Morgunblaðið - 25.08.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
frumsýning einnig á Akranesi og Keflavík
Uppbyggingarstefna í Grafarvogi
Leið til
ábyrgðar
Í dag er lokanámskeiðsem Miðgarður ogFoldaskóli standa að
fyrir kennara og leikskóla-
kennara. Þetta er síðasta
námskeiðið af þremur sem
fjallar um uppbyggingar-
stefnu (Restitution). Dr.
Jeff Grumley hefur haldið
erindi á þessum námskeið-
um öllum. Hann var
spurður hvert væri megin-
inntak uppbyggingar-
stefnu.
„Þetta er leið uppbygg-
ingar til að kenna börnun-
um að vera hluti af mann-
legu samfélagi.“
– Hvernig er börnum
kennt þetta?
„Þau þurfa að læra
sjálfsaga, fá tækifæri til að
læra af mistökum sínum
og verða fullgildir aðilar að sam-
félaginu. Þetta leiðir börnin til
ábyrgðar þannig að þau vilji eins
og aðrir bæta hegðun sína og þau
þurfa að finna að þau séu velkom-
in aftur í hópinn. Þau hafa gert
hópinn sterkari með vilja sínum
til þess að bæta fyrir það sem af-
laga hefur farið. Hópurinn gleðst
yfir framförunum. Fólk lærir ekki
alla hluti í fyrsta sinn sem það
gerir þá, t.d. að synda, það er ekki
hægt að búast við að börn geri allt
rétt sem þau eiga að gera í fyrsta
sinn. Við hjálpum börnum að upp-
götva hvernig þau eigi að vera að-
ilar að samfélaginu, fólk getur
ekki getur gegnt hlutverkum sín-
um í samfélaginu nema að hafa
lært að taka ábyrgð á sjálfu sér.“
– Hvað áttu við með ábyrgð í
þessu tilliti?
„Það þýðir að fólk geti mætt
sínum þörfum án þess að það
komi niður á þörfum annarra.“
– Hvar er þessi stefna upp-
runnin?
„Diane Gossen er höfundur
bókarinnar Restitution: Restruct-
ing School Discipline. Hún byggir
á fræðilegri athugun á mannlegri
hegðun, sem kölluð er skynræn
stýrikenning (Perceptual Control
Theory), en með í myndinni eru
líka skoðanir sem fólk hafði
myndað sér áður. Leiðarljós upp-
byggingarstefnunnar er; við, í
stað ég. Foreldrar, kennarar,
skólaráðgjafar og aðrir koma að
uppeldi barnsins með því að vera
því góð fyrirmynd í hegðun. Það
er glatað tækifæri til uppbygg-
ingar ef barn t.d. hellir niður
mjólk og maður segir: „Æ, þetta
er allt í lagi, ég þríf þetta upp.“
Við getum líka sagt barninu; „Þú
verður að þrífa þetta upp.“ Þá fær
barnið ekki tækifæri til þess að
leiðrétta það sem úrskeiðis fór að
eigin frumkvæði. Við erum alltaf
að flýta okkur svo mikið – setjum
reglur til þess að flýta fyrir okk-
ur, og leggjum þar af leiðandi
ekki áherslu á megininntakið,
sem er samband á milli
einstaklinga.
– Hvaða ráð gefur þú
uppalendum til þess að
nýta uppbyggingar-
stefnuna í uppeldi?
„Með því að uppal-
andi spyrji sig þeirrar
spurninga; „hvernig
uppalandi vil ég vera?“ metur
hann sína hegðun út frá því hvaða
mynd hann hefur af sér sem upp-
alanda og kennir þannig barninu
sjálfsmat – að það sé í lagi að gera
mistök og við lærum af mistökum
okkar. Það er svo áhrifamikið fyr-
ir barnið að horfa á foreldrið eða
kennarann og sjá að þau þurfa
líka að byggja sig upp.“
– Eru einhverjar sérstakar að-
ferðir betri en aðrar í þessu sam-
bandi?
