Morgunblaðið - 03.06.2001, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hjördís Einars-dóttir, fyrrver-
andi deildarstjóri,
fæddist í Flatey á
Breiðafirði 8. apríl
1923. Hún lést á líkn-
ardeild Landspítal-
ans í Kópavogi 23.
maí síðastliðinn.
Hjördís var miðdóttir
hjónanna Ísafoldar
Einarsdóttur, f. 1895
í Háholti í Reykjavík,
d. 1970, og Einars
Jónassonar, skip-
stjóra og síðar hafn-
sögumanns, f. 1892 á
Fossá á Barðaströnd, d. 1959. Ísa-
fold var dóttir hjónanna Kristrúnar
Gísladóttur og Einars Einarssonar,
útvegsbónda frá Bollagörðum á
Seltjarnarnesi. Einar, faðir Hjör-
dísar, var sonur Petrínu Helgu Ein-
arsdóttur og Jónasar Guðmunds-
sonar, bónda á Fossá á Barða-
strönd. Aðrar dætur þeirra Ísa-
laug Lilja, f. 1973, Lárus, f. 1974, og
Þórunn, f. 1976. Seinni eiginmaður
Hjördísar var Sigurður Jóhannsson
skipstjóri, f. 1914, d. 1972. Dætur
þeirra eru: 1) Sigríður, myndlistar-
kona og myndlistarkennari, f. 19.
maí 1952. Synir hennar eru Sigurð-
ur Jökull, f. 1973, og Andri, f. 1982.
2) Ágústa Ísafold félagsráðgjafi, f.
12. janúar 1954, gift Theodóri Agn-
ari Bjarnasyni forstjóra, f. 1952.
Sonur þeirra er Unnar Freyr, f.
1976. 3) Erla ritstjóri, f. 24. nóvem-
ber 1957, gift Lauri Eivind Damm-
ert ljósmyndara, f. 1952. Börn: Há-
kon, f. 1980, og Jóhann Eivind, f.
1989. Sonur Sigurðar og stjúpson-
ur Hjördísar er Karl Harrý banka-
starfsmaður, f. 21. febrúar 1944,
maki Helga Möller kennari, f. 1943,
d. 1992. Dætur þeirra eru Helena
Þuríður, f. 1967, og Hanna Lillý, f.
1980. Alls eru barnabörnin 14 og
barnabarnabörnin 11.
Hjördís vann hjá Trygginga-
stofnun ríkisins frá árinu 1972 þar
til hún lét af störfum vegna aldurs í
árslok 1993. Hún sat í Öldrunarráði
til októberloka 1997.
Útför Hjördísar fer fram frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. júní
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
foldar og Einars voru
Anna, f. 1921, d. 1983,
og Kristrún Castagna,
f. 1927.
Hjördís giftist árið
1942 Bolla Vestarr
Gunnarssyni loft-
skeytamanni, f. 1918,
d. 1995, þau skildu.
Eldri sonur þeirra er
Einar Gunnar fram-
kvæmdastjóri, f. 6.
nóvember 1943,
kvæntur Sigrúnu Ing-
ólfsdóttur fjármála-
stjóra, f. 1947. Börn
Einars Gunnars eru:
Sigurður Örn, f. 1965, Þórir Björn,
f. 1965, d. sama ár, Sólveig Lilja, f.
1968, Hjördís, f. 1973, Bryndís, f.
1974, og Svandís, f. 1984. Yngri
sonur þeirra er Bolli Þór skrifstofu-
stjóri, f. 24. febrúar 1947, kvæntur
Höllu Lárusdóttur fulltrúa, f. 1945.
Börn Bolla Þórs eru: Ólöf, f. 1964,
Jóhanna, stjúpdóttir, f. 1964, Guð-
Á augabragði
hvarf öll miskunn –
eins og rafstraumur
væri rofinn um gjörvalla náttúruna.
Til Jarðarinnar fossa
fjarlægðir geimsins
þagnarkuldi himingeimsins
yfir um horn mánans og stjörnurnar.
Ókunnugleiki
stendur eftir við hlið mér.
Að öxl hans
hnígur andlit mitt í tárum.
(Hannes Pétursson.)
Erla Sigurðardóttir.
Hjördís Einarsdóttir, tengdamóðir
mín í sautján ár, er látin. Konan mín
hefur misst móður sína og börnin mín
ömmu sína.
Hinn dáni lifir í hjarta og minni
manna er hans sakna. Hjördís lifir í
minni barna sinna og barnabarna,
tengdasona og tengdadætra. Í huga
mínum lifir svipmikil kona, sem þrátt
fyrir mótbárur og stórar sorgir, bjó
yfir óvenju mikilli lífsgleði, lifandi
kímnigáfu og hafði ákveðnar hug-
myndir um það þjóðfélag sem hún var
virkur þátttakandi í. Henni sveið sárt
þau kjör sem buðust þeim sem minna
máttu sín í þjóðfélaginu. Stjórnmála-
skoðanir hennar og viðbrögð við at-
burðum líðandi stundar báru vitni um
sterka réttlætiskennd. Úr ýmsum
áttum hef ég heyrt að þessi félagslega
réttlætiskennd hafi verið leiðarljós í
farsælu starfi hennar. Sá vitnisburð-
ur er okkur huggun í sorginni.
