Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 21

Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 21
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 21 OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18 Laugard. kl. 10-14 Við Fellsmúla Sími 588 7332 www.heildsoluverslunin.is - trygging fyrir l águ verði! Thermex hitakútar Gegnumstreymishitari 5KW Kr. 13.430,- 15L undir vask Kr. 13.950,- 30L Lóðréttur Kr. 16.400,- 50L Lóðréttur Kr. 18.900,- 50L Láréttur Kr. 19.900,- 80L Lóðréttur Kr. 20.900,- 80L Láréttur Kr. 22.900,- 80L Lóðréttur, má einnig nota fyrir sólarrafhlöðu Kr. 25.600,- 80L Láréttur, má einnig nota fyrir sólarrafhlöðu Kr. 27.900,- w w w .d es ig n. is © 20 01 D V R 07 0 ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra segir að Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður fari með rangt mál í grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Í greininni segir Einar Oddur að sjávarút- vegsráðherra hafi ekki staðið við samkomulag sem gert var við smá- bátaeigendur um veiðar smábáta í íslenskri fiskveiðilögsögu. Árni segir að smábátar hafi ver- ið settir undir þorskaflahámark árið 1995 og það hafi verið gert án samkomulags við smábátaeigend- ur. Einar Oddur fari því með rangt mál þegar hann haldi því fram að smábátar hafi verið settir í þorskaflahámark árið 1996 og leyft að veiða frjálst af öðrum teg- undum með sérstöku samkomu- lagi. Árni segir að hinsvegar hafi verið gert samkomulag við smá- bátaeigendur árið 1996 um breyt- ingar á þorskaflahámarkskerfinu og um þá báta sem voru utan kerf- isins, svokallaða sóknardagabáta. „Samkomulagið snerist meðal ann- ars um leyfilegan heildarafla sókn- ardagabáta. Þennan hluta sam- komulagsins hafa smábáteigendur hinsvegar aldrei virt. Í samkomu- laginu var meira að segja tekið fram að stjórnvöld geti aldrei af- salað sér því að stjórna fiskveiðum með takmörkunum á afla. Þar að auki getur enginn ráðherra bundið ráðherra framtíðarinnar, né lög- gjafarvaldið, við tiltekna afstöðu eða að þeir muni aldrei leggja til breytingar á tilteknum lögum. Þetta á sérstaklega við ef forsend- ur breytast, til dæmis þegar falla Hæstaréttardómar sem segja að forsendur þess sem samið var um standist ekki stjórnarskrána. Ein- ar Oddur fer því með rangt mál og hann veit hvað heiðursmenn gera þegar þeir fara rangt með,“ segir Árni. Frestun laganna líklega brot á stjórnarskrá Í grein sinni í Morgunblaðinu vísar Einar Oddur til álitsgerðar sem Sigurður Líndal lagaprófessor og Skúli Magnússon lektor unnu fyrir Landssamband smábátaeig- enda. Niðurstaða hennar hafi verið að þorskaflahámark krókabáta stangaðist ekki á við stjórnarskrá og því bæri ekki að kvótasetja aukategundir, líkt og lögin sem taka gildi 1. september nk. kveða á um. Sjávarútvegsráðherra hafi hinvegar hvorki tekið tillit til nið- urstöðu álitsgerðarinnar né svarað þeim rökum sem þar var teflt fram. Árni segir að álitsgerðin hafi verið skoðuð vandlega og hann meðal annars vitnað til hennar í umræðum á Alþingi. Það sé engu að síður langlíklegast að frestun laganna hefði verið brot á stjórn- arskránni. Hann bendir á að í álitsgerðinni komi í raun ekki fram önnur skoð- un en sú sem Sigurður Líndal lýsti á dómi Hæstaréttar árið 1998. „Þá var Sigurður Líndal ósammála dómnum. Ég var sjálfur sammála Sigurði þá og er það í raun ennþá. Ég tel að dómurinn frá árinu 1998 hafi ekki verið réttur. Ég tel hins- vegar að lögfræðingar sem unnið hafa fyrir ráðuneytið, bæði þá og nú, hafi rétt fyrir sér í túlkun á dómnum. Bæði ég og Sigurður Líndal verðum að sætta okkur við það hvernig Hæstiréttur túlkar lögin. Við erum ekki yfir lögin hafnir frekar en aðrir,“ segir ráð- herrann. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra Einar Oddur fer með rangt mál NÝR bátur kom til heimahafnar í Stykkishólmi um helgina. Hann hefur fengið nafnið Ársæll SH 88 og er í eigu Sólborgar ehf. í Stykkishólmi. Skipið er keypt frá Hornafirði og var í eigu Skinn- eyjar-Þinganess og hét þá Steinunn SF 10. Ársæll SH 88 er byggður í Nor- egi árið 1966 og er 197 tonn. Skipið er 34,64 m langt og 6,75 m breitt. Fyrri eigendur hafa gert miklar endurbætur á skipinu á síðustu ár- um og hefur umgengni þeirra um skipið verið mjög góð. Eigendur Ársæls eru ánægðir með kaupin og telja að þeir hafi fengið gott skip í hendur. Ársæll SH 88 kemur í stað eldri báts sem seldur var í vor til Flóa ehf. í Hafnarfirði og heitir hann nú Egill Halldórsson SH 2. Sólborg ehf. var stofnuð fyrir 23 ár- um árum og þetta er fjórða skip félagsins sem ber Ársælsnafnið. Ársæll verður gerður út á neta- veiðar og hefur þegar farið í sína fyrstu veiðiferð. Í áhöfn Ársæls verða 8 menn og skipstjóri er Viðar Björnsson. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Nýr bátur Ársæll SH 88 ÆTLA má að útflutningsverðmæti kolmunnaafla íslenskra skipa á þessu ári sé orðið hátt í 3 milljarðar króna. Kolmunnaafli ársins er nú orðinn um 210 þúsund tonn. Eins og komið hefur fram hafa kolmunnaveiðar gengið mjög vel það sem af er árinu og útlit fyrir góða veiði áfram. Sunnuberg NS landaði þannig síðast á Vopnafirði á miðvikudag, alls um 900 tonnum og hefur þá landað um 2.100 tonnum af kolmunna á aðeins 8 dögum. Íslensk skip lönduðu alls tæpum 12.000 tonn- um af kolmunna erlendis á fyrstu 7 mánuðum ársins, samkvæmt upplýs- ingum frá Fiskistofu. Aflanum var einkum landað í Færeyjum. Samtals hefur Sunnuberg NS borið á land um 12.500 tonn af kolmunna á árinu, en skipið hefur landað tvisvar í Færeyj- um í sumar, vegna þess að þá var ver- ið að bræða loðnu í verksmiðjunni, að sögn Friðriks Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra Tanga hf. á Vopna- firði. „Venjulega er lítið um að vera hjá fiskimjölsverksmiðjunum á þess- um árstíma og því er kolmunninn kærkominn. Kolmunninn er mjög gott hráefni og samfara góðri veiði hefur afurðaverðið þokast upp á við. Það árar því ágætlega í fiskimjölsiðn- aðinum um þessar mundir.“ Íslenskar fiskimjölsverksmiðjur nú þegar tekið á móti um 200 þúsund tonnum af kolmunna en auk þess hafa íslensk skip landað um 12 þúsund tonnum erlendis. Verðmæti kolmunna nærri 3 milljarðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.