„Það sem foreldri ætti síst að
segja er: Hættu þessu. Frekar
ætti foreldrið að viðurkenna
hegðun barnsins og koma því til
skila að í þessari fjölskyldu sé í
lagi gera mistök og að við lærum
af okkar mistökum. Eftir að barn-
ið hefur leiðrétt það sem úrskeiðis
fór þá spyr foreldrið: Hvað segir
þetta um þig sem persónu – að þú
viljir leiðrétta það sem fer úr-
skeiðis. Með því að nota þessa
uppbyggingarstefnu til langs
tíma gerir það barnið sterkara og
hegðunarvandkvæðin verða
færri. Það dásamlega er að börnin
vilja læra meira og vilja laga það
sem úrskeiðis fer – þannig verður
fjölskyldan eða samfélagið sterk-
ara. Fólki líður betur saman í um-
hverfi sínu. Þetta vekur vonir og
ástæða er til að fagna því. Það er
gleðilegt að hægt er að aga barn á
þann hátt að það standi jafnrétt
eftir hvað sjálfsvirðingu snertir.“
– Er ástandið hér ólíkt því sem
þú þekkir úr þínu umhverfi hvað
uppeldismál snertir?
„Ég held að við sjáum hér
samskonar hegðun og þegar við
erum að horfa á hegðunarerfið-
leika þá: „er það besta aðferð
barnsins til að uppfylla sínar þarf-
ir,“ segir Diane Gossen í fyrr-
nefndri bók sinni.“
– Er þessi stefna notuð víða?
„Já, hún er notuð í yfir 150
borgum víða um heim
t.d. í Bandaríkjunum,
Kanada, Ástralíu,
Indónesíu og Slóveníu.
Að mestu er stefnan
notuð í skólastarfi og
einnig bæði í félags-
þjónustu, lögreglu-
störfum og meðferðar-
stofnunum sem taka á málefnum
barna og unglinga.“
– Hvernig hefur þetta starf
gengið hér?
„Ég hef kennt bæði kennurum
og öðrum fagaðilum sem nú þegar
eru að starfa vel hvernig þeir geti
nýtt sér þessa stefnu til að ná
betri árangri í starfi.
Þetta er hluti af þróun sem
hófst hér á landi á síðasta ári.“
Jeff Grumley
Jeff Grumley fæddist í
Eugene, Indíana í Bandaríkj-
unum. Hann stundaði sálfræði-
nám og lauk doktorsprófi í þeirri
grein í Chicago. Hann hefur
starfað við sína sérgrein um ára-
bil á eigin stofu, hann hefur haft
umsjón með meðferðarstofnun
fyrir unglinga og sem ráðgef-
andi sérfræðingur í skólum og
bæjarhverfum. Hann er kvæntur
Therese Erickson Grumley, þau
eiga fjögur börn.
Uppbygging-
arstefna
notuð til
langs tíma
gerir barnið
sterkara
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið
unnið að langþráðum vegafram-
kvæmdum hér í Suðursveit, og hef-
ur mörgum þótt tími til kominn. Um
er að ræða vegalagningu frá Trölla-
skörðum og austur fyrir bæinn
Smyrlabjörg, eða um 4,5 km.
Þessi vegarspotti hefur verið eini
malarkaflinn á hringveginum frá
Reykjavík austur að Almanna-
skarði. Þ.S.-verktakar frá Egils-
stöðum hafa nú starfað hér um hríð
með stórvirk tæki sín. Blindbeygjur
verða færðar til betri vegar og nýr
vegur mun liggja norður úr Upp-
salahálsinum og yfir nýja brú hjá
Smyrlabjörgum.
Klettanef hafa verið mölvuð,
skerðingar gerðar og skurðir grafn-
ir. Tilboð Þ.S verktaka nam 38,6
millj. kr. sem er 92,5% af kostnaðar-
áætlun. Veginum verður skilað með
slitlagi fyrir 10. október, en lokafrá-
gangur bíður næsta vors. Gamla
slóðin var hálfgerð slysagildra og
verður hér því um að ræða mikla
vegabót.
Morgunblaðið/Einar Jónsson
Hringvegurinn bættur
verulega í Suðursveit
Kálfafellsstað. Morgunblaðið.