Morgunblaðið - 25.08.2001, Side 19

Morgunblaðið - 25.08.2001, Side 19
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 19 TAP samstæðu Opinna kerfa nam rúmum 203 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins, sem er 340 millj- ón króna viðsnúningur frá sama tímabili í fyrra er hagnaður sam- stæðunnar nam tæplega 137 millj- ónum króna. Rekstrartekjur samstæðunnar voru 2.684 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins en rekstrargjöldin námu 2.568 milljónum króna. Rekstrarhagnaður samstæðunnar nam því 116 milljónum króna en var 300 milljónir á sama tímabili í fyrra. Neikvæð áhrif hlutdeildarfélaga nema 240 milljónum króna fyrir skatta. Í fréttatilkynningu kemur fram að áhrif dótturfélaga eftir skatta voru neikvæð um tæpar 100 millj- ónir króna fyrri helming ársins en voru jákvæð um 67 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum síðasta árs. Megnið af þessari sveiflu skýrist af niðurfærslu skráðra hlutabréfa í eign Skýrr. Af hlutdeildarfélögum hefur rekstur Aco-Tæknivals verið mjög erfiður á fyrri hluta ársins og eru áhrif þeirra eftir skatta neikvæð um rúmar 200 milljónir króna. Önn- ur hlutdeildarfélög hafa óveruleg áhrif á uppgjörið nú. Opin kerfi eru með beina eign- araðild að 16 félögum þar sem bók- fært verð þeirrar eignar er um 900 milljónir en áætlað markaðsvirði, samkvæmt fréttatilkynningu Op- inna kerfa, er yfir 1.900 milljónum króna. Fjármunagjöld Opinna kerfa námu 254 milljónum króna. Tap samstæðunnar fyrir tekjuskatt nam 377 milljónum króna samanborið við 298 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Áætlunum um hagnað ársins breytt umtalsvert Opin kerfi tekjufæra tekjuskatts- skuldbindingu upp á 89 milljónir króna en á sama tímabili í fyrra voru gjaldfærðar tekjuskattsskuld- bindingar fyrir 99 milljónir króna. Eigið fé nam 830 milljónum króna þann 30. júní sl. en um áramót nam það 1.056 milljónum króna, sem jafngildir 1.111 milljónum króna í júnílok miðað við 5,2% verðlags- breytingu á tímabilinu. Í fréttatilkynningu frá Opnum kerfum kemur fram að velta móð- urfélagsins hafi aukist um 20% en framlegð hafi dregist aðeins saman. Á aðalfundi Opinna kerfa fyrir ár- ið 2000 kom fram að áætlanir fyrir árið 2001 gerðu ráð fyrir að hagn- aður eftir skatta yrði yfir 280 millj- ónir króna. „Í ljósi niðurstöðu fyrri helmingsins og með tilliti til áætlana dóttur- og hlutdeildarfélaga gera forráðamenn félagsins nú ráð fyrir að rekstur samstæðunnar fyrir allt árið 2001 muni skila lítils háttar hagnaði,“ að því er fram kemur í til- kynningu. Gengi hlutabréfa í Opnum kerfum lækkaði úr 13,60 í 11,10 eða um 18,4% á markaði í gær. Opin kerfi með 203 milljónir í tap SPÆNSKA fataverslanakeðjan Mango opnar 530 fermetra verslun í Smáralind 10. október. Mango er önnur stærsta verslanakeðja Spánar en rekstraraðili hennar hér á landi er Háess ehf. Mango selur fatnað, skó og fylgihluti fyrir konur á aldr- inum 18 til 40 ára. Verslanir Mango eru Íslendingum að góðu kunnar enda eru þær vel yfir 500 talsins í 53 löndum, sé miðað við árslok 2000. Fyrirtækið stefnir að því að fjölga verslunum verulega á þessu ári þannig að þær verði orðnar 650 í árs- lok, þar af 398 utan Spánar. Opnun Mango í Smáralind er því liður í sókn fyrirtækisins út fyrir heimamarkað en nú eru að meðaltali opnaðar 10 nýjar Mango-verslanir í hverjum mánuði. Mango hefur engu að síður sterka stöðu á heimamarkaði og er næststærsta fataverslunarkeðja Spánar. Spurður um samninginn við Mango segir Hákon Hákonarson, einn af eigendum Háess, að fleiri hafi verið um hituna en Mango hafi haft úrslitaatkvæðið um hver hreppti hnossið. Hann kveðst ánægður með að hafa landað samningnum við Mango og telur mikinn feng vera í komu keðjunnar hingað til lands. Hákon segir að auglýst verði eftir starfsfólki innan skamms en hann gerir ráð fyrir að 6–15 manns muni starfa hjá Mango í Smáralind. Að sögn Pálma Kristinssonar, fram- kvæmdastjóra Smáralindar, er Mango góð viðbót við þá miklu breidd verslana sem þegar hafa leigt rými í Smáralind. Áætluð ársvelta 80,4 milljarðar Fyrsta Mango-verslunin var opn- uð í Barcelona árið 1984 en átta ár- um síðar voru verslanirnar orðnar 99 talsins á Spáni