Morgunblaðið - 25.07.2001, Qupperneq 2
Morgunblaðið/Ásdís
Heyjað í
miðborginni
KRAKKARNIR í bæjarvinnunni
rökuðu gras af miklum móð fyrir
utan Menntaskólann í Reykjavík.
Víðast hvar um borgina má finna
unglinga að slá, raka og reyta og
keppast við að halda borginni sem
fallegastri í sumarskrúðanum.
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hreppsnefnd ákveður að leggja niður grunnskólann í Skógum
Stjórnsýslukæra til
félagsmálaráðuneytis
EINN umsækjenda um stöðu kenn-
ara við grunnskólann í Skógum hef-
ur lagt fram margþætta stjórnsýslu-
kæru til félagsmálaráðuneytis vegna
framgöngu hrepps- og skólanefndar
Austur-Eyjafjallahrepps í málefnum
skólans. Kæran er lögð fram í fram-
haldi af ákvörðun hreppsnefndar um
að leggja niður grunnskólann í Skóg-
um og vísa nemendum í Seljalands-
skóla í Vestur-Eyjafjallahreppi og í
Hvolsskóla á Hvolsvelli.
Þetta telur kærandi leggja óhóf-
legar kvaðir á skólabörn, sem þurfi
að dvelja langtímum saman á dag í
skólabíl og jafnframt telur hann, að
við afgreiðslu málsins í hreppnum
hafi verið brotnar reglur er varða
eðlilega stjórnsýslu.Í bréfi kæranda
til félagsmálaráðuneytisins segir, að
þótt hann skrifi einn undir hafi verið
haft samráð við fjölda íbúa hreppsins
við gerð þess. Eftir að taldar hafa
verið upp umkvartanir í 21 lið segir í
bréfinu: „Það er ósk okkar mikils
meirihluta íbúa að ráðuneytið fari of-
an í þessi mál og ógildi þær stjórn-
valdsaðgerðir sem greinilega eru
ólöglegar og veiti hreppsnefnd og
öðrum embættismönnum hreppsins
þar að auki átölur og áminningu
vegna ósiðlegra og óeðlilegra starfs-
hátta og ósæmilegrar framkomu við
umbjóðendur sína, börn sem full-
orðna.“
Þá er ámálgað við ráðuneytið að
taka yfir stjórn sveitarfélagsins fram
að næstu kosningum eða hafa það
ella undir ströngu aðhaldi og eftirliti.
Það sem helst er tínt til í kærunni
er að hreppurinn hafi boðað til borg-
arafundar og skotið til hans málefn-
um skólans, en svo ekki farið eftir
niðurstöðum hans. Þá hafi hrepps-
nefnd auglýst eftir skólastjóra og
kennurum til starfa við skólann, en
svo ákveðið að hætta við skólahald
eftir að umsóknir lágu fyrir. Jafn-
framt hafi verið sendar persónuupp-
lýsingar um umsækjendur, án þess
að samþykkis þeirra væri leitað, til
foreldra skólabarna í hreppnum í
tengslum við skoðanakönnun um
hvort halda bæri áfram skólahaldi í
hreppnum. Eins eru gerðar athuga-
semdir við framkvæmd könnunar-
innar, staðhæft að andmælaréttur
umsækjenda hafi ekki verið virtur,
athugasemdir gerðar við setu skóla-
nefndarmanna í hreppsnefnd, o.fl.
Guðjón Bragason, lögfræðingur
félagsmálaráðuneytisins, staðfesti
að kæra hefði borist ráðuneytinu en
gerði ekki ráð fyrir að úrskurðar
væri að vænta fyrr en í september í
fyrsta lagi. Hann sagði að ekki væri
algengt að fá svo umfangsmiklar
kærur og í þetta mörgum liðum til
ráðuneytisins.
Ólafur Tryggvason, oddviti Aust-
ur-Eyjafjallahrepps, vildi ekki tjá
sig um málið að svo stöddu.
