Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 39

Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 39 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. ✝ Stefanía JósefínaGuðfinna Finn- bogadóttir fæddist 9. desember 1919 á Minni-Bakka í Skála- vík í Hólshreppi. Hún lést á Sjúkrahúsi Ísa- fjarðar 14. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Sigmunds- dóttir frá Grunnavík og maður hennar, Finnbogi Sigurðsson úr Ísafjarðardjúpi. Þau fluttu til Bolung- arvíkur 1921 og bjuggu þar til dauðadags. Systir Stefaníu sammæðra var Jóhanna Jóhannesdóttir, alsystkin Sigur- rós, Ásdís, Herdís, Elías og Sig- urður, öll látin. Haustið 1924 fara systurnar Stefanía og Ásdís inn í Skálavík í Mjóafirði, en vegna veikinda móð- ur þeirra þurfti að koma börnun- um fyrir. Þær systur ílengdust í Skálavík og ólust þar upp til full- orðinsára hjá Ólafi Ólafssyni bónda þar og Dagbjörtu Krist- jánsdóttur, bústýru hans. 1938 eignuðust þau Stefanía og Krist- ján Jónsson saman dótturina Huldu. Hulda giftist Sigmundi Sigmundssyni. Þau bjuggu á Látr- um þar til Hulda lést í janúar 1995. Þau áttu sjö börn. Hinn 2. desember 1944 giftist Stefanía eftirlifandi manni sínum Hans Aðal- steini Valdimarssyni frá Vatnsfjarðarseli og vorið 1946 festu þau kaup á jörðinni Miðhúsum og bjuggu þar til ársins 1994 er þau fluttu á Hlíf 2 á Ísafirði. Börn Stef- aníu og Hans eru: 1) Jónína Jórunn, gift Sigurgeiri Garðars- syni, þau búa í Súðavík og eiga fjögur börn; 2) Björg Valdís, gift Frosta Gunnarssyni, þau búa í Súðavík og eiga þrjú börn; 3) Ás- dís Margrét, gift Óskari Kárasyni, þau búa á Ísafirði og Ásdís á einn son; 4) Þóra, gift Sigurði Zakar- íasi Ólafssyni, þau búa í Bolung- arvík og eiga tvö börn, auk þess á Þóra son frá fyrra sambandi. Einnig ólu Stefanía og Hans upp frá þriggja ára aldri frænda Stef- aníu, Sigurð Hólmar Karlsson, hann býr í Reykjavík og kona hans er Alma Jenný Guðmunds- dóttir. Sigurður á fjögur börn. Útför Stefaníu fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku amman okkar. Nú ertu far- in frá okkur, búin að yfirgefa þennan heim. Ég veit að þér líður vel núna, engin veikindi og engar áhyggjur, ekki einu sinni af uppvaskinu. Þú lést nú samt yfirleitt ekki í ljós las- leika, hafðir bara efst í huga að öllum öðrum liði vel. Þegar við komum í heimsókn fannst þér ómögulegt ef við vildum ekki þiggja neitt, þannig að það fór enginn frá þér án þess minnsta kosti að fá sér einn mola úr ,,Petu“. Engar minningar á ég betri, en minningarnar um okkur öll sam- an komin í Miðhúsum. Þegar fullorðna fólkið var að smala og ég fékk að fara með þér niður fyrir tún að opna hliðið vorum við góðar saman. Og þegar Gunnar póstur kom þá spurðir þú hvort nafna þín vildi ekki taka á móti póst- inum. Ég man líka þegar þú sýndir mér að vaskurinn þinn var alltaf al- veg eins og nýr og einhver spurði hvort þú hefðir verið að fá nýjan vask, en þú hafðir þinn bara alltaf svo fínan. Það var vegna þess, amma mín, að þú varst svo vandvirk á allt sem þú tókst þér fyrir hendur og kenndir mér að smáu verkin eins og uppvaskið skipta líka máli. Nú er ég að stíga mín fyrstu spor í búskap og eitt af því sem ég reyni er að brjóta þvottinn minn fallega saman eins og þú kenndir mér. Elsku amma, mikið er ég fegin að hafa átt þig og stolt af því að fá að vera nafna þín. Guð geymi þig og blessi minningu þína. Stefanía. Mig langar að minnast ömmu minnar í Djúpi með örfáum orðum. Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar ég var lítill strákur og skólinn var búinn að vori. Þá var það mitt fyrsta verk að fara til Villa Valla rak- ara og láta hann snoðklippa mig, síð- an var pakkað ofan í tösku og farið með næstu ferð á Fagganum inn í Djúp. Þar biðuð þið afi á bryggjunni með hlýlega brosið ykkar og tókuð mér opnum örmum. Síðan var haldið upp í Miðhús og þar voru næg verk- efni fram á haust. Svona leið þetta ár eftir ár en að þessum samverustund- um mun ég búa alla ævi. Núna í byrjun júli veiktist þú og varst flutt á sjúkrahús og þegar ég kom með börnin mín í heimsókn til þín hugsaði ég með mér að nú gætir þú ekki komist inn í Miðhús í sumar eins og þú þráðir. En ég veit að guð hefur ákveðið þá að þú skyldir hress- ast og komast inn í Miðhús einu sinni enn og raunin varð sú, að þú fékkst þrjár vikur í sveitinni þinni. Ég veit að það hefur verið þér mikilsvert. Elsku amma, ég kveð þig með söknuði en ég veit að þér líður vel núna og það verða áreiðanlega mikl- ir fagnaðarfundir þegar þú hittir aft- ur Huldu dóttur þína og Ástu systur þína. Þið eigið eflaust eftir að hafa mikið til að tala um. Við munum líta til með afa. Hvíl í friði, elsku amma mín, og takk fyrir allt. Hún amma mín sagði mér sögur er skráðust í huga minn inn, sumar um erfiðu árin aðrar um afa minn. Og þá var sem sól hefði snöggvast svift af sér skýjahjúp því andlitið varð svo unglegt. Og augun svo mild og djúp. Frá Miðhúsum; krefjandi merlast minningar, drenghnokka í sveit, á sumrum hjá afa og ömmu atlotin bestu ég veit. Birtan, frá sál þeirra beggja, brosið þitt, amma til mín, ég bý að því alla ævi, mín æska, fékk notið þín. (Rafnar Þorbergsson.) Þinn Garðar. Þegar ég hugsa um þig, amma, þá minnist ég hversu gott var að alast upp hjá ykkur afa í Miðhúsum og finna hlýja andann sem umlukti ykk- ur. Hversu mikils virði fólkið þitt var þér og hversu lifandi, hlý og skemmtileg persóna þú varst. Sam- verustundum okkar fækkaði þegar ég fluttist suður og þið á Hlíf en allt- af var jafn gott að koma til ykkar. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku amma, þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu. Þinn Viðar. Hún var í Miðhúsum ásamt manni sínum og dætrum, er ég kom í Vatnsfjörð 1956, og var nágranni minn í áratugi, var það gott nábýli og fljótlega urðu gagnvegir millum heimilanna. Má ég og mitt fólk minn- ast ótal góðra stunda á hennar heim- ili svo og hér er þau komu hún og fjölskyldan, svo á virkum dögum sem helgum, en kirkjan var henni hugstæð og ætíð mætti hún í Vatns- fjörð til tíða. En þar fyrir utan var hún ætíð boðin og búin til hvers þess er við þurfti. Skulu henni á leiðar- enda færðar okkar beztu þakkir fyr- ir mikla og ómetanlega aðstoð öll þau ár er hún bjó í Miðhúsum. Hún hafði sterkar taugar