Morgunblaðið - 11.04.2001, Qupperneq 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
inu á þann hátt að vatnið sígi hrað-
ar niður í hraunbergið.
Kristjana G. Eyþórsdóttir, jarð-
fræðingur hjá Vatnamælingum,
segir að mjög þurrt sé á þessu
svæði og vatnsyfirborðið sé óvenju
lágt núna. Mælitækin sem mæla
vatnsyfirborðið eru komin á þurrt
land og er nú verið að undirbúa að
lengja rör í tækjunum þannig að
það komist aftur í vatn. Hún segir
ekkert stökk sjáanlegt í vatnslækk-
un í kringum jarðskjálftana í fyrra-
sumar og segist telja að lækkunin
YFIRBORÐ Kleifarvatns hefur
lækkað mikið frá því síðasta sumar
og er nú svo komið að mælitæki
Vatnamælinga eru komin á þurrt
land. Hverir við suðurenda vatnsins
sem áður voru undir vatni tugum
metra frá landi eru komnir á þurrt
og hafa verið að koma í ljós síðustu
dagana.
Lítil úrkoma og snjóléttur vetur
hefur áhrif á vatnsstöðuna en sá
möguleiki er einnig fyrir hendi að
jarðskjálftahrinan síðasta sumar
hafi haft áhrif á jarðlög undir vatn-
stafi frekar af þurrkum enda sé
hraunið þarna hriplekt og fljótt að
lækka í vatninu þegar úrkoma sé
lítil.
Aldrei áður séð vatnsyfirborð-
ið svo lágt á þessum tíma
Þorgeir Ólason, forstöðumaður
Krýsuvíkurskóla, hefur undanfarin
ár ekið nánast daglega frá Hafn-
arfirði framhjá Kleifarvatni að
Krýsuvíkurskóla. Hann segist aldr-
ei hafa séð vatnsyfirborðið svona
lágt á þessum tíma. Það hafi verið
mun hærra í fyrravor og síðasta
sumar en síðan hafi það lækkað
jafnt og þétt. Nú eru komnar undan
vatninu stórar sandfjörur og hverir
sem áður hafa verið undir vatni.
Meðal annars hafa komið í ljós
hverir sunnanmegin í vatninu síð-
ustu daga sem voru alveg undir
vatni í síðustu viku. Þeir eru nú við
fjöruborð tugi metra frá fjöruborð-
inu sem veiðimenn stóðu við í fyrra-
sumar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorgeir Ólason, forstöðumaður Krýsuvíkurskóla, skoðar hverina sem komið hafa undan Kleifarvatni undanfarna daga.
Vatnsborð Kleifarvatns
hefur lækkað umtalsvert
Rjúkandi hverir/6
TÆPLEGA helmingur þeirra sem
segjast styðja Vinstrihreyfinguna –
grænt framboð í dag kaus Samfylk-
inguna og Framsóknarflokkinn í síð-
ustu kosningum. Þetta kemur fram í
skoðanakönnun sem Gallup gerði í
síðasta mánuði.
Samkvæmt könnun Gallup er fylgi
Vinstrihreyfingarinnar núna um
22%. Um 40% þeirra sem segjast
ætla að kjósa flokkinn nú kusu hann í
síðustu alþingiskosningum. Tæplega
30% fylgisins koma frá þeim sem
kusu Samfylkinguna 1999. Tæplega
20% þess koma frá þeim sem kusu
Framsóknarflokkinn 1999 og um
10% þess koma frá þeim sem kusu
Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosn-
ingum.
Samkvæmt könnun Gallup segjast
63% þeirra sem kusu Samfylkinguna
í síðustu kosningum styðja flokkinn
nú. Af þeim sem sögðust hafa kosið
Framsóknarflokkinn í síðustu kosn-
ingum ætluðu 64% að kjósa hann nú.
Tæplega 90% þeirra sem kusu Sjálf-
stæðisflokkinn segjast ætla að kjósa
hann aftur nú. Um 86% þeirra sem
kusu vinstri-græna segjast styðja þá
núna og um 50% þeirra sem sögðust
hafa kosið Frjálslynda flokkinn
styðja hann núna.
