Morgunblaðið - 03.06.2001, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 3. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Gullsmiðir
Bóknám til stúdentsprófs:
Félagsfræðabraut Málabraut Náttúrufræðibraut
Nám á bóknámsbrautum leggur góðan grunn að framhaldsnámi í félags-
vísindum, hugvísindum, tungumálum, raunvísindum og fleiri greinum.
Listnám:
Fata- og textílhönnun.
Myndlist:
Í listnámi, sem er 3ja ára nám, er unnt að bæta við áföngum til stúdents-
prófs. Námið veitir góðan undirbúning undir framhaldsnám á listasviði
og í hönnun.
Starfsnám:
Markaðsbraut Íþróttabraut Uppeldisbraut Viðskiptabraut
Í starfsnámi, sem er 2ja-3ja ára nám, er einnig unnt að bæta við áföngum
til stúdentsprófs. Viðskipta- og markaðsbrautir veita undirbúning undir
nám og störf í viðskiptalífinu en íþrótta- og uppeldisbrautir undirbúa
nemendur undir nám og störf að uppeldis-, íþrótta- og félagsmálum.
Almennt nám:
Almenn braut:
Fyrir nemendur sem eru óákveðnir eða uppfylla ekki inntökuskilyrði inn
á aðrar brautir.
Kjörsvið - Mjög fjölbreytt nám!
Nemendur velja sér kjörsviðsgreinar merktar ákveðnum brautum. Flytja
má greinar að ákveðnu marki á milli brauta. Kjörsviðin bjóða upp á
mikla sérhæfingu og dýpkun í námi.
HG-hópur.
Skólinn býður upp á sérstaka þjónustu á bóknáms- og listnámsbrautum
fyrir nemendur með góðar einkunnir úr 10. bekk. HG-nemendur fá góða
stundatöflu og geta flýtt námi sínu.
Tölvubúnaður:
Nemendur fá greiðan aðgang að nýjum og fullkomnum tölvubúnaði í
skólanum og fer mikill hluti kennslunnar fram með tölvum.
Góð aðstaða til náms!
Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ eru 550-600 nemendur og 60-70 starfs-
menn. Skólinn starfar í nýju og glæsilegu húsnæði með góðum kennur-
um og fullkomnum kennslubúnaði, s.s. öflugum tölvum og góðri lesað-
stöðu.
Vegna mikillar aðsóknar að skólanum er mikilvægt að allar umsóknir
verði sendar í tæka tíð beint til Fjölbrautaskólans í Garðabæ, við Skóla-
braut, 210 Garðabæ.
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.00-16.00.
Símanúmerið er 520 1600.
Netfang: fg@fg.is
Þeir sem þess óska geta fengið send umsóknareyðublöð. Umsóknir þurfa
að berast skólanum eigi síðar en 8. júní nk. Umsóknum skal fylgja stað-
fest ljósrit af grunnskólaprófi.
Nemendur með nám úr öðrum framhaldsskólum þurfa að staðfesta það
með viðurkenndum prófgögnum.
Umsóknareyðublöð eru einnig á heimasíðu skólans.
Heimasíða: http://www.fg.is
Námsráðgjafar og stjórnendur eru til viðtals og aðstoða nemendur við
námsval.
Upplýsingar um inntökuskilyrði á einstökum brautum
eru á heimasíðu skólans.
Hringið og fáið sendan upplýsingabækling
um skólann!
Skólameistari.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
við Skólabraut, 210 Garðabær, sími 520 1600, fax 565 1957
vefslóð: http:www.fg.is, netfang: fg@fg.is
Innritun fyrir haustönn
2001 er hafin
Skrifstofa skólans er opin virka daga kl. 8—16.
Innritun lýkur 8. júní.
ALLT áhugafólk er velkomið á fyr-
irlestra í boði Háskóla Íslands.
Ítarlegri upplýsingar um viðburði
er að finna á heimasíðu Háskólans á
slóðinni: http://www.hi.is/stjorn/sam/
dagbok.html
Nýsköpunarstarf háskólastúdenta
Þriðjudaginn 5. júní kl. 17:00–18:00
bjóða rektor Háskóla Íslands og Ný-
sköpunarsjóður námsmanna til sam-
komu í hátíðasal Háskóla Íslands. Á
fundinn er boðið öllum styrkþegum
ársins ásamt umsjónarmönnum
þeirra svo og fulltrúum fyrirtækja og
stofnana sem tengst hafa og styrkt
starfsemi Nýsköpunarsjóðs náms-
manna. Tilefnið er úthlutun ársins
2001. Dagskrá fundarins: Páll Skúla-
son háskólarektor býður gesti vel-
komna. Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra ávarpar samkomuna.
Erindi flytja: Helga Jónsdóttir, borg-
arritari Reykjavíkurborgar, Baldur
Þórhallsson, lektor í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands og formaður
stjórnar Nýsköpunarsjóðs náms-
manna, og Hafsteinn Helgason, verk-
fræðingur hjá Línuhönnun.
Kynnt verða tvö nýsköpunarverk-
efni stúdenta: Margrét Lilja Guð-
mundsdóttir, meistaranemi í félags-
fræði við Háskóla Íslands: Afbrot og
öryggi. Könnun á afbrotum og örygg-
istilfinningu íbúa umdæmis lögreglu-
stjórans í Reykjavík. Óli Halldórsson,
meistaranemi í umhverfisfræði við
Háskóla Íslands: Um gildi mats á um-
hverfisáhrifum við ákvarðanatöku í
umhverfismálum á Íslandi
Sannleikur og heimild
Þriðjudaginn 5. júní 2001 heldur
Róbert H. Haraldsson heimspeking-
ur fyrirlestur í hádegisfundaröð
Sagnfræðingafélags Íslands sem
hann nefnir „Sannleikur og heimild:
Einstök vandamál eða almennt klúð-
ur“. Fundurinn fer fram í stóra sal
Norræna hússins, hann hefst kl. 12:05
og lýkur stundvíslega kl. 13:00. Fund-
urinn er opinn öllu áhugafólki um
sögu og er aðgangur ókeypis.
Pragmatik í tungumálakennslu
Þriðjudaginn 5. júní kl. 9:15 – 16:00
og miðvikudaginn 6. júní kl. 9:15–
15:00 verður haldin málstofa um
rannsóknir í pragmatík í kennslu er-
lendra tungumála í stofu 301 Nýja
Garði á vegum Stofnunar í erlendum
tungumálum. Kennari er Gabrielle
Kasper frá University of Hawaii at
Manoa. Þeir sem áhuga hafa á að vera
með skrái sig hjá thordigi@hi.is.
Gæðastjórnun í háskólum ...
Miðvikudaginn 6. júní kl. 16:15 býð-
ur viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla Íslands til málstofu. Bryndís
María Leifsdóttir, M.S. nemi, heldur
fyrirlestur er hún nefnir: ,,Gæða-
stjórnun í háskólum og öðrum stofn-
unum, tækifæri til framfara? Málstof-
an fer fram í Odda, stofu 201. Allir
velkomnir.
M.S.-fyrirlestur Lisu I. Doucette
Miðvikudaginn 6. júní mun Lisa
Doucette halda fyrirlestur um rann-
sóknarverkefni sitt til MS-prófs við
líffræðiskor. Fyrirlesturinn verður
haldinn í stofu G-6 í húsi Líffræði-
skorar áGrensásvegi 12 og hefst kl.
16:00. Fyrirlesturinn er opinn öllum
meðan húsrúm leyfir. Lisa Doucette
lauk B.Sc. gráðu í sjávarlíffræði frá
háskólanum í Guelph, Ontrio, í Kan-
ada árið 1996 og hóf framhaldsnám til
M.S.-gráðu við Háskóla Íslands
haustið 1998. Rannsóknarverkefni
Lisu byggðist á rannsóknarsamvinnu
Líffræðistofnunar háskólans og fisk-
eldisdeildar Hólaskóla og fóru rann-
sóknirnar fram á Hólum. Rannsókn-
arverkefni Lisu fjallar um breytileika
í atferli íslenskra hornsíla og hvernig
hann tengist mismunandi búsvæðum
í sjó og vötnum og afránshættu.
Catherine O. Ringen hjá íslenska
málfræðifélaginu
Fimmtudaginn 7. júní kl. 16:15
mun Catherine O. Ringen prófessor
við Háskólann í Iowa halda fyrirlest-
ur í boði Íslenska málfræðifélagsins
fimmtudaginn í stofu 304 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn verður á ensku og
nefnist „The Feature [spread glottis]
in German“. Í honum verða færð rök
fyrir því að þýsk lokhljóð skiptist í
tvennt út frá þættinum [sperrt
raddglufa] en ekki þættinum [radd-
að]. Þetta er gert með tilvísun í
hljóðfræðitilraunir sem sýna að í lok-
hljóðaklösum milli sérhljóða eru bæði
lokhljóðin órödduð (sbr. orð eins og
’Jagden’ „veiðar“).
Stofnfundur undirfélags IEEE á
Íslandi
Fimmtudaginn 7. júní, kl. 17 verður
haldinn stofnfundur undirfélags
IEEE á Íslandi um merkjafræði, rás-
ir og kerfi (signal processing/circuits
and systems) í húsakynnum verk-
fræðideildar HÍ, VR-II stofu 158.
