Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 26

Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 26
Morgunblaðið/Golli „AUÐVITAÐ hlakka ég til að byrja í skólanum,“ segir Rósey Reynisdóttir sem er að byrja þriðja árið í MH. Henni finnst tímafrekt að kaupa bækurnar. „Ég er búin að fara í þrjár bókabúðir en hef ekki enn feng- ið allar bækurnar en sumar eru uppseldar, ég verð bara að halda áfram að leita.“ Hún seg- ist reyna að fá sem flestar bæk- ur lánaðar eða kaupa af vinum og kunningjum. Annars að kaupa þær notaðar ef þær eru til. „Með því að skila gömlu bókunum og kaupa notaðar þarf ég líklega að leggja út um 15.000 krónur sem ég held að sé vel sloppið.“ Tímafrekt að kaupa bækurnar sýnt að íslensk börn borða óvenjulít- ið af grænmeti og ávöxtum, að sögn Laufeyjar. Þessar matvörur segir hún hafa að geyma mikið af holl- ustuefnum sem skipta máli fyrir heilsu barna til framtíðar. Hins veg- ar innbyrða þau kynstrin öll af sykri og mun meira en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum. Þar sem Svali er tveir þriðju hlut- ar sykrað og bragðbætt vatn en að- eins einn þriðji ávaxtasafi er hann síður en svo ákjósanleg leið til að auka neyslu barna á ávaxtavörum, að mati Manneldiráðs. Sama magn af sykri í jógúrt Ólöf Hafsteinsdóttir, matvæla- fræðingur hjá Vífilfelli, tekur undir þau orð Laufeyjar að sykurneysla ís- lenskra barna sé meiri en æskilegt er en bendir á að ekki megi fara ein- stigi í þessu máli. Sykurneysla barna í skólum geti einnig komið úr jógúrt og Engjaþykkni en mjög svipað magn sé af sykri í þessum matvæl- um og Svala. „Í bréfi til foreldra er bent á lausnir til að auka neyslu barna í ávaxtaflokknum á meðan þau eru í skólanum. Því var aldrei haldið fram í umræddu bréfi að Svali kæmi í stað ávaxta og grænmetis heldur væri Svali hentug lausn fyrir krakka og kennara til að auka neyslu í ávaxtaflokknum. Þess má geta að í Appelsínusvala er safi sem jafngildir um það bil einni appelsínu og í appelsínusafa eins og t.d. Trópí er safi úr þrem appelsínum. Mín skoðun er sú að foreldrar eigi að hafa val um holla drykki í nestisbox- ið og geta gengið að því vísu að börn þeirra hafi aðgang að hollum drykkjum í skólum landsins eins og t.d. mjólk, ávaxtasöfum og blönduð- um söfum.“ ráð við gerð Svala með tilliti til hvaða sykur væri minna skaðlegur fyrir tennur. Við komum með ábend- ingar sem farið var eftir en tekið var skýrt fram af okkar hálfu að ekki væri um að ræða gæðastimpil frá Manneldisráði eða Tannverndar- ráði. Viðbætti sykurinn í Svala gefur tómar hitaeiningar og skemmir líka tennur þótt það sé ef til vill í minni mæli en sykur í venjulegum gos- drykk. Nú er þetta dregið fram í röngu samhengi sem er afar ósvífið, sérstaklega í ljósi þess að bæði Tannverndarráð og Manneldisráð hafa sent bréf í alla skóla þar sem hvatt er til þess að seld verði ein- göngu léttmjólk í skólunum.