Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 2
Stjórn Félags fasteignasala skrifar félagsmálaráðherra
STJÓRN Félags fasteignasala hef-
ur beint fyrirspurn til félagsmála-
ráðherra varðandi nýjar reglur um
viðmiðun lánsfjárhæða Íbúðalána-
sjóðs, en nýtt brunabótamat tekur
gildi 15. september næstkomandi
og er þess óskað að svar við fyr-
irspurninni liggi fyrir ekki seinna
en á þriðjudaginn kemur. Í bréfi
félagsins til félagsmálaráðherra
kemur fram að á undanförnum
misserum hafi fólk í fasteignavið-
skiptum beðið þess að nýjar reglur
í þessum efnum litu dagsins ljós.
„Því miður hefur ekkert bólað á
þessum nýju reglum og hinn 15.
september nk., er nýtt brunabóta-
mat tekur gildi, sem hingað til hef-
ur verið miðað við um hámarkslán,
munu möguleikar fólks til fast-
eignakaupa kollvarpast, þar sem
hið nýja brunabótamat mun hafa í
för með sér verulega lækkun
brunabótamats á flestum fasteign-
um í landinu,“ segir í bréfinu.
Guðrún Árnadóttir, formaður
Félags fasteignasala, sagði að
ríkjandi væri óvissuástand á fast-
eignamarkaði vegna þessa og
óvissa leiddi af sér óöryggi. Kallað
hafi verið eftir nýjum reglum frá
því í vor er ljóst var að brunabóta-
mat myndi lækka og fasteignamat
myndi hækka. Nú hafi allt sumarið
liðið og ráðherra enn ekkert gefið
út, þannig að fyrirspurnum til fast-
eignasala hafi fjölgað gífurlega,
auk þess sem mál í biðstöðu hafi
hrannast upp.
Guðrún sagði að það gæti ekki
gengið að lánveitingar ættu að
miðast við brunabótamat sem orðið
væri þetta lágt. Lánveitingar hlytu
eðlilega að miðast við markaðsverð
og framboð og eftirspurn ættu að
ráða verði fasteigna, ekki það
hvort brunabótamat væri hátt eða
lágt.
Ekki náðist í Pál Pétursson
félagsmálaráðherra í gærkvöldi, en
hann var erlendis.
Spurt um viðmiðun láns-
fjárhæða Íbúðalánasjóðs
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isRagnheiður stýrði kvennaliði
Vals í bikarúrslit/B4
Hauki Inga Guðnasyni líkt við
hollenskan landsliðsmann/B2
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r25.
á g ú s t ˜ 2 0 0 1
HELGI Símonarson frá
Þverá í Svarfaðardal
lést í gær, föstudaginn
24. ágúst. Helgi fæddist
13. september 1895 í
Gröf í Svarfaðardal og
vantaði því ekki nema
tæpar þrjár vikur upp á
að ná 106 ára aldri.
Helgi hefur síðustu ár
verið elsti karlmaður á
Íslandi.
Foreldrar Helga
voru Símon Jónsson úr
Lágubúð í Skagafirði og
Guðrún Sigurjónsdóttir
í Gröf. Símon, faðir
Helga, drukknaði þegar hann var á
öðru ári. Afi hans skaut þá skjólshúsi
yfir hann og móður hans.
Helgi giftist eiginkonu sinni, Maríu
Stefaníu Stefánsdóttur, 4. júní 1927.
Þau eignuðust sex börn og komust
þrjú þeirra upp; Halldór, Sigrún
Petrína, bæði látin, og Símon sem býr
á Þverá. María lést 20. nóvember
1963. Helgi lauk gagnfræðaprófi árið
1919 og kennaraprófi árið 1923. Hann
stundaði kennslu eftir
það allt til ársins 1945
og var skólastjóri
barnaskólans á Dalvík
um tíma. Samhliða
kennslu og bústörfum
sinnti Helgi félags- og
menningarmálum af
miklu kappi. Hann var í
hreppsnefnd og átti
sæti á Búnaðarþingi.
Helgi bjó á hluta af
jörðinni Völlum í Svarf-
aðardal frá 1914 til 1930
en það ár keyptu hjónin
Þverá í Svarfaðardal.
Þar bjó Helgi í 70 ár en
vorið 2000 fluttist hann á dvalarheim-
ilið Dalbæ á Dalvík.
