Morgunblaðið - 25.07.2001, Side 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 23
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
Hamraborg 3, sími 554 1754
Opið mán.-fös. kl. 13-18, lau. kl. 10-14.
Vandaðir leður gönguskór
Léttir/þægilegir
GRI-tex vatnsvörn
Margar gerðir - Mikið úrval
Stærðir: 36-47
Góð reynsla
Verð frá kr. 5.990 til 10.990
GÖNGUSKÓMARKAÐUR
í húsi Blómahallarinnar, Hamraborg 3
30% afsláttur - Einstakt tækifæri
DÚNDUR
T I L B O Ð
UMBOÐSMENN UMM LAND ALLT
Teba veggofn og
helluborð saman í setti. Fjölkerfa
blástursofn, undir & yfirhiti, grill og
grillteinn. Helluborð með 4 hellum.
Verð áður kr 52.500
Eldavél með
grilli, 4 hellur, þar af 1
hraðsuðuhella. Geymsluhólf.
HxBxD:85x49,6x60 cm.
Verð áður kr. 38.900
Splunkuný gerð af
1000 snúninga Zanussi þvottavél.
Sérstakt hrað - og ullarþvottarkerfi.
Fékk hæstu einkunn fyrir þvottagæði.
Verð áður kr. 59.900
ZANUSSI
Suðurlandsbraut 16 108 Rvk. Sími 5880500
46.90
0
45.80
0
32.90
0
26.90
0
Kæliskápur í
borðhæð með rúmgóðu 18 lítra
frystihólfi. Sjálfvirk afþíðing í kæli.
Kælikerfi með þriggja ára ábyrgð
HxBxD:85x55x60 cm.
Verð áður kr. 33.900
stgr. k
r stgr. k
r
stgr. k
rstgr. k
r
ÞESSA viku stendur yfir í Tónlistar-
skóla Ísafjarðar master-class-nám-
skeið í píanóleik. Kennari á nám-
skeiðinu er
píanóleikarinn
Philip Jenkins
en þátttakendur
koma frá Íslandi,
Nýja-Sjálandi,
Skotlandi og
Georgíu.
Philip Jenkins
er fæddur
áEnglandi og
stundaði tón-
listarnám við Royal Academy of Mu-
sic í London og síðar í París.
Snemma á ferli sínum sem píanóleik-
ari vann hann til ýmissa verðlauna,
m.a. í London, Brüssel og víðar.
Jenkins hefur leikið víða, bæði aust-
an hafs og vestan, ýmist einn eða
sem einleikari með hljómsveitum og
kammerhópum. Íslenskum tónleika-
gestum er hann að góðu kunnur en
hann starfaði um tíma hér á landi,
bæði sem kennari og píanóleikari.
Hann er nú yfirkennari við píanó-
deildina í Royal Scottish Academy of
Music and Drama í Glasgow og hafa
nemendur hans unnið til verðlauna í
ýmsum píanókeppnum.
Nokkrir nemenda hans eru ein-
mitt þátttakendur á master-class-
námskeiðinu á Ísafirði og koma þau
frá Skotlandi, Nýja-Sjálandi og
Georgíu en þátttakendur eru einnig
íslenskir.
Námskeiðið hófst í Hömrum, sal
Tónlistarskóla Ísafjarðar, mánudag-
inn 23. júlí og stendur til föstudags-
ins 27. júlí, alla dagana kl. 13:30–
18:00. Meðal verka sem æfð eru á
námskeiðinu eru sónötur eftir
Beethoven og Prokofieff, prelúdíur
og fúgur eftir Bach, prelúdíur eftir
Debussy og Skrjabín, verk eftir
Chopin og fleiri.Námskeiðið fer fram
í master-class-formi og er öllu
áhugafólki velkomið að koma og
fylgjast með kennslunni, aðgangs-
eyrir er kr. 1.000 á dag.
Fimm tónleikar
Í tengslum við námskeiðið verða
haldnir þrennir tónleikar í Hömrum
og tvennir í Víkurbæ í Bolungarvík.
Píanóleikarinn Marina Nadiradze,
sem er einn af þátttakendunum,
heldur einleikstónleika í Bolungar-
vík fimmtudagskvöldið 26. júlí kl.
19:30 og í Hömrum föstudagskvöldið
27. júlí kl. 20.30.
Marina er fædd í Tbilisi í Georgíu
en stundar nú nám hjá Philip Jenk-
ins í Skotlandi. Hún er aðeins 22 ára
að aldri en hefur þegar unnið til
margra verðlauna og viðurkenninga.
Hún hefur haldið tónleika víða um
heim og er talin í hópi efnilegustu pí-
anóleikara sinnar kynslóðar í veröld-
inni. Á efnisskrá hennar eru m.a.
sónötur eftir Scarlatti, Beethoven og
Prokofieff.
Laugardaginn 28. júlí kl. 17:00
verða tónleikar í Hömrum, þar sem
fram koma nokkrir þátttakendur á
námskeiðinu og flytja fjölbreytta
efnisskrá, verk sem æfð hafa verið á
námskeiðinu. Þessir tónleikar verða
endurteknir í Bolungarvík á sunnu-
daginn kl. 16.00.
Lokatónleikarnir á námskeiðinu
verða í Hömrum sunnudagskvöldið
29. júlí kl. 20.30. Flytjendur á tón-
leikunum eru þau Philip Jenkins og
Marina Nadiradze og leika þau sam-
an á tvo flygla. Á efnisskránni eru
Bach-kórallinn „Slá þú hjartans
hörpustrengi“ í útsetningu Myra
Hess fyrir tvö píanó, Mozart-sónata,
Capriol Suite eftir Peter Warlock og
sónata fyrir tvö píanó eftir Francis
Poulenc.
Tónlistarskóli Ísafjarðar
Námskeið
og tónleikar
Philip Jenkins
„ÁHRIFAMIKIL, heillandi og
sérdeilis falleg bók sem ég
gleðst yfir að eiga.“ Þetta segir
Richard Shel-
ton, gagnrýn-
andi Times Li-
terary
Supplement,
um nýja bók
Haralds Sig-
urðssonar jarð-
vísindamanns í
Bandaríkjun-
um. Bókin heit-
ir: Melting the
Earth, The Hi-
story of Ideas on Volcanic Erup-
tion – eða Jörðin brædd, saga
hugmynda um eldgos. Haraldur
Sigurðsson er heimsþekktur vís-
indamaður sem starfað hefur í
Bandaríkjunum um árabil og
vakið athygli fyrir rannsóknir
sínar og hugmyndir um eldgos,
bæði á yfirborði jarðar og neð-
ansjávar, og áhrif þeirra á um-
hverfið en einnig fyrir kenningar
um hvarf risaeðlanna af jörðinni
eftir að loftsteinn rakst á jörðu
rétt utan við Yucatan-skagann í
Mexíkó.
Í nýrri bók sinni um hug-
myndasögu eldgosa segir gagn-
rýnandi TLS að Haraldur reki
ekki einungis sögu hugmynda
mannsins um eldgos, heldur
einnig hugmyndir manna um
ástæður eldvirkni. Haraldur set-
ur fram þá skoðun í bók sinni að
jarðvísindin hafi í of miklum
mæli fengist við að skoða eldgos
og greina framvindu þeirra og
áhrif, að rannsóknir á orsökum
eldvirkninnar sjálfrar hafi verið
vanræktar. Gagnrýnandinn lofar
víðfeðmi umfjöllunar Haralds og
að leitað sé fanga í klassískum
fræðum og jafnvel biblíunni til
að varpa ljósi á fyrstu hugmynd-
ir manna um eldvirkni. Sagan sé
svo rakin í þaula allt til nýjustu
rannsókna og hugmynda um eld-
virkni á Io, einu af tunglum
Júpíters, en Haraldur setur þar
fram kenningu um að hún geti í
veigamiklum atriðum verið ólík
eldvirkni á jörðinni.
