Morgunblaðið - 03.06.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.06.2001, Blaðsíða 14
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson „Svipdagur“, frá 1999–2000, er með athyglisverðustu verkum Braga Ásgeirssonar á sýningunni í Galleríi Fold. BRAGI Ásgeirsson, listmálari og gagnrýnandi, varð sjötugur þann 28. maí. Í tilefni af þeim tímamót- um hefur honum verið boðið að sýna á tveim stöðum samtímis, í Galleríi Sævars Karls í Banka- stræti og Gallerí Fold við Rauð- arárstíg. Á fyrri staðnum eru þrett- án verk, en í Fold eru þau hvorki meira né minna en fjórir tugir. Þetta er þó langt frá því að vera met hjá Braga því árið 1980 hélt hann einkasýningu á Kjarvalsstöð- um og lagði þá allt húsið undir jafn- mörg verk og dagarnir eru í árinu. Trúlega er það Íslandsmet í fjölda verka á einni einkasýningu. Bragi fæddist í Reykjavík, árið 1931 og stundaði nám við Handíða- og myndlistaskólann frá 1947 til 1950. Næstu tvö árin dvaldi hann við framhaldsnám í Konunglegu Akademíunni í Kaupmannahöfn, en hélt þá til Osló til náms við Kon- unglegu Akademíuna þar. Veturinn 1952 til 1953 dvaldi Bragi í Róm og Flórens, en 1955 til 1956 var hann aftur staddur í Kaupmannahöfn og lagði þar stund á grafík við Kon- unglegu Akademíuna. Vorið 1955 hélt Bragi fyrstu einkasýningu sína í Listamannaskálanum við Kirkju- stræti og ári síðar hélt hann einka- sýningu í Kaupmannahöfn. Árin 1958 til 1960 stundaði Bragi enn framhaldsnám erlendis, nú í München og 1960 hélt hann aftur einkasýningu í Listamannaskálan- um og enn, sex árum síðar. Þá tóku við fimm einkasýningar í Norræna húsinu og þrjár á Kjarvalsstöðum, auk fjölda minni einkasýninga í Reykjavík og úti á landi. Eru þá ótaldar samsýningarnar heima og erlendis sem borið hafa verk Braga til Buenos Aires, New York og Moskvu, svo fáein dæmi séu nefnd. Braga hefur hlotnast ýmiss heið- ur, svo sem dvalar- og námsstyrkir á öllum Norðurlöndunum. Til dæm- is fékk hann Edvard Munch-styrk- inn árið 1977, og Bjartsýnisverð- laun Brøste árið 1982. Árið 1978-1979 hlaut hann starfsstyrk íslenska ríkisins og 1985 var hann valinn Borgarlistamaður Reykja- víkur. Frá 1966 hefur Bragi verið listgagnrýnandi Morgunblaðsins og sem slíkur ritað fjölda greina um íslenska list, en einnig í íslensk og erlend tímarit. Þá var Bragi kenn- ari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands nær samfellt frá 1956 til 1996. Þannig hefur Bragi átt afar far- sælan feril á fjölmörgum ólíkum sviðum myndlistar frá því hann steig sín fyrstu spor á þeirri braut í upphafi sjötta áratugarins. Af sýn- ingunum tveim má ýmislegt ráða um framvindu hans sem listmálara, en auk þess hefur Bragi ætíð verið mikilvirkur teiknari og svartlistar- maður á ríflega fjörutíu ára löngum ferli sínum. Það er ef til vill auð- veldara að ráða í þróun Braga og umfang listar hans út frá sýning- unni í Gallerí Fold en hinni hjá Sævari Karli, vegna þess að sú síð- arnefnda er mun syrpukenndari, með verkum af áþekkri gerð og stærð. Í Fold kennir með öðrum orðum ýmissa grasa, allt frá geometrísk- um verkum til fígúratífra, með við- komu í ljóðrænni abstraktlist