Morgunblaðið - 25.08.2001, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt dálítið bágt með þig í
fjölmenni og þarft að taka
þér tak svo þú getir um-
gengist annað fólk af öryggi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu þeim leyndarmálum
sem þér hefur verið trúað fyr-
ir fyllstu virðingu og geymdu
þau hjá þér. Sá eini sem tapar
á lausmælgi ert þú sjálfur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Streitan er farin að taka sinn
toll svo nú þarftu að staldra
við og athuga heilsufar þitt því
takmarkið er heilbrigð sál í
hraustum líkama.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einbeittu þér að einhverju
uppbyggilegu í stað þess að
sitja og naga neglurnar yfir
glötuðum tækifærum. Þau
koma hvort eð er ekkert aftur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Taktu þér tíma til þess að
hugleiða hvað reynsla síðustu
daga hefur kennt þér. Það
sem í fyrstu leit út fyrir að
vera hrikalegt áfall hefur
reynst þér til blessunar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Kastaðu frá þér öllum göml-
um fordómum og gakktu opn-
um huga til móts við framtíð-
ina. Það væri ekki verra að
taka upp þráðinn við gamlan
vin.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú munt gangast undir ein-
hverskonar þolraun í dag en
þarft út af fyrir sig ekki að
hafa af því neinar áhyggjur
því þú ert vel undir hana bú-
inn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu ekki að slá ryki í aug-
un á fólki. Þú stjórnast ekki
aðeins af góðvild heldur kem-
ur þú líka til með að hafa
hagnað af fyrirtækinu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einbeittu þér að þeim hlutum
sem þú kemst auðveldlega yf-
ir og getur leyst svo vel fari.
Við annað skaltu leita þér
nauðsynlegrar aðstoðar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft ekki að bera allar
syndir heimsins. Það er nóg
að þú hafir stjórn á eigin mál-
um svo að þú skalt láta aðra
um sín og ekki reyna að hafa
stjórn á þeim líka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu það ekki draga úr gleði
þinni þótt allir í kringum þig
séu ekki viðhlæjendur þínir
því máltækið segir að ekki séu
allir viðhlæjendur vinir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Sjaldan er ríkari ástæða til að
gæta heilsu sinnar en þegar
streitan er í algleymingi.
Reyndu að leita jafnvægis og
forðast öfgar á hvern veginn
sem er.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Farðu varlega í öll kynni af
ókunnugum því ef þú ferð of
geyst verða vonbrigðin þeim
mun sárari þegar í ljós kemur
að misjafn er sauður í mörgu
fé.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STAÐAN kom upp á Inline
Czechia Cup mótinu í
skákhátíðinni í Olomouc er
lauk fyrir skömmu. Páll
Agnar Þórarinsson (2149)
hafði svart gegn tékknesku
skákkonunn Veru Med-
unovu (2225). 27... Rxc3! 28.
Dc4 Rxe2 29. Dxe2
Hfe8 30. Df2 Hd3
31. h4 Bxg3+ 32.
Hxg3 He2! og hvítur
gafst upp enda verð-
ur hann mát eftir 33.
Dxe2 Dxg3#. Mikið
er um að vera í ís-
lensku skáklífi um
þessar mundir. Tafl-
félagið Hellir heldur
afmælismót sitt í
dag, 25 ágúst, en
félagið varð 10 ára
fyrr á árinu. Hrað-
skákkeppni tafl-
félaga stendur sem hæst en
Hellir hefur veg og vanda að
framkvæmd hennar. 26.
ágúst kl. 20 hefst 6. bikar-
mót Hellis, Striksins og Ís-
landssíma en mótið fer fram
á ICC. Tveir ungir íslenskir
skákmenn standa nú í stór-
ræðum í Aþenu í Grikklandi.
Þar fer fram Heimsmeist-
aramót 20 ára og yngri.
Hægt er að fylgjast með
gangi mála á skak.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÖRLÖGIN ætla NS að spila
fjóra spaða, en það veltur
síðan á kjarki mótherjanna
hvort sá samningur spilast
doblaður eða ódoblaður.