BJÖRN Bjarnason, mennta-
málaráðherra, hefur heimilað bæj-
arstjórn Mosfellsbæjar að gera til-
raun með nýtt stjórnunarform í
Lágafellsskóla í Mosfellsbæ til
næstu þriggja ára frá og með
skólaárinu 2001-2002. Bæjarstjórn
Mosfellsbæjar fær því undanþágu
frá ákvæðum laga og reglugerða
um fyrirkomulag skólastjórnunar í
grunnskóla.
Í tilrauninni felst m.a. að í Lága-
fellsskóla verði um að ræða sér-
stakt stjórnunarteymi þriggja
stjórnenda. Þannig er verið að
dreifa valdi milli þátttakenda í
daglegri stjórnun skólans. Til-
gangurinn með því er að styrkja
faglega, stjórnunarlega og rekstr-
arlega ábyrgð skólans.
Menntamálaráðuneytið setur
það skilyrði fyrir tilrauninni, að
ávallt sé ljóst gagnvart öllum að-
ilum, þ.m.t. ráðuneytinu og stofn-
unum skólakerfisins, hver sé for-
svarsmaður skólans.
Ráðuneytið óskar jafnframt eft-
ir því að fá staðfesta skóla-
námskrá Lágafellsskóla ár hvert á
tilraunatímabilinu. Fyrir lok til-
raunatímabilsins mun mennta-
málaráðuneytið gera úttekt á til-
rauninni áður en ákvörðun er
tekin um áframhaldandi und-
anþágu frá lögum um grunnskóla,
er lúta að stjórnskipulagi skóla.
Þriggja manna
stjórnunarteymi
Nýtt stjórnunarform reynt í Lágafellsskóla
Hjúkrunarfræð-
ingar funda í dag
ÞRÍR fundir voru haldnir hjá rík-
issáttasemjara í gær. Þetta voru
fundir viðsemjenda og Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga, Slökkvi-
liðsins í Hafnarfirði og Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga.
Boðaður hefur verið fundur á ný
milli hjúkrunarfræðinga og viðsemj-
enda í dag og Slökkviliðs Hafnar-
fjarðar og viðsemjenda 1. ágúst nk.
Auk þessara félaga heldur ríkis-
sáttasemjari utan um viðræður
sjúkraliða, náttúrufræðinga og sál-
fræðinga við ríkið.
UNNIÐ er nú að tvöföldun brúar yf-
ir Gljúfurá í Húnaþingi, en brúin er
ein af mörgum einbreiðum á þjóð-
vegi eitt. Byggð er brú til hliðar við
eldri brú og þær síðan sameinaðar
með samfelldu gólfi. Gert er ráð fyrir
að um 500 rúmmetrar af steinsteypu
fari í brúna, sem ekið er frá steypu-
stöð á Hvammstanga. Að sögn
Guðmundar Sigurðssonar, brúar-
smiðs, gengur verkið samkvæmt
áætlun og er búist við að því ljúki í
ágústlok.
Framkvæmdin er liður í fækkun
einbreiðra brúa á þjóðvegi eitt.
Næsta ár er stefnt að tvöföldun brú-
arinnar yfir Hnausakvísl, sem er
neðsti hluti Vatnsdalsár, en á liðnu
ári var brúin yfir Víðidalsá tvöfölduð.
Þessi verk eru öll unnin af brúar-
vinnuflokki Guðmundar Sigurðsson-
ar á Hvammstanga.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Guðmundur Sigurðsson brúarsmiður við Gljúfurárbrú.
Gljúfurárbrú
tvöfölduð
Hvammstanga. Morgunblaðið
Frönsk
kona datt
af hestbaki
FRÖNSK kona um þrítugt datt
af hestbaki á Dómadalsleið um
fimmleytið í gær. Hún reyndist
vera axlarbrotin og var flutt til
Reykjavíkur.
Þá var ekið á sjö ára gamlan
dreng á Suðurgötu í Hafnar-
firði um klukkan hálffjögur í
gær.
Að sögn lögreglunnar hljóp
drengurinn í veg fyrir bifreið.
Hann slasaðist ekki alvarlega.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isBikarmeistararnir fá erfiðan
leik í undanúrslitum/B3
Landslið Íslands í frjálsum
hélt til Kanada í gær/B4
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag