Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 25
LORTUR, myndlistardeild, opnar
sína fyrstu samsýningu í kvöld, laug-
ardagskvöld, kl. 20 í Gula húsinu á
Frakkastíg. Meðlimir myndlistar-
deildarinnar eru Bjarni „massi“,
Davíð Örn og Kristján Leifur en þeir
munu sýna ýmiss konar sjónverk.
Sýningin stendur fram á þriðjudag.
Húsið er opið kl. 14–18.
Samsýning í
Gula húsinu
NÚ STENDUR yfir sýningin
Fyrsta í Listasafni ASÍ, Ásmundar-
sal. Um er að ræða sýningu sjö lista-
manna. Þeir eru Birta Guðjónsdótt-
ir, Bryndís Erla Hjálmarsdóttir,
Dorothée Kirch, Fjölnir Björn
Hlynsson, Guðlaugur Valgarðsson,
Ída Sigríður Kristjánsdóttir og Rósa
Sigrún Jónsdóttir.
Sýningin er opin alla daga, nema
mánudaga, frá kl. 14–18 og stendur
til 2. september.
Sjö myndlistar-
menn í ASÍ
STOFNUN Sigurðar Nordals og
Sögusetrið á Hvolsvelli gangast fyrir
ráðstefnu um Njáls sögu í félags-
heimilinu Hvoli, Hvolsvelli, um
helgina. Ráðstefnan hefst kl. 10 ár-
degis í dag og henni lýkur síðdegis á
morgun. Erindi flytja: Arthúr Björg-
vin Bollason, Helga Kress, Jón
Böðvarsson, Jón Karl Helgason,
Kristján Jóhann Jónsson, Kristrún
Heimisdóttir, Oddgeir Guðjónsson,
Pétur Gunnarsson og Robert Cook.
Þá kynnir Sverrir Tómasson nýja
fræðilega útgáfu af Njáls sögu sem
Stofnun Árna Magnússonar á Ís-
landi vinnur að.
Farið verður á Njáluslóðir undir
leiðsögn heimamanna.
Njáluþing á
Hvolsvelli
ÆFINGAR á Töfraflautunni eftir
Mozart eru hafnar í Íslensku óp-
erunni en frumsýning verður 22.
september nk. Hljómsveitarstjóri
er Gunnsteinn Ólafsson, leikstjóri
er Hilmir Snær Guðnason, leik-
mynd og búninga hannar Vytautas
Narbutas og Björn Bergsteinn
Guðmundsson hannar lýsingu.
Þetta er í þriðja sinn sem Töfra-
flautan er sett upp í Íslensku óp-
erunni, en fyrri uppfærslurnar voru
1982 og 1991.
Í helstu hlutverkum nú eru Guð-
jón Óskarsson, Finnur Bjarnason,
Hanna Dóra Sturludóttir/Auður
Gunnarsdóttir, Ólafur Kjartan Sig-
urðarson, Xu Wen, Guðrún Ingi-
marsdóttir/Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Snorri Wium, Marta Guðrún Hall-
dórsdóttir, Þórunn Guðmundsdótt-
ir, Sesselja Kristjánsdóttir/Sigrún
Jónsdóttir, Sigríður Aðalsteinsdótt-
ir, Loftur Erlingsson, Skarphéðinn
Þ. Hjartarson, Árný Ingvarsdóttir,
Regína Unnur Ólafsdóttir og Dóra
Steinunn Ármannsdóttir. Þá eru
enn ótalin Kór Íslensku óperunnar
og Hljómsveit Íslensku óperunnar.
Óperan er sungin í íslenskri þýð-
ingu þeirra Þrándar Thoroddsens,
Böðvars Guðmundssonar og Þor-
steins Gylfasonar en Gunnsteinn
Ólafsson hefur endurskoðað og end-
urort að hluta og þýtt óbundið mál.
Almenn miðasala á Töfraflautuna
hefst mánudaginn 3. september en
áður njóta félagar í Vinafélagi Ís-
lensku óperunnar og samstarfs- og
styrktarfyrirtæki Íslensku óper-
unnar forkaupsréttar að miðum á
tímabilinu 20. ágúst til 1. septem-
ber.
Æfingar hafnar á
Töfraflautunni
Flestir af aðstandendum Töfraflautunnar saman komnir í æfingasal Íslensku óperunnar á fyrsta æfingadegi.
KRISTINN Sigmundsson óperu-
söngvari og Jónas Ingimundarson
píanóleikari halda tónleika í Egils-
staðakirkju á sunnudag kl. 17.
Á efnisskrá eru sönglög eftir
Schubert, Sibelius, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Markús Kristjáns-
son, Sigvalda Kaldalóns og aríur eft-
ir Verdi.
Fimmtudaginn 30. ágúst munu
Kristinn og Jónas flytja sömu efnis-
skrá í Salnum í Kópavogi.
Jónas
Ingimundarson
Kristinn
Sigmundsson
Kristinn og
Jónas á
Egilsstöðum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