Morgunblaðið - 25.07.2001, Síða 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðmundur Lúð-vík Árnason
fæddist á Fiskinesi
við Drangsnes í
Steingrímsfirði 4.
apríl 1930. Hann lést
á sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki 15. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Árni
Sigurjón Ingvarsson,
sjómaður frá Ísafirði,
og Anna Guðmons-
dóttir, frá Kolbeins-
vík í Árneshreppi á
Ströndum. Þau voru
fjögur börnin, Guð-
mundur elstur, Sveinsína Andrea
og tvíburasysturnar Sigurlaug
Inga og Auður Minný.
Hinn 20. nóvember 1954 kvænt-
ist Guðmundur eftirlifandi eigin-
konu sinni, Elínu Halldóru Lúð-
víksdóttur frá Akureyri, f. 6.
september 1934. Foreldrar henn-
ar voru Lúðvík Jónsson bifvéla-
virki og Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir á Akureyri. Börn
Guðmundar og Elínar eru fimm: 1)
Sigurbjörg þroskaþjálfi, f. 26.
febrúar 1955, gift Þorsteini
Steinssyni, sveitarstjóra á Vopna-
firði. Börn þeirra eru Guðmundur
Vignir, Ríta Björk og Sandra Lind.
Unnusta Guðmundar Vignis er Ás-
laug Jóelsdóttir. 2)
Anna Jóna leikskóla-
kennari, f. 6. júlí
1962, gift Finnboga
A. Baldvinssyni, for-
stjóra í Cuxhaven í
Þýskalandi. Börn
þeirra eru Fjölnir,
Björg og María. 3)
Pétur, vélstjóri og
nemi í Honningsvåg í
Noregi, f. 6. júlí
1964. Sonur hans er
Kolbeinn Jóhann á
Akureyri. 4) Elín
Berglind leiðbein-
andi, f. 11. desember
1965, gift Trond Olsen, bakara í
Reykjavík. Börn þeirra eru Ragn-
ar Freyr og Elín Anna. 5) Birkir
Lúðvík, tónlistarmaður í Noregi, f.
20. desember 1969. Dóttir hans er
Dagmar Rut í Reykjavík.
Guðmundur útskrifaðist frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
vorið 1955. Hann réðst sem skip-
stjóri til Útgerðarfélags Skagfirð-
inga árið 1968. Því starfi gegndi
hann í 15 ár og var lengst af skip-
stjóri á Drangey SK 1. Hann var
hafnarvörður á Sauðárkróki frá
1983–2000.
Útför Guðmundar fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Einn er vinur öðrum betri,
elsku pabbi minn.
Hylla viljum síðla á vetri
vaska sjómanninn.
Sílin er uxu frá hans setri
styrkja ættu bálkinn.
Á hafsins öldum löngum dvaldir
ungum þínum frá.
Þá fengu krakkafætur kaldir
mömmu að kúra hjá.
Er hún sterk sú kona er valdir
skal hún þakkir fá.
Slóttug seildist til þín veira
sem ei gefur grið.
Staðreynd þá er sárt að heyra
skemmir mörg markmið
sterkur varst en gast ei meira
Guð þér gefur frið.
Geymi ég í hjarta mínu
mætar minningar.
Sigldu áfram fleyi þínu,
forðast grynningar.
Opnast Drottins dyrnar fínu
þér til kynningar.
Þín,
Sigurbjörg.
Guðmundur fæddist 4. apríl 1930
á Fiskinesi við Steingrímsfjörð.
Hann var því 71 árs er hann lést
hinn 15. júlí sl. á sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki.
Ég man fyrst eftir Guðmundi um
það leyti sem hann flutti á Sauð-
árkrók með eiginkonu sinni, Elínu
H. Lúðvíksdóttur, og börnum og
gerðist skipstjóri á Drangey SK-1.