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ G7
♥ G64
♦ ÁG73
♣ ÁD52
Vestur Austur
♠ ÁD ♠ 42
♥ 10 ♥ ÁD9752
♦ K862 ♦ D10954
♣ G109874 ♣ --
Suður
♠ K1098653
♥ K83
♦ --
♣ K63
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull 1 hjarta 1 spaði
3 lauf Dobl 3 hjörtu 4 spaðar
Pass Pass Dobl Allir pass
Þannig gengu sagnir á
einu borði í sumarbrids í
Húnabúð síðastliðið mánu-
dagskvöld. Í AV voru mæðg-
inin Erla Sigurjónsdóttir og
Guðni Ingvarsson. Guðni var
í austur og strögglaði á
hjarta við eðlilegri tígulopn-
un norðurs. Erla lætur yfir-
leitt ekki sitt eftir liggja í
sögnum og hleypti fjöri í
leikinn með hindrunarstökki
í þrjú lauf. Guðna leist ekki
vel á þann samning doblaðan
og breytti í þrjú hjörtu, en þá
leiddist suðri þófið og tók af
skarið með stökki í fjóra
spaða.
Guðni á ekki sterk spil, en
mikla varnarmöguleika í
ljósi sagna. Hann doblaði
því. Erla kom út með einspil-
ið í hjarta og trompaði næsta
slag með drottningunni. Hún
skipti yfir í lauf, sem Guðni
trompaði. Enn hjarta og
Erla tromapði með ás og gaf
Guðna aðra laufstungu.
Tveir niður og toppur, því
enginn annar hafði doblað
fjóra spaða.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 25.
ágúst, er sjötug Bára Jóns-
dóttir, Álfaskeiði 96, Hafn-
arfirði. Af því tilefni taka
hún og eiginmaður hennar,
Sigurður Hjartarson, á móti
ættingjum og vinum í dag kl.
17–20 á veitingastaðnum
Carpe Diem, Rauðarárstíg
18, Reykjavík
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 26. ágúst, verður áttræð-
ur Friðgeir Eiríksson,
Mávahlíð 28, Reykjavík. Af
því tilefni tekur hann á móti
vinum og ættingjum í Vík-
ingasal Hótels Loftleiða á
afmælisdaginn milli kl. 15–
18.
85 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 25.
ágúst, verður 85 ára Vigdís
S. Ólafsdóttir, Lindargötu
61, Reykjavík. Vigdís er að
heiman í dag.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
LJÓÐABROT
ÞJÓÐVÍSA
Ég hélt ég væri smámey og hugðist vera til
eins og hitt fólkið um bæinn.
Og vorið kom og glóði um glugga mína og þil
allan guðslangan daginn.
Og sextán ára varð ég á vegi hins unga manns.
Þá lá vorið yfir sænum.
Og sumarnætur margar ég svaf í örmum hans.
Ég var sælust allra í bænum.
En vindar hafa borið margt visnað skógarblað
um veginn, sem við gengum,
því meðan hjörtun sofa, býst sorgin heiman að,
og sorgin gleymir engum.
– – –
Tómas Guðmundsson.
Hlutavelta
Árnað heilla
Þessir duglegu drengir héldu nýlega hlutaveltu á Ak-
ureyri til styrktar krabbameinssjúkum börnum og söfn-
uðust 5.015 krónur. Þeir heita Stefán Bragi Þorgeirs-
son og Stefán Ernir Valmundarson.
UM HELGINA verður ýmislegt í
boði fyrir gesti þjóðgarðsins á
Þingvöllum.
Í dag, laugardag, verður barna-
stund í furulundinum þar sem nátt-
úran verður skoðuð í gegnum leiki,
liti og lúpur. Safnast verður saman
við furulundinn klukkan 13.
