Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 20
VIÐSKIPTI
20 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÚNAÐARBANKI Íslands hf.
skilaði 57 milljóna króna hagnaði á
fyrstu sex mánuðum ársins, en á
sama tímabili í fyrra var hagnaður
bankans 339 milljónir króna. Þetta
þýðir að afkoma tímabilsins er um
200 milljónum króna undir áætl-
unum og að arðsemi eigin fjár var
1,4%, en var 9,7% í fyrra.
Fyrir skatta var hagnaðurinn 80
milljónir króna, sem skiptist þann-
ig milli ársfjórðunga að á fyrsta
fjórðungi ársins var 337 milljóna
króna tap fyrir skatta, en á öðrum
fjórðungi var hagnaður 417 millj-
ónir króna.
Í fréttatilkynningu frá bankan-
um kemur fram að hagnaður af al-
mennum viðskiptabankarekstri
hafi verið 1.050 milljónir króna
fyrir skatta og þá séu auknar
vaxtatekjur vegna verðbólguskots
á öðrum ársfjórðungi undanskild-
ar.
Hreinar vaxtatekjur hækkuðu
um 46% frá fyrra ári og vaxtamun-
ur hækkaði úr 3,2% í 3,5%. Í
fréttatilkynningunni segir að
hækkun vaxtamunar skýrist af
auknum tekjum vegna verðbólgu-
skots á öðrum ársfjórðungi, en
verðtryggðar eignir bankans séu
nokkuð umfram verðtryggðar
skuldir.
Ánægður með viðskipta-
bankastarfsemina
Árni Tómasson, bankastjóri
Búnaðarbankans, segir að hann sé
mjög ánægður með viðskipta-
bankastarfsemina og að hún hafi
gengið vel. Hann sé að sama skapi
óánægður með afkomuna af fjár-
festingarbankastarfseminni, en
hún skýrist aðallega af tapi af
hlutabréfaeign. Það sé hins vegar
nokkuð sem bankinn ráði illa við
og að þróun á hlutabréfamörkuð-
um hafi verið afar óhagstæð.
Gengistap af annarri fjármála-
starfsemi var samanlagt 649 millj-
ónir króna og á stærstan þátt í
litlum hagnaði á fyrri hluta ársins.
Undir þennan lið fellur gengis-
hagnaður af veltuskuldabréfum að
fjárhæð 94 milljónir króna, geng-
istap af veltuhlutabréfum að fjár-
hæð 546 milljónir króna og 198
milljóna króna gengistap af gjald-
eyrisviðskiptum. Í fyrra var geng-
istap samanlagt 112 milljónir
króna, en þá voru það skuldabréfin
sem drógu afkomuna niður á með-
an hagnaður var af hlutabréfum og
gjaldeyrisviðskiptum.
Mikil aukning framlags í af-
skriftarreikning hefur líka tölu-
verð áhrif á afkomu bankans.
Framlagið jókst um 385 milljónir
króna milli ára og var nú 640 millj-
ónir króna. Í tilkynningu bankans
kemur fram að framlagið endur-
spegli ekki endilega töpuð útlán,
heldur sé um að ræða fjárhæð sem
lögð sé til hliðar til að mæta hugs-
anlegum útlánatöpum. Búnaðar-
bankinn á nú 2,8 milljarða króna,
eða sem nemur 2,1% af útlánum og
veittum ábyrgðum, á afskrifta-
reikningi.
Kostnaðarhlutfall bankans, mælt
sem hlutfall annarra rekstrar-
gjalda af hreinum rekstrartekjum,
var 78% á fyrri helmingi ársins og
hafði hækkað úr 77% frá sama
tímabili í fyrra. Annar mælikvarði
á kostnað, rekstrargjöld sem hlut-
fall af meðalstöðu efnahagsreikn-
ings, þróaðist hins vegar jákvætt
milli ára og var nú 3,27% í sam-
anburði við 3,65% í fyrra.
Rekstraráætlun ársins lækkuð
Efnahagur bankans, þ.e. heild-
areignir hans, jókst um 27 millj-
arða króna á fyrstu sex mánuðum
ársins og var 172 milljarðar króna
í lok júní. Útlán hækkuðu um 18
milljarða króna, en helming þeirr-
ar aukningar má rekja beint eða
óbeint til gengislækkunar krón-
unnar, að því er segir í tilkynningu
bankans. Samkvæmt lögum um út-
reikninga eiginfjárhlutfalls við-
skiptabanka var hlutfallið 9,2% í
lok júní en hafði verið 9,7% í lok
síðasta árs. Eiginfjárhlutfallið má
lægst fara niður í 8%.
