Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 18
LANDIÐ
18 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í VIKUNNI kom tíuþúsundasti
gestur sumarsins í Hvalamiðstöðina
á Húsavík. Það reyndist vera belgísk
fjölskylda frá Antwerpen, Nauwel-
aers að nafni.
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðu-
maður Hvalamiðstöðvarinnar, tók á
móti belgísku fjölskyldunni og færði
henni blómvönd auk þess sem börnin
fengu að gjöf boli merkta Hvalamið-
stöðinni.
Ásbjörn sagðist hafa látið sig
dreyma um 10% aukningu gesta í
sumar en að raunin væri sú að það
sem af er sumri er aukningin 15%.
Hann sagði að flestir gestirnir væru
erlendir ferðamenn og kenna mætti
veðráttunni í sumar um að ekki hafa
verið fleiri Íslendingar á ferðinni.
Í sumar starfa tólf manns í Hvala-
miðstöðinni, þar af sex sjálfboðaliðar
sem m.a. vinna í gamla sláturhúsinu
á Húsavík, en til stendur að Hvala-
miðstöðin flytjist þangað í vetur og
verði opnuð næsta vor.
15% aukning gesta í Hvalamiðstöðinni á Húsavík í sumar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Ásbjörn Björgvinsson færir frú Nauwelaers blómvönd í tilefni þess að hún var tíuþúsundasti gestur sumarsins,
en með þeim er eiginmaður hennar og börn.
Tíuþúsundasti gestur
sumarsins kom í vikunni
Húsavík
RÁN Jónsdóttir heitir nýr stöðvar-
stjóri Blönduvirkjunar og tók hún við
því starfi 1. júlí. Rán, sem starfað hef-
ur hjá Landsvikjun í sjö ár, mest við
áætlanir um uppbyggingu raforku-
kerfisins, er gift Skúla Pálssyni og
eiga þau tvo syni.
Með Rán í Blönduvirkjun starfa 15
manns auk þess sem á þriðja tug ung-
linga starfar við gestamóttöku, gróð-
ursetningu og aðra fegrun umhverfis
yfir sumartímann. Rán telur það mik-
ið atriði að halda áfram góðum
tengslum við samfélagið umhverfis
virkjunina og telur unglingavinnuna
vera einn lið í því. Synir þeirra hjóna
fara í skóla á Húnavöllum við Reykja-
braut en Skúli mun stunda kennslu
við Grunnskólann á Blönduósi í vetur.
Hjónin eru fædd og upp alin á höf-
uðborgarsvæðinu og voru nokkuð viss
um að dreifbýlið ætti vel við þau og
því til staðfestu létu þau sér um munn
fara þegar farið var til Reykjavíkur á
dögunum: „Við þurftum að fara suður
um daginn.“
Aðspurð hvað það
væri helst sem menn
ynnu að við rekstur
virkjunar á stærð við
Blönduvirkjun sagði
Rán að starfið fælist
fyrst og fremst í svo-
kölluðu fyrirbyggj-
andi viðhaldi, virkjun-
inni er hins vegar
fjarstýrt úr Reykja-
vík. Stöðugt færist í
vöxt að fólk komi til
að skoða virkjunina
og frá því í byrjun
júní hafa um 1.500
manns skráð nafn sitt í gestabókina.
Rán sagði þetta aukningu frá fyrra
ári og það væru að stærstum hluta Ís-
lendingar sem kæmu.
Stöðvarstjórinn nýi sagði það og
stefnu fyrirtækisins að sýna virkjan-
irnar og af því tilefni hefði Blöndu-
virkjun auglýst opna daga um sl. helgi
í tengslum við helgarskákmót Skák-
sambandsins. Rán lék þar reyndar
fyrsta leik fyrir Jóhann Guðmunds-
son, oddvita í Svínavatnshreppi,
hreppnum sem virkjunin er í, með
þeim ágæta árangri að Jóhann Hjart-
arson stórmeistari „mátti þakka fyr-
ir“ jafntefli í skákinni.
Nýtt met í stigahlaupi
Gestir geta spreytt sig á því að
bæta hraðamet úr stöðvarhúsi í
stjórnhús, upp 230 metra langan stiga
sem liggur nánast beint upp. Valdi-
mar Grímsson, landsliðsmaður í
handbolta, átti metið lengi en danskur
kajakræðari bætti það nýlega og
hljóp stigann á 9 mínútum og 44 sek-
úndum.
Æ fleiri skoða
Blönduvirkjun
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Hinn nýi stöðvarstjóri Blönduvirkjunar, Rán
Jónsdóttir, leikur hér fyrsta leikinn fyrir Jóhann
Guðmundsson gegn Jóhanni Hjartarsyni.
Blönduós