Morgunblaðið - 24.07.2001, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DORTMUND Sparkassen, styrkt-
araðili skákhátíðarinnar í Dortmund
í ár, má kallast sigurvegari hátíðar-
innar. Það er langt síð-
an úrslit skákmóts hafa
vakið jafnmikla athygli.
Síðasti skákviðburður
sem endaði með álíka
tíðindum var einvígi
þeirra Kasparovs og
Kramniks á síðasta ári.
Það ætti varla að teljast
til frétta, að Brain-
games heimsmeistarinn
Vladimir Kramnik sigr-
aði á aðalmótinu. Hitt
er öllu fréttnæmara, að
búlgarski stórmeistar-
inn Veselin Topalov
varð jafn Kramnik í
efsta sæti með 6½ vinn-
ing úr 10 umferðum,
þótt Kramnik væri úr-
skurðaður sigurvegari
eftir stigaútreikninga
og hefur því sigrað sex
sinnum á Dortmund-
mótinu í sjö tilraunum.
Sérstaka athygli vakti
að Topalov vann báðar
skákirnar gegn Anand
og reyndar lék hann
sama leikinn gegn Mo-
rozevich. Þótt Topalov
hafi talist í hópi sterk-
ustu skákmanna heims
um nokkra hríð þá leiðir
þessi árangur til þess,
að skákáhugamenn munu fylgjast
mjög náið með árangri hans á næst-
unni og hvort honum takist að blanda
sér í baráttu stórveldanna þriggja.
Þótt Topalov hafi komið á óvart, þá
eru aðaltíðindi skákmótsins í Dort-
mund ótrúlega slakur árangur
FIDE-heimsmeistarans og ind-
verska stórmeistarans Viswanathan
Anand, en hann lenti í neðsta sæti og
vinningshlutfallið var einungis 30%.
Heimsmeistaratitill Anands hefur
leitt til þess að hann er nánast þjóð-
hetja á Indlandi, þátttaka í skák hef-
ur margfaldast og fjöldi indverskra
fréttamanna fylgir honum hvert fót-
spor. Þannig var það einnig í Dort-
mund, þar sem þeir voru ávallt mætt-
ir á undan öðrum fréttamönnum á
staðinn og tryggðu sér bestu sætin í
fréttamannamiðstöðinni. Þegar An-
and hafði lokið síðustu skákinni á
mótinu með stuttu jafntefli gegn
Leko og gekk út úr Stadt leikhúsinu
hópuðust fréttamenn að honum, en
hann sagði einungis: „Ég hef nú þeg-
ar gleymt þessu skákmóti.“ Skák-
áhugamenn velta nú fyrir sér skýr-
ingum á þessari útreið Anands. Ein
kenningin er sú, að hann sé nú á þeim
tímapunkti að hafa náð öllum sínum
markmiðum, þ.á.m. að vinna heims-
meistaratatitilinn og hljóta aðdáun
indversku þjóðarinnar og skák-
áhugamanna um allan heim fyrir vik-
ið. Varla er það trúleg skýring, enda
má segja að allir fyrri heimsmeist-
arar í skák hafi staðið í svipuðum
sporum. Aldrei fyrr hefur þó nokkur
þeirra orðið neðstur á skákmóti með-
an hann hélt heimsmeistaratitlinum,
hvað þá með svona slakt vinnings-
hlutfall. Frammistaða Anands á
skákmótinu í Dortmund hefur rifjað
upp slakt gengi hans í seinni hluta
einvígisins við Kasparov í New York
1995, en þar fannst sumum baráttu-
viljann skorta hjá Anand. E.t.v. er
einhver skapgerðarmunur á Anand
og Kasparov, en Kasparov hefur
margsinnis sýnt, að hann gefur aldrei
frá sér vonina og hefur oft tryggt sér
efsta sætið á skákmótum með ofur-
mannlegri frammistöðu í síðustu um-
ferðunum.
Líklegast er engin ein skýring á
frammistöðu Anands, heldur eru
ástæðurnar margar. Það var honum
t.d. lítt að skapi þegar skipuleggjend-
ur Dortmund-mótsins tilkynntu að
næsta Dortmund-mótið yrði áskor-
endamót fyrir heimsmeistarakeppni
Braingames. Anand mislíkaði sýni-
lega þessi tilkynning og sagðist ekki
hafa áhuga á að taka þátt í slíku móti,
enda teldi hann það til þess fallið að
draga úr mikilvægi heimsmeistara-
titils síns.
