Morgunblaðið - 24.07.2001, Blaðsíða 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í BLAÐASERÍU sinni The Invisi-
bles kastaði Grant Morrison fram
spurningunni hvort það að lifa eftir
lögum og reglum sé hentugasta líf-
erni sem kostur er á. Í skrumskæl-
ingu hans af raunheiminum er öllum
valdhöfum heimsins stjórnað af ver-
um sem hafa það að vopni að geta
gabbað skynfæri þegna sinna. Þann-
ig geta þær stjórnað öllum heimsins
þjóðum og því, eftir eigin hentisemi,
hvað þegnar þeirra heyra, finna og
sjá. Þeir einu sem geta veitt slíkum
drottnurum einhverja mótspyrnu er
hópur samansettur af stjórnleysingj-
um, kuklurum, klæðskiptingum og
tímaferðalöngum.
Með því að skapa slíkan heim gat
Morrison í raun leyft sér allt sem
honum datt í hug. Þar var rými til
þess að viðra allar samsæringskenn-
ingar hans og benda á kvilla nútíma-
samfélaga. Má því í raun segja að
söguþráðurinn sem slíkur hafi ekki
alltaf verið meginatriðið, heldur
frekar hinar beittu ábendingar og
hinar úthugsuðu og vel lesnu vanga-
veltur um tilveru okkar.
Þessar bókmenntir eru í raun full-
komið mótvægi gegn því eirðarleysi
sem hefur sljóvgað ungdóm hins
vestræna heims í áratug. Með sam-
særiskenningum sínum bendir
Morrison á glufur í lífsmynstri nú-
tímamanna sem valdafíklar gætu
nýtt sér í hag. Við trúum flestu því
sem við heyrum, sjáum eða finnum
með okkar eigin skynfærum og því
er valdabarátta The Invisibles fólgin
í því hver stjórnar skynjunum okkar.
Hvernig á nokkur manneskja að
geta gert upp sinn hug um nokkurn
hlut ef öllu því sem skynfærin skynja
er stýrt af öðrum? T.d. í gegnum
skólakerfið, kvikmyndir, sjónvarp,
tölvuleiki, tónlist eða blaðagreinar
eins og þessa. Hver semur reglur
samfélagsins og hvenær hætta þær
að þjóna því?
Með því að kasta fram slíkum
spurningum í bland við tilheyrandi
fantasíu og hasar myndasögublaða
hvetur hann lesendahóp sem vana-
lega er með nefið ofan í einhverju allt
öðru en heimspekilegum bókmennt-
um til að vakna upp frá „play-
station“-draumaheimi sínum og
skoða ástand raunheimsins.
Síðustu mánuði hefur DC Comics
útgáfan verið iðin við að endurprenta
blaðaseríuna í kiljur. Upphaflega
kom serían út í þremur blaðasyrp-
um, en eftir útgáfu þessarar nýjustu
bókar, Entropy in the U.K., er rúm-
lega helmingur seríunnar nú fáan-
legur í kiljum. Það verður að segjast
eins og er að sögur Morrisons sóma
sér mun betur í þessu formi enda
greinilegt að verkið var samið sem
heild. Hægt og rólega vefur Morri-
son net sitt og vísar óspart í liðna
jafn sem ókomna atburði og því var í
raun fáránlegt að serían hafði upp-
haflega verið gefin út í 24 blaðsíðna
mánaðarlegum skömmtum. Þessu
má líkja við að vera með heilan kassa
af legókubbum en fá aðeins eitt skref
af teikningunum á mánaðar fresti.
Þetta verk ber að lesa hægt, rólega,
vandlega, með opinn huga en með þó
með varann á.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Hver
stjórnar þér?
biggi@mbl.is
The Invisibles: Entropy in the U.K.
eftir Grant Morrison. Útgefin af
Vertigo/DC Comics árið 2001. Fæst
í myndasöguverslun Nexus.
skilgreinir tónlist sveitarinnar og
segir hana alls ekki spila síðrokk
en það sé „ömurlegasta tónlist-
arskilgreining sem fyrirfinnst á
þessu jarðríki okkar“. Hljómsveit-
in leiki hins vegar „alternative
aggressive rockrock massive“ sem
myndi útleggjast sem „gegnheilt
jaðargrimmdarrokkrokk“.