Í fréttatilkynningu frá bankan-
um segir að í rekstraráætlun fyrir
árið í heild hafi verið gert ráð fyrir
1.200 milljóna króna hagnaði. Eins
og að framan sagði er afkoma fyrri
árshluta um 200 milljónum króna
undir áætlun. Í tilkynningunni
segir að miðað við verðþróun á
hluta- og skuldabréfamörkuðum
það sem af sé þriðja ársfjórðungi
sé fátt sem bendi til að bankinn
nái að vinna upp það bil sem þegar
er orðið á milli áætlunar og nið-
urstöðu. Endurskoðuð rekstrar-
áætlun geri því ráð fyrir 850 millj-
óna króna hagnaði fyrir skatta.
Um leið er ítrekað í tilkynningunni
„að aðstæður á fjármálamörkuðum
geta á skömmum tíma breyst,
bæði til hins betra og hins verra.“
Mikið tap af hlutabréfaeign og gjaldeyrisviðskiptum Búnaðarbankans
Hagnaður
57 milljón-
ir króna
! "#
!"#$%
&
'()*+
,()+-
$%&'$
)(*).
'%&((
.(.,,
.//
)()
01/
)2-(*-,
+(**1
+.)
13-4
13-4
'-1
*&+
,,+
),+
-)&+
$(+
$,+
$*$+
-.$+
-/*+
-.(+
$&+
$&+
)+
$&+
'$'+
*+
#
0112 2
0112 2
0% 2
#
● HRAÐFRYSTISTÖÐ Þórshafnar var
rekin með 104,9 milljón króna tapi á
fyrri helmingi ársins samanborið við
32,2 milljóna tap á sama tíma í fyrra.
Í tilkynningu félagsins segir að meg-
inorsakir taps hafi verið óhagstæð
gengisþróun, en gengistap nam um
240 milljónum. Þá nam tap af rekstri
dótturfélagsins, Íslensks kúfisks
ehf., um 58 milljónum. Þá er og tekið
fram að í rekstrartekjum fyrstu sex
mánaðanna í fyrra hafi hagnaður af
sölu fastafjámuna verið um 34 millj-
ónir en í fjármagnsliðum fyrstu sex
mánaða þessa árs haf hagnaður af
sölu hlutabréfa numið um 89,3 millj-
ónum.
Rekstrartekjur voru 854,7 milljónir
en voru 952,6 milljónir á sama tíma í
fyrra. Samdrátt í rekstrartekjum á milli
tímabila má rekja til þess að bolfisk-
vinnslu hjá félaginu var hætt eftir
fyrstu fjóra mánuðina í fyrra auk þess
sem tekjur af leigðum aflahlutdeildum
voru töluvert hærri í fyrra en í ár.
Rekstrargjöld lækkuðu um 23% á
milli tímabila og voru 633,3 milljónir á
móti 826,3 milljónum í fyrra. Hagn-
aður fyrir afskriftir og fjármagnsliði
(EBITDA) nam 221,4 milljónum eða
um 26% af rekstrartekjum sam-
anborið við um 13% á sama tímabili í
fyrra.
Í tilkynningunni segir að afkoma
seinni hluta ársins ráðist af veiðum á
uppsjávarfiski en á umliðnum árum
hafi fyrri hluti ársins verið hagstæðari
en sá seinni. Ýmislegt bendi þó til
þess að seinni hluti ársins geti orðið
félaginu hagstæðari en verið hefur
undanfarin ár.
Tap Hraðfrystistöðv-
arinnar þrefaldast
● HAGNAÐUR Sparisjóðs vélstjóra
fyrstu sex mánuði ársins nam 120
milljónum króna fyrir skatta en var 41
milljón króna á sama tímabili í fyrra.
Samkvæmt árshlutauppgjöri voru
vaxtatekjur alls 1.302,2 milljónir
króna og höfðu aukist um 82% frá
sama tímabili árið 2000. Vaxtagjöld
hækkuðu á sama tíma um 69% og
námu alls 941,4 milljónum króna.
