Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 9 Neðst við Dunhaga sími 562 2230 Satindragtir með buxum og-eða pilsum Opið mán.-fös. kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14. Glæsilegar haustvörur Ótrúlegt úrval Buxur, peysur, jakkar, kápur Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. á horni Laugavegs og Klapparstígs,sími 552 2515 Sprengitilboð á stólum 2 fyrir 1 Verð dæmi: Áður kr. 45.000 Nú kr. 22.000 Sígild verslu n Erum að taka upp glæsilegan þýskan fatnað í stórum stærðum                     Ljósakrónur Bókahillur Skatthol Íkonar www.simnet.is/antikmunir Full búð af nýjum vörum Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977. SKÓVERSLUN KÓPAVOGS HAMRABORG 3  SÍMI 554 1754 Þjónusta í 35 ár ÚTSALAN SÍÐASTI DAGUR AÐEINS 3 VERÐ 990 1.990 2.990 10.300 kr. HELGARTILBOÐ 5.890 kr. 3.890.- 5.990.- Tilboð Tilb oð Opið til kl. 16 á laugardögum NÝR yfirmaður, Dean Kiyohara kafteinn, tók við stjórn Flotastöðv- ar varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli í gær, 24. ágúst. Flotastöðin annast rekstur flug- vallarmannvirkja og þjónustu- stofnana á Keflavíkurflugvelli. Fráfarandi yfirmaður Flota- stöðvarinnar, Mark Anthony kafteinn, hefur gegnt starfinu und- anfarin tvö ár. Hann tekur nú við deildarstjórastarfi í aðalstöðvum Atlantshafsflota Bandaríkjanna í Norfolk, Virginíuríki. Dean Kiyohara nam eðlisfræði við Kaliforníuháskóla og hlaut meistaragráðu í fjármálastjórn frá framhaldsskóla Bandaríkjaflota. Hann hóf feril sinn sem flugliðsfor- ingi og hefur starfsvettvangur hans einkum verið á sviði eftirlits- og kafbátaleitarflugs, þ.á m. sem flugsveitarforingi. Hann hefur auk þess gegnt trúnaðarstörfum í flota- málaráðuneytinu og framhalds- skóla flotans. Eiginkona hans er Ryoko og eiga þau saman soninn Kevin. Yfirmannaskipti hjá Flotastöð varnarliðsins Ljósmynd/Hilmar Bragi Yfirmannaskipti varnarliðsins fóru fram á föstudaginn. Á myndinni má m.a. sjá vinstra megin fráfarandi flotaforingja, Mark Anthony, en til hægri við hann er Barbara J. Griffiths, sendiherra Bandaríkjanna á Ís- landi. Þá má sjá nýja flotaforingjann, Dean Kiyohara, og fjölskyldu hans. EKKI er útséð með hvernig brugðist verður við nýlegu áliti kærunefndar fjöleignarhúsamála sem taldi ólög- mæta þá ákvörðun stjórnar Rekstr- arfélags Kringlunnar að fjarlægja tvo rúllustiga í norðurhúsi Kringl- unnar án þess að fyrir lægi afstaða félagsfundar. Á fundi stjórnar rekstrarfélagsins í síðustu viku var álitið lagt fram og ákveðið að óska eftir viðræðum um málið við álits- beiðendur á fundi hinn 29. ágúst nk. Einar I. Halldórsson fram- kvæmdastjóri Kringlunnar telur eðlilegt að málið verði leyst innan félagsins án þess að farið verði með það fyrir dómstóla. Náist hins vegar ekki sátt í málinu innan Kringlunnar, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins, eru dóm- stólaleiðir færar fyrir báða aðila. Sá aðili sem álitið gengur gegn, þ.e. stjórn Rekstrarfélags Kringlunnar, hefur möguleika á að fá álitinu hnekkt fyrir dómstólum og að sama skapi hefur hópur eigenda Kringl- unnar, þ.e. álitsbeiðendur, mögu- leika á að leita til dómstóla og krefj- ast innsetningar rúllustiganna í framhaldi af umræddu áliti. Hin umdeilda ákvörðun rekstrar- félagsins var samþykkt hinn 7. desember 2000. Í forsendum álits kærunefndar- innar kemur fram að þetta úrlausn- arefni heyri ótvírætt undir lög um fjöleignarhús og að atbeina félags- fundar hafi þurft til ákvörðunarinn- ar. Álit kærunefndar vegna rúllustiga í Kringlunni Óskað verður eftir við- ræðum við álitsbeiðendur SLÁTURFÉLAG Suðurlands á Selfossi er meðal þeirra fyr- irtækja sem hafa hafið sum- arslátrun sauðfjár en hún hófst í lok júlí. Að sögn Her- manns Árnasonar, stöðvar- stjóra á Selfossi, gengur slát- urvertíðin vel. Hermann telur að búið sé að slátra um 4.000 lömbum hingað til. „Það er heldur meira fram- boð af sláturlömbum núna en var á seinasta ári. Ástæður þess tel ég meðal annars þær að Sláturfélagið er eini slát- urleyfishafinn á Suðurlandi en þeir voru tveir í fyrra þegar Goði [Kjötumboðið] rak slát- urhús í Þykkvabænum. Að auki er ástand lamba mjög gott en árferði hefur verið hagstætt fyrir lambfénað í sumar.“ Hermann segir að slátrunin sé að stigmagnast um þessar mundir en hún verði eflaust í gangi fram að jólum. Að sögn hans selst kjötið mjög vel en hluti þess fer ferskt til út- flutnings. Kjötumboðið hf., áður Goði hf., hefur leigt út sláturhús sín til kaupfélaga á landinu en ekkert þeirra hefur hafið slátrun á sauðfé. Slátrun í þeim húsum hefst í næsta mánuði. Sumar- slátrun hefur farið vel af stað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.