Hann kom til Sauðárkróks árið 1968
með Drangey, sem áður hét Fróða-
klettur, en Útgerðarfélag Skagfirð-
inga hafði þá keypt skipið til þess að
efla útgerð og fiskvinnslu í Skaga-
firði. Útgerð þessa skips gekk um
margt vel og fiskaðist oft bærilega
og ekki síst á hafísárunum þegar oft
þurfti að beita lagi til þess að kasta
trollinu milli ísspanga. Í framhaldi
var síðan Hegranesið SK-2 keypt
1971 frá Frakklandi og tók Guð-
mundur við stjórn þess og sótti hann
skipið til Frakklands. Þetta skip var
einn af fyrstu skuttogurum lands-
manna og gekk rekstur hans einnig
ágætlega. Næsta verkefni Útgerð-
arfélagsins var að smíða nýtt skip í
Japan, sem fékk nafnið Drangey
SK-1, og sótti Guðmundur það til
Japans árið 1973 og var skipstjóri á
því þar til hann fór í land og gerðist
hafnarvörður á Sauðárkróki árið
1983 og starfaði við það fram til árs-
ins 2000 er hann fór á eftirlaun.
Í raun má segja að hugur Guð-
mundar hafi alla tíð leitað til sjáv-
arins, allt frá unglingsárunum á
Ströndum, þar sem hann fæddist og
ólst upp fram á unglingsárin, og þar
til hann skildi við. Eftir að hann kom
í land hafði hann mikil samskipti við
skipstjórnarmenn í tengslum við
starfið á höfninni. Hann hafði og
mikið og gott áhugamál sem trillan
var og yfir sumartímann var oftast
verið að hugsa um hvert skyldi róa
og hvar líklegast væri að afla fiskjar.
Guðmundur var alger veiðimaður í
eðlinu og einna líkast var sem hann
hefði tilfinningu fyrir því hvar mest
var fiskivonin á hverjum tíma. Hann
hafði líka þann hæfileika að halda í
vonina þegar tregfiskirí var og gafst
seint upp við að leita að góðum lóðn-
ingum, þar sem búast mátti við að
reka í þann „gula“. Hann lifði svo
sannarlega eftir máltækinu „Þeir
fiska sem róa.“ Guðmundur var
áberandi og litríkur í bæjarlífinu á
Sauðárkróki og tók með starfi sínu
virkan þátt í því að byggja upp tog-
araútgerð á Sauðárkróki sem ásamt
öðru hefur styrkt mjög atvinnulíf á
staðnum. Hann hafði ávallt skýrar
skoðanir á hlutunum og var tilbúinn
að láta þær í ljós. Minnisstæðar eru
kraftmikilar umræður á heimilinu
um þau mál er efst voru á baugi á
hverjum tíma og ekki stóð á því að
Guðmundur hefði skoðanir á því
hvernig hlutirnir ættu að vera.
Kynni okkar Guðmundar urðu
mun meiri er ég varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að hefja sambúð árið
1975 með Sigurbjörgu, elstu dóttur
þeirra Guðmundar og Elínar. Frá
þeim tíma höfum við átt saman
marga góða stundina í blíðu og
stríðu á sjó og landi. Í sumarfríun-
um fórum við oft saman í fjallaferð-
ir, veiðitúra eða önnur ævintýri svo
sem sjóróðra á trillunni. Tilhlökk-
unin var alltaf jafnmikil að fá tæki-
færi til þess að fara með skippern-
um á sjóinn og munstra sig sem
háseta. Margt var brallað og margar
sögur sagðar. Þetta voru góðar
stundir sem við munum geyma á sitt
hvorum staðnum þar til við hittumst
aftur hinum megin hafsins og getum
tekið upp þráðinn á nýjan leik. Ég
kveð þig, kæri vinur, og vona að þú
hafir það gott þar sem þú ert. Þín er
sárt saknað en minningin um frísk-
an og góðan vin mun varðveitast í
hugum okkar.
Þorsteinn Steinsson.
Gott er sjúkum að sofna
meðan sólin í djúpinu er.
Ef til vill dreymir þá eitthvað
sem enginn í vöku sér.
