Morgunblaðið - 25.07.2001, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 9
ARNAR Halldórsson, 26 ára dokt-
orsnemi í efnafræði við Háskóla Ís-
lands, hlaut nýverið viðurkenningu
Lipidforum-samtakanna („Nordic
forum for Science and Technology of
Lipids“). Arnar er jafnframt fyrsti
doktorsneminn í skipulögðu doktors-
námi í efnafræðiskor við Háskóla Ís-
lands. Ráðstefna samtakanna var að
þessu sinni haldin í byrjun júní í
Bergen í Noregi.
„Ég hélt fyrirlesturinn minn
snemma á ráðstefnunni en hann
fjallaði um sérvirkni lípasa gagnvart
fitusýrum í lýsi og sjávarfangi,“ seg-
ir Arnar. Að sögn hans eru lípasar
ensím eða lífhvatar og er hann m.a.
að rannsaka sérhæfni þeirra á fitu-
sýrur og fituefni undir handleiðslu
Guðmundar G. Haraldssonar, pró-
fessors í lífrænni efnafræði við Há-
skóla Íslands. „Í hnotskurn gengur
rannsóknarverkefni mitt út á efna-
smíðar á margvíslegum fituefnum
með háu hlutfalli omega-3 fjölómett-
aðra fitusýra, þar sem bæði hefð-
bundnum aðferðum lífrænna efna-
smíða og ensímum er beitt.“
Sérstaka athygli í verðlaunaerindi
Arnars í Noregi vöktu rannsóknir
hans á lípösum sem hann einangraði
úr laxfiskum. „Við höfum verið að
vinna með litarefni í laxi en það
skiptir mjög miklu máli að upptaka
þeirra úr fóðri sé góð fyrir laxeldi.
Okkur tókst sem sagt að einangra
ensím úr laxi og sýna fram á mjög at-
hyglisverða fitusýrusérvirkni þeirra
sem getur nýst m.a. til að bæta upp-
töku laxa á litarefnum úr fóðrinu,“
segir Arnar.
Að sögn hans eru Lipidforum-
samtökin norræn vísindasamtök á
sviði fitu- og fituefnafræða þar sem
mætast fulltrúar háskóla og opin-
berra stofnana sem og fulltrúar iðn-
aðar og fyrirtækja allra Norður-
landanna. Samtökin eru mjög virk á
vísindasviði og skipuleggja m.a.
stóra ráðstefnu, eins og ráðstefnuna
í byrjun júní, á tveggja ára fresti. Á
tíu ára fresti er því ein slík ráðstefna
haldin í hverju hinna fimm Norður-
landanna, seinast hér á landi árið
1995.
Þegar hann er inntur eftir því
hvaða þýðingu verðlaunin hafi fyrir
hann, segist hann með þeim fá stað-
festingu á því að hann og fleiri hér á
landi séu að gera góða hluti í rann-
sóknum á alþjóðlegum mælikvarða
og að gæði doktorsnámsins hér á
landi séu því tryggð. „Það er mjög
mikilvægt fyrir mig sem doktors-
nema að fá slíka viðurkenningu en
hluti af náminu er einmitt sá að nem-
endur kynni vinnu sína á erlendum
vettvangi. Doktorsnám er þannig
ekki eingöngu rannsóknarvinna,
heldur þarf líka að læra að koma nið-
urstöðum rannsóknanna vel frá sér.“
Að sögn Arnars er markmið verð-
launanna almennt að hvetja og örva
ungt vísindafólk á sviði fituefna til
dáða og undanfarin ár hafa samtökin
boðið norrænum doktorsnemum
styrki sem fela í sér m.a. ókeypis
ferðir, ráðstefnugjöld og uppihald
meðan á ráðstefnunni stendur. Verð-
launahafinn heldur síðan fyrirlestur
sem er hluti af dagskrá ráðstefnunn-
ar.
Annar Íslendingurinn
sem hlýtur verðlaunin
Til að öðlast slíkan styrk þarf að
hafa sýnt fram á og sannað fram-
úrskarandi árangur í rannsóknum
sínum, m.a. með birtingu niður-
staðna á alþjóðlega viðurkenndum
ritrýndum vettvangi. Arnar er annar
Íslendingurinn sem hlýtur þessi
verðlaun en Helga Gunnlaugsdóttir,
sem þá nam í Lundi í Svíþjóð, fékk
viðurkenninguna árið 1993.
Stjórn Lipidforum-samtakanna er
skipuð tveimur fulltrúum frá hverju
Norðurlandanna og er annar fulltrúi
iðnaðarins en hinn fulltrúi háskóla
og stofnana hvers lands. Það bar
einnig til tíðinda á ráðstefnunni að
þessu sinni, að Sigmundur Guð-
bjarnason, prófessor og fyrrverandi
rektor Háskóla Íslands, var ráðinn
framkvæmdastjóri samtakanna.
Arnar hefur nú lokið fjórum árum í
námi sínu og stefnir á að ljúka dokt-
orsnámi á næsta ári. Í millitíðinni
hyggst hann fara í Dalhousie-háskól-
ann í Halifax til að ljúka nokkrum
einingum í námskeiðum, sem hann
þarf til að uppfylla allar kröfur dokt-
orsnámsins. Arnar hefur ekki enn
ákveðið hvað hann tekur sér fyrir
hendur að námi loknu.
Doktorsnemi hlýtur viðurkenningu norrænna samtaka
Sýndi fram á fitusýru-
sérvirkni í laxfiskum
Morgunblaðið/Billi
Arnar Halldórsson er doktorsnemi í efnafræði við Háskóla Íslands.
undirfataverslun,
1. hæð í Kringlunni,
sími 553 7355
Útsölulok 25.-28. júlí
Enn meiri verðlækkun - Allar vörur á afslætti
Opið til kl. 21 á fimmtudag - Inneignarnótur gilda á útsölu
Nú
tímaf
ólkið
í leik og s
tarf
i
Klapparstíg 35, sími 561 3750
Dalía, Fákafeni 11, sími 568 9120.
Gjafakot, Strandgötu 29, Hf. sími 555 6770.
Georg V. Hannah, Keflavík, sími 421 5757.
Karl Guðmundsson, Selfossi, sími 482 1433.
Guðmundur Hannah, Akranesi, sími 431 1458.
Nýi Kays pöntunarlistinn kominn
Nýjasta vetrartískan á alla fjölskylduna
Frábær tilboð
Pantanasími 555 2866
Rýmingarsalan
á fullu í versluninni Austurhrauni 3, Hf.,sími 555 2866
N°7 snyrtivörur
Náttúrulega brún á stundinni
Self Tan Quick Dry Tinted Lotion
Vatnsþolið, smitar ekki, tollir lengi
Instant Tan Skin Tint Gel With Pearl
Auðvelt að þrífa af
Tilboð í apótekinu þínu núna
Nýtt