Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 53

Morgunblaðið - 25.08.2001, Síða 53
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 53 UMRÆDDIR kveðjutónleikar eru haldnir vegna þess að þeir Árni Heið- ar og Andrés Þór eru á leið utan í nám. „Ég er að fara í áframhaldandi nám í Hollandi. Ég var þar í fyrra og er að fara aftur í vetur,“ segir Andrés Þór. „Við erum að fara að kveðja hvor annan og alla aðra.“ „Ég er að fara í framhaldsnám í Cincinatti í Ohio í Bandaríkjunum,“ segir Árni Heiðar og bætir við: „Þar var Jerry Springer einmitt borgar- stjóri.“ Með Árna og Andési koma fram þeir Tómas R. Einarsson og Erik Qvick. „Hljómsveitin er sett saman fyrir tónleikana og heitir í rauninni ekki neitt,“ upplýsir Árni Heiðar. „Já, nema kannski bara Good Bye Big Band,“ grínar Andrés. Enginn drungi yfir tónleikunum Hvaða tónlist ætlið þið svo að spila í kvöld? „Við ætlum að spila lög eftir okkur báða,“ svarar Andrés að bragði. „Árni gaf nýverið út geisladiskinn Q og við munum taka lög af honum. Svo ætlum við líka að taka svona uppáhaldslög hljómsveitarinnar með- al annars með George Benson og bara allt það sem okkur finnst gaman að spila.“ „Já, það verður enginn drungi yfir tónleikunum,“ samsinnir Árni. „Það verður svona Hardbop og ECM-stíll á tón leikunum. Þeir sem vita hvað það er vita að hverju þeir ganga, hinir sem eru forvitnir geta svalað forvitninni með því að mæta.“ „Já, við hvetjum alla til að mæta því við spilum ekki aftur hér á landi fyrr en kannski næsta sumar,“ segir Andrés að lokum. Þeim, sem vilja kveðja þá Árna Heiðar og Andrés Þór eða kynnast tónlist þeirra, er bent á að tónleikarn- ir byrja klukkan 9 en húsið verður opnað kl. 8. Aðgangseyrir er 1.000 krónur. Það sem okkur finnst gaman að spila Morgunblaðið/Þorkell Andrés Þór, Árni Heiðar, Tómas og Erik. Annað kvöld ætla þeir Árni Heiðar Karlsson og Andrés Þór Gunn- laugsson að halda kveðjutónleika í Húsi málarans. Birta Björns- dóttir náði tali af þeim á æfingu. birta@mbl.is JARÐARFARIR eru ekki lengur nauðsynlega leiðinlegar eða sorgleg- ar. Hin barnunga sveit The Funerals hefur lagt sitt af mörkum, með nafn- giftinni einni saman, til að ljá þessum dauðadæmdu athöfnum mannúð- legri blæ. Það ber þó ekki að skilja það þann- ig að hér sé hópur manna að vola yfir þeim óumflýjanlegu örlögum sem bíða allra manna, a.m.k. ekki nema málefnið sé þeim hugleikið nú þegar. Hér er um að ræða einfalda, kassagítarsdrifna, heiðarlega og hugljúfa tóna sem mynda eins konar disk undir naktar sungnar stað- reyndir úr einkalífi liðsmanna. En hverjir eru þessir menn? Kofi Dodda frænda „Þetta eru menn úr ýmsum áttum sem hafa bara hingað til verið góðir kunningjar,“ útskýrir Ragnar Kjart- ansson, gítarleikari og söngvari sveitarinnar. „Þetta byrjaði með því að ég og Doddi, sem er með mér í hljómsveitinni Kanada, höfum oft þegar við hittumst tekið upp kassa- gítar og búið til einhverja mæðu- söngva um það sem er að gerast í lífi okkar. Þetta hefur bara verið svona leið hjá okkur til þess að láta okkur líða betur. Okkur langaði svo til að taka þetta upp og búa til smáhljóm- sveit í kringum þetta. Við höfðum samband við þessa eðalmenn, sem eru Ólafur Jónsson, Toggi (Þorgeir Guðmundsson) og Viddi (Viðar Há- kon Gíslason). Við fórum allir saman í litla kofann hans Dodda í Hvammi í Borgarfirði. Þetta er pínulítill kofi sem afi hans byggði árið 1940 eða eitthvað. Það er ekkert rafmagn þar og ótrúlega falleg stemmning. Við tókum með okkur bensínknúna raf- stöð og fylltum kofann af hljóðfær- um. Það er algjör „mega-rómantík“ þarna inni, brjáluð fúkkalykt og stemmning. Svo byrjuðum við fyrsta kvöldið, föstudagskvöldið, á því að æfa saman, það endaði í rifrildi og ósköpum. Síðan urðu allir ótrúlegir vinir á laugardeginum og við byrj- uðum á því að taka upp þessa plötu, tókum upp sjö lög á tveimur dögum. Við æfðum þau og tókum þau svo jafnóðum upp.