Á sunnudag klukkan 14 verður
gönguferð í Skógarkot. Þar verður
rifjuð upp búsetusaga í Þingvalla-
hrauni og náttúra Þingvallasvæð-
isins. Gangan tekur um 2-3 klukku-
stundir og lagt verður af stað frá
þjónustumiðstöð. Gangan er hluti
af göngudegi fjölskyldunnar á veg-
um Ferðafélags Íslands og
SPRON.
Á sama tíma hefst guðsþjónusta í
Þingvallakirkju þar sem sr. Þórey
Guðmundsdóttir messar og Guð-
mundur Vilhjálmsson leikur á org-
el. Að lokinni guðsþjónustu verður
þinghelgarganga þar sem farið
verður um þingstaðinn forna og
saga þings og þjóðar verður reifuð.
Þinghelgargangan hefst klukkan 15
við kirkju.
Gönguferðir
og barnagaman
á Þingvöllum
FRÉTTIR
Í ÁGÚST ætlar Prentsmiðjan Oddi
hf. að gefa 10 kr. af verði hverrar
seldrar pakkningar af Odda-fjöl-
notapappír til skógræktar. Féð
rennur til skáta sem reka sumarbúð-
ir fyrir ungt fólk við Úlfljótsvatn og
skal notað til skógræktar á staðnum.
Oddi var fyrst íslenskra fyrir-
tækja til að vinna umhverfisverðlaun
Reykjavíkurborgar árið 1997. Odda-
fjölnotapappír er unninn úr nytja-
skógum en það þýðir að fyrir hvert
eitt tré sem höggvið er og notað til
pappírsgerðar er þremur plantað í
staðinn.
Oddi styrkir
skógrækt skáta
við Úlfljótsvatn
♦ ♦ ♦
OLÍS hefur sagt tyggjóklessum
stríð á hendur. Í fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu segir að teknar hafi
verið í notkun sérstakar tyggjósköf-
ur á öllum helstu þjónustustöðvum
Olís. Markmiði fyrirtækisins sé að
engar tyggjóklessur verði að finna
við stöðvarnar.
Olís vinnur gegn
tyggjóklessum
FUNDUR um nýja möguleika í við-
skiptum Póllands og Íslands verður
haldinn í húsakynnum Verslunar-
ráðs Íslands mánudaginn 27. ágúst
2001 kl. 14.45.
Á fundinn koma fulltrúar pólskra
stjórnvalda og fjalla um samninga-
viðræður Pólverja við Evrópusam-
bandið og möguleika Íslendinga á
samstarfi á sviði sjávarútvegs.
Fulltrúar pólsks og íslensks at-
vinnulífs verða ennfremur með um-
fjöllun um reynslu sína af viðskipt-
um og möguleika á frekara sam-
starfi.
Verslunarráð Íslands hefur á síð-
ustu árum haldið reglulega fundi
um viðskipti Íslands og Póllands í
samstarfi við pólska sendiráðið og
ræðismann Póllands á Íslandi.
Þessir fundir hafa allir verið sérlega
áhugaverðir fyrir íslensk fyrirtæki.
Tækifæri skapast fyrir
íslensk fyrirtæki með
aðild Póllands að ESB
Jákvætt námskeið
um hjónaband og sambúð
í Hafnarfjarðarkirkju
6. árið í röð
Skráning er hafin á hið feikivinsæla hjóna-
námskeið Hafnarfjarðarkirkju sem yfir 4000
manns hafa tekið þátt í
frá árinu 1996.
Á námskeiðinu er fjallað um samskipti hjóna,
leiðir til að styrkja hjónabandið
orsakir sambúðarerfiðleika, leiðir út úr víta-
hring deilna og átaka, ólíkar fjölskyldugerðir,
ástina, kynlífið, hamingjuna og börnin
fyrir utan allt hitt
Aðeins 15 pör komast á hvert námskeið. Skráningar-
sími er 555 1295 á skrifstofutíma alla virka daga
og hefst skráning mánudaginn 27. ágúst.
Leiðbeinandi á
námskeiðinu er
sr. Þórhallur Heimisson,
Hafnarfjarðarkirkju, en
hann hefur mikla reynslu
af fjölskyldustarfi.