þegar til stendur að tölvuvæða bókasafnið í bænum, verða viðskiptavinirnir felmtri slegnir, mótmæla harðlega og fara í kröfugöngu með mótmælaspjöld og slag- orðahróp. Ein af árlegum há- tíðum í bænum er stafsetning- arkeppni, sem vekur upp svo mikla spennu meðal keppenda og áhorfenda, að það hálfa væri nóg. Aðalsöguhetjan er Jim Qwilleran, blaðamaður, sem reyndar er sestur í helgan stein eftir að hafa erft fullt af peningum. Hann býr í rosa- legu flottu húsi með tveimur síamsköttum, sem eru án efa greindustu kettir í heimi og hafa ótrúlegt skyn. Qwilleran er einn af þessum fullkomnu mönnum, hann er gáfaður, skynsamur, ríkur, gjafmildur, ráðhollur, fyndinn og .... og allt. Þegar eitthvað bjátar á í Pickax, þá er leitað til hans og hann finnur alltaf leið til að leysa hvers manns vanda. Það vill svo til, að framin eru tvö morð í bænum hans herra Q og það er auðvitað hann, með hjálp kattanna sinna, sem ræður þá gátu. Sögur Lilian Jackson Braun eru afar snyrtilegar sakamála- sögur og gæti ég trúað því, að þeim sem vanir eru hrotta- fengnum lýsingum af ofbeld- isverkum blóðþyrstra glæpa- manna, þyki harla lítið til hennar bóka koma. Ætli það viti ekki bara á gott, að ennþá skuli vera gefnar út, keyptar og lesnar, svona snyrtilegar glæpasögur. Forvitnilegar bækur The Cat Who Sang For The Birds eftir Lilian Jackson Braun. Jove gefur út árið 1999. 260 síðna kilja og fæst í bókabúð Máls og menningar. Ingveldur Róbertsdótt ir Snyrtileg saka- málasaga MYNDAVÉL með regnhlíf til að taka myndir í rigningu, bolur með klórureitum til að auðvelda mönnum að láta klóra sér, (a4 til a6), fingurt- annburstar til að skaftið á tannburst- anum sé ekki að þvælast fyrir, há- hælaðir skór með hjálpardekkjum fyrir þær sem eru að byrja á tísku- brautinni, öklaþvottavél sem þvær á meðan eigandinn er úti að ganga og svo má telja. Allt bráðnauðsynlegir hlutir ... eða hvað? Austur í Japan hafa menn skemmt sér við það undanfarin ár að finna upp slíka og þvílíka vitleysu og nefnd er að ofan, alls kyns hluti sem virðast vera nytsamlegir en eru það alls ekki þegar grannt er skoðað. Uppfinn- ingar af því tagi kalla menn Tsjin- dogu í Japan og æðið þegar hafið á Vesturlöndum. Heitið Tsjindogu er komið frá jap- anska grínistanum Kenji Kawakami sem fann fyrirbærið upp ef svo má segja, en hann er einmitt höfundur bókarinnar sem meðfylgjandi mynd- ir eru teknar úr. Dogu þýðir verk- færi á japönsku og tsjin þýðir sér- kennilegt eða skrýtið þannig að útleggja má Tsjindogu sem skrýtið verkfæri. Tsjindogu-vinir hafa með sér sam- tök sem mótað hafa ákveðnar reglur um það hvað teljist Tsjindogu og hvað ekki, en þau samtök eru meðal annars með aðsetur á vefnum, www.pitt.edu/~ctnst3/Tsjin- dogu.html. Þar er hægt að lesa meira um samtökin og gerast félagsmaður ef vill. Mikið er upp úr því lagt að Tsjind- ogu sé næsta gagnslaust, en ekki eru allir nánast gagnslausir hlutir Tsjin- dogu; til þess að hlutur falli undir skilgreininguna þarf hann að upp- fylla eftirfarandi skilyrði. 1. Tsjindogu má ekki vera til gagns. Tsjindogu hlutur verður að vera nánast gagnslaus og ef uppfinn- ingamaðurinn hefur búið til eitthvað sem gagn er að er útkoman ekki Tsjindogu. 2. Tsjindogu verður að vera til. Ekkert notagildi má vera af Tsjin- godu en það verður að vera til, það verður að vera hægt að handfjatla það og menn að geta ímyndað sér að einhver gæti hugsanlega haft gagn af því með áherslu á hugsanlega. 3. Óreiða er aðal Tsjindogu, enda njóta Tsjindogu-hlutir þess frelsis að vera gagnslausir, að falla ekki undir fyrirfram ákveðin markmið um að gera gagn eða nýtast við einhverja iðju. 4. Tsjindogu eru hversdagsleg tól sem allir skilja. Hlutir geta ekki tal- ist Tsjindogu ef sérmenntun eða starfsreynslu þarf til að átta sig á að hluturinn sé gagnslaus. 5. Tsjindogu eru ekki til sölu. Óheimilt er að taka við fé fyrir Tsjin- dogu, ekki einu sinni til gamans. 6. Tsjindogu eru ekki aðeins til gamans, enda byggist hugmyndin á því að til sé alvöru vandamál sem verið er að reyna að leysa. Hugs- anlega getur flókin og fáránleg lausn vakið kímni, en það má ekki vera til- gangur hennar. 7. Tsjindogu má ekki nota í áróð- ursskyni, enda eiga Tsjindogu-hlutir að vera hlutlausir í sakleysi sínu. Ekki má heldur setja saman Tsjin- dogu-hluti til að gera lítið úr mönn- um eða málefnum, hvað þá mann- kyninu. 8. Tsjindogu eru ekki bannhelgir hlutir, en alþjóðlega Tsjindogu sam- bandið hefur sett ákveðnar reglur um að lágkúruleg gamansemi og klúr kímni megi ekki einkenna Tsjindogu. 9. Ekki má sækja um einkaleyfi fyrir Tsjindogu. Tsjindogu eiga að vera öllum frjáls til afnota og ekki hugmyndir sem sækja má um einkaleyfi á eða hagnýta í eigin þágu. 10. Ekki mega felast fordómar í Tsjindogu, ekki má greina á milli trú manna, aldri, kyni, veraldlegri stöðu; allir eiga að geta notið Tsjindogu. Bókin 101 Useless Japanese Inventions eftir Kenji Kawakami fæst í Máli og menningu. W.W. North & Company gefur út. 101 GAGNSLAUS JAPÖNSK UPPFINNING Nánast gagnslausir ómissandi hlutir Háhælaðir með hjálpardekkjum. Í þessum bol er auðvelt að benda fólki á hvar ná- kvæmlega það eigi að klóra manni á bakinu. Myndavél til að festa lífið á filmu – frá öllum hlið- um og albúm til að skoða afraksturinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.