og óformlegri. Sum verkin eru nær mónókróm, eða einlit, en önnur eru byggð á samsetningu ólíkra ein- inga. Þá eru verk þar sem ríkuleg áhersla er lögð á efniskennd miðl- anna, eða fundið dót látið byggja upp flötinn. Í þeim efnum var Bragi frumkvöðull og átti glæsilegt skeið sem rusllistamaður – junk artist – einkum þegar saman fór hógvær litanotkun og upplímt fjörudót. Það virðist næsta augljóst að Bragi er bestur þar sem hann er í mestum og nánustum tengslum við samtíma sinn. Það er hvorki sem síðbúinn kúbisti eða reglufastur hreinflatamálari sem hann lætur mest að sér kveða, né heldur sem fígúratífur listamaður. Nei, Bragi er bestur þegar hann er sem frjáls- astur og gleymir öllu því sem skól- unin kenndi honum. Efniskönnunin og frjálst pensilfarið – ferð án fyr- irheits – í ljóðrænu myndunum lýs- ir málara sem hefur alla burði til að vera óhaminn og leikandi. Það vill oft gleymast að Bragi er af sömu kynslóð og Gerhard Richter og Jasper Johns, eilítið yngri en Cy Twombly og Yves heitinn Klein, en örlítið eldri en Jim Dine. Án of njörvaðrar áætlunar og of sterkrar sjálfsvitundar verða til verk í höndum Braga sem geisla af fjöri og dirfsku, svo sem þegar rauðmáluð, gagnsæ plata er límd á rauðan grunn, eða ómengaðir frum- litir dansa á hvítmáluðum fleti. Í slíkum tilvikum verða pensilstrok- urnar lifandi og leikandi svo verkið öðlast margræða dýpt, einmitt vegna þess að það er ekki alls kost- ar til lykta leitt heldur látið haldast opið í allar áttir. Einmitt það að leiða hlutina ekki til lykta er meðal þess sem gert hefur nútímalist áð- urnefndra samferðarmanna Braga svo ferska og fjörmikla. Að sama skapi er Bragi vafasam- astur þegar hann minnist um of skólanna sem reyndu að drepa fjör hans í dróma. Gleymum ekki ein- kunninni sem Svavar heitinn Guðnason gaf Akademíunni í Kaup- mannahöfn. Rykfallnara apparati hafði hann ekki kynnst nema ef vera kunni skóli Fernand Léger í París, sem hann sótti í eina viku ásamt Nínu Tryggvadóttur, en þoldi ekki við lengur. Sú trú margra Íslendinga að sama tegund handsals gilti á tuttugustu öldinni og verið hafði við lýði í gildakerfi gotneska tímans eða endurreisnar- innar á síð-miðöldum – meistara- lærlinga-kerfinu – varð til þess að þeir fengu ofurtrú á ákveðinni skólastefnu sem setti kúbismann í öndvegi sem beinan arftaka got- neska stílsins á Ítalíu. Franski mál- arinn Albert Gleizes ímyndaði sér til dæmis að hann væri arftaki Lor- enzetti-bræðranna frá Siena á 14. öld. En allir sómakærir listamenn vísuðu slíkri vegleysu á dyr. Mat- isse hætti til dæmis með skólann sinn eftir fjögur ár því honum blöskraði ósjálfstæði nemenda gagnvart sér og vildi ekki unga út fleiri vasaútgáfum af eigin verkum og Richard Mortensen var beinlínis hryggur yfir sauðslegri fylgni nem- enda sinna við sig þegar hann starfaði sem prófessor við Akadem- íuna í Kaupmannahöfn. Listaskólar eru ekki til að móta nemendur heldur veita þeim það veganesti sem þeir þurfa til að marka sér eig- in braut. Sem betur fer rekur Bragi af sér allt slíkt akademískt slyðruorð í bestu myndum sínum, sem jafn- framt eru í flokki hans nýjustu. Hvort