Morgunblaðið - 24.07.2001, Qupperneq 34
MINNINGAR
34 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Valdimar Sigur-björn Jónsson
fæddist á Ísafirði 31.
október 1928. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 15. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Jón Páls-
son Andrésson, f.
1889, bóndi, ættaður
frá Kleifum í Kald-
baksvík í Stranda-
sýslu, og Þorgerður
Kristjánsdóttir, f.
1888, frá Súðavík.
Þau bjuggu lengst af
á Hlíðarenda á Ísafirði.
Valdimar var yngstur tíu syst-
kina. Þau voru auk hans Björg Að-
alheiður Jónsdóttir, f. 1915, d.
1998, maki var Einar Ingiberg
Guðmundsson, Kristján Jón Mark-
ús Jónsson, f. 1916, dó ungur,
Kristján Jón Magnús Jónsson, f.
1918, maki Jóna Örnólfsdóttir,
Tryggvi Andrés Jónsson, f. 1920,
ókvæntur, Guðbjörg Rósa Jóns-
dóttir, f. 1921, maki var Óskar
Pétur Einarsson, Þorgerður Sig-
ríður Jónsdóttir, f.
1922, maki Adolf
Hafsteinn Magnús-
son, Lovísa Guðrún
Jónsdóttir, f. 1924,
sambýlismaður
Bergþór Jónsson,
Margrét Anna Jóns-
dóttir, f. 1925, maki
Sigurður Gunn-
steinsson, og Sigur-
björg Ásta Jónsdótt-
ir, f. 1926, maki
Þormóður Stefáns-
son. Móður sína
missti Valdimar árið
1935, en faðir hans
kvæntist systur hennar, Guðrúnu
Margréti Kristjánsdóttur, 1939.
Sambýliskona Valdimars var
Helga Albertsdóttir, f. 19. apríl
1934. Valdimar var barnlaus.
Valdimar var lærður vélvirki
og bifvélavirki. Hann vann lengst
af hjá Íslenskum aðalverktökum á
Keflavíkurflugvelli, þar sem hann
var verkstjóri.
Útför Valdimars fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Valdimar S. Jónsson ólst upp á
Ísafirði og stundaði þar hefðbundið
skólanám. Að skyldunámi loknu
lærði hann vélsmíði í vélsmiðjunni
Þór og síðar bifvélavirkjun. Hann
starfaði lengst af sinni starfsævi
hjá Íslenskum aðalverktökum á
Keflavíkurflugvelli.
Valdimar var móðurbróðir þess
sem þessar línur skrifar og hef ég
þekkt hann allvel síðan ég flutti í
Kópavoginn fyrir rúmlega 40 árum.
Samgangur systkinanna sem búið
hafa hér á höfuðborgarsvæðinu
hefur alla tíð verið mikill. Þau hafa
haldið vel saman og hist jafnan við
ýmis tækifæri.
Valdi frændi, en það var hann
jafnan kallaður af okkur systkinun-
um, var tíður gestur á heimili for-
eldra minna og ávallt var hann þar
aufúsugestur. Á milli hans og for-
eldra minna ríkti alla tíð góð vin-
átta og fyrir hana vil ég þakka hon-
um nú á þessum tímamótum.
Um Valda frænda á ég margar
góðar minningar. Það sem ein-
kenndi hann öðru fremur var ná-
kvæmni og snyrtimennska. Allan
þann tíma sem ég hef umgengist
Valda hefur hann átt bíl. Það þykir
ekki frétt í dag að fólk eigi bíl og
jafnvel fleiri en einn, en á árunum
fyrir 1960 var það ekki mjög
algengt. Valdi var sá eini sem ég
umgekkst sem átti bíl á þessum ár-
um. Bílarnir hans hafa alla tíð borið
snyrtimennsku hans gott vitni.
Fyrir nokkrum árum kynntist
Valdi eftirlifandi sambýliskonu
sinni og var það mikið gæfuspor
fyrir hann. Helga og Valdi voru
mjög samhent, og á milli þeirra
ríkti mikil og góð vinátta og virð-
ing.
Ég vil með þessum orðum kveðja
Valda frænda og sendi Helgu og
systkinum hans samúðarkveðjur.
Gunnsteinn Sigurðsson.
Það sé mér hjartkær, heilög
stund,
minn Herra; að þinn ég sæki
fund
og heyri við þitt blessað borð
mér boðuð þau hin miklu orð
að hold og blóð þitt hlotnist mér,
svo hafi’ eg eilíft líf í þér,
þú lambið Guðs, sem offrað er.
(B. Halld.)
Á kveðjustund langar mig, vinur
og frændi, að minnast þín í nokkr-
um orðum.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
fyrir nokkrum árum að leiðir okkar
lágu saman og vinátta milli okkar
varð upp frá þeirri stundu traust og
ósvikin. Fyrir þær stundir verð ég
ævinlega þakklátur, að hafa verið
þess verðugur, og minnist þín með
virðingu og trega.