Fuga er sveit sem hefur verið til
í um eitt og hálft ár en einbeitt sér
að viðveru í búlskúrnum að sögn
Péturs Einars Jóhannssonar, eins
liðsmanns sveitarinnar. Meðlimir
koma annars vegar úr Árbæjar-
sveitinni Pornopop, samstarfsverk-
efni Péturs og bróður hans, sem
einnig er meðlimur í Fugu. Porno-
pop gaf einmitt út hljómdiskinn
Blue árið 1997 sem féll einkar vel í
kram gagnrýnenda sem og ann-
arra.
Restin af sveitinni kemur úr
hinu eðla Mosfellsbandi, Bee Spid-
FASTUR punktur í dægurtónlist-
armenningu Reykjavíkur hafa ver-
ið svofelld Stefnumótakvöld sem
Undirtónar standa fyrir á veitinga-
staðnum Gauki á Stöng.
Í kvöld mun nýrokkið ráða ríkj-
um en það eru Úlpa, Fuga og
Dikta sem munu stíga á svið.
Úlpan hefur verið iðin við hljóm-
leikahald að undanförnu en breið-
skífa frá henni er væntanleg í end-
aðan ágúst.
Hljómsveitina Diktu ættu ein-
hverjir að kannast við sem lagt
hafa leið sína á Músíktilraunir
Tónabæjar undanfarin ár en hún
er skipuð fjórum ungum piltum úr
Garðabæ og af Álftanesi. Að sögn
Hauks Heiðars Haukssonar, gít-
arleikara og söngvara, er stefnan
tekin á hljóðverið fljótlega þó tími
og fjárráð ráði að sjálfsögðu hrað-
anum á því ferlinu.
Haukur kveður fast að er hann
ers, sem gerði garðinn frægan á
Músíktilraunum hér um árið, en
þar var gítarleikari og forsöngvari
enginn annar en Jónsi úr Sigur
Rós.
„Mig minnir að við höfum spilað
opinberlega einu sinni áður,“ segir
Pétur jafnframt. „Við leikum ein-
hverskonar vælurokk og erum
búnir að taka upp tvö lög í hljóð-
veri Sigur Rósar en vitum ekki al-
veg hvað við ætlum að gera með
þau. Við stefnum þó að því að
koma einhverju út með tíð og
tíma.“
Hann bætir því við að lokum að
væntanleg sé ný plata frá Porno-
pop á þessu ári.
Gestum er gert að reiða 500 kr.
af hendi við inngang, fýsi þá að
kanna það sem á boðstólum er.
Aldurstakmark miðast við 18 vetur
og er hurðum upp lokið kl. 21.00.
Jaðargrimmdarrokkrokk
Stefnumót á Gauknum
Rokkrokksveitin Dikta.
ÞÖGLI Bítillinn, George Harrison,
hefur tjáð vini sínum og sam-
starfsmanni, upptökustjóranum
George Martin, að dauðinn sé
ekki langt undan. Harrison hefur
að undanförnu verið að gangast
undir meðferð vegna heilaæxlis
en henni hefur nú verið hætt.
Að sögn Martin bíður Harrison
síðasta ævikvöldsins með stóískri
ró.
„Hann tekur því rólega og von-
ast eftir því að þetta hverfi. Hann
býr yfir óendanlega miklu and-
legu þreki en veit engu að síður
að hann er að deyja og er sáttur.“
Árið 1998 gekkst Harrison und-
ir skurðaðgerð þar sem æxli í
hálsi var fjarlægt. Fyrr á þessu
ári var hann jafnframt greindur
með lungnaæxli og talið er að
helmingur annars lungans hafi
verið fjarlægður í því skyni að
koma í veg fyrir frekari út-
breiðslu sjúkdómsins.
Ekki nóg með að sjúkdómar
hafi ógnað lífi Harrison und-
anfarið því að síðla árs árið 1999
réðst maður inn á heimili hans og
stakk hann með hnífi níu sinnum.
Kona Harrisons, Olivia, bjargaði
manni sínum með því að berja
innbrotsþjófinn í hausinn með
lampa.
Harrison dvelur nú í sumarhúsi
sínu á Hawaii.
Bíður
með
stóískri ró
Reuters
George Harrison bíður átekta,
hugsanlega dauðans, á Hawaii
um þessar mundir.
George Harrison á dánarbeðinum