Hreinar rekstrartekjur Sparisjóðsins
námu 500,9 milljónum króna en voru
361,5 milljónir króna á sama tíma ár-
ið 2000. Rekstrargjöld sparisjóðsins
námu 322,1 milljón króna á tíma-
bilinu en námu 263,1 milljón króna á
sama tíma í fyrra.
Tekjur af hlutdeildarfélögum og
öðrum eignarhlutum lækkuðu milli
ára úr 89,5 milljónum króna í 19,6
milljónir króna. Framlag í afskrift-
arreikning útlána var 20,6 milljónir
króna en var 26,3 milljónir króna á
sama tímabili árið 2000. Afskrift-
arreikningur útlána nam 390,3 millj-
ónum króna sem er 2,8% af heildar-
útlánum og veittum ábyrgðum, en var
um áramót 3,0%.
Heildarinnlán Sparisjóðsins ásamt
lántöku námu 12.657,4 milljónum
króna og heildarútlán ásamt mark-
aðsskuldabréfum námu 15.717,4
milljónum króna.
Eigið fé Sparisjóðs vélstjóra 30.
júní 2001 nam 2.561,5 milljónum
króna og hefur vaxið um 230,6 millj-
ónir króna frá 31. desember 2000
eða um 9,8%. Arðsemi eiginfjár er
10% á ársgrundvelli. Eiginfjárhlutfall
samkvæmt CAD-reglum er 20,4% en
var 18,1% um síðustu áramót.
Hagnaður Sparisjóðs
vélstjóra þrefaldast
● EFTIR birtingu milliuppgjörs Ís-
landssíma lækkaði gengi bréfa
félagsins úr 3,70 í 3,20 eða um
13,5%. Gengi bréfanna hélt áfram
að lækka í gær eða um 7,8% og
fór þá í 2,95 og hefur gengið ekki
áður verið skráð lægra. Gengið
hefur því lækkað um rúman fimmt-
ung á tveimur dögum.
Miðað við gengið í gær er mark-
aðsvirði Íslandssíma liðlega 1,7
milljarðar króna en við hlutafjár-
útboð félagsins í byrjun júní sumar
var áætlað markaðsvirði félagsins
rúmir fimm milljarðar króna. Gengi
bréfa Íslandssíma hefur því lækk-
að um tvo þriðju frá því hlutaféð
var boðið út.
Markaðsvirði Íslands-
síma hefur lækkað
um 3,3 milljarða
ACO hf. og Tæknival hf. voru sam-
einuð á árinu og því er hér um fyrsta
sameiginlega uppgjör félaganna að
ræða og samanburðarfjárhæðir í
rekstrarreikningi og sjóðstreymi
eru samanlagðar fjárhæðir úr árs-
reikningum félaganna. Í efnahags-
reikningi eru til samanburðar fjár-
hæðir úr samrunaefnahagsreikningi
félaganna. Tæknival hf. gerði við
þriggja mánaða uppgjör að hagnað-
ur ársins yrði 120 milljónir.
Gengistap 200
milljónir króna
Árni Sigfússon, forstjóri Aco-
Tæknivals, segir uppgjörið sýna
mjög erfiða stöðu beggja fyrirtækja
á þessum fyrstu sex mánuðum en í
því sé einnig augljóst að búið sé að
taka til og breyta vinnubrögðum.
„Fyrir utan gengistap sem er tæpar
200 milljónir og vaxtagjöld upp á 70
milljónir hefur tölvusala dregist
saman um 30% á tímabilinu og það
hefur veruleg áhrif. Þar sem það er
stærri hluti af sölu Tæknivals en
Aco þá er það meira högg þeim meg-
in. Hins vegar er um 50% samdrátt-
ur í raftækjasölu sem er mun stærri
þáttur í rekstri Aco eftir að þeir
keyptu raftækjadeild Japis.
Þessi samdráttur hefur veruleg
áhrif á niðurstöður á fyrri hluta árs
og munar mörg hundruð milljónum
miðað við það sem hefði mátt ætla í
eðlilegu ástandi,“ segir Árni.
Tekjufærsla reiknaðs tekjuskatts
vegna tímabilsins minnkar tap tíma-
bilsins í 664 milljónir króna. Tekju-
skattsskuldbinding félagsins, sem
um áramót var rúmar 53 milljónir
króna, fellur niður vegna reiknaða
tekjuskattsins og til verður reiknuð
skattinneign vegna taprekstrar sem
færist til hækkunar eigna, alls ríf-
lega 196 milljónir króna að teknu til-
liti til reiknaðra verðbóta. Árni segir
tekjuskattsfærsluna hafa verið
gerða í samráði við endurskoðendur
félagsins og hún sé í takt við það
sem Eimskip og fleiri fyrirtæki hafi
verið að gera.
