Morgunblaðið - 25.08.2001, Side 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 45
KOMIN er út námskrá Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar ríkisins fyrir
haustmisseri 2001. Í henni eru
kynnt tuttugu námskeið sem öll
fjalla um efni er tengjast fötlun
barna og ungmenna og eru ætluð
aðstandendum og starfsfólki sem
vinna með börnum með þroskafrá-
vik og fatlanir.
Efni námskeiðanna er af ýmsu
tagi. Má þar nefna ákveðnar teg-
undir fötlunar, s.s. einhverfu,
aspergers-heilkenni, downs-heil-
kenni og heilalömun og er á þeim
m.a. fjallað um eðli og áhrif fötl-
unarinnar, meðferð, þjálfun og
kennslu.
Einnig má nefna námskeið í
öðrum sérhæfðum meðferðarleið-
um, s.s. atferlismeðferð fyrir börn
með einhverfu, í notkun óhefðbund-
inna tjáskiptaleiða, s.s. tákn með
tali og blisstáknmáli, og kennsla í
notkun matstækja ætluð fagfólki.
Flest minni námskeiðin eru hald-
in í Gerðubergi og sækja þau að
jafnaði 30-40 manns. Lengd ein-
stakra námskeiða er á bilinu 8-24
kennslustundir.
Flestir leiðbeinendur á nám-
skeiðunum eru starfandi sérfræð-
ingar hjá greiningarstöð, en einnig
eru aðrir kallaðir til eftir efni
hverju sinni. Von er tveimur er-
lendum gestafyrirlesurum. Annars
vegar Ninu Lovaas sem heldur
námskeið um skrifuð orð sem tjá-
skiptatæki fyrir börn með ein-
hverfu í Gerðubergi 30. ágúst og
hins vegar dr. Mark Sigurjón
Innocenti, sem verður aðalfyrirles-
ari á námsstefnu um snemmtæka
íhlutun (early intervention) á
Grand Hóteli 9. til10. október.
Námskeiðin eru auglýst á heima-
síðunni: www.greining.is
Tuttugu námskeið á veg-
um Greiningarstöðvar
STJÓRN Sambands íslenskra
sveitarfélaga hvetur sveitarstjórnir
um land allt til að leggja sérstaka
áherslu á umfjöllun og aðgerðir
gegn sívaxandi fíkniefnanotkun
unglinga og jafnframt vinna skipu-
lega að fræðslu og forvörnum í
samvinnu við lögregluyfirvöld og
félagasamtök sem láta sig þessi mál
varða.
Fleiri háðir fíkniefnum
„Afleiðingin af sívaxandi smygli á
eiturlyfjum og aukinni athafnasemi
eiturlyfjasala í sölu og dreifingu er
fyrst og fremst sú að fleiri og fleiri
ungmenni verða háð notkun fíkni-
efna með öllum þeim hörmulegu af-
leiðingum sem því fylgja. Glæpir og
ofbeldi fara vaxandi, heimili eru
ekki lengur óhult fyrir innbrotum
og einstaklingar verða fyrir líkams-
árásum fíkniefnaneytenda í leit að
verðmætum til að fjármagna kaup á
eiturlyfjum,“ segir í frétt frá sam-
bandinu.
Tillögum hrint
í framkvæmd
„Í framhaldi af skýrslu starfs-
hóps Sambands íslenskra sveitar-
félaga um fíkniefnafræðslu og for-
varnir í grunn- og framhalds-
skólum, sem kynntar voru á síðasta
stjórnarfundi sambandsins, sam-
þykkir stjórnin að efna til sam-
starfs við menntamálaráðuneytið,
dómsmálaráðuneytið, áfengis- og
vímuvarnarráð, félagasamtök og
fyrirtæki í þeim tilgangi að hrinda í
framkvæmd tillögum starfshóps-
ins.“
Ályktað um fíkni-
efnavandann
FERÐAMÁLASAMTÖK
Vestmannaeyja harma
ákvörðun Flugfélags Íslands
að hætta flugi til Vestmanna-
eyja í haust. Var ályktun
þessa efnis samþykkt á fundi
samtakanna nýverið.
„Samtökin telja málið graf-
alvarlegt vegna áframhald-
andi búsetu í Vestmannaeyj-
um og fyrir ferðaþjónustuna
almennt. Samtökin skora á
Flugfélag Íslands að endur-
skoða ákvörðun sína og leita
allra leiða til að halda uppi
áætlunarflugi til og frá Vest-
mannaeyjum.“
Flugi til
Eyja verði
haldið
áfram
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Hlutastarf
Starfsmaður óskast í 40% starf við pökkun hjá
matvælafyrirtæki. Hentugur vinnutími.
Umsóknir sendist til auglýsingadeilar Mbl. fyrir
30. ágúst merktar: „Hlutastarf — 11534“.
Matreiðslumenn
Óskum eftir að ráða duglegan og áreiðanlegan
matreiðslumann.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Upplýsingar í símum 896 4773 og 891 8283.
Veitingahúsið Jenný við Grindavíkurveg.
Starfsfólk óskast nú þegar í afgreiðslu. Vinnu-
tími frá kl. 13—17 og frá kl. 13—18.30.
Nánari upplýsingar í símum 698 9542 og 699
3677.
Oddur bakari, Reykjavíkurvegi 62,
sími 555 4620.
Húsamálarinn
Per H. Villa, Noregi
óskar eftir fagfólki til málningarvinnu og
gólflagninga, frá ágúst/september.