“ Kannanir Manneldisráðs hafa aðrir sykraðir svaladrykkir geti komið í staðinn fyrir ávexti í fæði barna og að Svali í nestisboxinu sé því ágæt lausn fyrir foreldra sem vilja senda börn með ávexti í skól- ann. Tvisvar er vísað í Manneldisráð í bréfinu og þannig gefið í skyn að ráðið sé sammála þessum staðhæf- ingum. Staðreyndin er að helming- urinn af viðbættum sykri í fæðu barna kemur úr gosdrykkjum og sykruðum svaladrykkjum en hinn helmingurinn úr sælgæti, morgun- korni, sætabrauði og sykruðum mjólkurvörum. Því myndi sykur- neysla barna minnka til muna ef Svala og álíka drykkjum væri sleppt. Á sínum tíma var haft samband við Manneldisráð og Tannverndar- Svali kemur ekki í stað ávaxta og grænmetis Manneldisráð gagnrýnir bréf sent foreldrum ungra skólabarna FORELDRAR skólabarna á aldrin- um 6–9 ára hafa undanfarna daga fengið í hendur bréf frá fyrirtækinu Vífilfelli þar sem mælt er með að börnin drekki Svala í skólanum. Þar segir meðal annars: „...mörg börn eru illfáanleg til þess að taka með sér grænmeti og ávexti í skólann, litlar hendur ráða illa við börk og hýði og brauðið subbast út af nið- urskornum appelsínum. Til er lausn á þessu vandamáli, safar og safa- drykkir eins og t.d. Svali. Svali er þægileg og handhæg lausn bæði fyr- ir nemendur og kennara.“ Að auki kemur einnig fram, að við þróun þessa drykkjar hafi verið haft sam- ráð við Tannverndarráð Íslands og Manneldisráð. Manneldisráð ósátt við bréfið Laufey Steingrímsdóttir hjá Manneldisráði er afar ósatt við inni- hald bréfsins. „Þar koma fram alvar- legar rangfærslur um hollustu sykr- aðra svaladrykkja. Í bréfinu er foreldrum talin trú um að Svali eða NÁMSBÓKAKOSTNAÐUR fyrir nemanda á fyrsta ári í framhalds- skóla er um 50–60.000 krónur ef keyptar eru nýjar bækur. Morgun- blaðið kannaði verð á námsbókum af bókalistum þriggja skóla, Verzlun- arskóla Íslands, Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund, með því að skoða verð bók- anna í bókabúð og hringja í bóksölur skólanna. Miðað var við að neminn veldi þýsku sem þriðja tungumál og að hann færi á málabraut í tveimur síðarnefndu skólunum en í Verzlun- arskólanum velja nemendur ekki á milli brauta á fyrsta ári. Þegar lagt var saman verð á bókum af bókalista Verzlunarskólans kom í ljós að upp- hæðin var rétt um 61.000 krónur. Samanlagt verð bóka á bókalista MS var um 53.000 krónur og á bóka- lista MR tæplega 52.000 krónur en upp á vantaði hins vegar verð á sex fjölritum sem ekki voru tilbúin en þær upplýsingar fengust í bóksölu skólans að algengt verð á fjölritum væri 150–300 krónur eftir því hve þau væru þykk. Dýrasta bókin á 5.700 kr. Bækurnar á listunum eru afar misdýrar, allt frá 217 krónum og upp í 5.700, en dýrust var jarðfræði- bókin Svell er á gnípu, eldur geisar undir, eftir Jóhann Ísak Pétursson og Jón Gauta Jónsson, sem var á bókalista MS ogVerzlunarskóla Ís- lands. Algengt verð á kjörlestrar- bókum sem lesnar eru í tungumála- fögum er um 800–1.500 krónur. Engar orðabækur voru teknar með en gera má ráð fyrir að einnar eða tveggja orðabóka sé þörf í hverju tungumálafagi. Algengt er að verð á notuðum bókum sé 65% af verði nýrra svo ef nemendur geta náð sér í notaðar bækur má gera ráð fyrir að kostnaðurinn minnki að einhverju leyti. Þá eiga flestir lengra komnir nemendur notaðar bækur sem þeir geta selt upp í kostnaðinn. Telur kostnað hafa aukist „Krakkarnir fá oft létt áfall þegar þau kaupa allan pakkann, sérstak- lega krakkarnir á fyrsta ári, þetta er dýrast fyrir þau, því þau eiga engar notaðar bækur til að selja upp í kostnaðinn,“ segir Bjarki Guðlaugs- son, nemi í 6. bekk og bóksölustjóri í Verzlunarskóla Íslands. „Þegar ég kennarar eigi að taka tillit til kostn- aðar og reyna eftir megni að velja ódýrari bækur. En borga nemend- urnir sjálfir fyrir bækurnar? „Nei, mjög mikið er um að foreldrar borgi, nemendur ráða einfaldlega ekki við það.