Morgunblaðið - 25.07.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sumarbúðir CISV
48 börn frá
12 löndum
UM þessar mundireru reknar al-þjóðlegar sumar-
búðir barna í Smáraskóla
í Kópavogi á vegum CISV
(Children International
Summer Villages) Um-
sjón með sumarbúðunum
hefur Ingigerður Einars-
dóttir háskólanemi. Hún
var spurð hvað margir
krakkar væri í búðunum?
„Þau eru 48 og öll ellefu
ára. Þau eru frá Brasilíu,
Kanada, Englandi, Finn-
landi, Þýskalandi, Hol-
landi, Íslandi, Ítalíu, Nor-
egi, Filippseyjum, Svíþjóð
og Bandaríkjunum. Einn-
ig er ég með sex unglinga
á aldrinum 16 til 18 og þau
koma frá Íslandi, Noregi,
Færeyjum, Þýskalandi,
Brasilíu og Argentínu.“
– Hvað eru margir þér til að-
stoðar við þetta barngæslustarf?
„Með hverjum hópi kemur
einn fararstjóri og svo erum við
tvö sem erum í fullu starfi sem
sjálfboðaliðar við að gæta
barnanna.“
– Er á ykkar könnu að hugsa
um allan þennan hóp?
„Við fáum fólk að til að elda en
hitt er á okkar könnu. Við höfum
séð um uppbyggingu þessa sum-
arbúðastarfs hér í Smáraskóla.“
– Hvernig byggið þið upp þetta
starf?
„Markmiðið með þessu starfi
er að krakkarnir kynnist inn-
byrðis á milli þjóða og sjái að það
eru allir „undir sama hatti“ í líf-
inu.“
– Eruð þið með fjölbreytilega
dagskrá?
„Við erum með ákveðnar túr-
istaferðir. Við fórum fyrir
skömmu að sjá Gullfoss og Geysi,
Bláa lónið, höfum farið í sund-
laugarferðir og í verslunarferðir.
Fulltrúar frá hverri þjóð halda
sín þjóðakvöld, sýna þar þjóð-
dansa og gefa smakk af þjóðar-
réttum.“
– Hvaða samtök eru þetta sem
standa að þessum sumarbúðum?
„CISV eru alþjóðleg samtök
sem teygja starfsemi sína víðast
hvar um heiminn. Á þessari
stundu eru 60 sumarbúðir af
þessu tagi sem við erum með hér
í gangi víða í heiminum. Nánari
upplýsingar um samtökin er
hægt að fá á slóðinni cisv.is“
– Hvenær voru þessi samtök
stofnuð?
„Þau voru stofnuð í Cincinnati
í Ohio í Bandaríkjunum af konu
sem heitir Doris Allen. Þetta
gerðist upp úr heimsstyrjöldinni
síðari og hafði að tilgangi að gera
heiminn betri með því að leyfa
börnunum af ýmsu þjóðerni að
kynnast.“
– Hvernig lyndir krökkunum
hjá ykkur?
„Mjög vel, þau eru farin að
kvíða því mikið að þurfa að fara
heim aftur. Þau hafa tengst vel
og eignast vini alls staðar að úr
heiminum.“
– Setur tungumála-
kunnáttan ekkert strik
í reikninginn?
„Öll starfsemin fer
fram á ensku og far-
arstjórar sjá þá um að
þýða fyrir börnin ef
þau skilja ekki það
sem fram fer.“
– Hvernig er valið í sumarbúð-
irnar?
„Börnin fylla út ákveðin um-
sóknareyðublöð og eftir þeim er
valið. Svo er farið í „minibúðir“,
áður en lagt er af stað til þess að
sjá hvernig þau standa sig í
svona sumarbúðarlífi.“
– Hvað eru þau búin að vera
lengi á Íslandi?
„Þau hafa verið frá 1. júlí í búð-
unum en helgina 13. til 15. júlí
fengu þau að búa hjá íslenskum
fjölskyldum. Sjálfboðaliðar tóku
að sér að hýsa börn frá hinum
ýmsu löndum, í svona heimagist-
ingar fara alltaf tvö börn og ekki
frá sama landi.“
– Hefur þetta verið strangt
starf?
„Þetta er held ég það erfiðasta
sem ég hef tekist á við hingað til
en alveg ofboðslega gaman. Þetta
er vinna allan sólarhringinn að
halda utan um þetta og ég hef
ekki fengið nema um þriggja
tíma svefn á sólarhring síðan
sumarbústaðastarfið hófst. Mig
grunaði ekki að það væri svona
margt sem tengdist þessu starfi.“
– Hefur heilsufar barnanna
verið gott?
„Krakkarnir hafa fengið sum-
arkvefið sem hefur verið að
ganga en ég tel að við höfum ver-
ið heppin því enginn hefur veikst
alvarlega. Við höfum leitað til
hinnar almennu læknisþjónustu
ef eitthvað hefur komið upp á.“
– Hvernig er hópurinn kynja-
skiptur?
„Það koma tveir strákar og
tvær stelpur og einn fararstjóri
frá hverju landi. Fararstjórarnir
skipuleggja leikina og bera
ábyrgð á sínum hópi og hjálpast
svo að með allan hópinn. Við hér
sjáum um að allt sé gert sem
gera á og það vel gert.“
– Ertu vön að vera með börn?
„Ég var sjálf sem barn í svona
sumarbúðum í Ohio, og
fór einnig sem farar-
stjóri í sumarbúðir
sem haldnar voru í
Kaupmannahöfn fyrir
tveimur árum – svo hef
ég séð um félagsmið-
stöð á Akureyri.“
– Hafa krakkar frá mismun-
andi löndum svipaðan smekk?
„Smekkurinn er mjög mismun-
andi og fer eftir því hverju þau
hafa vanist heima fyrir. En áður
en þau fóru var þeim gerð grein
fyrir að hér á Íslandi yrðu þau að
lifa samkvæmt íslenskum lífs-
háttum.“
Ingigerður Einarsdóttir
Ingigerður Einarsdóttir fædd-
ist 8. september 1977. Hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1998 og stund-
ar nú nám í Háskólanum á
Akureyri í rekstrarfræði á ferða-
málasviði. Hún hefur með námi
starfað við umsjón félags-
miðstöðvarinnar Stjörnuveröld
hjá Akureyrarbæ og unnið hjá
Samskipum á sumrin. Nú er hún
sumarbúðastjóri hjá CISV. Ingi-
gerður er í sambúð með Sig-
tryggi Símonarsyni forritara.
Þetta er
held ég það
erfiðasta
sem ég hef
tekist á við
Uss, rebbaskinnið mitt passar auðvitað engan veginn með svona olíufurstadressi, Dóra mín?
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-KombiATVINNA
mbl.is