Valdimar frændi minn bjó
lengstum einn síns liðs en mann-
kosta hans fengum við vinir hans
að njóta. Fyrir nokkrum árum
kynntist Valdimar Helgu Alberts-
dóttur, sem upp frá þeirri stundu
varð hans besti vinur og félagi. Ég
fylgdist með samstarfi þeirra og
dáðist ávallt að þeirri umhyggju
sem þau sýndu hvort öðru og virð-
ingu.
Ég verð að segja að þar eignaðist
Valdimar það besta sem nokkur
maður getur beðið um í þessu lífi.
Mikið á ég eftir að sakna þess að
eiga ekki von á ykkur til að fylgjast
með því sem ég er að bardúsa við,
smíða hér eða þar eða bara spjalla
um daglegt líf og tilveruna. Það
veitti mér mikla ánægju þegar þið
gáfuð ykkur tíma til að koma og
þótt við stundum skiptumst á skoð-
unum og værum ekki ávallt á sama
máli var það allt í góðu. Þannig
vissi maður að þú, vinur minn,
komst til dyranna eins og þú varst
klæddur. Því gat maður treyst.
Valdimar frændi minn var alla
tíð hraustur og lifði heilsusamlegu
lífi. Það kom því eins og reiðarslag
yfir okkur þegar hann fyrir einu ári
veiktist og varð að gangast undir
aðgerð við meinsemd í baki. Allt
leit þó vel út og við vorum bjartsýn
á að fyrir þetta mein hefði tekist að
komast og framundan væri betri tíð
með blóm í haga.
En von okkar varð að engu því
fyrir einum mánuði veiktist hann
að nýju og nú varð ekki við neitt
ráðið. Hann háði þessa baráttu af
mikilli reisn og Helga var við hlið
hans sem traustur vinur sem ekki
haggast þótt á móti blási. Nú hefur
þú, vinur minn, lagt í þína hinstu
ferð, en á ferðum þinum í þessu
jarðneska lífi varstu ávallt tilbúinn
að hjálpa þeim sem hjálpar voru
þurfi.
Ég er því í engum vafa um að
leiðin er greið og þú kemst á leið-
arenda því þú kvaddir þetta líf sátt-
ur við allt og alla á björtum sum-
ardegi 15. júlí sl.
Hafðu þökk fyrir allt og alla.
Ég kveð þig, kæri vinur, með
þessum fallega sálmi:
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín,
ég leita þín, Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft af rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni að þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Fyrir hönd okkar frændsystkin-
anna vil ég þakka Helgu fyrir um-
hyggju hennar og þá hlýju sem hún
veitti Valdimar í erfiðri baráttu
hans síðustu daga.
Hvíl þú í friði, kæri vinur.
Guðmundur Adolfsson.
Mig langar að minnast Valdi-
mars Jónssonar með nokkrum orð-
um. Fregnin um að þú værir látinn
kom morguninn 15. júlí sl. Um leið
helltust yfir mig margar minningar
og eru þær mér mjög dýrmætar.
Þessar minningar munu alltaf
geymast í hjarta mínu. Fyrir
nokkrum árum frétti ég að amma
mín væri búin að kynnast manni og
var ég mjög ánægð að heyra það,
því að mér fannst amma vera svo
oft ein eftir að Óli afi dó. Þú áttir
heima í Garðabænum og amma í
Keflavík. Þú komst oft heim til
VALDIMAR SIGUR-
BJÖRN JÓNSSON
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Skreytingar við
öll tækifæri
Langirimi 21,
Grafarvogi
587 9300
Samúðarskreytingar
Samúðarvendir
Kransar
Kistuskreytingar
Brúðarvendir
+ ,
( !
8 2C ;/
)&"%0$
&%
' .
4
!
7
#5 %
& "%&&8(&( "#$%%
1 -&)8 "&#$%%
1 ) ""
% 8( 18 "&#$%%
% 7( %( 4&#) ""
2&%< 8 "&"
6& 1&"3$"#$%%
- .
43G8*
8
3
;*! !
< !
8
!
! #$ %
$"&&#$ "#$%%
7(#( . 7(#""
(!( .&&#$ ""
*"%6 "% "#$%%
%&&&&#$ "#$%%
- - .
3
,
*
89::989:3
/
6&") >
!0) !
!
-!
! #$ %
2 # "8(0$#$%%
2&# 7 8(0$""
0- 8(0$"#$%%
&'( 8(0$""
8( 8(0$""
'0-&"!&#( .
3
.
.
6
'6' !
(
,
,
89:9/ ;8
89:/*8D ;/
' + $&
0&#""# .
3$ * 1"%"#$%%
%( 8., !&""
8( 1
& "%
* 1"%
4&#(
, 0-
)
"%##( .
+ ,
8/D G24K
& ) @?
"'
!
=
#4 /%%
>! ' !
-!
! #$ %
-*
' !
- 5 "&+%.
+ ,
//8
*&'%7< @L
!0) !
!
3
#4 %
3$4. 1""
+& .3$"#$%%
G .40- ""
3$58( 13$"#$%%
&'""
& 3$3$""
4 %< 3$""
- .
"
2//.: ;/
,$ $&'" -%(?J
4 "
1 !
"
#5 /%%
&&' ( "#$%%
40- ""
0- "#$%%
( ( "".