Rekstrartekjur félagsins námu
tæpum 2,6 milljörðum króna en
voru allt árið áður tæplega 5,9 millj-
arðar. Rekstrargjöldin námu tæp-
um 3,1 milljarði á þessu ári en voru
rúmir 5,6 milljarðar á síðasta ári
öllu.
Niðurfærsla krafna og eignar-
hluta í öðrum félögum nemur 119
milljónum króna og segir Árni hér
fyrst og fremst vera um afskriftir á
kröfum vegna Íslenskrar miðlunar
að ræða, eða nær 100 milljónir.
Einnig hafi verið afskrifað hlutafé
Aco-Tæknivals í fyrirtækinu. Þá séu
þættir sem snúa að sölu Japis á
hluta fyrirtækisins til Aco, sem
ákveðið var að afskrifa. „Það eru
grimmar og harðar afskriftir í þessu
uppgjöri,“ segir Árni.
Eignir félagsins minnka um 21%,
eða um 620 milljónir króna, frá ára-
mótum þrátt fyrir að 196 milljóna
króna reiknaða skattinneignin sé
færð til eignar. Birgðir minnkuðu
um 289 milljónir frá áramótum og
segir í reikningi félagsins að hæfi-
legt tillit hafi verið tekið til gallaðra
og úreltra vara. Afskrifaðar tapaðar
kröfur á tímabilinu námu tæpum 95
milljónum króna, aðallega vegna Ís-
lenskrar miðlunar eins og áður
sagði, en alls eru skammtímakröfur
færðar niður um 61 milljón króna í
afskriftareikning.
Skuldir félagsins eru svipaðar og
um áramót, þó hafa langtímaskuldir
dregist saman um 22% en skamm-
tímaskuldir aukast um 13% og eru
80% af heildarskuldum í stað 72%
um áramót. Mestu munar um 276
milljónir króna vegna afborgana af
langtímaskuldum á næsta ári.
Birgðir og skammtíma-
kröfur lækka
Í áritun endurskoðenda í árshlut-
areikningnum segir að forsendur
fyrir áframhaldandi rekstri séu að
það takist að bæta rekstrarafkomu
og afla aukins eigin fjár.
Um horfurnar fyrir seinni hluta
árs segir Árni að unnið sé að end-
urskipulagningu hins sameinaða
fyrirtækis og væntir þess að hún
skili fyrirtækinu sterkara fram á
seinni hluta árs. „Það hefur verið
lögð áhersla á að ná veltufjármun-
um niður. Birgðastaðan er mun hag-
stæðari núna heldur en hún hefur
lengi verið og skammtímakröfurnar
hafa lækkað verulega. Við ætlum
okkur að snúa við og skila hagnaði á
næstu sex mánuðum,“ segir Árni en
gert er ráð fyrir að 50 milljóna
króna hagnaður verði af síðari hluta
ársins í kjölfar hagræðingaraðgerða
og endurskipulagningar.
„Við erum búin að taka til í þessu
uppgjöri og breyta vinnubrögðum.
Það er ástæða til að nefna sérstak-
lega ráðningu Magnúsar Norðdahl í
stöðu aðstoðarforstjóra. Hann hefur
gríðarlega reynslu af svipuðum
verkefnum sem fyrrum fram-
kvæmdastjóri hjá Tech Data í Nor-
egi.“
Fyrirvari við áætlun
um 50 milljóna króna hagnað
Arnbjörn Ingimundarson hjá
greiningadeild Íslandsbanka segir
tap Aco-Tæknivals langt umfram
spár markaðsaðila og mun meira en
búast mátti við, þrátt fyrir að félagið
hafi greint frá verulega auknum af-
skriftum og þyngri rekstri. Hann
segir að ætla megi að afkoman verði
mun skárri á síðari hluta ársins
vegna harðra hagræðingaraðgerða
en setur eigi að síður nokkurn fyr-
irvara við áætlun félagsins um 50
milljóna króna hagnað á síðari árs-
helmingi, þrátt fyrir að síðari hluti
árs sé að jafnaði betri en sá fyrri.
Tap Aco-Tæknivals nam
664 milljónum á tímabilinu