Hjördís var hugrökk og ósérhlífin
kona og kom það ekki síst í ljós í bar-
áttu hennar við þann sjúkdóm sem
hún glímdi við undanfarin tvö ár. „Ég
hef það fínt,“ fullvissaði hún mig um í
hvert sinn sem við hringdum frá Dan-
mörku. Stolt hennar og styrkur komu
í veg fyrir að hún léti undan ásókn
sjúkdómsins.
Með dugnaði veitirðu dauðanum tjón
svo djarfur ei margur var gerður.
Hann hittir þig alltaf með hríf’ eða prjón
og hopa til baka því verður.
(Lilja Björnsdóttir.)
Þessi vísa lýsir ágætlega tengda-
móður minni sem þrjóskaðist við að
ljúka við hæl á sokk á eitt barna-
barnabarnanna síðasta kvöldið sem
hún var við fulla meðvitund. Dauðinn
hopaði þangað til tengdamóður minni
sjálfri þóknaðist að gefa upp öndina á
fallegri vornóttu með börnin sín öll,
tengdabörn og nokkur barnabörn í
kringum sig. Þrátt fyrir að við fjöl-
skyldan byggjum í öðru landi heim-
sótti Hjördís okkur oft og hringdi.
Hún fylgdist með líðan barnabarna
sinna og naut samvistanna við dreng-
ina. Hún bakaði með þeim bessa-
staðakökur um jólin og sagði þeim frá
viðureign langafa síns við vestfirska
drauga svo augu barnanna stóðu á
stilkum. Gjafmildi hennar var mikil,
ekki aðeins í gjöfum en einnig í anda.
Ég upplifi nú sorg og söknuð hjá
börnum okkar og frændsystkinum
þeirra. Minning hennar mun ætíð lifa
hjá þessu unga fólki sem á framtíðina
fyrir sér. Hjördís var ómetanlegur
vinur fjölskyldu minnar. Hún heim-
sótti Finnland nokkrum sinnum og
tók á móti ættingjum mínum hér.
Móðir mín talar alltaf um Hjördísi
sem sterka konu sem kynnti hana fyr-
ir Íslandi og Íslendingum. Sú mynd
sem ætt mín hefur af landi og þjóð
mun alltaf bera merki um persónu-
leika tengdamóður minnar, gestrisni
hennar og viðmót. Hún hafði gaman
af sænskum titli sínum, svärmor, með
öllum túlkunarmöguleikum þess orðs.
Tengdasonurinn var alltaf velkominn
og lambalærið stóð á borðum. En það
var líka mikilvægt að við kæmum vel
fram við börnin hennar. Hún átti það
til að kalla mig á eintal þegar henni
ofbauð umgengni mín, fannst henni
þá of nærri dóttur hennar gengið.
Það er með miklum söknuði að við
kveðjum Hjördísi en samtímis gleðj-
umst við yfir því að hafa notið þeirra
forréttinda að kynnast henni. Minn-
ing hennar lifir.
Lauri Eivind Dammert.
Mig langar með þessum orðum að
kveðja tengdamóður mína Hjördísi
Einarsdóttir, sem lést eftir harða bar-
áttu við erfiðan sjúkdóm á líknardeild
Landspítalans þann 23. maí sl.
Það sem einkenndi Hjördísi að
mínu mati var ákaflega sterk réttlæt-
iskennd og einlægur áhugi hennar á
öðru fólki. Það má segja að verðmætir
eiginleikar Hjördísar hafi lagt horn-
steininn að gæfu lífs míns, þar sem
hún ól upp, mótaði og var fyrirmynd
dóttur sinnar, eiginkonu minnar.
Hjördís var eldhugi í stjórnmálum
sem þó einkenndist af víðsýni og
næmni. Stjórnmálaskoðanir hennar
voru skarpar og ótvíræðar og var hún
ákafur talsmaður fyrir jafnrétti
þeirra sem minna máttu sín í sam-
félaginu. Persónueiginleikar Hjördís-
ar voru þannig að hún naut mikillar
virðingar jafnt meðal skoðanabræðra
sem og annarra.
Viðleitni hennar til að hlúa að börn-
unum sínum var meðal annars að
sameina fjölskylduna á heimili sínu,
gjarnan með glæsilegum matarboð-
um. En þar var ætíð vettvangur til að
skiptast opinskátt á skoðunum um
stjórnmál, fjölskyldumál, og annað
sem efst var á baugi. Hjördís var
ávallt óhrædd að láta skoðanir sínar í
ljós, en virti mismunandi áherslur hjá
börnum sínum.