Helmingur
fylgis VG
frá Sam-
fylkingu og
Framsókn
Fjórflokkurinn/38
LÍFEYRISSKULDBINDINGAR
vegna grunnskólakennara hækka
um tæpa 22 milljarða kr. á gildistíma
nýrra kjarasamninga þeirra til
marsloka árið 2004 eða um 48,89%.
Þetta kemur meðal annars fram í
svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn Péturs Blöndals alþingis-
manns um kjarasamning sveitar-
félaga við grunnskólakennara.
Fyrirspurnin er í nokkrum liðum og
kemur meðal annars fram að áfallin
heildarskuldbinding vegna grunn-
skólakennara, núverandi og fyrrver-
andi, er áætluð tæpur 61 milljarður
kr. í árslok 2001 og hefur þá verið
tekið tillit til þeirra breytinga sem
verða á kjarasamningi kennara 1.
ágúst næstkomandi.
Hækkun um
tæpa 22
milljarða
Lífeyrisskuld-
bindingar vegna
grunnskólakennara
UTANRÍKISRÁÐHERRA hefur
falið einkavæðingarnefnd ríkis-
stjórnarinnar að annast sölu á 20%
hlutar af heildarhlutafé í Íslenskum
aðalverktökum hf., en ríkið á nú
39,85% hlut í félaginu. Stefnt er að
því að sala geti hafist fyrri hluta
sumars. Þetta kom fram í ræðu Jóns
Sveinssonar, stjórnarformanns Ís-
lenskra aðalverktaka, á aðalfundi
félagsins í gær.
Ein tillaga kom fram á aðalfund-
inum um fimm menn í aðalstjórn
félagsins og var hún samþykkt sam-
hljóða. Tveir viku úr stjórninni,
Sveinn R. Eyjólfsson varaformaður
og Bjarni Thors. Í þeirra stað voru
kjörnir Vilberg Vilbergsson, sem var
áður í varastjórn félagsins, og Jón
Ólafsson Friðgeirsson, stjórnarfor-
maður Norðurljósa. Félög í eigu
hans og Sigurðar G. Guðjónssonar
lögmanns keyptu nýlega tæplega
10% hlut í Íslenskum aðalverktökum
af Íslandsbanka-FBA, eða tæplega
140 milljónir króna að nafnvirði.
Gengi bréfa í Íslenskum aðalverk-
tökum er 3,4 og markaðsvirði hlut-
arins er því um 475 milljónir króna.
Í aðalstjórn voru endurkjörnir Jón
Sveinsson, Árni Grétar Finnsson og
Tryggvi Þór Haraldsson.
Aðalfundur Íslenskra aðalverktaka hf.
Ríkið ætlar að
selja helming
hlutafjár síns
♦ ♦ ♦
MITT í umræðunni um að flytja
norska fósturvísa úr kúm til Ís-
lands hefur bóndinn að Bakkakoti
í Meðallandi, Guðni Runólfsson,
farið aðra leið og sent eina kúna
sína til Danmerkur. „Já, ég sá
auglýsingu í fréttabréfi Bún-
aðarsambandsins þar sem óskað
var eftir kvígum til útflutnings til
Danmerkur. Nú, það var sér-
staklega óskað eftir bröndóttri
kvígu og þar sem ég átti eina slíka
sem ég gat séð af þá varð það úr
að sú bröndótta fór utan á sunnu-
dag,“ sagði Guðni í samtali við
Morgunblaðið. Bröndóttar kýr eru
afar fáséðar í Danmörk og sagðist
Guðni telja að danski starfsfélagi
hans, sem rekur lífrænan búskap,
hygðist þannig auðga litróf
danska stofnsins með íslenskum
kynbótum. Guðni fylgdi kúnni út á
flugvöll á sunnudag þar sem flutn-
ingsaðilar danska bóndans tóku á
móti henni og fylgdu til nýrra
heimkynna.
Spurður hvort hann vissi eitt-
hvað um afdrif kýrinnar í nýju
landi sagðist Guðni hafa frétt að
kvígan væri komin á básinn sinn
og æti hey með góðri lyst.
Kvíga með flugi
til Danmerkur