Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 11.04.2001, Blaðsíða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. LÍTIÐ barn að leik í eigin hug- arheimi er eitt af því sem snertir fólk og gefur lífinu gildi. Að eyði- leggja líf barns er glæpur af verstu tegund. Okkur ber skylda til að verja þau og vernda. Í skjóli and- varaleysis ís- lenskra stjórn- valda hafa siðlaus illmenni hreiðrað um sig í samfélaginu og komið sér fyrir eins og lirfur í þjóðarlíkaman- um og éta hann innan frá. Skað- ræði þessi eru eitursalar og má með sanni kalla þá eiturlyfjamorð- inga. Hræðilegt er að horfa að- gerðarlaus á þessa andfélagslegu þegna hafa atvinnu af að eyði- leggja fjölda barna og allt sam- félagið eins og þeir fá að gera næstum óáreittir. Útlendur kunn- ingi minn sagði að ekki þyrfti fleiri en tíu sérfræðinga frá sínu landi til að eyða þessum ófögnuði á einu ári. Kosningaloforð stjórnmála- manna hafa litlu skilað og koma myrk undirheimaöfl illsku sinni fram að vild, en stjórnvöld sofa á meðan. Lögin eru svo aum gagn- vart glæpamönnum að fórnarlömb þeirra verða tortryggileg þegar fyrir dómstóla er komið. Skoðið bara dóma og aðdraganda þeirra. Kio Briggs gat naumlega leynt hlátrinum þegar hann var sýkn- aður, þótt hann væri tekinn með mörg þúsund E-töflur og þakkaði Guði af fullkominni hræsni á með- an hann faðmaði trúgjarna verj- andann. Leikur á heimsvísu sem dugði honum þó ekki í Danmörku. Þar sjá menn hættuna kannski bet- ur. Ritskoðun á sjálfum sér heitir grein sem Jón Steinar Gunnlaugs- son skrifar í Morgunblaðið 10. mars. Þar lýsir hann sig sammála skoðunum Clarence Thomas um að menn skuli ekki láta pólitískan rétttrúnað í samfélögum hræða sig frá eigin áliti vegna ótta við gagn- rýni. Þessu er ég sammála en ekki því að í skjóli slíkrar röksemda skuli eiturlyfjasala leyfð og börn- um og unglingum gert að ákveða sjálf hvort þau neyti eiturs eða ekki. Ég er heldur ekki sammála röksemdum Jóns í máli unglings- stúlkunnar sem hann brást með því að birta trúnaðarskjöl. Jón Steinar er rökfær og gerði unglingssystur barnsins tortryggilega. Skilmerki- legar greinar frænku barnanna og viðtal í sjónvarpi er trúverðugt. Nýlega var enn einn unglingur af mörgum, 15 ára stúlka send á Vog vegna eiturlyfjavanda en hún var að veslast upp og vildi svipta sig lífi. Maðurinn sem gerði henni þetta er alræmdur fyrir að selja börnum eitur og afleiðingin í mörg- um tilfellum leitt til dauða af völd- um eiturs eða sjálfsvígs. Illmenni þetta smýgur kerfið að vild því lög- in eru því hagstæð. Lögreglan seg- ir að þótt hún viti um hann og aðra sem selji eitur til barna og ung- linga sé ekki nóg að þau segi frá. Réttindi glæpamanna eru of virt á Íslandi og ef satt er að matur og aðbúnaður sé betri á Hrauninu en á öldrunarstofnunum er ekki ama- legt að hvílast þar á milli verka. Hér á landi óttast glæpamenn ekk- ert því það er hlúð vel að þeim á hvíldarheimilinu nýja og áætluð dvöl oftast skorin niður um helm- ing. Ég man þegar Litla-Hraun var kallað Letigarður og ef einhverri stofnun væri til góðs að einkavæð- ast þá væri það hún og fá vistmenn þess til að átta sig á hvað lífið er dýrmætt og rangt að kasta því á glæ. En þó sérstaklega rangt að eyðileggja annarra líf og strá ógæfu. Frjálsræðistefna Jóns Steinars í meðferð og sölu eitur- lyfja boðar uppgjöf, hnignun og endi lagalegrar undirstöðu sam- félagsins. Það þurfa fleiri hjálp en ég hugði. ALBERT JENSEN trésmíðameistari, Háaleitisbraut 129, Rvk. Vopn laun- morðingjanna Albert Jensen Frá Alberti Jensen: NAFN Bræðr- anna Ormsson hefur verið til um- ræðu á lesenda- síðum Morgun- blaðsins und- anfarið, þar sem togast hafa á sjónarmið um beygingu þess. Um leið og ég fagna þessari áberandi og í sjálfu sér sakleysislegu umræðu, kalla ég til leiks dóttur mína Gabríelu 3 ára. Hið barnslega sjónarhorn vill nefnilega stundum vega þyngra en lærðar greinar, þar sem áherslan á hin djúpu fræði ber einfaldleikann ofurliði. Sú stutta seg- ir Ormssonbræður og það leiðir hug- ann að því hvort einhverjum dytti í hug að segja; Ormssynir bræður eða eitthvað þaðan af skrýtnara. HAUKUR MAGNÚSSON, mark- aðsstjóri hjá Bræðrunum Ormsson. Ormssonbræður Frá Hauki Magnússyni: Haukur Magn- ússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.