Stofnfundurinn er öllum opinn.
IEEE á Íslandi, sem stofnað var sl.
haust, er undirfélag alþjóðlega raf-
magnsverkfræðifélagsins Institute of
Electrical and Electronics Engineers
(IEEE).
Dagskrá stofnfundarins verður
þannig að Jón Atli og Ragnar flytja
stutt ávörp, en síðan mun George
Eisler flytja fyrirlestur um þróun
ethernets.
Dreifing reikniþunga á heimtaug
Föstudaginn 8. júní nk. kl. 13 held-
ur Gunnar Jakob Briem fyrirlestur
um verkefni sitt til meistaraprófs í
rafmagns- og tölvuverkfræði. Verk-
efnið heitir Dreifing reikniþunga á
heimtaug . Fyrirlesturinn verður
fluttur í stofu 158 í VR2 við Hjarð-
arhaga 2–6 og eru allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir. Verkefnið var
unnið í samstarfi við Conexant Syst-
ems á Íslandi.
Námskeið Endurmenntunarstofn-
unar HÍ Vefsetur: www.endurmennt-
un.is
Námskeið í stjórnun lista og menn-
ingarstofnana
Umsjón: Rósa Erlingsdóttir verk-
efnisstjóri jafnréttisátaksins. Kenn-
arar: Dr. Lidia Varbanova, frá Búda-
pest, Sue Kay, MA frá City
University í London, Ása Richards-
dóttir, Guðrún Bachman og Mary
Ann De Vlieg, framkvæmdastjóri
evrópska leikhúsráðsins (IETM).
Tími: 10.–16. júní.
Menningarstjórnun og evrópskt
tengslanet
Kennarar: Dr. Lidia Varbanova,
frá Búdapest og Isabelle Schwarz
framkvæmdastjóri ENCATC.
Tími: 8. og 9. júní kl. 9:00–16:00.
Stjórnunar-, leiðtoga- og starfs-
framanámskeið IMG
Umsjón: Rósa Erlingsdóttir verk-
efnisstjóri jafnréttisátaksins. Leið-
beinendur eru sérfræðingar Þekking-
arsmiðjunnar á sviði stjórnunar.
Tími: Lau. 9. júní kl. 10:00–18:00.
Vísindavefurinn Hvers vegna? –
Vegna þess!
Vísindavefurinn býður gestum að
spyrja um hvaðeina sem ætla má að
vísinda- og fræðimenn Háskólans og
stofnana hans geti svarað eða fundið
svör við. Leita má svara við spurn-
ingum um öll vísindi, hverju nafni
sem þau nefnast. Kennarar, sérfræð-
ingar og nemendur í framhaldsnámi
sjá um að leysa gáturnar í máli og
myndum. Slóðin er: http://www.vis-
indavefur.hi.is
Sýningar
Árnastofnun Stofnun Árna Magn-
ússonar, Árnagarði við Suðurgötu.
Handritasýning er opin kl. 14–16
þriðjudaga til föstudaga, 1. sept. til
15. maí og kl. 11–16 mánudaga til
laugardaga, 1. júní til 25. ágúst.
Þjóðarbókhlaða Þróun námsefnis á
20. öld Þriðjudaginn 17. apríl var opn-
uð í Þjóðarbókhlöðu sýning um þróun
námsefnis. Sýningin ber heitið Þróun
námsefnis á 20. öld: Móðurmálið –
náttúran – sagan og stendur hún til
31. maí og er opin á opnunartíma
safnsins. Þetta mun vera í fyrsta sinn
sem sett er upp sýning af þessu tagi
hér á landi. Hún tekur til námsefnis
fyrir skyldunám og hafa verið valin
sýnishorn námsbóka í nokkrum
greinum frá því um og eftir aldamótin
1900, frá miðri öldinni og loks frá síð-
ustu árum.
Orðabankar og gagnasöfn
Öllum er heimill aðgangur að eft-
irtöldum orðabönkum og gagnasöfn-
um á vegum Háskóla Íslands og
stofnana hans.
