Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÖruggur sigur feðganna / B11 Eiður Smári er ekki til sölu / B1 12 SÍÐUR40 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM Með Morgun- blaðinu í dag fylgir blað frá Jazzhátíð Reykjavíkur. Blaðinu verður dreift á suð- vesturhorninu. BRÆÐURNIR Bjarni og Brynjólfur Eyvindssynir brugðu sér í göngu- ferð á Esjuna sl. laugardag, 1. sept- ember, og gengu þá fram á snjóskafl í austanverðu fjallinu, sem hefur náð að tóra af sumarið. Að sögn Bjarna er skaflinn um 250 til 300 fermetrar að stærð. Esjan hreinsaði sig alveg af snjó fyrir þremur árum í fyrsta skipti í rúm 30 ár og að sögn Bjarna er alls ekki útilokað að svo verði einnig í ár, því það drýpur vel úr skaflinum, sem hörfar hratt og verður hugsanlega horfinn með öllu þegar fer að frysta. Morgunblaðið/Bjarni Eyvindsson Brynjólfur Eyvindsson við snjóskaflinn í austurhlíðum Esjunnar. Síðasti snjóskafl Esjunnar HÆSTIRÉTTUR féllst í gær á kröfu manns um að lögreglan í Reykjavík afhenti honum endurrit fjögurra úrskurða um símhleranir á tímabilinu frá 1995 til maí á þessu ári. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað þessari kröfu en Hæsti- réttur segir að embætti lögreglu- stjórans í Reykjavík bresti heimild til að synja manninum um aðgang að umræddum úrskurðum. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að maðurinn var handtekinn 12. des- ember sl. vegna gruns um refsiverða aðild að hvarfi karlmanns, sem sakn- að hefur verið frá árinu 1992. Var maðurinn yfirheyrður vegna þess máls sem sakborningur daginn sem hann var handtekinn og þann næsta. Fram kemur í dómnum að af gögnum málsins sé ljóst að maður- inn sé enn grunaður um að eiga aðild að mannshvarfinu. Liggi meðal ann- ars frammi bréf lögreglunnar til verjanda mannsins frá því í maí, þar sem fram kemur að rannsókn máls- ins sé ekki lokið og muni honum verða gert viðvart ef og þegar rann- sókn á hendur honum verði hætt. Ekkert liggi fyrir um það í málinu að manninum hafi borist slík tilkynn- ing. Hæstiréttur segir m.a. að túlka eigi ákvæði laga um meðferð opin- berra mála með hliðsjón af þeirri meginreglu að verjandi skuli fá end- urrit gagna jafnskjótt og unnt er. Þá hafi lögreglan ekki sýnt fram á að það myndi skaða rannsóknarhags- muni málsins ef endurrit ofan- greindra fjögurra úrskurða yrði af- hent, en almenn staðhæfing þessa efnis nægi ekki. Gert að afhenda endurrit símhler- unarúrskurða RÁÐSTEFNA utanríkisráðuneyt- isins fyrir kjörræðismenn Íslands stendur nú yfir. Hún er sú fimmta af þessu tagi en áður voru sambærilegar ráðstefnur haldnar árin 1971, 1977, 1986 og 1995. Meginmarkmiðið með ráð- stefnu af þessu tagi er að auka þekkingu og skilning ræðismanna á Íslandi og íslenskum hags- munum, svo og til að efla tengsl þeirra við starfsfólk utanríkis- ráðuneytisins og hagsmunaaðila á sviði viðskipta og ferðaþjónustu. Eru 140 af 240 ræðismönnum mættir á ráðstefnuna ásamt mök- um sínum. Að sögn Hannesar Heimissonar var ákveðið að tími væri til kom- inn að halda ráðstefnu nú, þar sem nýliðun meðal kjörræðis- manna væri 40% síðan síðasta ráðstefna var haldin 1995. Hann sagði að ráðstefnan hefði gengið vel, utanríkisráðherra hefði sett hana í gærmorgun og Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneyt- isstjóri hefði síðan verið með inn- legg um utanríkisþjónustuna, hlutverk ræðismanna og hvað við gætum gert til að nýta þá betur. „Við höfum á síðustu tveimur ár- um verið að bæta upplýs- ingaflæðið til ræðismanna og við viljum virkja þá betur; upplýsa þá betur um það sem er hér í gangi, og höfum verið með eitt og annað á prjónunum í því skyni.“ Jón Ásbergsson, fram- kvæmdastjóri Útflutningsráðs, opnaði fyrirtækjasýningu á Grand Hóteli, þar sem ráðstefnan er haldin. Kynna um 50 fyrirtæki starfsemi sína þar og hafa ræð- ismennirnir haft tækifæri til að skoða básana í kaffihléum. Ræðismennirnir snæddu hádeg- isverð í boði borgarstjóra, Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, í Listasafni Reykjavíkur. Eftir hádegisverð héldu ýmsir erindi, svo sem Bjarni Ármanns- son, forstjóri Íslandsbanka, Guð- finna S. Bjarnadóttir, rektor Há- skólans í Reykjavík, Geir Haarde fjármálaráðherra og Kári Stef- ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar. Fundinum lýkur á morgun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ræðismenn Íslands frá öllum heimshornum hlýða á erindi á Grand Hóteli. Kjörræðismenn Íslands á tveggja daga ráðstefnu Kynna sér íslensk málefni STUÐNINGUR við ríkisstjórnina mælist nú 61% skv. nýrri skoðana- könnun Gallup sem gerð var í ágúst, og hefur aukist úr 55% frá síðustu könnun sem gerð var í júlí. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur vaxið og mælist nú 43% en var 41% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknar- flokksins er óbreytt frá síðustu könnun eða 14%. Stuðningur við Samfylkinguna minnkar og hefur hún nú 17% fylgi en hafði 20% í júlí- könnun Gallup. Fylgi Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs er 23% nú og stendur í stað milli mánaða. Frjálslyndi flokkurinn mælist með 2% fylgi. 22% þátttakenda voru óviss eða neituðu að svara og rúm 6% sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa færu kosningar fram nú. Stuðningur við ríkis- stjórnina eykst Fylgiskönnun Gallup KONA á þrítugsaldri var flutt á neyðarmóttöku Landspítalans í Fossvogi á sunnudag vegna gruns um að henni hefði verið nauðgað í sumarbústað í Biskupstungum í Ár- nessýslu aðfaranótt sunnudags. Gleðskapur var í sumarbústaðnum og tilkynnti einn gestanna málið til lögreglunnar á Selfossi á sunnudags- morgun. Lögreglan yfirheyrði tvo menn á staðnum en einn maður er grunaður um verknaðinn. Málið er í rannsókn en ekki hefur borist form- leg kæra vegna þess. Grunaður um nauðgun í sumarbústað LYKTIR 28 sakamála sem efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra höfðaði fyrir dómi á árinu 2000 urðu þær að sakfellt var í öllum málunum, en tvö mál þar fyrir utan enduðu með sýknudómi, samkvæmt upplýs- ingum frá efnahagsbrotadeild. Í þeim málum sem enduðu með sakfellingu sættu 30 ein- staklingar ákæru efnahags- brotadeildar, einkum fyrir skattalagabrot. Til samanburð- ar má nefna að sýknað var í einu ákærumáli af 48 árið 1999. Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra fer með rannsókn og saksókn alvarlegra fjár- munabrota, en auk þess annast deildin rannsókn og meðferð tilkynninga vegna grunsemda um peningaþvætti. Sýknað í tveimur málum en sakfellt í 28 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.