til sveit- arinnar og á hverju sumri komu þau hjón í sinn gamla bæ, að njóta sum- arsælu og gamalkunnugs umhverfis, þeim svo kært. Þannig einnig í sum- ar, við heimsóttum þau í júlí og mér fannst allt vera óbreytt frá forðum tíð: sætið við borðsendann, sem ég sat jafnan í, glugginn með gróand- ann að rúðum, bollapörin, stofan, eldavélin á sínum stað í eldhúsi, andi hússins óbreyttur og – að mér virtist hún hin hressasta, tifið klukkunnar á stofuveggnum hið sama, gamall heimur mitt í asa og vafstri nýrrar tíðar. Hún var víkingur í góðri merk- ingu, vann öll sín störf af natni og samvizkusemi. Hreint allt í kringum hana. Gekk að slætti með fjölskyldu sinni og öðrum heyverkum. Sinnti börnum sínum og annarra af alúð og kostgæfni – en jafnan hafði sumar- dvöl í Miðhúsum margt barna er þar var komið fyrir af vinum og vanda- lausum. Söngkona góð og kunnug sálmabók vorri svo vel var. Ég segi frá því hér að eitt sinn kom hún í Vatnsfjörð þeirra erinda að biðja mig að fara yfir grein, er hún hafði ritað um látna vinkonu – minning- argrein – áður en hún sendi ritsmíð- ina frá sér á opinberan vettvang. Er skemmst frá því að segja að hér þurfti engu að breyta. Þannig var henni margt vel gefið þótt dulið væri bak við hógværð hennar og kurteisi, lítillæti. Mér er það auðvitað ekkert leynd- armál, að okkur hér í Vatnsfirði fannst mikil breyting og ill er þau hjón fluttu á Ísafjörð. Söknuðum við vina í stað, að ég kveði ekki fastar að orði. Vertu guði falin kæra nágranna- og vinkona. Hjálparhella í allri þrenging og raun. Samúðarkveðjur til eftirlifandi maka, dætranna og fjölskyldna þeirra frá öllum okkur í Vatnsfirði. Baldur Vilhelmsson. Fólk sem við hittum á lífsleiðinni snertir okkur með ólíkum hætti, sumir verða okkur dýrmætari en aðrir. Þannig fólk eru Hans og Stebba í Miðhúsum. Við áttum því láni að fagna sem börn að vera hjá þeim í lengri og skemmri dvöl. Þá fórum við með bænir kvölds og morgna, „Nú er ég klæddur og kominn á ról...“ og „sitji guðs englar saman í hring...“ Ekki voru eftirgangsmunir til vinnu, ein- hverjum lágmarksverkum var sinnt; girðingum eða hrútastíum var hag- rætt, mestur tími fór í að vera til. Sólin skein inn um gluggann á eld- húsinu á kvöldverðarborðið og yljaði í okkur sálina. Og krakkaskarinn söng í eldhúsinu í Miðhúsum fyrir Stebbu og Hans allt sem hann kunni. Við öll nutum þess besta sem heimilið hafði að bjóða. Það gerði hún sér far um; minnug eigin æsku vissi hún að það sem skiptir máli er að gleðja, því það er ekki fátæktin ein sem bugar heldur umkomuleysi og andleg fátækt. Þannig háði hún eigin krossferð gegn vesöld og ein- manaleika sem hún sá í kringum sig og gaf samferðafólki ríflega af því sem hún átti. Trúin var henni dýr- mæt og endurspeglaðist í lífsviðhorf- um, trúin gaf henni auðmýkt og æðruleysi, tillitssemi, virðingu fyrir gildum manninum æðri, aðgát í nær- veru sálar. Það gerði okkur að betri mann- eskjum að fá að umgangast Stefaníu og Hans. Guðsótti og góðir siðir sem reynt var að hafa fyrir okkur lærð- ust ekki fyrr en þeim var mætt hjá þeim hjónum; þeirra hóglátu um- vandanir höfðu dýpri áhrif en