“ Takið þið á mjög persónulegum málefnum í textunum? „Jú, við tökum þarna á ýmsum persónulegum málefnum. Þetta er bara eitthvað voðalega gott fyrir sál- ina að gera svona tónlist.“ Vaknaðu, Doddi! Vaknaðu! Nú þykist ég vita að þið sækið inn- blástur í lagasmíðar Johnnys Cash. „Jú, alveg ógeðslega mikið. Við dýrkum hann alveg. Svo er Toggi með rödd eins og hann þegar hann syngur.“ Nú? En syngur þú ekki flest lögin sjálfur? „Jú, núna. En það á að bæta úr því. Það er allt morandi í góðum söngv- urum í þessari hljómsveit. Svo bætt- ist við einn meðlimur um þessa helgi í kofanum. Á laugardagskvöldið kíkti Lára, kærastan hans Dodda, í heim- sókn. Doddi var orðinn svo þreyttur og skelfdur að hann fór bara upp í rúm að sofa með Láru. Við gátum svo ekki vakið hann aftur þegar okkur vantaði aukasöngvara, þannig að við vöktum hana bara í staðinn. Hún tók því upp með okkur eitt lag. Hún er alveg frábær söngkona.“ Ætlið þið að taka upp meira efni á plötuna áður en þið ráðist í útgáfu? „Já, við ætlum bara að prófa að taka upp aðeins meira og sjá svo bara hvernig það verður. Þetta er allt saman svo afslappað og skemmtilegt, það kemur í ljós síðar hvort það verða bara þessi sjö sem við tókum upp síðast sem enda á plötunni eða fleiri. Við ætlum a.m.k. að prófa. Það gæti líka verið mjög skemmtilegt að þetta sé bara svona ein helgi uppi í sumarbústað, – falleg hugmyndafræði á plötu. Við eigum alveg fullt af lögum. Svo eru að koma upp úr kántrí-kistum allra einhver falleg lög,“ segir Ragnar að lokum. Í kvöld gefst svo áhugasömum kostur á að sjá hljómsveitina á tón- leikum í Kaffileikhúsinu. Þeir hefjast kl. 21 og ætla liðsmenn að opna hjarta sitt upp á gátt og bjóða gesti og gangandi velkomna þangað inn. The Funerals halda tónleika í Kaffileikhúsinu í kvöld Fallegar jarðar- farir biggi@mbl.is ÞAÐ ERU hinar einu sönnu Borg- ardætur sem ætla að skemmta gest- um Jómfrúarinnar í dag eins og þeim einum er lagið. Eins og flestir vita eru það söng- konurnar Andrea Gylfadóttir, Berg- lind Björk Jónasdóttir og Ellen Kristjánsdóttir sem mynda tríóið umrædda. Smurbrauðsveitingahúsið Jómfrúin hefur staðið fyrir laug- ardagstónleikum í allt sumar og er röðin nú komin að Borgardætrunum að skemmta gestum og gangandi. Það hefur ekki mikið farið fyrir þeim stöllum undanfarið en segjast þær þó alltaf koma fram öðru hverju. Þær gáfu út plötuna Jólaplata fyr- ir síðustu jól og komu mikið fram í kringum útgáfu hennar. Að sögn Andreu Gylfadóttur hafa þær svo verið að syngja í veislum auk þess sem þær komu nokkrum sinnum fram á Kringlukránni fyrr á árinu. Aðspurð um hvað sé framundan hjá þeim Borgardætrum svarar Andrea: „Við erum á leiðinni til Washington í október til að syngja þar og svo sjáum við bara til hvað setur.“ Borgardæturnar Andrea, Ellen og Berglind Björk ætla í dag að syngja blöndu af þeirri tónlist sem þær hafa flutt í gegnum tíðina. Tónleikarnir fara fram undir ber- um himni, ef veður leyfir, en ef veð- urguðirnir verða þeim ekki hliðholl- ir verða herlegheitin flutt inn fyrir dyr Jómfrúarinnar. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og standa í tvo klukkutíma. Borgardætur syngja á Jómfrúnni í dag Tveggja tíma blanda Borgardætur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.