Í þessum þrengingum Anands var
það síst til bóta, að helsti aðstoðar-
maður hans,
georgíski stórmeist-
arinn Elizbar Ubilava
(2524), tók sér langþráð
frí meðan Dortmund-
skákmótið stóð yfir. Í
síðasta skákþætti
Morgunblaðsins var
greint frá því, að fríið
notaði Ubilva m.a. til að
taka þátt í sterku skák-
móti í Banasque á
Spáni þar sem hann
sigraði, en meðal þátt-
takenda voru þau Helgi
Áss Grétarsson og
Lenka Ptacnikova.
Lokaúrslit Dort-
mund-skákmótsins
urðu þessi:
1. Vladimir Kramnik
6½ v.
2. Veselin Topalov
6½ v.
3. Peter Leko 5½ v.
4. Alexander Mo-
rozevich 5 v.
5. Michael Adams
3½ v.
6. Viswanathan An-
and 3 v.
Helgi Áss
með 4½ af 7
Sjö umferðum af níu
er nú lokið á skákmótinu í Balaguer á
Spáni þar sem Helgi Áss Grétarsson
er meðal þátttakenda. Helgi hefur
fengið 4½ vinning og er í 22.-36. sæti.
Stórmeistararnir Artur Kogan (Ísra-
el) og Heikki Westerinen (Finnland)
eru efstir með 6 vinninga.
Íslenskir skákmenn
fjölmenna til Tékklands
Opna tékkneska meistaramótið er
orðið vinsælasta erlenda skákmótið
meðal íslenskra skákmanna. Alls
taka nú 23 Íslendingar þátt í mótinu.
Þeirra á meðal eru tvær skákkonur,
þær Anna Björg Þorgrímsdóttir og
Harpa Ingólfsdóttir. Í raun er hér
um skákhátíð að ræða sem saman-
stendur af mörgum skákmótum. Há-
tíðin hófst þann 16. júlí og henni lýk-
ur 28. júlí.
Þremur umferðum er lokið á að-
almótinu þar sem keppendur eru 303.
Ellefu Íslendingar taka þátt í því og
staða þeirra er þessi:
12.-46. Jón Viktor Gunnarsson og
Bragi Þorfinnsson 2½ v.
47.-121. Hannes Hlífar Stefánsson,
Ingvar Þór Jóhannesson og Stefán
Kristjánsson 2 v.
122.-185. Róbert Harðarson og
Sigurbjörn J. Björnsson 1½ v.
186.-259. Páll A. Þórarinsson, Guð-
mundur Kjartansson 1 v.
260.-288. Ólafur Ísberg Hannesson
og Dagur Arngrímsson ½ v.
Í B-riðli tefla 397 keppendur, þar á
meðal ellefu Íslendingar. Tveimur
umferðum er lokið:
131.-266. Halldór Brynjar Hall-
dórsson, Tómas Björnsson, Haraldur
Baldursson, Ólafur Kjartansson og
Jónas Jónasson 1 v.
267.-343. Stefán Bergsson, Guðni
Stefán Pétursson, Anna Björg Þor-
grímsdóttir, Sigurður Ingason og
Jón Árni Halldórsson ½ v.
344.-397. Harpa Ingólfsdóttir 0 v.
Birgir Berndsen teflir í D-riðli þar
sem keppendur eru 294 og hefur
hann unnið báðar fyrstu skákirnar.
Úr mótaáætlun
Skáksambandsins
29.7. Hellir. Bikarmót Striksins
18.8. Hellir&TR. Borgarskákmótið
Kramnik og Topalov
efstir, en Anand
neðstur í Dortmund
Daði Örn Jónsson
SKÁK
D o r t m u n d
DORTMUND SPAR-
KASSEN SKÁKHÁTÍÐIN
12.-22.07. 2001
Veselin
Topalov
Viswanathan
Anand
✝ Guðrún HrefnaSveinsdóttir Ped-
ersen fæddist í
Reykjavík 15. júní
1915. Hún lést 13. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Dýr-
finna Oddfriðsdóttir,
f. 2. ágúst 1895, d. 28.
júlí 1985, og Sveinn
Guðmundsson járn-
smiður í Reykjavík, f.
14. nóvember 1885,
d. 16. desember 1956.
Systir Hrefnu sam-
mæðra er Soffía
Bjarnadóttir, f. 8.
nóvember 1924. Tvo bræður átti
hún sammæðra en þeir létust báðir
í bernsku. Systur Hrefnu samfeðra
eru: Auður Sveinsdóttir Laxness, f.