(D.S.)
Kæri bróðir, mikið er erfitt að
kveðja þig, okkur finnst þú fara allt-
of snemma.
Minningarnar hrannast upp frá
bernsku okkar, lítil börn að leik í
fjöru eða þú að tálga og smíða þér
báta og sigla þeim. Sjórinn varð
snemma þinn annar heimur, þig
dreymdi um að eignast bát og fiska
og auðvitað léstu þann draum ræt-
ast. Ungur fórstu að stunda sjóinn,
fyrst sigldirðu um heimsins höf á
norskum skipum og síðan sem
happasæll skipstjóri á vertíðar- og
síldarbátum og seinna á togurum.
Svo kom að því að þú á besta aldri
þurftir að hætta á sjó vegna veik-
inda, en þá fórstu að vinna sem
hafnarvörður svo ekki slitnaði band-
ið milli þín og sjávarins. Þú varst svo
heppinn að eignast litla bátinn þinn
og rerir á honum þegar færi gafst.
Síðustu tvö sumur rerir þú frá Suð-
ureyri, þar leið þér vel og þú eign-
aðist þar góða vini. En þar kom kall-
ið, þú greindist með krabbamein
sem nú hefur dregið þig til dauða á
einu ári. Síðustu mánuðirnir voru
erfiðir en þín góða kona og börn
viku ekki frá þér og gerðu allt til að
létta þér stundirnar.
Ég sá þig hverfa í sólarátt
sólskinsdag.
Og sólin vermdi veginn þinn,
þá var svo bjart um himininn,
en svo kom sólarlag.
Og húmið skyggði huga minn
harmadag.
Og hjartað finnur söknuð sinn,
þótt sólin gylli himininn,
er sífellt sólarlag.
(J.G.)
Við þökkum allar glöðu og góðu
stundirnar og biðjum góðan Guð að
geyma þig elsku bróðir.
Elínu, börnum, tengdabörnum og
barnabörnum sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Einnig
viljum við senda starfsfólki Sjúkra-
húss Sauðárkróks þakklæti fyrir
hlýja og góða umönnun.
Þínar systur,
Sveinsína, Sigurlaug, Auður
og fjölskyldur.
Í dag er jarðsunginn frá Sauð-
árkrókskirkju góður vinur og félagi,
Guðmundur Árnason skipstjóri og
hafnarvörður.
Að loknu miklu dagsverki varð
Guðmundur að takast á við illvígan
sjúkdóm, sú barátta er nú töpuð.
Eftir standa góðar minningar til
þeirra sem um sárt eiga að binda.
Leiðir okkar Guðmundar lágu
saman árið 1968 þegar hann var ráð-
inn skipstjóri til Útgerðarfélags
GUÐMUNDUR
LÚÐVÍK ÁRNASON
>. .;
**
.
8
;-5
8" &# #'" #'"
# #,
'
-
;-
7. #
?
!//#
57 *.. 7
. 4
8" *. 4'"
( 6. 4'" ,
6 ; ' . ; '
' *
**
' - I;151-
$# (#2 HJ
%!#24,
) ; '
0
@
>
:+. . '
A 7
+. ) A 7
. #.
# C&9( :!+ )# '"
2
" #2 '"
:# #:+ :# #:# #:+ ,
$
7
- %)=D
) +,
5
!8
- . . (
1
!#/#
> * 2
(
)
&41&&7 *
" :
# : '"
+ 8" #'"
#.# '"
# # (# '"
#'" (
:# #:+ # +)):+ ,
B
;-./;-./; $ &4(
('#
) *
. #
- . $ (
4
!"##
9
> $!+ $!# #
"# 4$!+ '" < ( /# 6
$!# $!+ 8" '"
- # $!+
.)$!# # $!+ ;# %. 4'"
<# :!+ $!+ '" $!+
$!+ ) $!+ -# #4#/# 6'"
$!# ( $!+ '"
64#
'#2#&' $!+ '"
:# #:+ :# #:# #:+ ,