Morgunblaðið - 25.07.2001, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
hlutverk miðbæjardeildar í
samvinnu við Rauða kross-
inn, Foreldrahúsið og kirkj-
una að aðstoða og leiðbeina
einstaklingum, sem eru
hjálpar þurfi.“ Á borgarráðs-
fundi í gær var tillögunni
frestað til næsta fundar.
Í greinargerð með tillög-
unni segir að ljóst sé að
ástandið í miðborginni, eink-
um að kvöld- og næturlagi
um helgar, sé ekki viðunandi.
Ofbeldisverk og líkamsmeið-
ingar hafi aukist verulega og
öryggi hins almenna borgara
stefnt í mikla hættu.
Borgaryfirvöld hafi lýst yf-
ir vilja sínum til að leggja sitt
af mörkum til að sporna gegn
þessari óheillaþróun, en eng-
ar raunhæfar tillögur í þá átt
hafi enn séð dagsins ljós. Í
greinargerðinni er ennfrem-
ur tekið fram að stofnun mið-
bæjardeildarinnar leysi ekki
allan vanda, en með starf-
rækslu hennar sé unnt að
efla eftirlitið, aðstoða betur
þá einstaklinga, sem eru
hjálpar þurfi og auka öryggi
almennra vegfarenda á þessu
svæði.
„Eins og flestir muna var
til útideild á vegum Íþrótta-
og tómstundaráðs, sem lögð
var niður fyrir nokkrum ár-
um en við teljum að það sé
hægt að vera með ákveðnar
aðgerðir í miðborginni og
teljum sömuleiðis mjög brýnt
að borgaryfirvöld taki hönd-
um saman með þeim aðilum
sem þar eru að starfa, og þar
með virkjum við kraft félaga-
samtaka, sem hafa þegar
sýnt að þau eru tilbúin í
mikla vinnu,“ sagði Inga
Jóna í gær.
Meðferð áfengis og ölvun
bönnuð frá kl. 8 til 24
Önnur tillaga sjálfstæðis-
manna er svohljóðandi:
„Borgarráð samþykkir að
fela skrifstofu borgarstjórn-
ar að vinna að tillögum um að
á tilteknum svæðum borgar-
innar, s.s. Austurvelli, verði
ölvun og meðferð áfengis
bönnuð frá kl. 8 að morgni til
til miðnættis.“ Tillögunni var
vísað til vinnuhóps á vegum
skrifstofustjóra borgar-
stjórnar sem vinnur að hugs-
anlegum breytingartillögum
á lögreglusamþykkt borgar-
innar.
Í greinargerð með tillög-
unni segir að markmiðið með
flutningi hennar sé að stuðla
að betri ásýnd miðborgarinn-
ar. Ölvun á almannafæri hafi
aukist í miðborginni og nauð-
synlegt að stemma stigu við
þeirri þróun. Miðborgin verði
að geta geta sinnt því hlut-
verki sínu að vera eftirsókn-
arverð til umgengni og úti-
vistar fyrir fjölskyldufólk og
aðra þannig að hægt sé að
njóta hennar með öruggum
og eðlilegum hætti. Tillagan
gangi ekki út á að takmarka
útiveitingaaðstöðu í næsta
nágrenni við Austurvöll sem
rekin sé á ábyrgð veitinga-
manna.
„Austurvöllur er einn helg-
asti reitur borgarinnar og við
teljum eðlilegt að á slíkum
stöðum sé meðferð áfengis og
ölvun bönnuð,“ sagði Inga
Jóna. „Það er hugsanlegt að
það séu fleiri svæði sem megi
friða með þessum hætti.“
Innt eftir gagnsemi tillög-
unnar með því að ölvun á al-
mannafæri væri ekki hvort
eð er bönnuð, sagði Inga
Jóna ölvun á almannafæri
ekki bannaða, enda væri
samkvæmt áfengislögunum,
sem endurskoðuð voru fyrir
fáeinum árum, eingöngu
heimilt að grípa til aðgerða
gegn óspektum á almanna-
færi.
Hafnarstræti
verði opnað á ný
Þriðja tillaga sjálfstæðis-
manna er svohljóðandi:
„Borgarráð samþykkir að
hefja nú þegar undirbúning
að því að opna umferð um
Hafnarstræti til austurs á
nýjan leik.“ Tillögunni var
vísað til skipulags- og bygg-
ingarnefndar.
Í greinargerð með tillög-
unni segir að sú ákvörðun R-
listans, að loka austurenda
Hafnarstrætis hafi haft í för
með sér alvarlegar afleiðing-
ar. Í skýrslu um ástandið í
miðborginni komi t.d. fram
að eitt helsta umkvörtunar-
efnið sé mikill mannsöfnuður
við eystri enda Hafnarstræt-
is og að erfitt sé fyrir lögregl-
una að komast þar að á bíl.