sem hann notar striga eða olíuborið masónít sem undirstöðu nær hann leikandi töktum með skafinni áferð. Þar sem efnið fær að anda og er ekki njörvað við skreytikenndar stílfærslur bregður hvarvetna fyrir þeim snertiflötum við lífið og leiknina sem einkennir bestu hliðar Braga. Í Galleríi Sævars Karls má sjá afgerandi áhrif expressjónískrar abstraktlistar þeirra Rothko og Newman á Braga. Ef til vill hvílir syrpan á of stórum grunnflötum því Bragi er mun evrópskari en svo að hann þurfi á miklum stærðum að halda. Ofurflekar henta honum alls ekki vel. Tilfinningalega stendur hann mun nær Klee, Fautrier, Wols, Michaux og minni myndum Fontana, en síðastnefndi listamað- urinn er ef til vill sá málari sem fyrst kemur upp í hugann þegar spurt er hverjum Bragi sé andlega skyldastur. Að vísu sker sig úr eitt prýðisverk hjá Sævari sem minnir sumpart á Poliakoff þótt efnistök séu allt önnur, og sannar enn sem fyrr að ljóðræn og ryþmísk ab- straktlist hentar afmælisbarninu best. Syrpan gefur þó fögur fyrirheit um framhald þar sem ýmsar pæl- ingar hreiðra um sig á þrískiptum fleti sem virðist spretta af dásam- legu útsýninu yfir sundin úr há- timbraðri vinnustofu Braga yfir Laugarásnum. Í verkunum er mikil hafræna og sólskin sem ávallt býr yfir dulúð hins óendanlega svo sem við þekkjum af verkum Turner og Nolde. Þar sem þessi lágrétta speglun ljóss og lita fer saman við ríkulega efnisnotkun tekst Braga að yfirvinna öll tregðulögmál sem ógna ágæti hans sem málara. Hið merkilega við syrpuna í Galleríi Sævars Karls er hve sterkt hún vís- ar til framtíðar. Enginn óþarfa söknuður eftir horfinni formfræði eða ónýtu skreyti íþyngir henni. Svo virðist sem frá þessari syrpu séu Braga allir vegir færir. Tvöföld af- mælissýning MYNDLIST G a l l e r í F o l d & G a l l e r í S æ v a r s K a r l s Til 14. júní í Gallerí Fold; og 21. júní í Galleríi Sævars Karls. Opið daglega í Gallerí Fold frá kl. 10–18; laugardaga frá kl. 10–17; og sunnudaga frá kl. 14–17. Opið á verslunartíma í Galleríi Sævars Karls. MÁLVERK & BLÖNDUÐ TÆKNI BRAGI ÁSGEIRSSON „Apríl“, frá 2001, brýtur upp málverkasyrpu Braga í Galleríi Sævars Karls með óvenjulegum hætti. Halldór Björn Runólfsson LISTIR 14 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Við styrkjum spennandi menningarviðburði á Norðurlöndum Nú er kominn tími til að sækja um styrki til norrænna menn- ingarverkefna sem ná til minnst 3 Norðurlanda/ sjálfstjórnarsvæða. Hafið samband við skrifstofu Norræna menningarsjóðsins í Kaupmannahöfn til að fá upplýsingar, umsóknareyðublöð eða leiðbeiningar. Á vefsíðu sjóðsins má lesa um starf hans og eins hvaða verkefni hafa hlotið styrk. Pantið umsóknareyðublöð skriflega eða símleiðis, einnig er hægt að sækja þau á vefsíðu sjóðsins. Umsóknir þurfa að vera póststimplaðar í síðasta lagi 15. september 2001 til að koma til greina við endanlega afgreiðslu þeirra í desember. NORRÆNI MENNINGARSJÓÐURINN Store Strandstræde 18, DK-1255 København K, Danmark. Sími: +45 33 96 02 00. Netfang: kulturfonden@nmr.dk Veffang: www.nordiskkulturfond.dk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.