Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 23
SEXTÁN manns féllu og tugir
særðust í þremur sprengingum
í Kólumbíu í gær. Ein varð í
Santander-héraði, en meðlimir
Þjóðfrelsishersins (ELN) voru
að flytja sprengiefni í vörubíl
og létust 15 þeirra þegar
sprengjan sprakk óvænt. Þá
féll einn og tuttugu særðust
þegar sprengja sprakk í Ant-
ioquia-héraði og svo særðust
tíu þegar þriðja sprengjan
sprakk í Medellin-borg. Stjórn-
arherinn í Kólumbíu hefur und-
anfarna viku sótt hart að um
þúsund manna flokki á vegum
skæruliðahópsins FARC, en
hópurinn flýr nú stjórnarher-
inn um frumskóga landsins og
freistar þess að ná til höfuðvígis
síns.
Hungurverk-
fall í Svíþjóð
HÓPUR norrænna Falun
Gong-iðkenda hóf í gær tveggja
sólarhringa hungurverkfall
fyrir utan kínverska sendiráðið
í Stokkhólmi. Þetta er gert til
að mótmæla meintu harðræði
sem trúbræður þeirra þurfa að
sæta í Kína. Segja mótmælend-
urnir að 130 Falun Gong-iðk-
endur sitji enn í kínverskum
fangelsum þótt þeir hafi lokið
afplánun fangelsisdóma sinna.
Milosevic í
sjónvarpinu
SLOBODAN Milosevic, fyrr-
verandi Júgóslavíuforseti,
veitti í gær bandarískri sjón-
varpsstöð símaviðtal í trássi við
þær reglur sem gilda í fangels-
inu sem hann gistir. Föngunum
er heimilt að hringja í ættingja
og nána vini en er stranglega
bannað að hafa samband við
fjölmiðla. Ótrúlegt þykir að
honum hafi tekist að hringja í
sjónvarpsstöðina og ræða við
fréttamenn eins lengi og raun
varð vegna þess að hans er
vandlega gætt. Ekkert óvænt
kom fram en forsetinn fyrrver-
andi hélt fram sakleysi sínu.
ETA-menn
handteknir
SPÆNSKA lögreglan handtók
í gær sex menn sem grunaðir
eru um að vera meðlimir í Að-
skilnaðarhreyfingu Baska
(ETA) og gerði við það tæki-
færi um 200 kg af sprengiefni
upptæk. Mennirnir voru hand-
teknir í og við Barcelona í Kat-
alóníu. Þrír sexmenninganna
eru sagðir fullgildir meðlimir í
ETA en hinir þrír lægra settir
aðstoðarmenn. Fyrr í þessari
viku lést ein kona og ungur
drengur blindaðist þegar leik-
fang sem honum hafði verið
fært sprakk. ETA hefur neitað
að bera ábyrgð á ódæðinu og er
talið að stuðningsmenn sam-
takanna hafi staðið að því.
Kúariða finnst
á Ítalíu
KÚARIÐUSJÚK kýr fannst á
bændabýli á Ítalíu í gær. Hafði
henni verið slátrað á bænum,
sem er í Brescia-héraði á Norð-
ur-Ítalíu. Þetta er í tuttugasta
og þriðja skipti sem smitað dýr
finnst í landinu en hinn ban-
væni heilasjúkdómur Creutz-
feldt-Jakob er talinn geta bor-
ist í menn ef þeir neyta afurða
af kúariðusmituðum skepnum.
STUTT
Hörð átök
í Kólumbíu
ÍSRAELSKIR skriðdrekar lögðu undir sig
hluta Hebron-borgar á Vesturbakkanum í
gær, eyðilögðu byggingar og upprættu ak-
urlönd. Var það gert til að hefna þess að
skotið var á ísraelskan dreng í einni af ný-
byggðum gyðinga. Þessi börn eru meðal
30.000 Palestínumanna í miðborg Hebron
sem hafa verið í herkví Ísraela í heilt ár og
stundum ekki fengið að fara út úr húsi dög-
um saman. Fyrir innrásina í Hebron skutu
ísraelskir hermenn til bana 11 ára gamlan,
palestínskan dreng á Gaza-svæðinu.
Hebron
í herkví
Reuters