Haraldur Sigurðsson er rit-
stjóri viðamikils alfræðirits um
eldfjöll og árið 1999 hreppti
hann verðlaunin AP Awards of
Excellence frá samtökum banda-
rískra útgefenda í flokki fræði-
rita, fyrir þá bók.
Jörðin brædd
Haraldur Sigurðsson
jarðvísindamaður fær
góða dóma fyrir nýtt
fræðirit.
Haraldur
Sigurðsson
BÚSQUEDA (Leit) nefnist úrval
ljóða Jóhanns Hjálmarssonar sem
komið er út á Spáni. Þetta er önn-
ur bókin með úr-
vali ljóða Jó-
hanns á Spáni,
en 1998 kom út
ljóðasafnið Anto-
logía. Það mælt-
ist vel fyrir og
var kynnt á
Bókastefnunni í
Madríd. Bæk-
urnar eru báðar
í þýðingu José
Antonio Fern-
ández Romero
og skrifar hann
jafnframt for-
mála. Bókin sem
er 148 síður er
með kápumynd
eftir Alfreð
Flóka og eru
einnig teikning-
ar eftir hann í
bókinni.
Í bókinni eru
127 ljóð úr flestum ljóðabókum Jó-
hanns, frá þeirri fyrstu, Aungli í
tímann (1956) til Marlíðenda
(1998). Útgefandi er Libros del
Innonmbrable í Zaragoza og rit-
stjóri bókaflokksins, sem úrval Jó-
hanns kemur út í, er skáldið Raúl
Herrero.
Skáld innileika
Ljóð eftir Jóhann hafa einnig
birst í fleiri bókum og tímaritum í
þýðingu Fernández Romero, m.a. í
viðamiklu norrænu ljóðasafni,
Poesía Nórdica (1995), en fyrir
þýðingar sínar á ljóðum íslenskra
samtímaskálda í þeirri bók hlaut
Fernández Romero æðstu þýð-
endaverðlaun Spánar. Romero,
sem er háskólakennari í Vigo, hef-
ur m.a. þýtt Íslendingasögur og
Íslendingaþætti, íslenskar þjóð-
sögur og skáldsögur eftir Halldór
Laxness og Einar Má Guðmunds-
son.
Í formála að ljóðasafninu leggur
Fernández Romero áherslu á fjöl-
breytni ljóða Jóhanns Hjálmars-
sonar sem hann segir að finni ljóð
alls staðar, í öllum hlutum. Hann
segir skáldið söngvara daglegs lífs
og skáld innileika, landslagsmálara
sálar og jarðar.
Úrval ljóða
Jóhanns
Hjálmars-
sonar á
spænsku
J.F. Romero
Jóhann
Hjálmarsson
Nú stendur yfir málverkasýning
Ragnars Páls Einarssonar í Galleríi
Sölva Helgasonar í Lónkoti í Skaga-
firði. Þetta er 11. einkasýning Ragn-
ars Páls. Á sýningunni eru eingöngu
landslagsmyndir frá Skagafirði, olíu-
málverk og vatnslitamyndir.
Ragnar Páll Einarsson er uppalinn
á Siglufirði og stundaði nám í Hand-
íða- og myndlistskólanum í Reykjavík
og framhaldsnám í London. Hann
hefur haldið einkasýningar víða um
land og tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum, hér á landi og erlendis. Verk
eftir hann eru í eigu ýmissa safna,
stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.
Ragnar Páll er félagi í Sambandi ís-
lenskra myndlistarmanna.
Sýningin er opin til 30. júlí alla daga
á sama tíma og ferðaþjónustan í Lón-
koti, frá hádegi til miðnættis. Að-
gangur er ókeypis.
Skagfirskt landslag