Fjórða og síðasta tillagan
er svohljóðandi: „Borgarráð
samþykkir að leita eftir sam-
ráði við rekstraraðila vínveit-
ingahúsa um aðgerðir til að
tryggja betra öryggi fólks og
umgengni á og við veitinga-
hús í miðborginni. Leitast
verði við að skilgreina ábyrgð
og skyldur og kannað hvort
þörf sé á skilvirkari reglum.“
BORGARRÁÐSFULLTRÚ-
AR Sjálfstæðisflokksins
lögðu fram á fundi borgar-
ráðs í gær, fjórar tillögur til
úrbóta vegna miðborgar-
vandans. Þeir vilja banna ölv-
un og meðferð áfengis á til-
teknum stöðum í borginni á
vissum tímum og að stofnuð
verði sérstök miðbæjardeild
til að annast eftirlit í sam-
vinnu við lögreglu. Þá vilja
sjálfstæðismenn leita eftir
samráði við veitingamenn um
aðgerðir til að tryggja betra
öryggi fólks og opna umferð
um Hafnarstræti til austurs á
ný.
Inga Jóna Þórðardóttir,
oddviti sjálfstæðismanna,
sagði á blaðamannafundi í
gær, að eðlilegt væri að borg-
aryfirvöld brygðust með
skjótum hætti við þeim
vanda sem ríkti í miðborg-
inni. Hún sagði þó tillögur
sjálfstæðismanna ekki tæm-
andi með því að þær leystu
allan vanda, „en borgaryfir-
völd verða að okkar viti að
taka frumkvæðið og sýna
hvað þau vilja gera til að
bæta ástandið“, sagði Inga
Jóna.
Fyrsta tillaga sjálfstæðis-
manna gerir ráð fyrir stofnun
miðbæjardeildar og er svo-
hljóðandi: „Borgarráð sam-
þykkir að stofnuð verði sér-
stök miðbæjardeild, sem hafi
það verkefni með höndum að
annast að kvöld- og nætur-
lagi um helgar og á hátíð-
isdögum eftirlit á miðborgar-
svæðinu í samvinnu við
lögregluna og fylgjast með
ástandi á og við vínveitinga-
staði. Það verði jafnframt
Borgarráðsfulltrúar leggja fram fjórar tillögur í borgarráði til úrbóta vegna miðborgarvandans
Vilja stofna miðbæjardeild
og banna ölvun á Austurvelli
Miðborgin
Inga Jóna Þórðardóttir
POUL Hans Justinussen er
færeyskur járnsmiður, sem
hefur sérhæft sig í hnífa-
gerð með ævagamalli tækni
allt frá tímum víkinga, en
hún felst í því að hnífurinn
er smíðaður úr mörgum lög-
um járns og stáls sem lögð
eru saman og svo hituð og
mótuð að vild. Poul Hans
hefur dvalist á Íslandi síð-
ustu þrjár vikur og er brátt
á heimleið, en hér hefur
hann verið gestur Vestnor-
ræna menningarhússins í
Hafnarfirði og hafa gestir
þess getað fylgst með honum
við hnífasmíðina að und-
anförnu.
Poul hefur unnið lengi við
hnífasmíði, en það eru fimm
ár síðan hann hóf að búa til
hnífsblöðin sjálfur. Þá
kynntist hann dönskum sér-
fræðingi í svokallaðri dam-
ask tækni og fór í framhaldi
af því til Danmerkur í tvær
vikur til að kynna sér vinnu-
lag hans. Síðan hefur Poul
gert hnífsblöðin sjálfur, en
hnífarnir eru mikið notaðir
við grindadráp í Færeyjum.
Poul Hans telur mjög já-
kvætt að hnífarnir séu að
öllu leyti gerðir í Færeyjum,
en ekki sett á þá hnífsblöð,
sem búin eru til annars stað-
ar, eins og áður var. „Það er
ekki gott þegar ferðamaður
kemur til Færeyja og kaupir
sér grindahníf og svo stend-
ur á hnífsblaðinu „Made in
Sweden“,“ segir Poul Hans.
Þess vegna byrjaði ég á
þessu. Um það bil helmingur
þeirra sem kaupir grinda-
hnífana í Færeyjum eru
ferðamenn og hnífarnir selj-
ast betur ef þeir hafa verið
framleiddir í Færeyjum.
Aðspurður um vinnuferlið
við smíði hnífs segir Poul
Hans, að það taki frá 50 til
80 klukkustundum að smíða
hvern hníf. Fyrst er hnífs-
blaðið búið til, en gerð þess
getur tekið allt að tveimur
dögum. Við gerð hnífsblaðs-
ins eru lögð saman mörg lög
járns og stáls til skiptis og
eru þau hituð og mótuð, þar
til hnífurinn er orðinn 4-5
millimetrar að þykkt. Í lokin
er hnífsblaðinu svo dýft í
saltpéturssýru í fimm til tíu
mínútur, en sýran leysir í
raun upp hluta járnsins í
blaðinu og við þetta myndast
fallegt mynstur í hnífnum,
sem nefnt er damask. Hníf-
arnir eru ótrúlega sterkir en
aðferðin, sem notuð var á
tímum víkinga, kom til af því
hversu erfitt var að nálgast
stál á þeim tíma. „Það kom
hingað Íslendingur á verk-
stæðið um daginn og taldi
víst að hann gæti beygt einn
hnífanna með handafli. Það
tókst hins vegar ekki enda
eru hnífarnir svo sterkir að
ómögulegt er að beygja þá,“
segir Poul Hans.