30. júlí 1918, Ásdís Sveinsdóttir
Thoroddsen, f. 18. mars 1920, d. 10.
nóv. 1992, Fríða Sveinsdóttir, f. 25.
janúar 1922. Bróðir þeirra var
Baldur Sveinsson sem er látinn.
Hrefna giftist 18. maí 1934 Niels
Hafsteini Pedersen sem var fædd-
ur 25. október 1913 en hann lést 30.
apríl 1973. Foreldrar hans voru
Ágústa María Finnbogadóttir, f. 21.
ágúst 1883, d. 24. maí 1921, og
Niels Pedersen frá Svenborg í Dan-
eiga fimm börn og fjögur barna-
börn. 9) Guðrún, f. 7. júní 1952,
maður hennar er Jörgen Berg-
holdt, þau eiga tvær dætur og þrjú
barnabörn. 10) Hjördís, f. 27. sept.
1954, hún er gift Stefáni A. Magn-
ússyni, eiga þau þrjú börn og þrjú
barnabörn.
Hrefna ólst upp í Reykjavík hjá
móður sinni og stjúpa, Bjarna Guð-
mundssyni. Hún lærði ung að
bjarga sér. Fljótlega eftir fermingu
var hún vinnukona hjá Jóni Þor-
lákssyni ráðherra og konu hans,
Ingibjörgu. Hún var aðeins átján
ára þegar hún kynntist mannsefni
sínu, þar sem þau voru samtíða í
Viðey. Hún vann við framreiðslu á
yngri árum með móður sinni, Dýr-
finnu. Þau Hafstein og Hrefna
bjuggu lengst af á Skúlagötu 72.
Þegar yngstu börnin fóru að vaxa
úr grasi fór Hrefna að vinna meira
utan heimilis og vann ýmis störf
þar til Hafstein réð sig sem húsvörð
hjá borgarverkfræðingi í Skúlatúni
2. Þar unnu þau bæði þar til Haf-
stein lést 1973. Hrefna fluttist þá á
Skúlagötu 74 og bjó þar þar til hún
fluttist á Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Hrefnu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
mörku, f. 3. desember
1885, d. 4. janúar 1952.
Þau Hafstein og
Hrefna eignuðust sam-
an tíu börn, þau eru: 1)
Ágústa Nellie, f. 30.
sept. 1934, gift Val Júlí-
ussyni, þau eiga þrjú
börn, átta barnabörn
og eitt barnabarna-
barn. 2) Sveinn, f. 11.
jan. 1935, dáinn í apríl
sama ár. 3) Sveinn
Bjarnfinnur, f. 27.
mars 1937, kvæntur
Helgu Biering, þau
eiga þrjár dætur og
barnabörnin eru sex. 4) Anna Krist-
ín, f. 7. maí 1939, d. 12. des. 1996.
Hún var gift Hreini Hjartarsyni, þau
áttu saman þrjú börn og barnabörn-
in eru sjö. 5) Hrafnhildur, f. 28. júlí
1940, maður hennar er Jóhannes
Agnarsson. Hún á þrjár dætur og
tvö barnabörn. 6) Auður Ásdís, f. 11.
febrúar 1943, hún er gift Ásgeiri
Kristinssyni, þau eiga þrjár dætur
og ellefu barnabörn. 7) Vilmar Haf-
steinn, f. 20. sept. 1945, hann er
kvæntur Selmu Guðjónsdóttur og
eiga þau fjögur börn og fimm barna-
börn. 8) Kristinn, f. 30. maí 1948,
kona hans er Erla Viðarsdóttir, þau
Vertu nú sæl að sinni elsku besta
amma, það er með sárum söknuði
sem við kveðjum þig með þessum
orðum og þökkum þér fyrir allt.
Þar til við hittumst næst elsku
amma:
Við sjáum dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla,
það er eins og festingin færist nær
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt,
svo blakti síðasti loginn,
en svo kemur dagur og sumarnótt
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stef.)
Ástarkveðjur
Agnar og Eygló.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja,
að sumarið það líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig allsstaðar,
þá napurt er.
Það næðir hér og nístir mig.
(J.H.)
Kallið er komið. Skapari himins og
jarðar hefur kallað hana ömmu okk-
ar til sín. Það er alltaf jafn sárt þegar
hann sækir ástvini okkar. Hún Ebba
amma kenndi okkur þegar við vorum
börn að það er eitt sem við mann-
fólkið eigum sameiginlegt; að fæðast
og deyja. Það sem huggar okkur í
söknuði okkar er að nú ert þú komin
til afa og barnanna þinna. Við vorum
svo lánsöm að fá að eyða miklum
tíma með þér, þú varst með okkur á
öllum stórum stundum í lífi okkar.
Þú lifðir fyrir fjölskylduna þína og
vorum við ríkidæmi þitt.
Flestar minningarnar tengjast
Skúlagötunni þar sem þú bjóst til
fjölda ára, fyrst með afa og börnun-
um þínum en að lokum ein. Á Skúla-
götunni var oft fullt út úr dyrum og
þótt íbúðin væri ekki stór virtist
endalaust vera pláss þar inni. Í hvert
sinn þegar við fórum stóðst þú í
glugganum og veifaðir til okkar.
Elsku amma, nú er komið að okk-
ur að kveðja þig. Við sjáum þig fyrir
okkur standa við dyrnar að himna-
ríki með afa þér við hlið eftir tæplega
þrjátíu ára aðskilnað, og þið veifið
okkur bæði.
Guð geymi þig, elsku amma, minn-
ing þín er ljós í lífi okkar.
Þín barnabörn
Hrefna Björk, Karlotta
Lind, Harpa María, Vilmar
Hafsteinn og makar.
Ó, leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, ég þér sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesú, að mér gáðu.
(Á.E.)
Elsku Ebba langamma, þá er
komið að kveðjustundinni. Okkur
langar í fáum orðum að þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar sem við
áttum með þér. Við erum ekki gömul
en eigum samt ótal minningar um
þig. Þótt þú værir orðin kraftlaus
vildirðu alltaf að við sætum í mjúka
fanginu þínu. Okkur yngstu fannst
þú alltaf svo fín og vorum dugleg við
að toga í gleraugun þín og hálsmenið
þitt. Okkur eldri strákunum fannst
alltaf gott að fá ömmubrjóstsykur úr
ömmukrús eða kex úr körfunni góðu.
Núna hittum við þig ekki aftur hjá
ömmu Selmu og afa Vilmari.
Við munum alltaf sakna þín. Nú
vitum við að þér er ekki lengur illt í
hjartanu þínu. Við kveðjum þig núna
og geymum myndina af þér í huga
okkar.
Mömmur okkar ætla að segja okk-
ur söguna þína þegar við verðum
eldri. Við vitum að englarnir passa
þig núna fyrir okkur.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(M. Joch.)
Ástarkveðja frá langömmubörn-
um þínum.
Vilmar Þór, Bjarki Freyr,
Kjartan Fannberg, Tómas
Leó og Móeiður Klara.
Mig langar að minnast systur
minnar, Guðrúnar Hrefnu, sem allt-
af var kölluð Ebba. Ég var níu árum
yngri en hún, svo við áttum litla sam-
leið á yngri árum en því meiri þegar
við urðum eldri og náðum við vel
saman. Ebba giftist ung Hafsteini
Níels Pedersen, fóru þau ung til
Danmerkur með sitt fyrsta barn, en
festu ekki rætur þar og komu heim
með tvö börn, en börnin þeirra urðu
tíu. Hún systir mín var hetja, með
faðminn útbreiddan fyrir öll börnin
sín, barnabörnin og barnabarna-
börnin. Hún gaf þeim trú og kær-
leika, gaf þeim allt það góða sem til
er. Hún lærði með þeim, gaf þeim af
sínum fróðleik, sem hún hafði lagt
rækt við frá barnæsku, hún hjálpaði
barnabörnum sínum bæði að læra
dönsku og ensku og til hennar kom
einnig frændfólk til þess að fá aðstoð
við námið. Hún hafði alltaf tíma til
þess að hlusta og sagðist læra mikið
af börnunum.
Hún systir mín var mikið fyrir
bókina og hafði þráð að mennta sig,
en hennar hlutskipti varð annað og
meira, móðir, amma, langamma og
langalangamma. Nú síðustu árin var
gleðin mest þegar börnin komu í
heimsókn, hún hafði enn ánægju af
góðum bókum og þegar ég kom í
heimsókn til hennar þá var talað um
gamla daga, ræddar bækur sem hún
var að lesa eða tekið í spil, kaffi á eft-
ir og pínulítið serrý. Annað sem hún
dáði mjög var leiklist, hún elskaði
leikhús, hafði sjálf leikið sem ung
stúlka. Það er svo margt sem kemur
upp í hugann á langri leið.
Guð blessi þig, elsku systir.
Legg þú nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer,
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pétursson.)
Þín systir,
Soffía.
GUÐRÚN HREFNA
SVEINSDÓTTIR PEDERSEN