Morgunblaðið - 03.06.2001, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 57
annars fyrir Nicolae Neacsu, sem
var steinhissa á því að ungur maður
hefði áhuga á tónlistinni sem hann
var að spila, enda var hann búinn að
leggja fiðluna á hilluna og beið eftir
því að fá að deyja. Heimsókn Karos
hleypti nýju lífi í Neacsu, sem kallaði
til ættmenni sín og lék inn á band
fyrir Karo nokkur lög.
Ekkert varð úr frekari upptökum
að sinni, enda varð bylting í Rúmen-
íu þá um haustið. Ári síðar komu
þeir Karo og Winter svo til Clejani
til að eyða þar sumrinu. Þeir ákváðu
í framhaldi af því, að taka upp plötu
með hljómsveitinni og senda hana í
tónleikaferðir. Eins og getið er kall-
aðist hljómsveitin Lautari de Clejani
eða Taraf de Clejani, tónlistarmenn-
inrir / hljómsveitin frá Clejani, en
það þótti þeim Karo og Winter held-
ur loðin lýsing. Þeir settu því saman
nafnið Taraf de Haidouks, en haid-
ouk er stigamaður eða ræningi.
Ekki vantaði tónlistarmenn í Clej-
ani og það tók þá Laro og Winter
drjúgan tíma að setja saman sex
manna kjarna, sem í voru meðal ann-
ars elstu og reyndustu tónlistar-
mennirnir, en þegar upp var staðið
var hljómsveitin ellefu manna á aldr-
inum frá þrettán ára fram yfir sjö-
tugt. Sú sveit hélt síðan í sína fyrstu
tónleikaferð um Evrópu, lék meðal
annars á Womad hátíðinni bresku og
vakti að sögn gríðarlega athygli, en
svo vel tókst til að belgíska fyrirtæk-
ið Crammed Discs samdi við sveitina
um útgáfu á plötu. 1991 kom síðan út
platan Musique Des Tziganes De
Roumanie, sem byggist að einhverju
leyti á Ocora plötunni gömlu. Platan
seldist afskaplega vel og komst með-
al annars ofarlega á lista yfir sölu á
þjóðlegri tónlist og fjöldi tónleika-
ferða fylgdi í kjölfarið.
Upp frá því má segja að Taraf de
Haidouks hafi verið á sífelldu ferða-
lagi og er með vinsælustu tónleika-
sveitum í Evrópu að því er fróðir
menn segja, enda verður allt vitlaust
á tónleikum sveitarinnar. Hún hefur
einnig hrifið menn vestan Atlantsála
og til að mynda leikið inn á plötu
með Kronos kvartettinum og í einka-
samkvæmum Johnny Depp. Plata
númer tvö, Honourable Brigands,
Magic Horses and Evil Eye, kom svo
út 1994 og Dumbala Dumba 1998.
Fyrstu tónleikarnir í Búkarest
Þrátt fyrir gríðarlegar vinsældir
víða í Evrópu er Taraf de Haidouks
flokkurinn ekki ýkja vinsæll í heima-
landinu, enda andúð á sígaunum
sterk þar í landi og ekki langt síðan
stjórnmálamaður, sem meðal annars
vildi senda alla sígauna siglandi til
Indlands, í pappakössum, fékk þriðj-
ung atkvæða í forsetakosningum þar
í landi. Að auki keppast Rúmenar við
að standa jafnfætis vestrænum ná-
grönnum sínum, ef ekki í rækt við
menningu sína og hefðir, þá í neyslu
og tískutildri og finnst sígaunatón-
list gamaldags og hallærisleg. Meðal
annars til að koma sveitinni á fram-
færi heima fyrir, ákvað Crammed
útgáfan að setja upp fyrstu tón-
leikana með hljómsveitinni í Búk-
arest. Þrennir tónleikar voru síðan
haldnir í desember á síðasta ári og
hljóðritaðir. Úr upptökusafninu var
síðan valið á eina plötu, Band of
Gypsies, sem kom út fyrir stuttu. Á
plötunni má vel heyra hvað það er
sem gert hefur Taraf de Haidouks
eins vinsæla og raun ber vitni, en í
nokkrum lögum er önnur sígauna-
sveit, Kocani Orkestar lúðrasveitin, í
aukahlutverki og setur óneitanlega
svip sinn á það sem fram fer með
villtri spilamennsku.
Þeir sem gaman hafa af fjörlegri
tónlist eiga eftir að taka Taraf de
Haidouks opnum örmum og ástæða
til að benda aðdáendum Buena Vista
flokksins á skífur sveitarinnar, þótt
tónlistin sé vitanlega harla frábrugð-
in gamaldags kúbverskri sveiflu.
Síðan er bara að vona að einhver
gerist svo framtakssamur að flytja
sveitina inn.
Sannkallað spæjaratilboð hjá AMERICAN STYLE:
Gegn framvísun bíómiða færð þú:
Ostborgara, franskar, sósu og kók á 495 kr.-
ásamt fullt af spæjaradóti
fyrir allafjölskylduna
meðan birgðir endast.
Sími 551 5103C a r l o s
SALSA með Carlos
Júní-
námskeið
Sími 551 5103O r v i l l e
AFRÓ
Í JÚNÍ
Kennari:
Orville