og það ár voru einnig fyrstu verslanirnar utan heima- landsins opnaðar í Portúgal. Árið 1997 fóru hjólin að snúast fyrir al- vöru en þá var söluvelta á alþjóða- markaði í fyrsta skipti meiri en heimamarkaði. Velta Mango árið 2000 nam um 68 milljörðum króna en áætluð velta ár- ið 2001 er 80,4 milljarðar króna. Þannig er gert ráð fyrir rúmlega 18% veltuaukningu milli 2000 og 2001 en veltan jókst hins vegar um 15% á milli áranna 1999 og 2000. Alls starfa 5.100 manns hjá Mango, þar af um 900 í höfuðstöðv- um fyrirtækisins í Barcelona. Með- alaldur starfsmanna er aðeins 25 ár og þrír fjórðu hlutar vinnuafls eru konur. Hönnun verslunar Mango í Smáralind er nú þegar vel á veg komin. Framkvæmdir munu hefjast innan skamms en Háess áætlar að opna verslunina á sama tíma og aðr- ar verslanir í Smáralind 10. október. Þeim, sem vilja kynna sér vörur og verslanir Mango, er bent á vefslóð- ina www.mango.es. Önnur stærsta verslanakeðja Spánar til Íslands Hönnun verslunarrýmis Mango í Smáralind er á lokastigi og framkvæmdir við það hefjast fljótlega. Háess opnar Mango- verslun í Smáralind Hagnaður Sæplasts dróst saman um meira en fimmtung SÆPLAST hf. skilaði liðlega 5 millj- óna króna hagnaði á fyrstu sex mán- uðum ársins. Til samanburðar nam hagnaður á fyrri hluta síðasta árs ríf- lega 23 milljónum króna. Hagnaður hefur því dregist saman um rúm 22% miðað við fyrra ár. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam rúmum 156 milljónum króna á fyrri árshelmingi en var 146 milljónir á sama tíma í fyrra. Hrein fjármagnsgjöld námu 51 milljón króna en voru 42 milljónir króna í fyrra. Tekjur samstæðunnar jukust tæp 20% frá fyrra ári og námu nú tæpum 1,3 milljörðum króna. Rekstrargjöld jukust um tæp 23% og námu nú rúm- um 1,2 milljörðum. Eigið fé var 711 milljónir króna í lok júní og hafði hækkað um 30 millj- ónir króna frá áramótum. Arðsemi eigin fjár jókst úr 0,45 í 1,55 frá ára- mótum. Eiginfjárhlutfall var tæp 27% miðað við 30% um áramót og veltufjárhlutfall lækkaði úr 1,49 um áramót í 1,33 í lok júní. Þá nam veltu- fé frá rekstri rúmum 103 milljónum króna á fyrri helmingi þessa árs en nam 110 milljónum króna á fyrri hluta síðasta árs. Lakara en gert var ráð fyrir Í tilkynningu frá félaginu segir að afkoman sé mun lakari en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir sem skýrist fyrst og fremst af minni sölu en stefnt var að. Þó sé um afkomubata að ræða frá þriggja mánaða uppgjöri auk þess sem framlegð félagsins aukist mikið frá fyrsta ársfjórðungi. „Efnhagsástand og almenn var- kárni í fjárfestingum í Bandaríkjun- um og Kanada hefur gert það að verkum að sala er þar undir áætl- unum. Í Evrópu hefur sala einnig verið minni en ráð var fyrir gert. Hráefnisverð hefur einnig hækkað á tímabilinu.“ Félagið telur að í ljósi þessara þátta muni áætlanir félagsins ekki nást á árinu. Í endurskoðaðri áætlun er reiknað með 20 milljóna króna hagnaði á árinu, að framlegð fari batnandi en sala dragist saman á síð- ari hluta ársins. Uppgjörið óviðunandi Jónas Gauti Friðþjófsson hjá Landsbanka Íslands segir uppgjör félagsins ekki viðunandi, sé litið til þess „að raunaukning tekna er lítil vegna minnkandi um- svifa á mörkuðum, auk þess sem framlegð fyrir afskriftir sem hlutfall af rekstrartekjum lækkar og veltufé frá rekstri stendur svo til í stað milli tímabila.“ Jónas Gauti segir gengis- tap félagsins þó óverulegt borið sam- an við gengistap margra annarra félaga og afkoman hafi batnað frá fyrsta ársfjórðungi. Greiðslustöðvun Kjöt- umboðsins framlengd GREIÐSLUSTÖÐVUN Kjötum- boðsins hefur verið framlengd til 20. nóvember. Að sögn Kristins Þórs Geirssonar, framkvæmda- stjóra Kjötumboðsins, hafði það ekki áhrif að mótmæli komu frá einum aðila sem varð til þess að dómtaka þurfti málið; dómsorðið segi að ekkert hafi komið fram sem benti til annars en að þau gögn sem Kjötumboðið lagði fram hafi verið rétt. Vegna ummæla kúabænda, sem fram hafa komið í fjölmiðlun að undanförnu, segist Kristinn vilja vísa fullyrðingu þeirra algerlega á bug. „Vangaveltur þeirra um sak- næmt athæfi eiga ekki við nein rök að styðjast og eru raunar al- veg út í hött.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.