“ Kaupa mikið notað „Krakkarnir eru mjög meðvituð um námsbókakostnaðinn og reyna eins og þau geta að kaupa sem flest- ar notaðar bækur, enda yfirleitt hægt að fá stærstan hluta þeirra notaðar,“ segir Margrét Jóna Guð- bergsdóttir, verslunarstjóri Ey- mundsson í Kringlunni. „Þau reyna líka að skiptast á bókum innbyrðis, selja hvert öðru og fá lánað hjá vin- um og kunningjum. Ég myndi segja að þau fari betur með bækurnar þegar þau vita að þau geta selt gömlu bækurnar aftur.“ Hún segir að þótt álagið sé mest þegar skólarnir eru að byrja séu bækur að seljast allan veturinn. „Við seljum yfirleitt líka nokkuð mikið fyrir próf, sumir virðast vera að kaupa sér bækurnar þá.“ Margrét segir erlendar náms- bækur hafa hækkað nokkuð í verði frá í fyrra og að skýringarinnar sé að leita í breytingum á gengi. Hún geti hins vegar ekki séð að verð á ís- lenskum bókum hafi breyst. Verð kannað á námsbókum í þremur framhaldsskólum í Reykjavík Kostnaður nýnema um 50–60 þúsund krónur Morgunblaðið/Arnaldur Mikill erill er í bókaverslunum þessa dagana. var sjálfur að byrja í skólanum fyrir þremur árum man ég að ég borgaði í kringum 25.000 krónur fyrir allar bækurnar, núna var ég til dæmis að afgreiða nemanda í gær sem borgaði um 40.000 krónur fyrir allar bæk- urnar þrátt fyrir að meirihluti þeirra væri notaður.“ Bjarka finnst að NEYTENDUR 26 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ „ÉG tel engan vafa leika á að námsbókakaup eru verulegur fjárhagslegur baggi á mörgum framhaldsskólanemum og í sumum tilfellum foreldrum ef sumarhýra nemenda dugar ekki til,“ segir Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara. „Ef við lítum til nágrannalandanna eru framhaldsskólanemum víða lögð til námsgögn að miklu eða öllu leyti, en hér eru öll náms- gögnin seld á frjálsum markaði. Samtök kennara telja og hafa alltaf talið að núverandi fyrir- komulag geti ekki talist innlegg í að raunverulegt jafnrétti til náms á framhaldsskólastigi ríki.“ Hún segist telja jákvætt skref í átt að jafnrétti ef fram- haldsskólanemar fengju bækur sér að kostnaðarlausu eins og grunnskólanemendur. „Þá er- um við mjög hugsandi yfir þeirri þróun að meira eða minna sé verið að þvinga nýnema til að fjárfesta í fartölvum. Þar erum við að tala um hundruð þúsunda sem okkur finnst mjög gróft.“ Stuðlar ekki að jafnrétti til náms Morgunblaðið/Golli Skiptir engu hvernig bæk- urnar líta út „JÁ, þetta er dýrt,“ segja þeir Viðar Guðjónssen, nemi á öðru ári í MS, Ólaf- ur Jens Ólafsson og Guðmundur Arnar Kristínarson í 5. bekk í Versló. Þeir segjast eyða 20-25.000 krónum í bækur með því að versla á skiptibókamarkaði. „Það munar svo ótrúlega miklu, þú ert kannski að fá bók sem kostar 4.000 kall á 2.500 með því að kaupa notaða. Engu máli skiptir hvernig þær líta út, maður þarf bara að geta notað þær og svo reynir maður að selja þær aftur á næsta ári.“ Morgunblaðið/Golli „NEI, bókakostnaður er ekki mikill hjá mér,“ sagði Elvar Már Ragnarsson, nemi í Iðnskólanum í Reykjavík, sem beið ásamt Ástu Særós Haraldsdóttir, nema í MH, í röðinni við skiptibókamarkað Ey- mundssonar í Kringlunni. Ásta sagðist eyða um 30.000 krónum í bækur en hún ætti notaðar bækur sem hún gæti selt upp í kostnaðinn. Þau voru sammála um að gott væri að byrja í skólanum. „Ég lít á það sem hvíld eftir sumarvinnuna,“ bætti Ásta við. Hvíld að byrja í skólanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.