Íslensk málstöð. Orðabanki. Hefur
að geyma fjölmörg orðasöfn í sér-
greinum: http://www.ismal.hi.is/ob/
Landsbókasafn Íslands – Háskóla-
bókasafn. Gegnir og Greinir. http://
www.bok.hi.is/gegnir.html Orðabók
Háskólans. Ritmálsskrá: http://
www.lexis.hi.is/ Rannsóknagagna-
safn Íslands. Hægt að líta á rann-
sóknarverkefni og niðurstöður rann-
sókna- og þróunarstarfs: http://-
www.ris.is
Bridsfélag Siglufjarðar
Þættinum hefir borist skemmti-
legt fréttabréf frá Jóni Sigurbjörns-
syni um það sem helzt er að gerast í
bridsíþróttinni í Siglufirði en hann
hefir sent okkur fréttir frá félaginu í
vetur
Mánudaginn 23. maí lauk þriggja
kvölda tvímenningi, Skeljungs-
mótinu, þar sem verðlaun eru gefin
af umboðsmanni félagsins á staðnum,
Haraldi Árnasyni. Eftir harða bar-
áttu stóðu uppi sem sigurvegarar:
Þorst. Jóhannss. og Stefán Bened.ss. 107.
Anton Sigurbj.ss. og Bogi Sigurbj.ss. 92
Ari M. Aras. og Ari M. Þorkelss. 85
Friðfinnur Haukss. og Hreinn Magnúss. 70
Ólafur Jónsson og Guðlaug Márusdótti 59
Guðrún J. Ólafsd. og Kristín Bogad. 57
Að venju var Bronsstigameistari
félagsins í lok starfsársins útnefndur,
en þann titil hlýtur sá spilari sem
bestum árangri nær á vetrinum.
Bronsstigameistari félagsins árið
2001 varð Bogi Sigurbjörnsson með
459 stig eftir gríðarlega jafna bar-
áttu. Bogi varð einnig bronsstiga-
meistari í fyrra, en þá með verulega
betra skor, eða 645 stig. Sá stigafjöldi
er nú viðmiðun til sérstakra peninga-
verðlauna en þeir sem ná hærra skori
yfir veturinn en 645 stig fá sérstök
peningaverðlaun. Ekki kom því til
slíkra verðlauna í þetta sinn. Úrslit
bronsstigakeppninnar urðu annars
þessi:
Bogi Sigurbjörnsson 459 stig
Guðlaug Márusdóttir 451 stig
Ólafur Jónsson 449 stig
Anton Sigurbjörnsson 426 stig
Ari Már Arason 419 stig
Ari Már Þorkelsson 389 stig
Vetrarstarfinu lauk að venju með
veglegu lokahófi miðvikudagskvöldið
23. maí en næsti dagur, fimmtudag-
urinn 24. maí, var uppstigningardag-
ur og frídagur í vinnu. Lokahófið nú
var að venju haldið með miklum
glæsibrag þar sem borð svignuðu
undan kræsingum og bjór flóði um öll
borð í boði stjórnar. Svo vel undu
bridsfélagar sér í veislunni að þeir
sem síðast yfirgáfu samkvæmið
dvöldu allt til hádegis daginn eftir. Í
lokahófinu fór fram verðlaunaaf-
hending fyrir öll mót vetrarins og
kom þar margt merkilegt fram. Til
dæmis kom það fram að í firma-
keppni félagsins hafi það ótrúlega
gerst að Benedikt Sigurjónsson hafði
í þremur útdráttum alltaf dregist út
til að spila fyrir Sparisjóð Siglufjarð-
ar og til að toppa þessa einstæðu til-
viljun vann hann firmakeppnina fyrir
Sparisjóðinn sem þar með hlaut hin
glæsilegu 1. verðlaun. Þetta afrek
vann hann með tveimur makkerum
sínum, þeim Georg Ragnarssyni og
Erni Þórarinssyni. Í ræðu sem flutt
var á lokahófinu kom fram að Benni
hafði hlerað að Sparisjóðurinn myndi
verðlauna hann sérstaklega með kon-
íaki. Daginn fyrir lokahófið kom
Benni þrisvar í Sparisjóðinn til að
hitta Óla en hann var alltaf upptekinn
í viðtölum eða í símanum. Guðrúnu
móttökustjóra fannst mjög miður í
þriðja skipti sem Benni kom, að hann
skyldi ekki ná á Óla og spurði hvort
hún gæti ekki tekið skilaboð. Þá svar-
aði Benni, nei ég ætlaði bara að vita
hvað þetta yrðu margir lítrar. Fleiri
fóru á kostum í samkvæminu, t.d.
Friðfinnur Hauksson sem meðal
annars færði makker sínum, Hreini
Magnússyni, forláta eggjabikar að
gjöf með þakklæti fyrir að hann hafði
aldrei barið hann allan veturinn fyrir
vitleysurnar sem hann taldi sig hafa
gert við spilaborðið.
Ein sveit frá félaginu hefur skráð
sig til þátttöku í Bikarkeppni BÍ.
Sveitin sem ber nafnið „Síldarævin-
týrið“ mun hefja baráttuna með
heimaleik þar sem sveit af Austfjörð-
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
MENNTAMÁL