Hjördís var glæsileg kona, metn-
aðarfull og stolt. Metnaðurinn fólst
m.a. í ósk um velgengni barna hennar
og skipti hana miklu máli að hvetja
börnin til menntunar og ábyrgðar.
Hefur það góða veganesti ótvírætt
skilað sér í verðugum samfélagsþegn-
um, sem hún var ákaflega stolt af.
Líf Hjördísar var ekki alltaf auð-
velt og mætti hún margs konar mót-
læti á lífsleiðinni. Með óbilandi dugn-
aði og vilja tókst henni að komast heil
í gegnum flestar þær raunir.
Eftir erfiðan skilnað við fyrri eig-
inmanninn, hlutaðist faðir Hjördísar
til um, að hún réði sig sem þerna á
m/s Gullfoss, sem þá átti að sigla í 6
mánuð á milli Frakklands og Casa
Blanca í Norður-Afríku. Til þess að
gera þetta framkvæmanlegt tóku for-
eldrar hennar elsta soninn í fóstur á
meðan á siglingunum stóð og móðir
fyrrverandi eiginmanns tók að sér að
hafa yngri soninn í þessa mánuði.
Þegar Hjördís sneri heim aftur hafði
föðurfólkið tengst honum svo mikið
að Hjördís lét undan þrábeiðni þeirra
um að hafa hann áfram – ákvörðun
sem olli henni ómældum sársauka.
Hjördís var mikil heimskona og
hún ferðaðist mikið. Hún hafði næmt
eyra fyrir erlendum tungumálum og
var þar sífellt að bæta við sig kunn-
áttu. Var hún alltaf opin fyrir að
kynnast og setja sig inn í allt það sem
var framandi og óþekkt. Menning
annarra þjóða þótti henni forvitnileg
og spennandi. Og var hún til æviloka
upptekin af verðmæti fjölbreytileik-
ans. Áhugi á menningu og listum var
henni í blóð borið og var tónlist og
söngur henni einkar hugleikin. En
allt frá barnæsku var tónlist og söng-
ur stór hluti af lífi hennar. Það má
segja að gjafmildi hafi verið hennar
einkenni - hugsað í víðtækri merk-
ingu. En hún leitaðist við að uppfylla
óskir annara með gleði og næmni.
Hjördís barðist hetjulega við illvíg-
an sjúkdóm og ætlaði seint að láta í
minni pokann. Hún naut ómetanlegr-
ar ummönnunar starfsfólks heima-
hlynningar krabbameinsfélagsins og í
lokin Líknardeildar Landspítalans –
einstök aðhlynning – einnig fyrir fjöl-
skylduna sem við erum ákaflega
þakklát fyrir.
Ég kveð Hjördísi með einlægum
söknuði og þakklæti og bið að Guð og
aðrar góðar vættir megi gæta hennar.
Theodór A. Bjarnason.
Elsku amma, nú er baráttunni lok-
ið og þú kvaddir þennan heim með
sömu reisn og einkenndi líf þitt. Þú
lést aldrei deigan síga og hélst vernd-
arhendi yfir okkur öllum. Á meðan þú
varst sterk gátum við verið það líka.
Þú varst falleg og glæsileg kona sem
hafði mikla útgeislun. Persónuleiki
þinn einkenndist af virðuleika og
styrk og þú hafðir lag á því að gleðja
aðra.
„Kóngabrjóstsykur, græni hring-
urinn, eplakakan, flamenco, flóð-
hestaballett, indíanafjaðrir, droppa-
lys, prakkarastrik, kátína, hlátur og
lífsgleði.“ Þetta er aðeins brot af því
sem kemur upp í hugann þegar við
sitjum hér saman systurnar og minn-
umst þín. En það sem stendur upp úr
er að þú varst amman okkar. Hvert
sem þú komst varstu hrókur alls
fagnaðar. Frásagnir þínar voru lífleg-
ar og skemmtilegar og við höfðum
alltaf jafn gaman af að hlusta á þig,
jafnvel þó að við hefðum heyrt sumar
sögurnar oft áður.
Þú lifðir stórmerkilegu lífi, ferðað-
HJÖRDÍS
EINARSDÓTTIR
!
!"#
$ #
%& '
( #
#
!""#
'
$ !"# !""#
!""#
'
)$* #
!"$ ) #
$ ,"&" '
( ) # -
'$ . . ./ 0
!!"
#
$
%
&
%%
'
! "#$ % & '(" (
'("( ( )* '("+
! " #
$%
&
&
'
(
'
')
*
((
+
!""
# $%&&' (
! )*&!""
+ ! $%&!"" ,
! (&'
) $%&!"" ) &&'
. / $%&&' 0 (.&"&!""
. * '$
$. */
!
!"
" " #$%
#&
" '$(( ) %
)
" %
"*+
" '$(( ,$ %
- -. % - - -. /
!"#
$! !"% & !!!
!! & !!# '& $!!
!( ) ! "!