Húsnæði útvegað. Fyrirtækið hefur 5 starfs-
menn og er í norðvestur Noregi.
Hafið samband við:
Maler Per H. Villa,
Skorgevik, 6390 Vestnes, Noregi.
Sími 00 959 22 062 eða 0047 711 81 388,
fax 00 47 711 81 477.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Miðstöð símenntunar
Prófanám
í samstarfi við Flensborgarskóla á
haustönn 2001.
Námið metið til eininga og kennt skv. námskrá
framhaldsskóla.
Grunnáfangar í íslensku, stærðfræði, ensku
og ítölsku, enska 403, spænska 103 og 503.
Innritun 27., 28. og 29. ágúst frá kl. 16—19.
Sími 585 5860.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið
Námskeið
vegna löggildingar fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasala
Námskeið fyrir þá, sem vilja öðlast löggildingu
sem fasteigna-, fyrirtækja- og skipaslar, skv.
lögum um fasteigna-, fyrirtækja- og skipasölu,
er áætlað að hefjist 18. september nk.
Námskeiðið verður því aðeins haldið að næg
þátttaka fáist. Kostnaður vegna námskeiða og
prófa greiðist með námskeiðs- og prófgjöldum.
Fjárhæð gjalda hefur ekki verið ákveðin, en
hún ræðst af fjölda þátttakenda á námskeið-
inu.
Umsóknir um þátttöku sendist á þar til gerðu
eyðublaði, sem er á heimasíðu dómsmálaráðu-
neytis: www.domsmalaraduneyti.is undir liðn-
um upplýsingar - ýmislegt og í afgreiðslu ráðu-
neytisins, Arnarhvoli, Lindargötu.
Umsóknir skulu sendar fyrir 4. september
nk. til ritara prófnefndar, Eyvindar G. Gunnars-
sonar hdl., Hamraborg 10, Kópavogi, eða með
faxi í númer 555 6045 eða með tölvupósti á
netfangið egg@tax.is .
Reykjavík, 23. ágúst 2001.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
NAUÐUNGARSALA
Nauðungarsölur
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1,
Sauðárkróki, fimmtudaginn 30. ágúst 2001, kl. 14.00, á eftir-
töldum eignum:
Klausturbrekka, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Steins Sigurðs-
sonar. Gerðarbeiðandi er Guðlaug Kristófersdóttir.
Lindargata 3 n.h., Sauðárkróki, þingl. eign Hótels Tindastóls ehf.
Gerðarbeiðandi er Byggðastofnun.
Lindargata 3 e.h., Sauðárkróki, þingl eign Hótels Tindastóls ehf.
Gerðarbeiðandi er Byggðastofnun.
Ljótsstaðir, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Jarðasjóðs ríkisins.
Gerðarbeiðandi er Lánasjóður ríkisins.
Syðri—breið, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Kjartans Björg-
vinssonar. Gerðarbeiðendur eru Íbúðalánasjóður og Búnaðarbanki
Íslands hf.
Sæmundargata 5G, Sauðárkróki, þingl. eign. B.A.D. ehf. Gerðarbeið-
andi er sýslumaðurinn á Sauðárkróki.
Víðigrund 6, 0302, 3.h.t.v., Sauðárkróki, þingl. eign Valgerðar Sig-
tryggsdóttur. Gerðarbeiðandi er Íbúðalánasjóður.
Víðigrund 28, 0303, 2.h.t.h., Sauðárkróki, þingl. eign Ágústu Sigur-
bjargar Ingólfsdóttur. Gerðarbeiandi er Íbúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
23. ágúst 2001.
SUMAR- OG ORLOFSHÚS
Sumarbústaðalóðir
í Biskupstungum
Á Reykjavöllum er nýtt sumarbústaðahverfi.
Þar er ævintýralegt útsýni yfir Ármót og til jökla
og Heklu. Lóðirnar eru leigulóðir og eru ca 1/2
ha að stærð. Innifalið í stofngjaldi er vegur og
lagnir fyrir heitt og kalt vatn að lóðarmörkum
og heildargirðing umhverfis hverfið. Innifalið
er tengigjald fyrir heitt vatn.
Boðið er upp á aðstöðu fyrir báta við Tungufljót.
Greiðslukjör. Verið velkomin að skoða.
Uppýsingar í símum 897 3838 og 861 8689.
TILKYNNINGAR
25% afsláttur af ættfræðirit-
um, 50% af öðrum bókum.
Gott úrval bóka við allra hæfi.
Gvendur dúllari, fornbókasala,
Kolaportinu, sími 898 9475.
Hefur þú séð þessa bifreið?
Bifreiðinni JF-831, sem er blágræn Toyota
Corolla XLI sedan ´95, var stolið af bílasölu
þann 16. júlí sl. Þeir sem geta gefið upplýsingar
um bifreiðina, vinsamlega látið lögregluna í
Reykjavík vita.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF Er kominn aftur
Heilun og ráðgjöf og fyrri lífs
heilun. Brynjar (á kvöldin) í
s. 551 0682.
Sunnudagsferð 26. ágúst kl.
10.30.
Reykjavegur 7. ferð.
Bláfjöll - Lambafell.
Gengið austan Bláfjalla. Um 6
klst. ganga. Verð 1.500 kr. f. fé-
laga og 1.700 kr. f. aðra. Brottför
frá BSÍ. Stansað við Select.
Miðar í farmiðasölu. Fararstjóri
Gunnar H. Hjálmarsson.
mbl.is
ÍÞRÓTTIR