flestra annarra. Um leið og við minnumst góðrar konu viljum við þakka Hans og fjöl- skyldu fyrir góða samfylgd og biðj- um guð að vera með ykkur öllum og gefa ykkur styrk. Bestu kveðjur frá systkinunum í Vatnsfirði: Evlý, Höllu, Heiðu, Þor- valdi, Stefáni og Guðbrandi. Hallfríður Baldursdóttir. STEFANÍA FINNBOGADÓTTIR Við sem erum enn að slíta fyrsta aldarfjórð- ungnum förum oft í gegnum lífið á hlaup- um. Við hittumst stöku sinnum, köstum kveðju hver á annan og skipt- umst á loforðum að hittast nú fljót- lega og gera úr því alvöru að treysta vináttuböndin yfir kaffisopa. Slíkar voru kringumstæður ævinlega þegar ég hitti vin minn Hrafnkel Gunnars- son síðustu árin. Á hlaupabraut æsk- unnar gleymdi ég því sem máli skipt- ir, að rækta vini sína, að eyða tíma með þeim sem skipta mann máli. Hrafnkell Gunnarsson skipti mig svo sannarlega máli og öll hans fjöl- skylda. Sú fjölskylda sem nú syrgir fallin son og bróður reyndist fjöl- skyldu minni gífurleg stoð og stytta í okkar erfiðleikum og mikill kærleik- ur ríkti ætíð á milli okkar. Nú sitjum við orðlaus eftir. Engill er horfinn af jörðu. Ljósberi hefur yfirgefið okkur og við getum ekkert sagt. Í brjósti mér brýst harmur, harmur sem ég fæ ekki lýst, hvorki að umfangi né krafti. Þegar góður drengur eins og Hrafnkell er numinn á brott er eins og rauðglóandi ísnál sé stungið í brjóst okkar og við vitum ekki hvort við frjósum eða brennum upp. Hrafnkell kom ungur í sveitina til okkar á Skálá og ég vissi undir eins að þar var kominn drengur sem ég HRAFNKELL GUNNARSSON ✝ Hrafnkell Gunn-arsson fæddist í Kópavogi 22. sept- ember 1977. Hann lést á Landspítala í Fossvogi 21. júní síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Bú- staðakirkju 28. júní. kunni að meta. Hress, lífsglaður og með ein- dæmum gáfaður og rík- ur að ímyndunarafli. Margar stundirnar skemmtum við okkur við að bulla og hlæja að misgáfulegum hug- myndum sem ultu út úr okkar bernskumunn- um. Þessum stundum mun ég aldrei gleyma, né heldur þeim sem við áttum á Sogaveginum forðum og þeim örfáu stuttu augnablikum síðustu árin þegar tveir menn, svo handvissir um eigin ódauðleika föðmuðust og lofuðu hvor öðrum að hittast nú fljótlega og gera alvöru úr því að setjast yfir kaffibolla og ræða lífið, tilveruna og börnin. Við verðum að læra á hörmungunum í lífinu. Allir atburðir, góðir jafnt sem slæmir, hafa sína lexíu. Fyrir okkur vinina sem eftir standa er sú lexía að hlaupa ekki gegnum lífið, heldur staldra við og njóta þess sem maður hefur, góðra vina og fjöl- skyldu. Gunnar, Soffía, Haraldur Óli og Hildur Björg, það er fátt sem ég get sagt ykkur til huggunar. Í raun ekki neitt. Missirinn er sem myllusteinn á sálum okkar allra. En verið viss um að við munum aldrei gleyma Kela. Við munum aldrei gleyma þeim kær- leik sem milli okkar fjölskyldna ligg- ur. Við getum aðeins gefið ykkur okkar dýpstu samúð og von um að einhvern daginn muni örið sem þessi atlaga dauðans skilur eftir, verða okkur til minnis um góðan dreng frekar en hræðilegan missi. Svavar Knútur Kristinsson og fjölskylda. MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.