Það skemmtilegasta
sem ég geri
Að sögn Poul Hans er
hann eini hnífasmiðurinn í
Færeyjum sem vinnur hníf-
ana að öllu leyti sjálfur. „Sú
tækni sem ég nota er þó erf-
ið viðfangs og aðeins fyrir
þá sem eru langt komnir í
hnífasmíði,“ segir hann.
Aðspurður um hvort hægt
sé að lifa af hnífasmíðinni
segir Poul Hans að það sé að
minnsta kosti ekki mögulegt
í Færeyjum. „Ef ég ætti að
fá tímakaup fyrir smíði
svona hnífs yrði hnífurinn
mjög dýr, þar sem langur
tími fer í gerð hvers og eins.
Hnífsblaðið eitt og sér kost-
ar yfir 20.000 krónur. Því
sinni ég annarri vinnu á dag-
inn og smíða svo hnífa á
kvöldin og á laugardögum
og er hnífasmíðin það
skemmtilegasta sem ég geri.
Eftirspurnin eftir hnífunum
er mjög mikil og þeir eru
alltaf seldir áður en smíði
þeirra er lokið, svo ég næ
aldrei að koma mér upp lag-
er,“ segir Poul Hans að lok-
um.
Færeyskur hnífasmiður heimsækir Ísland
Býr til hnífa að
hætti víkinga
Morgunblaðið/Jim Smart
Hér sést Poul Hans vinna að gerð hnífsblaðs en gerð þess
getur tekið tvo daga.
Hér getur að líta þrjá
hnífa sem Poul Hans hef-
ur smíðað og sjá má hið
fallega damask mynstur í
hnífsblaðinu.
Hafnarfjörður
HALLDÓR Árnason, fram-
kvæmdastjóri stjórnsýslu- og
fjármálasviðs Hafnarfjarðar-
bæjar, segir að töf á byggingu
fimleikahúss Bjarkar að
Haukahrauni verði þrír mán-
uðir og húsið verði tekið í
notkun um miðjan mars 2002 í
stað miðs desember í ár, eins
og áður var áætlað. Á fundi
bæjarráðs 21. júní sl. voru
lögð fram svör Halldórs við
spurningum bæjarráðsmanna
Samfylkingarinnar varðandi
fyrirhugaðar framkvæmdir
við nýtt íþróttahús Bjark-
anna. Þar kemur fram að
bygging fimleikahússins sé
ekki enn hafin, vegna þess að
flóknara og tímafrekara hafi
reynst að gera samninga um
hana en talið var í upphafi.
Verktakarnir Højgaard og
Shcultz sem ætluðu að standa
að byggingunni hafi helst úr
lestinni, en Ístak hf. muni
koma í þeirra stað og er stefnt
að því að framkvæmdir hefjist
um miðjan ágúst. Þá verði
Hafnarfjarðarbær ekki fyrir
neinum beinum kostnaði
vegna þessara tafa og muni
truflandi áhrif seinkunarinn-
ar verða óveruleg hvað varðar
æfingaaðstöðu Bjarkanna, en
þó einhver vegna búnings- og
baðaðstöðu. Seinkunin valdi
því að úthlutuðum tímum til
ÍBH fækki um 57 tíma á viku
til áramóta í gamla Hauka-
húsinu, en Björk ætti að geta
haft óbreyttan tímafjölda í
húsinu. Raunveruleg fækkun
til annarra íþróttafélaga verði
því um 20 tímar á viku til ára-
móta.
Þriggja mán-
aða seinkun
Hafnarfjörður
Fimleikahús Bjarkar
að Haukahrauni
MAGNÚS Gunnarsson bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar segir
að af hálfu bæjarins komi vel
til greina að sameinast Vatns-
leysustrandarhreppi, en
bendir jafnframt á að engar
formlegar viðræður séu farn-
ar af stað um þessi mál.
Magnús telur að stærra bæj-
arfélag komi báðum aðilum til
góða, Hafnarfjörður muni efl-
ast við stækkunina og Vatns-
leysustrandarhreppur muni
njóta aukinna möguleika sem
hluti af stærra bæjarfélagi.
Magnús telur einnig að
sameining Hafnarfjarðar,
Garðabæjar og Bessastaða-
hrepps sé æskileg. „Við höf-
um rætt þessa hugmynd við
Garðabæ, en áhugi á samein-
ingu reyndist einungis okkar
megin. Nú hefur Bessastaða-
hreppur nýlega hafnað sam-
einingu við Garðabæ, en ég
hef trú á að öðruvísi hefði ver-
ið tekið í málið þar ef um hefði
verið að ræða sameiningu
þessara þriggja sveitar-
félaga,“ segir Magnús.
Sameining kem-
ur vel til greina
Hafnarfjörður