Helgi var mikill áhugamaður um
íþróttir og þó aðallega knattspyrnu.
Fylgdist hann með knattspyrnu í
sjónvarpi allt fram á síðustu ár. Helgi
var fylgismaður Liverpool í ensku
knattspyrnunni og birtist frásögn af
honum í leikskrá Liverpool haustið
2000, þar sem sagði að Helgi væri
elsti áhangandi liðsins í heiminum.
Andlát
HELGI
SÍMONARSON
GUÐNI Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, vígði í gær nýtt þúsund
hektara útivistarsvæði í Esjuhlíð-
um, en hann gróðursetti tré á svæð-
inu af þessu tilefni.
Búið er að skipuleggja útivistar-
svæðið og mun Skógræktarfélag
Reykjavíkur hafa umsjón með því.
Búist er við að Esjuhlíðar verði eitt
helsta útivistarsvæði höfuðborg-
arinnar í framtíðinni.
Morgunblaðið/RAX
Nýtt útivist-
arsvæði
í Esjuhlíðum
SAMÞYKKT var á aðalfundi Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi í
gær að veita stjórn SSA heimild til
að kæra úrskurð Skipulagsstofnunar
um Kárahnjúkavirkjun. Mikill meiri-
hluti fundarmanna var þessu sam-
þykkur en þrír greiddu atkvæði á
móti.
Stjórn sambandsins og orku- og
stóriðjunefnd SSA var falið að fara
yfir úrskurð Skipulagsstofnunar um
mat á umhverfisáhrifum Kára-
hnjúkavirkjunar og kæra hann til
umhverfisráðherra ef ástæða er til.
Ljóst er að bæjarstjórn Fjarða-
byggðar mun kæra úrskurðinn og
hið sama mun Afl, starfsgreinafélag
Austurlands, að öllum líkindum
gera. Þá vinnur Landsvirkjun að
gerð kæru.
Frestur til að kæra úrskurðinn er
til 5. september nk.
Stjórn SSA
heimilt að
kæra úr-
skurðinn
TILLÖGUR liggja fyrir um endur-
fjármögnun Íslenska sjónvarps-
félagsins, sem meðal annars rekur
SkjáEinn. Þær fela í sér að skuldum
verði breytt í lán með breytirétti í
hlutafé að upphæð 220 milljónir kr.
og að jafnframt komi inn í fyrirtækið
reiðufé að upphæð 200 milljónir
króna.
Samkvæmt bréfi sem Morgun-
blaðið hefur undir höndum og merkt
er sem trúnaðarmál nema heildar-
skuldir félagsins í lok þessa mánaðar
um 800 milljónum kr., en verða rúm-
ar 700 milljónir ef þær tillögur sem
að ofan greinir ná fram að ganga og
er þá með talið lánið með breytirétti í
hlutafé að fjárhæð 220 milljónir kr.
Þá verða 100 milljónir kr. notaðar til
að greiða niður skuldir og aðrar 100
milljónir til greiðslu vaxta af breyt-
anlega skuldabréfinu og af langtíma-
lánum frá áramótum og fram til
næsta hausts. Með þessum aðgerð-
um segir í bréfinu að talið sé að Skjá-
Einum takist að endurfjármagna
rekstur sinn út ágústmánuð 2002
miðað við að tekjur félagsins verði
svipaðar og þær hafa verið undan-
farið ár og að reksturinn skili já-
kvæðu EBIDTA á næsta ári upp á 50
milljónir króna.
Þá kemur fram varðandi skulda-
bréfið sem breytanlegt er í hlutafé
að eigendur skuldabréfaflokksins fái
þrjú stjórnarsæti af fimm og neit-
unarvald um stjórnarformennsku.
Fram kemur einnig að ráðinn verði
nýr framkvæmdastjóri, sem fjárfest-
ar í skuldabréfaflokknum hafi neit-
unarvald um.
Páll Kr. Pálsson, stjórnarformað-
ur Íslenska sjónvarpsfélagsins, vildi
ekkert tjá sig um þessi mál er Morg-
unblaðið hafði samband við hann í
gærkveldi. Ekki náðist í Árna Þór
Vigfússon sjónvarpsstjóra.
Tillögur um endurfjármögnun Íslenska sjónvarpsfélagsins
Hluta skulda verði breytt í
lán með breytirétti í hlutafé